Morgunblaðið - 29.06.1978, Síða 39
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 29. JÚNÍ 1978
39
Sagt eftir leikinn
• Tcitur Þórðarson er hér í baráttu við danska fyrirliðann Henning
Munk Jenssen. sem lék sinn sextugasta landsleik. og Per Röndved.
en hann tók góðan þátt í spilinu
þegar hann gat. A miðjunni
byrjaði Janus vel en hvarf alveg
þegar á leikinn leið. Karl Þórðar-
son tók spretti en var slakur þess
á milli. Atli Eðvaldsson var mjög
ógnandi vinstra megin en hann
hefði betur gefið boltann tvisvar í
stað þess að reyna sjálfur skot úr
lokuðum færum. Pétur Pétursson
var langbezti framlínumaðurinn,
barðist grimmt og skapaði sér
hvað eftir annað góð tækifæri.
Sannarlega góð byrjun hjá þessum
unga Akurnesing. Guðmundur
Þorbjörnsson tók góða spretti en í
heildina tekið lék hann undir getu.
Teitur Þórðarson olli miklum
vonbrigðum. Vart er hægt að segja
að hann hafi verið með í leiknum
allan tímann og verður það að
teljast. furðuleg blinda hjá lands-
liðsþjálfaranum að sjá þetta ekki
og kippa Teiti útaf í seinni
hálfleik. Það hefði ekki getað orðið
til hins verra ef Teitur hefði verið
tekinn útaf og hinn kornungi
Arnór Guðjohnssen látinn spreyta
sig.
Danska liðið
olli vonbrigðum
Danska liðið olli miklum von-
brigðum. Er þetta lakasta landslið,
sem undirritaður man eftir að
Danir hafi teflt fram gegn Islend-
ingum. Ekkert bar á hinum frægu
atvinnumönnum og meira að segja
var Benny Nielsen, Anderlecht, ■
kippt útaf fljótlega í s.h. Leik-
skipulag liðsins var einhæft,
leikmenn þvældust með boltann á
miðjunni og enginn broddur var í
sókninni. Vörnin var betri hluti
liðsins, en hún átti oft í vandræð-
um með leikmenn íslenska liðsins.
Dómari var H. Alexander frá
Skotlandi og hafði hann góð tök á
leiknum.
I stuttu málii
Laugardalsvöllur 28. júní, Island —
Danmörk 0.0
ÁminninKar, Preben Elkjær, Danmörku.
Áhorfendur 8277.
Liö Islandsi Árni Stefánsson, Gfsli
Torfason, Árni Sveinsson, Jón Pétursson,
Jóhannes Eðvaldsson, Karl. Þórðarson,
(Höröur Ililmarsson 84. mfn). Janus Guð-
lauxsson, Atli Eðvaldsson, Teitur Þórðar
son, Guðmundur Þorbjörnsson, Pétur
Pétursson.
Lið Danmerkur, Ole Elkjær, Johnny
Ilansen (Lars Lundkvist 52. mfn.), Per
Röntved, Ilenning Munk 'Jensen, Sören
Lerby, Nils Tune, Jens Jörn Bertelsen,
Frank Arnesen, Henrik Agerbeck, Preben
Elkjær, Benny Nielsen (John Andersen 55.
mín).
Dr. Youri Ilitchevi
—Þetta var minn fyrsti leikur
með íslenska landsliðið og ég get
ekki verið annað en ánægður.
Leikmennirnir gerðu nákvæmlega
eins og fyrir þá var lagt. Ég reyndi
að breyta til frá því sem verið
hefur og lét leikmennina sækja
meira, og vörnin átti að hjálpa
sóknarmönnunum, þetta tókst
allvel að mínum dómi taugar
leikmanna róuðust og þeir sóttu
óhræddir. Ég sá ekki neina ástæðu
til að vera með skiptingar í
leiknum. Það hvíldi mikil ábyrgð á
herðum mér og ég tók enga
áhættu.
miiKiis
Henning
Munk Jensen
Fyrirliði danska liðsins, Henn-
ing Munk Jensen, sem leikur með
Fredrikshafn, sagðist vilja gleyma
þessu sem fyrst. — Það er voðalegt
að ná aðeins jafntefli. Við áttum
skilið að sigra í leiknum 3—0.
Þetta var harður leikur, og mér
fannst íslenska vörnin standa vel
fyrir sínu með þá Jón Pétursson og
Jóhannes Eðvaldsson sem bestu
menn. Það var ekki gott að leika
knattspyrnu, of kalt og vindur of
mikill, sagði fyrirliðinn að lokum.
Morgunblaðið spjall-
aði við þjálfara liðanna,
leikmenn, dómara leiks-
ins og formann KSÍ að
leik loknum og bað þá
um að segja álit sitt á
gangi hans og úrslitumi
Jóhannes Eðvaldssom
Við áttum stórhættuleg tæki-
færi sem við áttum að nýta sagði
Jóhannes Eðvaldsson fyrirliði
íslenska liðsins. Mér finnst þetta
danska lið hvorki vera lélegra eða
sterkara enn önnur dönsk landslið,
mér finnst þau öll vera eins. Þeir
eru með þetta stutta fína spil og
reyna að draga vörnina fram á
völlinn. þetta tókst þeim ekki á
móti okkur og þegar á heildina er
litið, held ég að við getum verið
ánægðir með úrslitin. Mér finnst
alltaf jafn ánægjulegt að koma
heim og leika landsleik fyrir
Island, og vona að ég eigi eftir að
leika þá marga enn. Ég er nú á
förum til Kanada en held til
æfinga hjá Celtic í kringum 11.
júlí.
Ámi Stefánsson
— Þetta er rólegasti landsleikur
sem ég hef leikið um dagana, sagði
n arkvörður íslenska liðsins, Árni
Stefánsson.
— Ég átti von á erfiðum leik, en
danska liðið er mun slakara en ég
átti von á. Við áttum í það minnsta
að sigra 1—0.
Ég tel að við getum alls ekki
verið ánægðir með að ná aðeins
jafntefli. Ég hef haft meira að
gera og leikið á móti erfiðari
framlínumönnum í leik á móti
Færeyingum.
Alexander dómarii
Það var skoskur dómari í
landsleiknum, Alexander að nafni,
og báðum við hann að segja álit
sitt á leiknum: — Þetta var
allgóður leikur að mínum dómi en
þó full harður. Varnarleikurinn
hjá báðum liðum var góður, en
framlínumennirnir voru hins veg-
ar slakir og sköpuðu sér fá
tækifæri. Eftir gangi leiksins
fannst mér jafntefli vera sann-
gjörn úrslit. Besti leikmaður
íslenska liðsins fannst mér vera
Jón Pétursson í vörninni. Hjá
Dönum fannst mér hins vegar Per
Röntved, sem leikur hjá Werder
Bremen, vera bestur, sagði Alex-
ander að lokum.
<•-9
Pétur Pétursson
— Þetta var dauðafæri sem ég
fékk í lok síðari hálfleiksins og ég
átti ekki að geta gert neitt annað
en að skora mark. En ég hitti
knöttinn illa því að ég varð að taka
hann með vinstra fæti til þess að
hitta hann, sárgrætilegt að mis-
nota svona gott tækifæri, sagði
framlínuleikmaðurinn Pétur
Pétursson eftir leikinn. — Við
áttum tvímælalaust að sigra í
leiknum, því að þetta danska lið
var mjög lélegt.
Ellert B. Schrami
Formaður KSÍ, Ellert Schram,
sagði að íslendingar hefðu aldrei
verið nær því að sigra Dani en
einmitt nú og það væri sorglegt að
það skyldi ekki takast. — Allir
íslensku leikmennirnir stóðu sig
mjög vel í leiknum og léku mjög
taktískt rétt. Jóhannes sýndi og
sannaði enn einu sinni hversu
mikilvægur hann er fyrir liðið og
er hann því ómetanlegur styrkur.
Þetta er eitt sterkasta lið sem
Danir hafa teflt á móti okkur, í
það minnsta á pappírnum, og voru
leikmenn þess mjög vel spilandi og
knattmeðferðin hjá þeim góð.
Leikurinn í heild var ekki nægi-
lega góður framan af en lagaðist
og í síðari hálfleiknum sóttu
Islendingar mun meira og áttu
fyllilega skilið að skora eitt til tvö
mörk.
Carsten þjálfari Dana
Þjálfari danska landsliðsins
hafði þetta um leikinn að segja: —
Þetta er lélegasti landsleikur sem
Danir hafa leikið, ég get engan
veginn skilið af hverju liðið náði
svo illa saman eins og raun ber
vitni. Ég kann enga skýringu á
þessu. Við skoruðum löglegt mark
að mínu áliti og áttum skilið að
sigra, en það er dómarinn sem
ræður. Annars vil ég sem minnst
um leikinn tala, ég er hund-
óánægður.