Morgunblaðið - 05.07.1978, Page 31
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 5. JÚLÍ°Í978
31
Víkingar steinlágu
ÚRSLITIN í Laugardalnum í
gærkvöldi verða að teljast nokk-
uð óvænt, en þá lagði KR Víking
að velli með einu marki gegn
engu í bikarkeppni KSÍ og var
sigurinn eítir atvikum sann-
gjarn. Leikurinn var engu að
síður slakur og dómgæslan jafn-
vel verri. Sigurmarkið skoraði
Sigurður Indriðason rétt fyrir
leikhlé og var það eina virkilega
góða færið í þeim hálfleik.
Það var ekki fyrr en á 13.
mínútu, að fyrsta atlagan var gerð
að marki í leiknum, en þá skallaði
Róbert Agnarsson laust rétt fram
hjá markinu eftir hornspyrnu.
Skömmu síðar munaði litlu að
Magnús Ingimundárson kæmist í
færi, en Diðrik varð fyrri til.
Markið kom á 41. mínútu, en þá
kom sending frá vinstri, Sigurður
Indriðason komst inn fyrir vörn
Fylkir tapaði á
lokamínútunum
FYLKIR úr Árbæ var aðeins
fimm mínútur frá því að slá 1.
deildar lið Breiðabliks út úr
Bikarkeppni KSÍ er liðin léku í
gærkveldi á Kópavogsvelli í
blíðskaparveðri. Þa' voru þeir
Sigurður Halldórsson og Heiðar
Breiðfjörð sem tryggðu liði sínu
sigurinn með tveimur glæsilegum
mörkum á síðustu fimm mínútum
leiksins. Fyrsti sigur Breiðabliks
í 10 leikjum var staðreynd.
Fyrsta mark leiksins kom á 24.
mínútu er Hörður Antonsson fékk
góða sendingu inn í vítateiginn og'
tókst að komast framhjá varnar-
manni og skora laglegt mark.
Þarna var vörn Blikana illa á
verði. Breiðabliksmenn léku oft vel
úti á vellinum, en voru linir við að
skapa sér marktækifæri sem
endranær, það var helst Hákon
sem gerði einhvern usla hjá
Fylkisvörninni.
Breiðabliksmenn voru mun
ákveðnari í síðari hálfleik og sóttu
svo til látlaust allan hálfleikinn.
Var undarlegt hve Fylkir féll
saman, hinn ágæti samleikur sem
var í fyrri hálfleiknum sást ekki
og varnarleikurinn riðlaðist. Ekki
létu marktækifærin standa á sér
hjá Blikunum, strax á 60. mínútu
á Sigurður Halldórsson dauðafæri
á markteig en hittir ekki knöttinn.
Heiðar Breiðfjörð á hörkuskot úti
við stöng sem Ögmundur ver vel.
Það er svo loksins á lokamínútun-
um sem þessir sömu kappar gera
út um leikinn.
Knötturinn berst upp hægri
kantinn á 85. mínútu og Hákon
Gunnarsson sendir knöttinn lag-
lega fyrir markið með hjólhesta-
spyrnu, beint fyrir fætur Sigurðar
Halldórssonar sem spyrnir við-
stöðulaust að marki og skorar
þversláin inn.
Glæsilegt mark hjá Sigurði,
enda var honum ákaft fagnað af
félögum sínum. Rétt fjórum mín-
útum síðar fær Heiðar Breiðfjörð
góffa sendingu inn í markateiginn
þar sem hann var óvaldaður og
skaut hann föstu skoti í bláhorn
marksins, illverjandi fyrir ágætan
markvörð Fylkis. Fylkismenn
máttu bíta í það súra epli að tapa
leiknum þarna á síðustu fimm
mínútum leiksins.
þr.
• Hörður Antonsson (t.v.) og Ólafur Friðriksson berjast um boltann {
leiknum í gær. Hörður skoraði eina mark Fylkis, en sá hlær best sem síðast
hlær, bví að Blikarnir unnu engu að síöur. (Ljósm. RAX).
