Morgunblaðið - 30.06.1978, Qupperneq 28

Morgunblaðið - 30.06.1978, Qupperneq 28
28 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 30. JÚNÍ 1978 MORötíhí-í^f’ KAFFINÚ \\ r (l' GRANI göslari Ég verð að fara núna, — hann sagði að hann vildi fara snemma að hátta f kvöid! ^ 0Jj Gestirnir bíða enn eftir ung- hænunni, sem þeir báðu um! Að hervæðast eða brjóta lögin? BRIDGE Umsjón: Páll Bergsson Sé ekki hægt að koma í veg fyrir trompun andstæðings er gott að haga úrspilinu þannig að hann trompi slag sem ekki verður hjá komist að gefa hvort sem er. Þetta getur verið mikilvægara en að taka strax trompin af höndum andstæðinganna. Vestur gaf, allir á hæsttu. PIB Norður S. KG63 H. ÁK T. K95 L. KD94 Vestur S. ÁD H. 85 T. DG10763 L. Á72 Austur S. 94 H. DG1074 T. 8 L. G10853 Suður S. 108752 H. 9632 T. Á42 L. 6 Suður varð sagnhafi í fjórum spöðum eftir þessar sagnir: ZZiZ COSPER C Þetta er árangurinn af þessu stanzlausa járnpilluáti drengsins! „Þessar línur eru ekki skrifaðar vegna hersetu Bandaríkjamanna hér enda vonandi ástæðulaust að setja hana í samband við ný lög um skotvopn ásamt reglugerð um skotvopn og skotfæri frá dóms- og kirkjumálaráðuneytinu 20. janúar 1978. Lögin sjálf virðast fljótt á litið meinlaus, en það sama gildir alls ekki um túlkunartilmæli dóms- málaráðuneytisöins til útgefenda skotvopnaleyfa, m.a. lögreglustjór- ans í Reykjavík. Nú eiga allir, sem hafa í fórum sínum skotvopna- ieyfi, að endurnýja það fyrir lok þessa mánaðar. Til þess að gera sögu mína stutta ætla ég að lýsa tilbúnu dæmi: Bóndi uppí sveit á fimm syni og tvær byssur, einn riffil hlaupvídd 22 og eina haglabyssu. Þessir sex menn hafa einnig allir skotvopna- leyfi fyrir þessum byssum. Feðgarnir hafa undanfarin ár skipt með sér verkum á bænum. Þeir skiptust einnig á um að liggja á greni, hlaupa uppi minka, fara á gæs eða rjúpu, reka burtu illfygli o.s.frv. Hingað til hafa þeir getað skipst á um að nota byssurnar, (oftast voru báðar byssurnar teknar með í veiðiferð). Eftir 30. júní 1978 er um þrennt að ræða fyrir synina fimm, ef við gerum ráð fyrir því að bóndi sjálfur endurnýi skotvopnaleyfi sitt með fyrrgreindum byssum: 1. að missa skotvopnaleyfi sín. 2. að endurnýja með því að kaupa sér byssur, þ.e. fimm riffla og fimm haglabyssur eða 3. að halda viðteknum hætti, hjálpa til við búskapinn, fara á veiðar, nema nú án skotvopnaleyfa og þar með orðnir lögbrjótar. Túlkunartilmæli dómsmála- ráðuneytisins eru sem sagt á þann veg að engin ein byssa má vera skráð nema í einu leyfi. Auk þess segir til um það, ef hefði bóndinn bara látið skrá riffilinn í sitt leyfi og einn sonanna hefði skráð haglabyssuna í sitt þá megi bóndinn framvegis ekki nota haglabyssuna! Hins vegar má bóndinn nota alla riffla á landinu að fengnu leyfi eigandans ef hlaupvídd er 22 og þá er alveg sama hve stór hleðslan er! Væri fróðlegt að fá upplýsingar um hvatir ráðamanna í dómsmála- ráðuneytinu, sem hafa orðið valdir þessarar túlkunar nýju laganna, því þau gefa að mínu viti alls enga ástæðu til slíkrar fávizku. Friðrik G. Friðriksson.