Morgunblaðið - 25.06.1978, Qupperneq 25
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 25. JÚNÍ 1978
25
Þetta vill Sjálf-
stæðisflokkurinn
Eflum framtak einstaklingsins
Það er stefna Sjálfstæðisflokksins að efla frjálst framtak
einstaklinganna — og samtaka þeirra — í atvinnuvegum
þjóðarbúsins. Frjáls hagkerfi hagnýtir frumkvæði, hugvit og
atorku einstaklingsins: lætur hann bera ábyrgð gerða sinna og
njóta ávaxtar verka sinna. Það beinir atorku og fjármagni að
þeim viðfangsefnum, sem færa þjóðinni mestan arð, og tryggir
neytendum þá vöru og þjónustu, er þeir kjósa helzt. .
Iðnaður — atvinnuvegur næstu
framtíðar
Ljóst er að iðnaður verður að taka við meginþorra þeirra
nýju starfskrafta, sem leita á íslenzkan vinnumarkað á næstu
árum og áratugum. Það er því brýn nauðsyn að hlýa að
islenzkum iðnaði og skapa honum sem bezt vaxtarskilyrði.
Iðnaðurinn verður að njóta sömu aðstöðu og kjara við
fjármagnsfyrirgreiðslu og aðrir atvinnuvegir. Efla þarf sölu og
markaðsstarfsemi á sviði útflutningsiðnaðar og skapa
Iðntæknistofnun góð starfsskilyrði.
Afkoma bænda tryggð
Landbúnaður hefur verið einn af undirstöðuatvinnuvegum
þjóðarinnar frá öndverðu. Svo er enn, auk þess sem hann er
'mikilvægur hráefnagjafi íslenzks iðnaðar.
Sjálfstæðisflokkurinn vill tryggja bændum sambærilega
afkomu og öðrum landsmönnum og kanna nýjar leiðir til að
bæta lífskjör þeirra. Flokkurinn leggur áherzlu á að við
endurskoðun laga um framleiðsluráð landbúnaðarins verði
reynt að leysa vanda offramleiðslu í landbúnaði. Ennfremur
á Markaðsrannsóknir og gerð víðtækra framleiðsluáætlana í
landbúnaði.
Næg og ódýr orka
Sjálfstæðisflokkurinn vill tryggja íslendingum næga og
ódýra orku. Sjálfstæðisflokkurinn hefur haft forystu um
stórátak í hitaveitumálum, sem spannar flesta landshluta, og
hefur fært fleirum heimilum jarðvarma til húshitunar en
nokkru sinni fyrir Hitaveituframkvæmdir á líðandi kjörtíma-
bili eru þær stærstu sinnar tegundar í þjóðarsögunni, að
undanskildu frumkvæði borgarstjórnarflokks sjálfstæðis-
manna í Reykjavík í þessu efni.
Sjálfstæðisflokkurinn vill samtengingu og samhæfingu allra
rafveitna landsins, til að tryggja rekstraröryggi og hagkvæmni.
í skipulagi raforkumála vili hann jafnframt stefna að auknum
áhrifum einstakra landshluta á ákvarðanir í orkumálum, um
framkvæmdir og stjórnun. Tryggja þarf innlendum atvinnu-
rekstri raforku á sem beztum kjörum. Við nýtingu auðlinda
lands og lagar skal ætíð gæta fyllstu náttúruverndarsjónar-
miða.
Náttúruvernd
Sjálfstæðisflokkurinn vill beita sér fyrir náttúru- og
umhverfisvernd; að þjóðin læri að lifa i sátt við land sitt og
umhcerfi. Hann vill stuðla að uppgræðslu og gróðurvernd og
stóraukinni almennri fræðslu um íslenzka náttúru og vistkerfi
landsins
Heilsugæzla
Fullkomin heilbrigðisþjónusta og heilsugæzla fyrir alla
landsmenn er forsenda nútíma þjóðfélags. Sjálfstæðisflokkur-
inn vill stefna að þessu marki, m.a. með uppbyggingu
heilsugæzlustöðva og skipulagningu sérfræðiþjónustu á sem
flestum sviðum fyrir landið allt. Efla þarf heilsuvernd og
fyrirbyggjandi aðgerðir og starf sem snýr að hollustu háttum
almennings.
