Morgunblaðið - 29.06.1978, Síða 17
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 29. JÚNÍ 1978
17
Karólína prinsessa afMónakó
ÞEGAR Karólína Grimaldi
prinsessa af Mónakó fæddist
23. janúar 1957 var tuttugu og
einu fallbyssuskoti hleypt af í
heiðursskyni í hallargarðinum,
og gestir í spilavítum borgar-
innar skáluðu fyrir hinu
nýfædda barni hinum nýja
erfingja furstadæmisins, en
Grimaldiættin hefur verið þar
við völd frá því 1297.
Talar 4 tungumál
Eftir að Karólína náði skóla-
aldri var hún í fyrstu í einka-
tímum á heimilinu, en síðan í
klausturskóla í borginni. Hún
fékk þann vitnisburð frá
kennurunum þar að hún væri
„bráðvelgefin, opinská og af-
skaplega forvitin". Frönsku,
ensku, spönsku og þýzku talar
þjónaverkfalli á ströndinni tók
hún sig til og kastaði bol yfir
sundfötin og þjónaði til borðs í
kaffihúsi, og fékk jafnvel þjórfé
fyrir vikið hjá ferðamönnum,
sem ekki höfðu hugmynd um
hvaða frægðarkona var þarna á
ferð.
Blaðamatur
Þegar hún snéri sér að námi
í París í heimspeki og barna-
sálarfræði, var hún mikið um-
töluð í dagblöðum þar og m.a.
gjarnan kölluð fallegasta prins-
essan í Evrópu. Hvert hennar
skref var blaðaefni, en haft er
eftir föður hennar á þeim tíma
að hún vildi helzt af öllu fá að
hegða sér eins og aðrir hafa rétt
til. „Við höfum reynt að gera
henni grein fyrir að það geti
Flest heimsblöðin flytja nán-
ar fréttir af prinsessunni og
brúðkaupinu i Mónakó og
segja gjarnan frá því 6
þennan hátti „Einu sinni var
yndisleg, litil prinsessa ást-
fangin af myndariegum
manni af borgaraættum, sem
var sautján árum eldri en
hún, og ákvað að giftast
honum — þrátt fyrir and-
stöðu foreldra sinna".
hún reiprennandi. Hún lærði á
píanó og hljóðpípu og varð mikil
sundkempa, góður reiðmaður og
svo góður tennisleikari að þeir
sem vit höfðu á sögðu að með
meiri þjálfun væri hún efni í
atvinnumann. Frístundum sín-
um eyddi hún að miklu leyti í
dýragarðinum hjá ljónsungan-
um Elsu sem henni var gefinn
af þýzkum ljónatemjara.
Hún var ærslafull og lífleg
sem krakki. Þegar hún var 7 ára
við brúðkaup í fjölskyldunni
sópaðist fjöldi ljósmyndara að
bifreið hennar til að mynda
dóttur Grace Kelly. „Hér er hún,
prinsessa Karólína" hrópaði hún
og ýtti frænku sinni Gracie
LeVine fram fyrir linsurnar.
„Karólína var alltaf sem ein í
hópnum. Hugsaði lítið um fatn-
að og hegðaði sér aldrei sem
einhver primadonna" er haft
eftir frænda hennar Jack Kelly.
í Mónakó var hún heldur ekki
litlaus brúða. Einhvern tíma í
„Hún hefur
aldrei hegðað
sér eins og
einhver prima donna"
— segir frœndi hennar
Þeir sem þekkja Karólínu persónu-
lega segja að hún hafi aldrei verið
litlaus og leioinleg.
hún ekki, því fólk fylgist með
hverju hennar fótmáli, og hún
fær á sig slæmt orð“. Faðir
hennar átti í málaferlum sem
hann vann gegn brazilískum
kvennamanni í París, sem lýsti
því yfir í sjónvarpi að hann
hefði haft mjög náin kynni af
prinsessunni í eina tíð.
Miklar vonir voru við það
bundnar um tíma að leiðir
Karólínu og Karls Bretaprins
gætu legið saman. Þegar ljóst
var að ekki yrði af því, komst sú
saga á kreik að furstahjónin
óskuðu einskis heitar en að fá
prinsinn af Lúxemborg fyrir
tengdason. — En fyrir tveimur
árum vann Philippe Junot hug
og hjarta prinsessunnar á
diskóteki í París, en hann er
sautján árum eldri en hún, hann
var 36 ára og hún nítján. Móðir
hennar reyndi hvað hún gat til
að hafa áhrif á dóttur sína að
hugsa betur sinn gang og tók
hana með sér til Bandaríkjanna
í þeim tilgangi. En Karólína
sigraðist á andstöðu foreldra
sinna og var trúlofun hennar og
Junot tilkynnt í ágústmánuði í
fyrra. Hann er fjármálamaður
og starfandi í París og hefur
haft það orð á sér í heimalandi
sínu að vera ekki við eina fjölina
felldur í kvennamálum.
Brúðkaupið ekki eins
og foreldranna
Karólína féllst á það að bíða
með giftinguna þar til hún næði
21 árs aldri og hefði lokið námi,
og brúðkaupið var ákveðið í júní
næsta ár.
Síðustu dagana fyrir brúð-
kaupið var hún önnum kafin í
prófum og skylduverkefnum. í
síðustu viku flutti hún ræðu hjá
Þegar furstahjónin af Mónakó
giftu sig fyrir tuttugu og tveimur
árum stóð allur heimurinn á
öndinni, en Grace Kelly sór þess eið
að slikt skyldi ekki endurtaka sig
þegar dóttir hennar gifti sig.
UNESCG, menningarstofnun
Sameinuðu þjóðanna, um efnið
„Hvers konar veröld er það sem
við látum börnunum okkar
eftir“, en hún er formaður
Mónakónefndarinnar varðandi
Alþjóðlega barnaárið 1979.
Hátíðahöldin vegna brúð-
kaups Karólínu og Junots mun
standa í þrjá daga og líkjast
ekki að neinu leyti veizluhöldun-
um við brúðkaup föður hennar
og Grace Kelly fyrir 22 árum
þegar allur heimurinn stóð á
öndinni yfir glæsileikanum, sem
Grace gat sjálf ekki rætt um
næsta árið á eftir. „Við viljurn
ekki endurtaka þá atburði"
sagði hún í blaðaviðtali og hló
lágt. Framtíðarheimili brúð-
hjónanna verður í París. Allur
klæðnaður þeirra mæðgna við
brúðkaupið er frá Dior-tízku-
húsinu í París.