Morgunblaðið - 10.08.1978, Blaðsíða 3

Morgunblaðið - 10.08.1978, Blaðsíða 3
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 10. ÁGÚST 1978 3 Fjölbreytt landbúnaðarsýning opnuð á morgun: Allt frá laxi upp í stóð- hest og 1 já upp í flugvél Landbúnaðarsýningin á Sel- fossi verður opnuð í gagn- fræðaskólanum á Selfossi á morgun klukkan 14.30 með hátíðlegri athöfn. Verða þá fluttar ræður, en að því loknu munu gestir skoða sýninguna. Klukkan 16.00 verður sýningin síðan opnuð fyrir almenning, en á henni getur að líta margs kyns tæki sem notuð eru við landbúnað. Húsdýr verða til sýnis og ennfremur verður sérstök hcimilisiðnaðarsýning og tízkusýningar og kvöldvök- ur verða meðan ssýningin stendur yfir. Eins og fyrr sagði verður sýningin opnuð klukkan 14.30. Þá halda ræður Einar Þor- steinsson, formaður sýningar- stjórnar, fulltrúi bæjarstjórnar eða landbúnaðárráöherra, Stef- án Jasonarson, formaður Búnaðarsambands Suðurlands og Kristján Eldjárn forsti ís- lands. Alls eru sýningaraðilar 107 og sýna þeir vöru sína ýmist innan dyra eða utan. Utan dyra verða til sýnis ýmiss konar vélar og verða þar sýndar heíztu nýjung- ar í þeim efnum. Gripasýning verður í gripahúsum og má nefna að þar verða sýndar 16 kýr, fjögur naut, nýborin kýr með kálfi og geldneyti á ýmsum aldri. Meðal hestanna, sem sýndir verða, eru 15 hryssur og stóðhestar og kindur og hrútar verða sýnd. Geitafjölskylda, geithafur, geit og kiðlingar, verða til sýnis og svín verða einnig á sýningunni. Meðal annars verður sýnt nýtízkulegt svínafæðingarhús. Ýmsar teg- undir af hænsnum verða á sýningunni, svo sem hænsn til kjötframleiðslu og hænsn til eggjaframleiðslu. Landgræðslan verður með sérstakan sýningarbás og verð- ur starfsemi hennar kynnt þar. Sýnd verður landgræðsluvélin TF-TÚN og ef vel viðrar mun flugvélin Páll Sveinsson fljúga yfir sýningarsvæðið á sunnu- dögum og dreifa einhverju yfir það. Skógræktin verður kynnt með skógi, sem plantað hefur verið og verður þar sýnd skógræktar- flóra íslands. Garðyrkjumenn sýna á sýningunni skrúðgarðssýnis- horn, gróðurhús og fleira. Þá verða garðyrkjumenn með blómasýningu. ' Tízkusýningar verða þrisvar á dag yfir helgar, klukkan 15.00, 18.00 og 21.00, en virka daga verða tízkusýningar ekki klukk- an 21.00. Kvöldvökur verða haldnar öl kvöld og verða þar sýndir dansar auk þess sem kórar munu koma fram. Vinnusýningar verða í gangi í heimiiisiðnaðardeild og gefst gestum þar tækifæri til að sjá gömul vinnubrögð, svo sem Meðal þess sem til sýnis verður á landbúnaðarsýningunni eru dráttarvélar og önnur landbúnaðartæki, cn leitazt verður við að sýna helztu nýjungar á því sviði. tóvinnu, skógerð, prjón, gimb, flos og hekl. Þá verða smíðaðar skeifur á sýningunni. Þá má geta þess að í keri einu á sýningarsvæðinu verður sýndur lifandi lax og uppeldis- seiði verða sýnd á útisýningar- svæðinu. Fyrir börnin verður hesta- leiga* og geta börnin þar komið á hestbak og farið í smáreiðtúr. Annars staðar verða hestar, sem . spenntir eru fyrir kerrur og hestar með heybagga og geta börnin setið í kerrunum og jafnvel inn á milli heybagganna. Þá verða í hænsnabásnum smá- ungar, sem börnin geta fengið að halda á. Veitingasalur er í gagnfræða- skólanum og er honum skipt í tvennt, annars vegar grillið og hins vegar matsalurinn. Þar verða kynntar ýmsar nýjungar í matargerð og um helgar verður kalt borð í hádeginu. I kjallara gagnfræðaskólans verða tvisvar á dag kvikmynda- sýningar og hlutavelta og get- raunir verða í gangi á sýning- unni. Þá verður mingripaverzl- un starfrækt á sýningunni og þar geta gestir meðal annars keypt miða í happdrætti, en vinningar þar eru reiðhestur, litasjónvarp og sólarlandsferð. Sýningin, sem stendur dagana 11. til 20. ágúst, verður opin frá klukkan 14.00 til 23.00 virka daga, en klukkan 10.00 til 23.00 um helgar. Aðgönguhliðunum er lokað alla daga klukkan 22.00. Verð aðgöngumiða er krónur 