Morgunblaðið - 30.06.1978, Page 16

Morgunblaðið - 30.06.1978, Page 16
16 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 30. JÚNÍ 1978 Útgefandi Framkvæmdastjóri Ritstjórar Ritstjórnarfulltrúi Fréttastjóri Auglýsingastjórí Ritstjórn og afgreiðsla Auglýsingar hf. Árvakur, Reykjavík. Haraldur Sveinsson. Matthías Johannessen, Styrmir Gunnarsson. Þorbjörn Guómundsson. Björn Jóhannsson. Baldvin Jónsson Aöalstræti 6, sími 10100. Aðalstræti 6, sími 22480. Áskriftargjald 2000.00 kr. á mánuði innanlands. í lausasölu 100 kr. eintakið. Hvernig er ástandið 1 skólum landsins? A* síöustu 10 árum eöa svo hafa staöið yfir viöamiklar breytingar í skólakerfi landsins. Þetta breytingatímabil hófst á síðustu árum Viöreisnarinnar og hefur staöið yfir samfellt síöan. Upphaf þessara breytinga var gagnrýni, sem fram kom á skólakerfiö, ekki sízt hér í Morgunblaöinu. Gagnrýni þessi beindist aö mörgum þáttum skólakerfisins, m.a. þeim, aö skólakerfiö væri of lokað, of takmarkaöur hópur æskufólks heföi tækifæri til þess aö ganga menntaveginn eins og skólakerfiö var þá upp byggt. Þessi gagnrýni fékk mjög almennan hljómgrunn og leiddi til þess aö miklar breytingar hafa verið geröar á skólakerfinu síöan. Nú er um áratugur liöinn frá því aö þessar umræöur hófust. á síöum Morgunblaösins og tímabært aö nýtt mat veröi lagt á skólastarfiö og þær breytingar, sem unniö hefur veriö aö á þessu tímabili. Margar spurningar vakna. Hefur skólakerfiö veriö opnað of mikiö? Eru of litlar kröfur geröar um námsárangur — meö sama hætti og kannski voru geröar of miklar kröfur fyrir 10 árum? Er agaleysi í skólum landsins oröiö vandamál, sem smátt og smátt breiðist út til annarra þátta samfélags okkar? Er kennslu í nokkrum námsgreinum, ekki sízt þjóöfélagsfræöi og nútímasögu og jafnvel nútímabókmenntum, háttaö á þann veg, aö um augljósa pólitíska misnotkun sé aö ræöa? Þessar spurningar og margar fleiri vakna, þegar umræður hefjast um skólakerfiö og leitazt er viö aö leggja mat á þær breytingar, sem unniö hefur veriö aö undanfarin ár. Það er mjög almenn skoöun foreldra og skattgreiöenda, aö skólakerfiö sé komið úr böndum, aö breytingarnar hafi mistekizt og leitt til verra ástands en var áður en breytingatímabiliö hófst. Þaö er útbreidd skoðun meöal foreldra, aö í framhaldsskólum landsins sé um mjög almenna misnotkun aöstööu aö ræöa í kennslu í sumum námsgreinum og aö vinstri sinnaðir kennarar noti tækifæriö til þess að halda uppi pólitískri innrætingu. Þaö er mjög almenn skoðun skattgreiöenda, aö skólakerfiö sé orðiö aö alltof stóru bákni, sem kosti of mikið fé samanboriö viö þann árangur sem þaö skili. Þaö er mjög almenn skoöun foreldra, aö gæöum þeirrar menntunar, sem börn og unglingar hljóta í skólum landsins, sé ábótavant. Auövitaö er hér um alhæfingar aö ræöa. Auövitaö skara sumir skólar fram úr öörum. Enginn vafi er á því, aö ástandið á barnaskólastigi, er mun betra en í framhalds- skólum og Háskóla. í umræðum um þessi vandamál fer ekki hjá því, aö gagnrýnin veröi fyrst í staö almenns eðlis, en hún getur síöar skýrzt og beinzt fremur aö þeim þáttum skólakerfisins, sem hún á sérstaklega viö. Það er skoðun Morgunblaðsins, aö tímabært sé oröiö aö taka menntamálin til umræöu á ný. Mat verður aö leggja á þær breytingar, sem unnið hefur veriö að og ákvöröun þarf aö taka um, hvaö skal standa af þeim og hvaö má betur fara. Bákniö í kringum skólana þarf aö endurskoða og leita leiöa til þess aö draga úr því. Spurningin um pólitíska misnotkun einstakra kennara á aðstöðu sinni er oröin svo brennandi í hugum fólks, aö óhjákvæmilegt er, aö það vandamál veröi tekiö til sérstakrar meöferöar. Þaö er ekki hægt aö líða þaö lengur, aö pólitísk innræting fari fram í skólum landsins. Engir ættu aö skilja þaö betur en kennarar sjálfir, sem verða aö þola þaö sem stétt, aö gagnrýni beinist aö þeim, sem í raun á einungis viö um tiltölulega fáa einstaklinga. Morgunblaðið telur, aö viö myndun nýrrar ríkisstjórnar þurfi ástandið í menntamálum aö koma til sérstakrar umræðu og aö viöfangsefni á því sviði þurfi aö taka föstum tökum á næsta kjörtímabili. Skólakerfið má ekki fara úr böndum. Tveir hópar þjóöfélagsþegna þekkja bezt