Víkings og skoraði örugglega með
þrumuskoti af stuttu færi.
Framan af síðari hálfleik virtust
Víkingar vera aðeins að sækja í sig
veðrið og fékk Helgi Helgason
tvívegis færi á að skora án þess að
það tækist. Hinsvegar voru það
KR-ingar sem voru mun nær því
að bæta fleiri mörkum við, er þeir
náðu góðum skyndisóknum, þann-
ig fékk Sigurður Indriðason tvö
mjög góð færi og Björn Pétursson
það þriðja, en Diðrik varði tvívegis
og þriðja skotið fór himinhátt yfir
markið.
Víkingar voru afar lélegir að
þessu sinni og þeir einu sem stóðu
upp úr meðalmennskunni voru
Róbert, Adolf og Magnús. Diðrik
stóð einnig fyrir sínu.
KR-ingar voru jafnir og sterkir,
en best var aftasta víglínan,
Guðjón, Sigurður, Ottó og Börkur
sem hafði góðar gætur á Arnóri
allan leikinn. Þá var Sigurður
mjög mógnandi í skyndisóknun-
um.
— gg-
• Magnús Guðmundsson, markvörður KR, gómar knöttinn örugglega áður
en Arnór Guðjohnsen fær potað í hann. Börkur Yngvarsson er í nágrenninu,
en hann var sem skuggi Arnórs allan leikinn. (Ljósm SS).
í úrslitin í 9. skipti
Akurnesingar lögðu KA/ að
velli í bikarkeppni KSÍ á
Akranesvelli í gærkvöldi, 3i2,
eftir að staðan hafði verið L0 f
hálflcik KA í vil. Leikurinn fór
fram í bezta veðri en hann var
heldur leiðinlegur á að horfa þar
sem dómarinn Róbert Jónsson
leyfði allt of mikla hörku. Akur-
nesingar stefna nú í bikarúrslitin
í 9. skipti, en þeir hafa aldrei
unnið í fyrri 8 tilraununum!
Fyrri hálfleikurinn var mjög
slakur. Bæði liðin misnotuðu
tækifæri en á 34. mínútu skoraði
KA fyrsta mark leiksins. Markið
skoraði Ármann Sverrisson með
hörkuskalla eftir hornspyrnu.
Matthías Hallgrímsson skoraði
mark skömmu síðar en það var
dæmt af vegna rangstöðu.
I seinni hálfleiknum fóru Skaga-
menn smám saman að taka leikinn
í sínar hendur og þeir misnotuðu
tvö mjög góð marktækifæri áður
en Pétur Pétursson fann loksins
leiðina í mark KA á 23. mínútu
seinni hálfleiks. Jón Alfreðsson
tók aukaspyrnu beint á höfuð
Péturs, sem skallaði laglega í
markið.
Á eftir þessu marki fylgdu tvö
Skagamörk í viðbót. Fyrst skoraði
Matthías Hallgrímsson mark á 25.
mínútu eftir að hafa fengið
stungubolta inn fyrir KA-vörniha
frá Kristni Björnssyni og á 34.
mínútu skoraði Kristinn sjálfur
með skalla eftir að góð fyrirgjöf
hafði komið fyrir markið frá Jóni
Áskelssyni. Tveimur mínútum
áður hafði Kristinn skotið yfir í
dauðafæri. Síðasta mark leiksins
kom á 40. mínútu og var það
framhald á bls. 18
Stórsigur ÍBV
Qskar kastaði
kringlunni
60,40 metra
ÓSKAR Jakobsson ÍR varð í
öðru sæti i kringlukasti á
alþjóðlegu frjálsíþróttamóti í
Stokkhólmi í gærkvöldi. Kast-
aði hann kringlunni 60,40
metra. Sigurvegari , varð
Bandaríkjamaðurinn Mac
Wilkins, kastaði 65,34 mctra,
og þriðji varð Erlendur Valdi-
marsson ÍR, kastaði 58,36
mctra. Árangur Óskars er sá
bezti, sem hann hefur náð
erlendis.
