Morgunblaðið - 29.06.1978, Page 4
4
MORGUNBLAÐIÐ. FIMMTUDAGUR 29. JÚNÍ 1978
ERU ÞEIR
AÐ
Góö veiöi
í Víöidalsá
„Það hefur verið mjög kalt hjá
okkur lengst af, en engu að síður
hafa veiðimenn séð mikinn fisk um
alla á og veiðin hefur gengið vel.
Það eru komnir 130 laxar á land og
í gær veiddi Bjarni Stefánsson
fyrsta flugulax sumarsins, 15 punda
fisk“ sagði Gunnlaug Hannesdóttir
ráðskona við Víðidalsá, er Mbl.
haföi samband við hana í gær.
„Veiðin hófst í ánni Þann fimm-
tánda og meðalpunginn hefur verið
mjög góður, eða í kring um 10 pund,
stærsti laxinn, sem komið hefur á
land, vó 17 pund og hann dró Ari
Haraldsson viö Réttarbakka" sagöi
Gunnlaug ennfremur. Veitt er á 8
stangir í Víðidalsá og par veiddust
t fyrra 1793 laxar.
Einnig gott
í Grímsá
Jóhannes matsveinn í stórhýsinu
við Grímsá tjáði okkur að á hádegi
í gær hefðu 117 iaxar verið komnir
á land og væri Þetta einhver besta
byrjun sem menn myndu eftir. í
gærmorgun veiddust 11 laxar, en nú
er veitt á 10 stangir í Grímsá, Þær
byrjuðu fimm. Fyrsti dagurinn ár
hvert er happdrættisvinningur hjá
Stangaveiðifélaginu og að pessu
sinni veiddust 30 laxar pann dag,
Þ-e. frá hádegi föstudags til hádegis
laugardags. Þar af veiddi vinnings-
hafinn 2 laxa á fystu tíu mínútunuml
Laxinn er allt frá 3,5 pundum upp
í 13,5 pund og hefur hingað til
veiðst mest í Fossinum og Þingnes-
strengjunum, en síöan allar götur
upp í ármót Grímsár og Tunguár,
Þar sem tveir laxar höfðu veiðst.
Framan af veiddist mest á maðk, en
undanfarið hefur flugan verið að
sækja sig. Það hefur verið kalt við
Grímá, eins og víöast hvar, en
undanfarið hefur hlýnaö til muna og
Þegar við ræddum við Jóhannes var
veiðiveðrið eins og best verður á
kosið. Grímsá var frekar slök í fyrra
svo ekki sé meira sagt og veiddust
Þá aöeins 1103 laxar og er hún flest
árin með miklu meiri afla.
Dauft
í Korpu
í Versluninni Veiðimanninum
fengum við Þær upplýsingar að
sáratreg veiði hefði verið hingað til
í Korpu. Veiði hófst Þar í síðustu
viku og höföu aðeins örfáir laxar
verið dregnir á Þurrt og allir úr
fossunum neöst í ánni. Þaö er ekki
kuldinn sem hamlar hér veiðum,
Það hefur einfaldlega verið lítill
fiskur í ánni til Þessa.
— 99-
Eldur í
póstkassa
SKÖMMU fyrir kl. 16 f gær var
slökkviliðið kallað að pósthúsinu
við Pósthússtræti, en þar var þá
eldur í póstkassa, sem bréf eru
sett í ReKnum iúgu utan af götu.
Þegar slökkviliðið kom á staðinn
hafði starfsmönnum póstsins tek-
izt að slökkva eldinn að mestu
með handslökkvitækjum.
Skemmdir urðu litlar, nema hvað
eitthvað af bréfum, sem nýbúið
var að setja í kassann, brunnu og
málning kringum kassanna sviðn-
aði af hitanum. Talið er að kveikt
hafi verið í kassanum, jafnvel
með því að sígarettu hafi verið
hent inn um bréfalúguna.
Útvarp Revkjavík
FIM41TUDKGUR
29. júní
MORGUNNINN
7.00 Veðurfregnir. Fréttir.
7.10 Létt lög og morgunrabb.
(7.20 Morgunleikfimi).
7.55 Morgunbæn
8.00 Fréttir. 8.10 Dagskrá.
8.15 Veðurfr. Forustugr.
daghl. (útdr.).
8.35 Af ýmsu tagii Tónleikar.
9.00 Fréttir.
9.05 Morgunstund barnannat
Gréta Sigfúsdóttir les sög-
una „Katrínu í Króki“ eftir
Gunvor Stornes (2).