“ Vestur 1 T 2 T Norflur Austur dobl 1 II 4 S allir pass. SuAur 1 S Útspil tíguldrottning. Suður sá hættuna á tígultromp- un austurs. En hann hélt að ráðið við því væri að ná strax trompun- um af hendi hans. Þess vegna tók hann fyrsta slaginn á hendinni til að geta spilað trompinu að háspil- um blinds. En þá tók vestur strax á ásinn og spilaði tígulgosa. Austur trompaði kónginn og vest- ur fékk seinna á laufás og tígulslag að auki. Einn- niður. Engin ástæða var til að taka trompin í hvelli. Mikilvægara var að koma í veg fyrir, að austur trompaði nauðsynlegan vinnings- slag og taka því fyrsta slaginn með tígulkóng. Eftir sem áður þurfti að spila að spaðaháspilunum í borði og til að búa til innkomu á höndina þurfti að leika millileik, spila laufkóng. Vestur fær á ásinn, spilar tígli og austur trompar, slagur sem mátti gefa. Vestur á þá ekki aðra innkomu en spaðaás en í hann fer seinna tromp austurs. Vörnin fær þannig sína þrjá slagi en á enga möguleika til að hnekkja spilinu. Kirsuber í nóvember Framhaldssaga eftir Mariu Lang Jóhanna Kristjónsdóttir íslenzkaði 1 Persúnur sögunnari Fimm af yngri kynslóðinni, þar af cinn morðingi og annar verður fórnarlamb morðingj- ansi Judith Jernfelt Matti Sandor Kiemens Klemensson BKO Roland Norell Nanna Kasja Ivarsen og tvær miðaldra fraukar sem eru mikilvæg vitnii Helena Wijk Lisa Billkvist og læknir og yfirlögreglu- þjónn sem hafa ólíkar skoðan- ir á morðmálinui Daniel Sevcrin Leo Berggren ásamt með lögregluforingjan um sem dregst inn í málið í nokkur dægur áður en glæpur- inn fyrnisti Christer Wijk. 1. kafli Á elleftu stundu — Á fimmtudaginn, sagði Helena Wijk upp úr þurru — mun morðingi sleppa við refs- ingu sína. Sennilega stafaði þessi skyndilega yfirlýsing hennar af því að samru'ðurnar höfðu gengið dálftið stirðlega fyrir sig síðasta hálftímann. Og það er aftur á móti af því, að hann kærir sig ekki um að tala meira um sig og Camillu, sagði hún við sjálfa sig. Það eina sem hann hafði sagt í því samhandi vari — Hún er heima í Stokk- hólmi sem stendur og verður þar í viku. En ég vil ekki... ja, við höfum sem sagt ekki enn komizt að niðurstöðu um — hvcrnig við viljum haga þessu. Það er eins og við séum að fikra okkur eftir þunnum ís sem getur ekki borið okkur. En það getur auðvitað verið að þetta bjargist... ef við sýnum fyllstu aðgát. Hann hafði horft sínum bláu augum í hispurslaus brún móðuraugun. Hann gerði sér grein fyrir því að hún var teknari í vöngum og hún var enn hvíthærðari nú en síðast þegar hann sá hana og hann bætti við eins og hálf vandræða- lega. — Svo að þess vegna ákvað ég að vera hérna hjá þér þessa helgidaga í staðinn fyrir Cam og ég hef ekki séð eftir því. En svo hafði hann horfið inn í mjiig lítt félagslynda þögn sem aðeins var rofin af stöku athugascmdum iiðru hverju. — Jú, takk fyrir, ég get þegið einn kaffibolla í viðbót. — Enn rignir. Mikið vildi ég að það færi frckar að frjósa. — Enn hvað er kyrrt. IHjótt og undursamlegt. Ég held það væri eitthvað meira vit í því að búa úti á landi. — Ja, cn hvaða vitleysa er nú þetta, mótmælti Helena Wijk. — Við búum ekkert úti á landi eins og þú segir. Húsið cr na-stum f bænum miðjum. — Jæja. þá. samsinnti Christer. — En hvað sem því líður verður þú að viðurkenna að þctta er óvenjulega hljóðlát- ur smábær. Þau sátu í dagstofunni í brúnu bjálkahúsinu. Úti fyrir var veröndin og stór og grósku- mikil ávaxtatrén tcygðu sig upp fyrir húsþakið. Gatan fyrir framan var eins auð þetta föstudagskvöld og vatnsflötur inn handan götunnar. — Altraheilgagramessa. sagði hún hljóðlega og næstum andvarpandi. — Ilugsa sér hvað tíminn líður. Að koma nóvember. Hún þagnaði og það var eins og hún hlustaði eftir fótataki frá neðri hæðinni. Skömmu seinna hafði hún svo komið með þessa kyndugu yfirlýsingii um morðingjann sem myndi sleppa við hcgningu. — Hvers vegna. sagði Wijk lögregluforingi áhugalaus —

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.