til skólamál- anna og þeirra vandamála, sem þar eru á döfinni. Þaö eru kennarar og foreldrar auk nemenda sjálfra. Sjálfsagt er aö <d endurmat á stööu skólakerfisins og ástandi mennta- ;iála almennt veröi bæöi kennarar og foreldrar kallaöir til. íjónarmið nemenda eiga þar einnig heima. Þetta er verkefni, sem vinna þarf að næstu árin. Frá sýningu Kátu ekkjunnar í vetur Umfangsmesta leikári Þjóðleikhússins lokið Um 133 þúsund manns sáu sýningar þess LEIKARI Þjóðleikliússins iauk með sýningu á Kátu ekkjunni um s.l. helgi. Er þá lokið einu umsvifamesta leikári leik- hússins til þessa. Tala sýningar- gesta var rúmlega 133 þúsund og sýningarfjöldi 433 á leikárinu. Meirihluti þessara sýninga var í leikhúsinu sjálfu, en hins vegar hafa aldrei verið jafnmargar sýningar utan höfuðborgarinnar eða á annað hundrað, segir í frétt frá Þjóðleikhúsinu. Enn- fremur segir að leiksýningar á árinu dreifist á rúmlega 9 mánaða tímabil og ef frá eru talin mánudagskvöld, sem eru fríkvöld leikara, og þriggja vikna hlé vegna verkfalls opin- berra starfsmanna í haust, komi það í Ijós að leikhúsið hefur haft sem svarar tveimur sýningum á dag. Tala sýninga á stóra sviðinu var 209 eða svipað og undanfarin ár og tala gesta rúmlega 96 þúsund. Á litla sviðinu voru sýningar 63 talsins og tala gesta 4823. Sýningar utanhúss í leikferðum í skólum og víðar voru samtals 162 og tala áhorfenda rúmlega 33 þúsund. Á verkefnaskránni voru alls 20 viðfangsefni, fjögur leikrit eftir íslenzka höfunda. þrjú verk fyrir börn og margt fleira. Rúmlega 30 leikarar eru fast- ráðnir við leikhúsið, en auk þeirra léku um 20 aðrir leikarar eitt eða fleiri hlutverk á árinu. I Kátu ekkjunni sungi 5 ein- söngvarar, í gíslenzka dansflokknum eru 10 dansarar og í Þjóðleikhúskórnum eru 40 söngvarar. Þá tóku rúmlega 60 hljóðfæraleikarar þátt í sýning- um leikhússins í vetur. Að siðustu segir að leikárið hefjist að nýju í byrjun septem- ber og þá á nýju verki eftir Jökul Jakobsson. (Ljósm.. Sigurgeir Jónsson), Kirkjukór Vestmannaeyja, Kirkjukór Vestmannaeyja: Sungið við messu í London KIRKJUKÓR Vestmannaeyja leggur upp í ferð til Bret- lands þriðjudaginn 4. júlí næstkomandi. Stjórnandi kórsins er Guðmundur H. Guðjónsson, organisti Landa- kirkju, en í kórnum eru 29 manns. Kórinn mun taka þátt í alþjóðlegu söngmóti áhuga- mannakóra, sem verður haldið í Llangollen í Wales 4. til 9. júlí. Aformað er, að kórinn haldi tónleika á nokkrum stöðum á Englandi, t.d. London, Chicest- er og Kantaraborg. Óperu- söngvararnir Sigríður Ella Magnúsdóttir og Simon Vaughn syngja sem gestir með kórnum, en aðrir einsöngvarar eru Geir Jón Þórisson, Reynir Guðsteinsson og Þórhildur Óskarsdóttir. Auk íslenskra tónverka flytur kórinn verk eftir Hayden, Mendelssohn, Farant og Palestrina. Einnig mun kórinn syngja við íslenska messu í Lutherian Danish Church í London sunnudaginn 16. júlí kl. 16, en sóknarpresturinn í Vest- SÉRA Ólafur Skúlason hefur þegið boð hátíðarnefndar þeirrar, sem sér um hundrað ára afmæli byggðar Islendinga í Norður Dakota, Bandaríkjunum, um að sækja þessi hátíðahöld og flytja ræðu á sérstakri hátíðadagskrá, sem haldin verður fyrsta daginn af þremur, sem hátíðahöldin standa, en þau hefjast 30. júní n.k. Mun séra Ólafur við það tækifæri einnig flytja kveðjur frá ýmsum að heiman, m.a. forseta og biskupi, en hvorugur þeirra kom því við að sækja hátíðahöldin, segir í frétt frá dómprófastinum í Reykjavík. Séra Hjalti Guðmundsson dóm- mannaeyjum, sr. Kjartan Örn Sigurbjörnsson, prédikar. Ferðin mun taka 17 daga og eru þátttakendur í henni alls um 60 manns. kirkjuprestur mun einnig taka þátt í þessari hátíð og syngur hann einsöng á samkomunni, en báöir munu þeir prestarnir flytja mess- ur sunnudaginn 2. júlí í kirkjum Mountain prestakallsins. Séra Ólafur þjónaði þeim söfnuðum 1955 til 1959 og síðan tók séra Hjalti við af honum og þjónaði söfnuðunum um rúmlega tveggja ára skeið. Eiginkona dómprófasts mun fara með manni sínum og dvelja þau vestan hafs um mánaðartíma og heimsækja byggðir Vestur íslendinga víða í Bandaríkjunum og Kanada, segir í fréttinni. Dómsprófasti boðið til Ameriku

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.