Morgunblaðið - 10.08.1978, Blaðsíða 26

Morgunblaðið - 10.08.1978, Blaðsíða 26
26 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 10. ÁGÚST 1978 t Systir okkar, SIGRÍÐUR ÞORGILSDÓTTIR, Stórholti 31, andaöist á Landakotsspítala 8. ágúst. Þorgerður Þorgilsdóttir, Páll Þorgilsson. Systir okkar, ÞÓRUNN PÉTURSDÓTTIR, sjúkraÞjálfari, Álfaskeiði 40, Hafnarfirði, Hafnarfirði, lést í Landspítalanum 8. ágúst. Aöalheiður Pétursdóttir, Sigríður Pátursdóttir, Karl Pétursson. t Móöir okkar, JÓHANNA BJARNADÓTTIR, Háaleitisbraut 54, lést í Landspítalanum, þriöjudaginn 8. ágúst. Jónfríður Sigurðardóttir, Guðjón Sigurðsson, Rafn Sigurösson, Sverrir Sigurðsson. f Systir mín og móöursystir okkar. ÐRYNHILDUR INGVARSDÓTTIR, Hátúni 10B, Reykjavík andaöist 8. þ.m. Svanborg Bremnes Ingvar Hallgrímsson Pernille Bremnes, Jónas Haligrímsson, Vílborg ísberg, Þórir Hallgrímsson, Jörvar Bremnes. f Hjartkær eiginkona mín, GUDRÚN STEFÁNSDÓTTIR, Mjósundi 16, Hafnarfirdi, lézt 5. ágúst. Fyrir mína hönd og barna minna. Jón Pálsson. t Eiginmaöur minn og faöir okkar, SIGURDUR TÓMASSON, Goöheimum 8, andaöist að morgni 9. ágúst. Fyrir hönd vandamanna. Herborg Guðmundsdóttir, Ingibjörg Sigurðardóttir, Elínborg Sígurðardóttir. t Utför moöur okkar, INGIBJARGAR ÁRNADÓTTUR, Fálkagötu 14 veröur gerö frá Neskirkju, fimmtudaginn 10. ágúst kl. 13.30. Skúli Magnússon, Guörún F. Magnúsdóttir, Þorkell Magnússon, Kristinn Magnússon, Rafn Thorarensen. t Systir okkar, MARÍASÍNA MARÍASDÓTTIR, Kleppsveg 10, er lést 3. ágúst veröur jarðsungin frá Fossvogskirkju föstudaginn 11. ágústi kl. 3 Fyrir hönd systkina hinna látnu og annarra vandamanna. Þóröur Fínnbogi Guömundsson. t Faöir okkar, ÞORSTEINN SNORRASON, Hvassafelli, veröur jarösunginn frá Hvammskirkju Noröurárdal, laugardag 12. ágúst kl. 1400. ' Snorri Þorsteinsson, Gísli Þorsteinsson. Stígur Guðbrands- son -Minningarorð Fæddur 4. nóv. 1906 Dáinn 27. júlí 1978 Eg vil í nokkrum orðum kveðja vin minn Stíg Guðbrandsson er fæddur var í Reykjavík og ólst þar upp í bernsku. Foreldrar hans voru Júlíana Stígsdóttir og Guð- brandur Jónsson, en þau áttu fimm börn og er aðeins á lífi Sigurður, er býr í Reykjavík. Mikil fátækt var á heimili hans og varð Stígur aðeins 14 ára að sjá um sig sjálfur og stunda almenna vinnu. Snemma hneigðist hugur hans til sjómennsku og vann hann við þau störf nær einvörðungu fram yfir þrítugs aldur. Árið 1928 kvænist hann Vilborgu Jónsdóttur frá Hópi í Grindavík og hófu þau búskap í Grindavík og eignuðust sex börn og eru fimm á lífi, en þau eru: Jón eftirlitsmaður, Heimir ljósmyndari, Dagbjartur hús- gagnasmiður, Þórhallur löggiltur endurskoðandi og Edda Borg húsmóðir. Son sinn Eggert misstu þau tveggja ára. Stígur var mikill fjölskyldufaðir, enda minnugur bernsku sinnar og hversu hann sjálfur fór á mis við heimili sitt í uppvexti. Stór hópur barnabarna minnist og afa síns og langafa en hann var þeim óvenju kær alla tíð. Þau hjónin Stígur og Vilborg voru mjög samhent, en hún lést fyrir fjórum árum. Hrakaði