Almannatryggingar og lífeyrisréttindi
Sjálfstæðisflokkurinn styður endurskipulangingu lífeyris-
kerfis landsmanna, sem tryggi öllum lífeyrisþegnun viðundandi
heildarlífeyri, er fylgi þróun kaupgjalds á hverjum tíma.
Sjálfstæðisflokkurinn telur að löggjöfin um almannatrygg-
ingar þurfi að vera í stöðugri endurskoðun sem miði að því
að aðstoð alrnannatrygginga nýtist fyrst og fremst þeim, sem
raunverulega þurfa á henni að halda.
Samráð um kjaramál
Sjálfstæðisflokkurinn vill að baráttan gegn verðbólgu sitji
í fyrirrúmi fyrir öllu öðru á komandi kjörtímabili. í því efni
er lagt til:
• 1) Stofnað verði til samráðsvettvangs launþega, vinnuveit-
enda og ríkisvalds um kjaramál í þeim tilgangi að stuðla að
raunhæfum kjarasamningum.
• 2) Vísitölukerfið verði endurskoðað og leitað nýrra leiða til
að tryggja að tekjur séu í eðlilegu samræmi við verðmætasköp-
un í þjóðfélaginu, þjóðartekjur og hag atvinnuvega, án
víxlhækkana og verðbólgu.
• 3) Verðjöfnunarsjóðir verði efldir. Stefnt verði að vaxandi
stöðugleika gengis og það rétt skráð.
• 4) Frjáls sparnaður verði efldur. Afurðalánakerfi endur-
skoðað. Frelsi í verðtryggingu fjárskuldbindina aukið.
• 5) Eftir því sem verðbólgan rénar cerði lánakjör
íbúðabyggingagerð hagstæðari og mynbreyting framkvæmd til
staðfestingar fengnum árangri.* 6) Stefnt skal að
verulegum tekjuafgangi ríkissjóðs og skuldalækkun í góðæri.
Skattar verði fyrst og fremst lagðir á eyðslu en ekki tekjur.
Virðisaukaskatti og staðgreiðslu skatta komið á.
AUiLÝSINGASÍMINN ER:
22480
JH*r0\inbIflbib
■oiv
Kðnui
CUCB
Dagana 30. júní - 9. júlí.
Sýningar kl. 18 og 21 virka daga og
kl. 15 og 18 um helgar. '
Forsala aðgöngumiða er í hjólhýsi í
Austurstræti og í Laugardalshöll kl. 13-17.
Miðapantanir i símum 29820 og 29821 milli kl. 13 og 17.
Verð miða fer eftir staðsetningu sæta
Bestu sæti: kr. 3.700.-. Betri sæti: kr. 3.300.-. Almenn sæti: kr. 2.700.
★ TAKMARKAÐAR SÝNINGAR -
* TAKMARKAÐIR MIÐAR
Heimsfræg skemmtiatriði, sum þeirra hafa aldrei sést hér
á landi áður meðal annars eru:
MÓTORHJÓLAAKSTUR Á HÁLOFTALÍNU, LOFT-
FIMLEIKAR, KING KONG - APINN MIKLI, ELD-
GLEYPIR, HNÍFAKASTARI, STJÖRNUSTÚLKUR,
AUSTURLENSKUR FAKÍR, STERKASTI MAÐUR
ALLRA SIRKUSA, SPRENGFYNDNIR TRÚÐAR OG
FJÖLMÖRG FLEIRI SKEMMTIATRIÐI.