Morgunblaðið - 25.06.1978, Page 28

Morgunblaðið - 25.06.1978, Page 28
28 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 25. JÚNÍ 1978 SVAR MITT EFTIR BILLY GRAHAM Eg er alltaf að taka góðar ákvarðanir — auðvitað heizt um áramðt — en einhvern veginn verður ekkert úr framkvæmd- um. Eg vil vera góður lærisveinn Krists, vel að mér I Biblfunni og góður liðsmaður f starfi hans. En eg finn, að eg er langt frá þessum háleitu hugsjónum. Getið þér hjálpað mér? Ráð mitt er, að þér takið nú ákvörðun um að framkvæma ákvarðanir yðar? Góðar ákvarðanir, sem „nema ekki staðar“ í hug- anum, verða að engu. Einhvern tíma sagði Disraeli, hinn merki, enski forsætisráðherra: „Leyndardómur velgengninnar er í því fólginn að hafa markið sífellt fyrir augum.“ Konan mín hefur skrifað á vegginn fyi*t ofan eldhúsborðið: „Starfa og bið, stefn á mið.“ Setjið yður ákveðið takmark og keppið að því. Gildvaxinn vinur minn prentaði þessi einkunnarorð og festi þau með límbandi á ísskápinn sinn: „Losa mig við fimm pund í þessum mánuðir“ og hann gerði það. Eg heyrði um konu, sem var farin að skelfast nöldrið í sjálfri sér. Hún skrifaði á minnisblað: „Á þessu ári ætla eg að verða bezta eiginkona í víðri veröld“ — og eiginmaður hennar varð ástfanginn af henni á ný. Setjið yður takmark varðandi bænalíf yðar og lestur Bibliunnar, t.d. þetta: „Eg ætla að lesa fimm kapítula í Bibliunni á hverjum degi og tala við Drottin í stundarf jórðung“. Farið síðan eftir þessu. Páll sagði: „Eitt gjöri eg“, og hann varð viðkunnur á sinni tíð. Guð á ekki margt handa þeim, sem vill ekki stefna hátt og keppa að markinu. Sá, sem lætur skeika að sköpuðu í lífi sínu, verður ekki helgaður, kristinn maður, en göfugt takmark er einkenni á lærisveinum Krists. + Útför fööur okkar og tengdafööur, MAGNÚSAR MAGNÚSSONAR, ritatióra, Bústaðavegi 67, fer fram frá Fossvogskirkju þriöjudaginn 27. júní kl. 13.30. Geróur Magnúsdóttir, Tómas Gíslason, Helgi B. Magnússon, Guórún Sveinsdóttir, María Magnúsdóttir. Innilegar þakkir færum viö öllum, er sýndu okkur samúö og vinarhug vegna andláts og jaröarfarar eiginmanns míns, fööur okkar, tengdafööur og afa, PÁLS PALSSONAR, bónda, Litlu-Heiói. Margrét Tómasdóttir, börn, tengdabörn og barnabörn. Ég þakka af alhug öllum þeim er auösýndu hluttekningu og vináttu viö fráfall og jaröarför eiginkonu minnar, ÁLFHILDAR SIGURBJÖRNSDÓTTUR. Fyrir hönd vandamanna. Karl Kristjánsaon. RAUÐI KROSS ISLANDS HJÁLPARSJÓÐUR Ert þú búinn að ,,tippa“ á þingmannafjölda flokkanna í kosningagetraun okkar? Hún getur fært þeim sem ,,tippa“ réttast góðan vinning -okkur gerir hún kleift að hjálpa öðrum. Getraunamiða færðu í bönkunum, flestum apótekum, kvöldsölum, og verzlunarmiðstöðvum. Auk þess hjá Rauða krossinum. Veríð með + Maöurinn minn og faöir okkar, HELGI ÞORSTEINSSON, • frá Upsum, til heimiiis aö Heiöarvegi 40, Vestmannaeyjum, lézt í Sjúkrahúsi Vestmannaeyja 