heilsu Stígs fljótlega eftir andlát hennar og má með sanni segja að hann hafi ekki borið sitt barr eftir það. Árið 1939 flyst Stígur til Reykjavíkur og vinnur við verk- stjórn um nokkurt skeið, en flyst þaðan til Keflavíkur 1942 og gerist aðalverkstjóri hjá Keflavíkur- hreppi og árið 1946 lögregluþjónn á sama stað. Var hann vinsæll mjög í þessum störfum og margir minnast hans með velvild og hlýju, enda vildi hann leysa hvers manns vanda og átti mjög auðvelt að kynnast fólki. Árið 1964 flyst hann til Kópavogs, að Álfhólsvegi 29, og átti þar mjög skemmtilegt einbýl- ishús. Hann vann hjá Reykjavík- urborg almenn störf næstu árin, en þó lengst af verkstjóri við sprengingar á grjóti. Um nokkurra ára skeið vann hann og hjá fiskbúðinni Sæbjörgu í Reykjavík. En árið 1974 flyst hann á heimili dóttur sinnar Eddu og Magnúsar manns hennar er búsett voru í Hafnarfirði. Vann hann um tíma vaktmannsstörf hjá Eimskip, en þá fór að halla undan fæti, hvað snerti heilsu hans. Hugur hans stóð þó til sjómennskunnar og keypti hann tvo minni báta, en komst ekki til þess að stunda sjóróðra vegna heilsuleysis. Er dóttir og tengdasonur fluttust til Noregs í vor, þá fluttist hann til Keflavíkur til Jóns sonar síns og tengdadóttur og bjó þar til dauða- dags. Eg kynntist Stígi fyrst árið 1973, en þá heimsótti ég hann að Álfhólsvegi 29 og ræddum við saman um ýmis mál. Eru mér ógleymanleg þessi fyrstu kynni okkar, enda var Stígur mjög fróður og hafði frá mörgu að segja af langri starfsæfi. Undraðist ég ttijög hversu fróður hann var um öll bæjarmál Kópavogs, svo og almennt um landsmál. Stígur hafði óvenju skemmtilegan frá- sagnarstíl og ágæta kímnigáfu. Var hann tíður gestur á heimili okkar hjóna og færði yl og hlýju með sér. Karlmennska Stígs birt- ist ekki síst í jákvæðu hugarfari hans til ungá fólksins og skildi hann vel þá nauðsyn, að mann- dómsárum sínum máttu þau ekki glata í iðjuleysi, heldur að verja þeim í skapandi starf. Gladdist hann mjög yfir hverjum áfanga á þeirri braut hjá sérhverju ung- menni og var engu líkara, en hann sæi sjálfan sig ungan í annað sinn. Einnig hafði hann mikinn áhuga á því að bæta kjör aldraðs fólks og þá sérstaklega þeirra, sem engan lífeyrissjóð hafa og aðeins verða að lifa af ellilaunum. Að hans mati eru engu líkara, en þessi fjölmenni hópur sé hafður utangátta í þjóðfélaginu,- svo mjög er hagur hans fyrir borð borinn. Flestir yngri menn og konur eru nú sem betur fer orðnir virkir félagar í sínum lífeyrissjóðum. Núverandi tryggingakerfi er stórgallað gagn- vart þessum aðilum og hafði Stígur næmt auga fyrir þessum brestum í kerfinu, en því miður vilja menn eða geta ekki gert nokkuð til úrbóta, enda þótt vandinn blasi augljóslega við öllum. Á sínum yngri árum tók Stígur virkan þátt í félagsmálum og hafði alla tíð mikinn áhuga á þjóðmál- um. Má því með sanni segja að fátt mannlegt hafi hann látið fara fram hjá sér. Sú kynslóð, sem hverfur með Stígi hefur unnið landi og þjóð okkar mikið gagn, sem við seint fáum fullþakkað. Lífið