9.20 Morgunleikfimi. 9.30
Tilkynningar. Tónlcikar.
10.00 Fréttir. 10.10 Veður-
fregnir.
10.25 Víðsját Friðrik Páll Jóns-
son fréttamaður sér um
þáttinn.
10.45 Kvcnfélagasamband ís-
landst Gísli Helgason ræðir
við Sigríði Thorlacius for
mann sambandsins.
11.00 Morguntónleikari Sin-
fóníuhljómsveit ungverska
útvarpsins leikur
„Kossuth“, sinfónískt ljóð
eftir Béla Bartókt György
Lehcl stj. David Oistrakh og
hljómsveitin Fílharmónía í
Lundúnum leika Fiðlu-
konsert eftir Aram Katsja-
turiant höfundurinn stj.
12.00 Dagskrá. Tónleikar. Til-
kynningar.
SÍÐDEGIÐ
12.25 Veðurfregnir. Fréttir.
Tilkynningar.
Á frívaktinnii Sigrún
Sigurðardóttir kynnir óska-
lög sjómanna.
15.00 Miðdegissagant
„Angelína“ eftir Vicki
Baum. Málmfríður
Sigurðardóttir les (13).
15.30 Miðdegistónleikart Mary
Louise og Pauline Boehm
leika Grand Sonate
Symphonique, tónverk fyrir
tvö píanó op. 112 eftir Ignaz
Moscheles.
16.00 Fréttir. Tilkynningar.
(16.15 Veðurfregnir).
16.20 Tónleikar.
17.20 Lagið mitti Helga Þ.
Stephensen kynnir óskalög
barna.
FÖSTUDAGUR
30. júní
20.00 Fréttir og veður
20.30 Augiýsingar og dagskrá
20.35 Skrípaleikur (L)
Sjónvarpskvikmynd eftir
Gísla J. Astþórsson.
Frumsýning
Leikstjóri Baldvin
Halldórsson. Tónlist Jón
Sigurðsson.
í aðalhlutverkumt
Rósi / Sigurður Sigurjóns-
son. Borgar / Gísli
Halldórsson. Stúlka /
- Katrín Dröfn Árnadóttir.
Veitingamaður / Kristján
Skarphéðinsson. Banka-
stjóri / Guðmundur Páls-
son. Bína / Elísabet Þóris-
dóttir. Bisnesmaður /
Rúrik Haraldsson. Stýri-
maður / Haukur Þorsteins-
son
Sagan gerist árið 1939 og
fjallar um ungan mann sem
heldur i' kaupstað að fá lán
til að kaupa vörubifreið. í
kaupstaðnum kynnist hann
ýmsu fólki. m.a. Borgari.
fyrrum verksmiðjustjóra.
sem lifir á kerfinu. þjón-
ustustúlkunni Bínu og
annarri ungri stúlku.
Leikmynd Jón Þórisson.
Kvikmyndataka Haraldur
Friðriksson og Sigurliði
Guðmundsson. llljóðupp-
taka Sigfús Guðmundsson
og Jón Arason. Illjóð-
setning Sigfús Guðmunds-
son. Búningar Árný
, Guðmundsdóttir. Förðun
Ragna Fossberg.
21.25 Frá Listahátíð 1978
Sópransöngkonan Birgit
Nilsson syngur með Sin-
fóníuhljómsveit íslands.
Stjórnandi Gabriel Chmura.
Stjórn upptöku Tage
Ammendrup.
21.55 Mannhvarf
(So Long at thé Fair)
Bresk híómynd frá árinu
1950.
Aðalhiutverk Jean
Simmons og Dirk Bogarde.
Sagan gerist á heimssýning-
unni í París 1889. Ungur
maður hverfur af hóteli
sínu. Systir hans verður
skelfingu lostin þegar
starfslið hótelsins þratir
íyrir að hann hafi komið
þangað rneð henni.
Þýðandi Dóra Iiafsteins-
dóttir.
23.15 Dagskrárlok
-/ I
18.00 Vfðsját Endurtekinn
þáttur frá morgni sama
dags.
18.15 Tónleikar. Tilkynningar.
18.45 Veðurfregnir. Dagskrá
kvöldsins.
KVÖLDIÐ
19.00 Fréttir. Fréttaauki. Til-
kynningar.
19.35 Daglegt mál, Gísli Jóns-
son flytur þáttinn.
19.40 fslenzkir einsöngvarar
og kórar syngja
20.10 Leikriti „Hjónatafl“ eftir
Terje Hoel.