1500 fyrir 13 ára og eldri, 800 krónur fyrir 7 til 12 ára, en fyrir börn yngri en 7 ára er aðgangur ókeypis. Selfoss — bær fram- tíðarinnar? Á undanförnum árum hefur SclfossbaT vaxið mjög hratt og uppbygging þar verið ör. Árið 1970 var gengið frá nýju aðalskipulagi af bænum. Þá var íbúðaf jöldinn rúmlega 2.300 manns en 1. desember árið 1977 voru fbúar Selfoss orðnir rúmlega 3.100. Með sama framhaldi er gert ráð fyrir að um 5.500 til 8.000 manns verði búsettir á Selfossi um næstu aldamót. í skipulaginu frá 1970 var í grundvallaratriðum lcitast við að mynda þéttan bæjarkjarna umhverfis miðstöð stofnana og skóla, en þar er Landhúnaðar- sýningin haldin nú. Þetta skipulag er nú í endurskoðun, en þó er í meginatriðum fylgt þeirri stefnu, sem lögð var til grundvallar árið 1970. Á blaðamannafundi, sem haldinn var á Selfossi í gær, kom fram að sérstök áhersla hefði ætíð verið lögð á að hafa sem flesta íbúa Selfoss með í ráðum um framtíðarþróun bæjarins og í því sambandi var við gerð aðalskipulags bæjarins frá árinu 1970 gerð fyrsta félagskönnun í sambandi við skipulag bæjar hér á landi. Jafnframt þessu hefur verið leitast við að hafa alltaf nægi- legt framboð, bæði á íbúðar- og iðnaðarlóðum, en byggingarland á Selfossi er yfirleitt mjög gott. I skipulaginu er stefnt að því að forðast alla óþrifalega og mengunarvaldandi stóriðju, en þess í stað lögð sérstök áhersla á að hafa rólegt og hvetjandi umhverfi fyrir íbúana, og þá sérstaklega börnin. Stærsta verkefnið, sem nú er í gangi á Selfossi, er bygging félags- heimilis á bökkum Ölfusár. Gestur Ólafsson arkitekt hef- ur haft yfirumsjón með skipu- lagningu Selfoss, sem fram- tíðarbæjar. Á blaðamanna- fundinum sagði hann að það sem hann teldi að Selfoss hefði t.d. fram yfir Reykjavík væri hvað yfirleitt væri stutt fyrir fólk að fara í vinnu og væri það sérstaklega æskilegt vegna vax- andi þátttöku kvenna í atvinnu- lífinu. Ennfremur væri mjög Likan af skipulagi Selfoss eins og það er hugsað og sézt á því hvernig skiptast á iðnaðár. verzlunar-. íbúðar- og útivistarsvæði. Ljósm. Rax. góð aðstaða til íþróttaiðkana á Selfossi og þar væri þeirri stefnu framfylgt að safna öllu félagsstarfi saman á einn stað, en það örvaði félagssamskipti fólks á öllum aldri. Fyrir margra hluta sakir er Selfoss tilvalin héraðsmiðstöð, bæði hvað viðvíkur menntun, atvinnu, ráðstefnuhaldi og þjón- ustu. Grunnskólinn á Selfossi getur rúmað allt að 800 nemend- ur og stefnt er að því að byggja upp fjölbrautaskóla á staðnum. Skólahúsnæðið er um 5000 gólffermetrar að stærð og þar er einnig mikið nýtanlegt vegg- pláss. Skólahúsnæðið má því nýta á margan annan hátt en til kennslu. Þar er einnig hentug keppnis- og æfingaaðstaða fyrir íþróttir, og gefur það ýmsa möguleika. Hægt er að halda þar sýningar, bæði stórar og smáar og á bæjarfélagið uppi- stöður og skilrúm sem nota má í því skyni. Sagði bæjarstjórinn á Selfossi, Erlendur Hálfdánarson að hann teldi að á næstu árum myndi þörfin fyrir slíka aðstöðu til sýninga aukast að mun, þar sem Selfoss væri mjög í alfara- leið. Nefndi hann sem dæmi að um hverja helgi í sumar hefðu um 10 til 15 þúsund manns lagt leið sína um Selfoss. Erlendur sagði ennfremur að nota mætti íþróttahús skólans sem hljóm- leikasal, því þar væri mjög góður hljómburður. Eftir blaðamannafundinn var blaðamönnum gefin kostur á að skoða bæinn. Þar var allt iðandi af mannlífi og allt í fullum gangi við að undirbúa Land- búnaðarsýninguna, sem hefst næsta föstudag. Krakkarnir í unglingavinnunni voru í óða önn við að tyrfa svæðið í kringum skólann og allir virtust vilja leggja eitthvað af mörkum til að fegra bæinn sinn, því í görðúm mátti sjá fólk önnum kafið við að snyrta blómabeð, planta trjám og við aðra hliðstæða iðju, enda var veðrið alveg tilvalið til þess. Mikil og fjölbreytt uppbyggingarstarfsemi á Selfossi

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.