23. júlí. Hulds Guómundsdóttir, Hrsfnhildur Helgadóttir, Helga Helgadóttir. + Maöurinn minn og faöir okkar MARKÚS GUDMUNDUR EDVARDSSON andaóist á Borgarsjúkrahúsinu 23. júní. Bryndfs Andersen og synir. + Faöir okkar, GUÐMUNDUR GUÐJÓNSSON, vélstjóri, áóur til heimilis aö Langholtsvegi 85, veröur jarösettur frá Fossvogskirkju, miövikudaginn 28. júní kl. 10.30. Börnin. + Faöir minn, tengdafaöir og afi okkar, GUNNLAUGUR ADALSTEINN EGILSSON, Stóragerói 22, veröur jarösunginn frá Foss vogskirkju, þriöjudaginn 27. júní kl. 3 e.h. Inga Gunnlaugsdóttir, Sigurjón H. Gestsson, Sigríöur Sigurjónsdóttir, Gunnlaugur Sigurjónsson, Rúnar Sigurjónsson. Aðalheiður Sigurð- ardóttir Fædd 30. maí 1915 Dáin 14. júní 1978 Hún Heiða er dáin. Það er sjónarsviptir í Ölgerð- inni, þegar hún Heiða er horfin. Ég minnist þess er við unnum saman í mörg ár á Frakkastíg. Þar var Ölgerðin; eins og stórt og gott heimili. Með gleði var unnið og glatt var á hjalla. Ekki skemmdi hún Heiða mín það, því alltaf var hún létt í Iund, svör hennar skemmtilega snjöll og hreinskilin, traust og stundvís, með öðrum orðum aðlaðandi vinnufélagi. Það er erfitt að skilja, þegar samferðamenn okkar falla svona snöggt, en gott er að vita ekkert fyrir. Það er svo stutt síðan við hittumst og rifjuðum upp gamlar og góðar minningar og ákváðum að hittast fljótlega hjá mér, þegar sólardagur kæmi. Nú verma hana geislar sólarinnar á leið hennar yfir landamærin til fyrirheitna landsins. Guð blessi hana, þökk fyrir samfylgdina. Systur hennar og öðrum ættingjum votta ég innilega samúð. Margrét Eyjólísdóttir. Að hryggjast og gleðjast hér um fáa daga. Að heilsast og kveðja það er lífsins saga. í dag þegar ég staðnæmist við kistu hennar leita á hugann minningar um liðnar samverustundir. Leið okkar hefur um árabil legið saman. Öll þau - Minning kynni voru á einn veg. Hið góða og kærleiksríka hugarþel hennar, hjálpsemi, og alltaf reiðubúin að rétta öðrum aðstoð ef með þurfti, á laun var ekki minnst. Ættum við margar konur og menn með slíkt hugarfar væri bjartara yfir um- hverfi margra. Heiða vann ávallt á sama stað, Ölgerðinni Agli Skallagrímssyni, og síðasti starfs- dagur hennar var einmitt að veita þeim öldruðu hjónum, Tómasi og frú, húshjálp, þannig kvaddi hún hinn aldraða húsbónda sinn. Þótt engum kæmi það til hugar að þetta væri í síðasta sinn að fundum bæri saman. Dauðinn gerir ekki boð á undan sér, því lífið er gáta leyst á margan hátt. Ég veit að kvæði Davíðs átti vel við Heiðu, þar sem hann segir: Fagurt er að fórna, að fórna öllu og heimta engin gjöld, eiga að loknu ævistarfi unga sál og hreinan skjöld, það átti hún sannarlega. Og kveðja mín til hennar og þakklæti eru mér efst í huga, svo mikið vel reyndist hún mér alla tíð. Systur hennar Jóhönnu votta ég dýpstu samúð og guð blessi þær lífs og liðnar. Theodóra Guðlaugsdóttir.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.