á uppvaxt- arárum þess fólks var mjög erfitt og fátækt og atvinnuleysi daglegt brauð. En engu að síður hefur þrautseigja og dugnaður þess verið lyftistöng velmegunar síðari tíma. Er ég nú minnist Stígs, þá kemur mér í huga, að hann er einmitt dæmigerður fulltrúi síns tíma og veit ég að sú minning mun lifa. Að lokum sendi ég aðstandend- um hans samúðarkveðjur. Sigurður Helgason, Kópavogi. Þriðjudaginn 8. ágúst yar borinn til hinstu hvílu frá Þjóðkirkjunni í Hafnarfirði Stígur Guðbrandsson, sem var fæddur 4. nóvember 1906 í Reykjavík. Um leið og ég kveð minn kæra tengdaföður, minnist ég hans sem örláts manns á veraldleg gæði, bæði til min, minnar elskulegu eiginkonu og dætra okkar hjóna Gerðar Óskar og Herdísar Erlu. Ég minnist hans sem manns sem aldrei mátti aumt sjá á öðrum, því hann var fljótur til að hugga og hughreysta. Eins var hann fljótur að gefa frá sér það sem hann eignaðist, enda þótti honum ávallt sælla að gefa en þiggja, og því stóð veraldlegt ríkidæmi hans aldrei hátt, en þeim mun stærri sjóði á hann á himnum, að mínu viti, vegna hjartagæsku sinnar og hjálpsemi í garð bæði barna og gamalmenna sem minna máttu sín í þjóðfélag- inu. Ég þakka honum allan þann stuðning sem hann og eiginkona hans, Vilborg Jónsdóttir frá Hópi í Grindavík, sem lést fyrir fjórum árum, veittu mér, fyrst í Keflavík frá 1962 og síðan í Kópavogi, að Álfhólsvegi 29. Eldri dóttir okkar hjóna, Gerður Ósk sem fæddist í Keflavík, minnist hans með gleði í hjarta, frá bernsku sinni í húsum hans, enda má segja að hann hafi átt í henni hvert bein, og síðan eftir að eiginkona hans dó og hann fluttist til okkar í Hafnarfjörð var hann dætrum okkar hjóna til sérstaklega mikillar ánægju og uppfræðslu. Ég færi Stígi hjartans þakkir frá dætrunum, sem nú eru búsett- ar um tíma í Noregi, en því miður höfðum við ekki tækifæri til þess að koma heim til íslands til að fylgja honum til hinstu hvílu. Með eiginkonu minni Eddu Borg sendi ég heim til Islands samúðarkveðj- ur til eftirlifandi bræðra hans, sona, tengdadætra og barnabarna og annarra venslamanna. Magnús Óskar Magnússon f Þökkum auðsýnda samúö og vinsemd vegna fráfalls EINARS B. SIGURDSSONAR, Laugarnesvegi 104 Guðbjörg Jónsdóftir, Einar Logi Einarsson, Sverrir Sigurösson. Elín M. Siguröardóttír, Viðar Sigurðsson, og sonardætur. f Eiginmaður minn, sonur, faöir okkar, tengdafaðir og afi, ARNAR RÓSANT JÓRGENSEN, verður jarðsunginn frá Fossvogskirkju, föstudaginn 11. ágúst kl. 1.30. Elísabet Jóhannsdóttir, Sigríður Þorleifsdóttir, Jóhann Þór Arnarson, María Brynjólfsdóttir, Sigrún Arnarsdóttír og barnabörn. f Þökkum innilega sýndan hlýhug við fráfall og útför, GUNNARS RUNÓLFSSONAR, Vopnafiröi. Eigínkona, börn, tengdabörn og barnabörn. f Þökkum innilega auðsýnda samúö og hlýhug viö fráfall og jaröarför móöur okkar, tengdamóöur, ömmu og langömmu, ÞÓRU SIGURBJARGAR JÓNSDÓTTUR, frá Patreksfirði, Óli Barðdal, Guðmundur Gíslason, tengdadætur, börn og barnabörn.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.