IBV og þór léku á Akureyri í
gærkveldi í Bikarkeppninni og
sigraði ÍBV 4 — 1, eftir að hafa
haft yfirburði i leiknum.
Það voru þó Þórsarar sem
skoruðu fyrsta mark leiksins strax
á 2. mínútu er Sigtryggur Guð-
laugsson skaut föstum jarðarbolta'
sem hafnaði í marki ÍBV öllum
mjög á óvart. Það var svo ekki fyrr
en á 43. mínútu leiksins sem
Eyjamenn jafna metin með marki
Karls Sveinssonar. Staðan í leik-
hléi var því 1—1. í síðari hálf-
leiknum réðu Eyjamenn lögum og
lofum á vellinum og skoruðu þá
þrjú mörk til viðbótar. Skoraði
Sigurlás tvö og Óskar Valtýsson
bætti svo fjórða markinu við rétt
fyrir leikslok.
SG/ÞR.
3 leikir í bik-
arnum í kvöld
Bikarkeppni KSÍ heldur áfram í
kvöld og fara þá fram 3 leikir.
Einherji, Vopnafirði—Víkingur,
Ólafsvík.
FH—Fram
Þróttur, Rvk—ÍBK
Leikirnir hefjast allir klukkan
átta.
Þórunn hlaut silfur
og Hermann brons
FYRRI hluti 8-landa keppninnar í
sundi fór fram í Tel Aviv í ísrael
í gær. Ekki var búist fyrirfram við
góðum árangri þar sem við mjög
margar sterkar sundþjóðir var að
etja, Systkinin Þórunn Alfreðs-
dóttir og Hermann Alfreðsson
komu á óvart, en Þórunn krækti í
silfurverðlaun í 200 metra flug-
sundi og Hermann krækti í
bronsverðlaun í 100 metra bringu-
sundi. Auk Islands taka þátt í
keppninni landslið Isrels, Belgíu,
Wales, Noregs, Skotlands, Spánar
og Sviss.
Aranxur íslrn/ku krppondanna varð sem
hér scKÍr. í sviga er röðin í sundinu.
100 metra skriðstund karla>
Bjarni Bjlirnsson 56,51(7).
200 metra baksund karla.
Huió Harðarson 2,23,42(8).
100 metra skriðsund kvenna.
Guðný Guðjðnsdðttir 1.04,5(8)
200 metra baksnnd kvenna.
Þðrunn Iléðinsdóttir 2,43,04(8)
100 metra bringusund karla.
Hermann Allreðsson 1,11,17(3).
100 metra bringusund kvenna.
Sonja Hreiðarsdóttir 1,21,17(6).
200 metra flugsund karla.
Axel Alfreðsson 2,24,62(8).
200 metra flugsund kvenna.
Þórunn Alfreðsdðttir 12,23,86(2).
400 metra skriðsund karla.
Bjarni Björnsson 4,18.76(6)
400 metra skriðsund kvcnna.
Ólöf HjíKertsdóttir 4,55,54(8).
4x100 metra boðsund kvonna.
ísland 4,52,07(8)
4x100 metra boðsund karla.
ísland 4.23.64(8).
Staðan eftir fyrri dag keppninn-
ar er sú að Noregur hefur 90 stig,
Spánn 88, Belgía 74, Sviss 68,
ísrael 62, Wales 60, Skotland 46,
Island 30. Keppninni verður fram-
haldið í dag.
• Landsliðspjálfararnir í knattspyrnu, Tony Knapp fyrrvorandi og Jouri
lljechew, núverandi, hittust óvænt á Laugardalsvellinum í gærkveldi er
báöir horfðu á leik Víkings og KR. Er sá fyrrnefndi hér á landi staddur
í stuttu leyfi. Á milli peirra má sjá Árna Þorgrímsson, landsliðsnefndar-
mann. (Ljósm. SS)