Morgunblaðið - 10.08.1978, Blaðsíða 4
4
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 10. ÁGÚST 1978
Leikrit vikunnar kl. 19.40:
Sigurvcig Jónsdóttir. Erlingur Gislason.
Brynja Bcnediktsdóttir lcikstjóri.
„Ef þú hefur sagt A,
verður þú líka að segja B”
í útvarpi í kvöld klukkan 19.40
verður flutt leikritið „Alfa Beta“
eftir E.A. Whitehead, í þýðingu
Kristrúnar Eymundsdóttur. Félag-
ar í Leikfélagi Akureyrar flytja, en
leikstjóri er Brynja Benediktsdótt-
ir. Með hlutverkin fara þau Sigur-
veig Jónsdóttir og Erlingur Gísla-
son.
Nafn leikritsins er dregið af
fyrstu bókstöfunum í gríska staf-
rófinu og er líklega hugsað á sama
hátt og þegar sagt er á íslensku: „Ef
þú getur sagt A, verður þú líka að
segja B.“ Menn eiga ekki bara að
segja hálfan sannleikann, heldur
allan. A því byggist ógæfa Normu
Elliot í skiptum hennar við mann
sinn. Og Frank er að vissu leyti að
blekkja sjálfan sig um leið.
Enski rithöfundurinn E.A.
Whitehead vann margvísleg störf,
m.a. við vöruflutninga, kennslu og
sölumennsku, áður en hann fór að
skrifa leikrit. Um tíma var hann
leiklistarráðunautur við Royal
Court leikhúsið í London. „Alfa
Beta“ er annað í röðinni af verkum
hans og var frumsýnt í Apoltoleik-
húsinu í London árið 1972. Árið
eftir var það tekið til sýninga í
Bandaríkjunum og víðar um heim.
Það var sýnt hjá Leikfélagi Akur-
eyrar á s.l. vetri.
Útvarp í dag kl. 15.00:
Ævar R. Kvaran
byrjar lestur nýrr-
ar framhaldssögu
í útvarpi í dag verður byrjað
að lesa nýja miðdegissögu.
Sagan nefnist „Brasilíufararn-
ir“ og er eftir Jóhann Magnús
Bjarnason, en lesari er Ævar
R. Kvaran leikari.
Ævar tjáði Morgunblaðinu
að höfundurinn hefði verið
Islendingur í Vesturheimi, en
bókin kom upphaflega út árið
1905, en nýjasta útgáfan er frá
árinu 1972.
„Sagan fjallar um fjóra
unga alþýðumenn á Islandi á
miðri síðustu öld. Þeir taka sig
upp og fara til Brasilíu og
kunna ekkert mál nema
islensku. Fjallar sagan um
ævintýri þau sem félagarnir
fjórir lenda í í ferð sinni og
dvöl í Brasilíu. Einn fjór-
menninganna segir söguna um
þá alla og að mínu mati er
þetta ákaflega skemmtileg og
spennandi bók. Frásögnin er
heillandi á margan hátt, við-
burðarík og rómantísk. Þetta
er skáldsaga og er yfir henni
ævintýralegur og fallegur
blær,“ sagði Ævar.
Ævar sagði ennfremur að
þetta yrðu um þrjátíu lestrar
en þess má geta að þrátt fyrir
það að um 40 ár eru liðin frá
því að Ævar R. Kvaran fór að
lesa í útvarp er þetta fyrsta
framhaldssagan sem hann les
þar.
Nú býöst þér sérstakt tæki-
færi til aö gera hagstæö
innkaup á
ÚTSÖUJNNI
í HAGKAUP
Dæmi:
Dömubuxur
Dömublússur
Pils
frá kr. 1.995
frá kr. 1.495
frá kr. 2.995
Vinnuskyrtur, herra frá kr. 1.495
Anorakar, nylon frá kr. 1.495
Loftljós, ósamsett frá kr. 299
HAGKAUP
SKEIFUNN115 KJÖRGARÐI
Útvarp Reykjavík
FIM/MTUDKGUR
10. ágúst
MORGUNNINN
7.00 Vcðurfregnir. Fréttir.
7.10 Létt lög og morgunrabb.
7.55 Morgunbæn
8.00 Fréttir. 8.10 Dagskrá.
8.15 Veðurfr. Forustugr.
daghl. (útdr.).
8.30 Af ýmsu tagi. Tónleikar.
9.00 Fréttir.
9.05 Morgunstund barnanna.
Kristín Sveinbjörnsdóttir
les framhald sögunnar
„Áróru og litla bláa bílsins“
eftir Anne Cath.-Vestly (3). i
9.20 Tónleikar. 9.30
Tilkynningar. Tónleikar.
10.00 Fréttir. 10.10 Veður-
fregnir.
10.25 Víðsjá. Friðrik Páll Jóns-
son fréttamaður stjórnar
þættinum.
10.45 Mannanöfn og nafngitir,
Gunnar Kvaran tekur
saman þáttinn.
11.00 Morguntónleikar. Alicia
De Larrocha og Ffl-
harmónfusveit Lundúna
leika Píanókonsert í D-dúr
íyrir vinstri hönd eftir
Maurice Ravel. