Morgunblaðið - 30.06.1978, Blaðsíða 14
14
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 30. JÚNÍ 1978
Erítroumenn
vilja semja
Brúdhjónin Karólína og Philippe Junot og nánustu aettingjar þeirra koma út úr Grimaldi höllinni i
Mónakó eftir ad þau voru gefin saman í kapellu hallarinnar í gœr. (Simamynd AP)
Brúðhjónin hyllt
á götum Mónakó
Monte Carlo 29. júní. — AP.
KARÓLÍNA prinsessa og Philippe Junot voru hyllt þegar þau gengu um götur
Mónakó í dag að lokinni kirkjuvígsluathöfn en því er haldið leyndu hvert þau
fara í brúðkaupsferðina. Gamall vinur prinsessunnar segir að hún viti ekki sjálf
hvar þau muni eyða hveitibrauðsdögunum.
Beirút 29. júní. AP.
TVÆR HELZTU frelsisfylkind'
arnar í Erítreu sameinuðust í
eina fylkingu í dag og buðust til
þess að semja við herforingja-
stjórnina í Eþíópíu.
Talsmenn Frelsisfylkingar Erí-
treu (ELF) og- Alþýðufrelsisfylk-
ingar Eríteru (EPLF) sögðu að
þeir væru reiðubúnir til friðarvið-
ræðna ef viðbrögð Eþíópíumanna
yrðu jákvæð.
Formaður byltingarráðs ELF
Ahmed Nasser sagði að fylking-
arnar hefðu orðið sammála um að
átök Erítreumanna og Eþíópíu-
manna og mögnun þeirra átaka
þjónuðu ekki hagsmunum þjóð-
anna. En hann sagði að friðartil-
boð Erítreumanna táknaði ekki að
þeir mundu hætta vopnaðri bar-
Hryðjuverka-
menn dæmdir
Bern, 29. júní, Reuter.
SVISSNESKUR sækjandi
krafðist í dag iangrar fangels-
isvistar til handa tveimur
meintum vestur-þýzkum
hryðjuverkamönnum, sem
hann lýsti sem „sérstaklega
viðsjárverðum glæpamönnum,
sem ckkert víluðu fyrir sér“.
Lögmaðurinn krafðist 15 ára
fangelsisdóms yfir Gabriele
Kröcher-Tiedemann og 13 ára
dóms fyrir Christian Möller, en
bæði eru sökuð um morð á
tveimur svissneskum tollvörð-
um í desember sl. en þau
reyndu að brjótast yfir landa-
mærin ólöglega og með vopn.
Búist var við að dómur félli
í máli þeirra á föstudag.
áttu og lagði áherzlu á að stríðinu
yrði haldið áfram ef það reyndist
nauðsynlegt.
Talsmennirnir sögðu að þriðja
frelsisfylkingin, Frelsisfylking Os-
man Sebbi (ELF-PLF), hefði
ákveðið að taka ekki þátt í
sameiningunni.
Samkvæmt áreiðanlegum heim-
ildum hafði verið ákveðið að hefja
leyniviðræður við Eþíópíumenn og
þess vegna mun EPLF hafa krafizt
sameiningar frelsisfylkinganna
þannig að Erítreumenn stæðu
sameinaðir í viðræðum við
Eþíópíumenn.
Jafnframt hermir tímarit í
Beirút að leiðtogi ELF-PLF Sebbi
hafi sakað Rússa um að reyna að
grafa undan frelssihreyfingu
erítreumanna með því að styðja
ELF-leiðtogann Ahmed Nasser
sem var nýlega í Moskvu. En
Nasser segir að Rússar eigi engan
þátt i sameiningunni og tilboðinu
um friðarviðræður við eþíópísku
stjórnina.
Annað
brullaup
Vín 29. júní AP
ANNA prinsessa og fleiri meðlim-
ir brezku konungsfjölskyldunnar
verða viðstödd brúðkaup Mikaels
prins af Kent og Marie-Christine
von Reibnitz barónessu í Vín á
morgun.
Auk prinsessunnar verða við
brúðkaupið bróðir prinsins her-
toginn af Kent, systir hans
Alexandra prinsessa og eigin-
maður hennar Angus Ogilvie.
Aðeins einn blaðamaður fékk
að vera viðstaddur vígsluathöfn-
ina í konungshöllinni eftir hina
borgarlegu hjónavígslu sem fór
fram í gær. Hann sagði að
foreldrar brúðarinnar hefðu
tárazt við athöfnina.
Maður flaug í svifdreka yfir
höllina þótt allt flug yfir hana
hefði verið bannað og hrópaði
„Lengi Iifi brúðhjónin". Maður-
inn var handtekinn.
Upphaflega var 100 gestum
boðið til vígslunnar en þeim
fjölgaði í 300. Vígslan fór fram
í hallargarðinum við kapelluna
í glampandi sólskini.
Presturinn, sem gaf brúðhjón-
in saman, gaf einnig saman
foreldra brúðarinnar, Rainier
fursta og Grace prinsessu, fyrir
22 árum.
Meðal gestanna voru margir
fyrrverandi konungar, prinsar
og aðalsmenn auk skemmti-
TOSHIBA
SM-2700
Stereo-samstæðan
Utsölustaöir: Akranes. Bjarg h.f.
Borgarnes: Kaupf. Borgf.
Bolungarvík: Verzl. E.G.
Hvammstangi: Verzl. S.P.
Sauöárkróki: Kaupf. Skagf.
Akureyri: Vöruhús KEA.
Hljómver h.f.
Húsavík: Kaupf. Ping.
Egilsstöóum: Kaupf. Héraösb.
Ólafsfiröi: Verzl. Valberg.
Siglufiröi: Gestur Fanndal.
Hvolsvelli: Kaupf. Rangæinga.
Vestmannaeyjum: Kjarni s.f.
Keflavík: Stapafeil h.f.
Verð kr. 162.800.-
Stórfallegt
hljómflutningstæki
á einstaklega góðu verði
Allt í einu tæki:
Stereo-útvarp, cassettusegulband,
piötuspilari og 2 stórir hátalarar.
Magnarinn er 28 wött. Tveir hátalarar
eru í hvorum kassa. Stór renndur 28 sm
piötudiskur. Útvarpiö er meö langbylgju,
miöbylgju og FM Stereo. CR 0 Selektor.
Komiö og skoöiö þetta stórfallega tæki
og sannfærist um aö SM 2700
Toshiba-tækiö er ekki aöeins afburöa
stílhreint í útliti heldur lika hljómgotl.
SM 2700 gefur yöur mest fyrir peningana.
Háþróaöur magnari, byggöur á
reynslu Toshiba i geimvísindum.
EINAR FARESTVEIT & CO HF
• l«GST*OAST«tII IOA - SlMI l»**5
Hreinsun í her
Suður-Jemen
Beirút 29. janúar — AP.
NÝJU VALDHAFARNIR í Suð
ur-Jemen, sem fylgja Rússum að
málum, hafa skýrt frá hreinsun
hófsamra yfirmanna í hernum og
stjórnmálaflokknum bjóðfylking-
unni eftir sigurinn í valdabar-
áttunni gegn Salem Robeya Ali
forseta sem var veginn.
Jafnframt hafa blöð í Saudi-
Arabíu hert á áróðursherferð gegn
vinstrisveiflunni í Suður-Jemen og
hvatt til skjótra alþjóðaaðgerða til
að hefta útbreiðslu kommúnisma í
Schreiber
gæti tapað
þingsætinu
París, 29. júní, Reuter
FRÖNSK yfirvöld ógiltu í dag
úrslit þingkosninganna í Frakk-
landi í marz f síðasta mánuði í
tveimur kjördæmum. Dómur þessi
féll eftir að ljóst var ósamræmi f
talningu atkvæða. í öðru þeirra
kjördæma, sem um er að ræða,
vann Jean Jacques Servan-
Schreiber mjiig nauman sigur.
Servan-Schreiber, sem er þing-
maður Miðjuflokksins, sigraði and-
stæðing sinn úr flokki jafnaðar-
manna með aðeins 22 atkvæðum í
kosningunum 19. marz. Jafnaðar-
mannaflokkurinn lagði síðar fram
kvörtun vegna úrslitanna.
sunnanverðri Arabíu. Þau segja að
helzta olíusöluríki heims geti ekki
látið kommúnisma viðgangast rétt
sunnan landamæranna.
Abduk Fattah Ismail leiðtogi
stjórnarinnar í Suður-Jemen hefur
tilkynnt í útvarpi að komið verði
á laggirnar nýjum kommúnista-
flokki í landinu í næsta mánuði.
Ismail flutti útvarpsávarp sitt
greinilega til þess að kveða niður
sögusagnir um að hann hefði fallið
eða særzt í bardögunum á mánu-
dag er lauk með aftöku Ali forseta
og tveggja aðstoðarmanna hans.
Ismail sagði að þrír flokkar, sem
standa að stjórnarflokknum Þjóð-
fylkingunni, hefðu orðið ásáttir
um að sameinast í svokallaðan
Frumherjaflokk sem mundi hafa
marxisma og leninisma að leiðar-
ljósi. Ismail er aðalritari
fylkingarinnar og sagði að Ali
forseti hefði verið eindregið á móti
stofnun nýs flokks. Ali var einnig
sakaður um að veikja tengslin við
Sovétríkin og tilraun til að steypa
landinu út í styrjöld við Norð-
ur-Jemen þar sem Ahmed A1
Ghashmi forseti var ráðinn af
dögum á laugardaginn.
Ismail sagði að þrír fulltrúar í
stjórnmálaráði Þjóðfylkingarinn-
ar hefðu verið reknir og sviptir
störfum í stjórninni og flokknum.
Hann skýrði einnig frá skipun
nokkurra manna í yfirmannastöð-
ur í hernum.
Sérlegur sendimaður Carters
forseta hefur hitt að máli starf-
andi forseta Norður-Jemens og
sagt að Bandaríkjamenn fordæmi
morðið á forseta landsins.