Þýðandit Áslaug Árnadóttir.
Leikstjórit Þórhaliur
Sigurðsson.
Persónur og leikendurt
Pétur Damm / Helgi Skúla-
son, Frcydís Damm
innanhússráðgjafar / Helga
Bachmann. Ottó, sál-
fræðingur / Steindór Hjör-
leifsson, Ása, kona hans /
Guðrún Ásmundsdóttir.
Aðrir ieikendurt Hjalti
Rögnvaldsson, Edda Hólm,
Jón Gunnarsson og Ragn-
heiður Þórhalisdóttir.
20.55 Söngleikar 1978. Frá
tónlcikum Landssambands
blandaðra kóra í Laugar-
dalshöll 15. aprfl. Flytjend-
urt Kór Menntaskólans við
Ilamrahlfð, Árneskórinn,
Samkór Rangæinga og
Þrándheimskórinn (gesta-
kór frá Noregi).
21.45 Staldrað við á Suðurnesj
um. — fjórði þáttur úr
Garðinum, Jónas Jónasson
ræðir við heimafóik.
22.30 yeðurfregnir. Fréttir.
22.50 Áfangar. Umsjónar-
menn. Guðni Rúnar Agnars-
son og Ásmundur Jónsson.
23.40 Fréttir. Dagskrárlok.
Ilclgi Skúlason
Ilclga Bachmann
Steindór Hjörleifsson
Leikrit vikunnar:
Finnst tilveran vera orðin eins og leikur
í kvöld kl. 20.10 verður
flutt í útvarpi leikritið
„Hjónatafl" eftir Terje Hoel.
Áslaug Árnadóttir þýddi
leikritið en leikstjóri er
Þórhallur Sigurðsson. Með
stærstu hlutverkin fara
Helgi Skúlason, Helga
Bachmann, Steindór Hjör-
leifsson og Guðrún
Ásmundsdóttir. Flutningur
leiksins tekur tæpa þrjá
Stundarfjórðunga.
Aðalpersónur leiksins,
Fröydis og Per Damm, eru
innanhússráðgjafar. Per
finnst hann ekki lengur
standa föstum fótum í tilver-
unni, hún er orðin honum
eins og leikur. Hann fær
taugaáfall og þá vaknar
spurningin hjá hverjum
hann eigi að leita hjálpar.
Hjá vini sínum, Otto, sem er
sálfræðingur, konu sinni eða
sjálfum sér?
Norski rithöfundurinn
Terje Hoel er þekktur fyrir
skemmtidagskrár í útvarpi,
þar sem kona hans, Eva
Schramm, er honum til
aðstoðar. „Hjónatafl"
(Damm, et spill) var sent í
leikritasamkeppni í norska
útvarpinu og þótti svo at-
hyglisvert, að það var tekið
þar til flutnings árið 1975.
Utvarp kl. 22.50:
r •
Afangar—Jackson Browne kynntur
Þátturinn „Áfangar" er á
dagskrá útvarpsins í kvöld kl.
22.50 og er hann í umsjá Guðna
Rúnars Agnarssonar og
Ásmundar Jónssonar.
Að sögn Guðna Rúnars er
þetta fyrri þátturinn af tveimur
sem fjalla munu um bandarísk-
an tónlistarmann, Jackson
Browne að nafni. Stutt er síðan
Browne varð verulega frægur en
Guðni Rúnar sagði að tónlistar-
sköpun hans ætti sér langa
forsögu.
Árið 1971 gaf Browne út sína
fyrstu sólóplötu og má segja að
hans eiginlegi tónlistarferill
hefjist þá, sagði Guðni Rúnar.
Þó lék hann á árunum
1966—1967 með hljómsveit er
kallaðist Nitty Gritty Dirtband,
en þá var hann aðeins 17 ára, og
samdi hann mikið af lögum
fyrir hljómsveitina.
í þættinum verða leikin nokk-
ur af lögum Browne og má< þar
t.d. nefna lagið „These days“
sem þýska söngkonan Nico
syngur, en Browne var aðstoðar-
maður hennar. Fjallað verður
um kynni Browne af öðrum
tónlistarmönnum, eins og t.d.
meðlimum hljómsveitarinnar
Eagles og Lowel George.
Guðni Rúnar sagði að nokkuð
erfitt væri að skilgreina þá
tónlist sem Browne léki, en
hann væri einna helst inni á
hinni svonefndu vestur-
strandarlínu í Bandaríkjunum
sem einna helst væri í ætt við
tónlist Eagles og Crosby, Stills
og Nash.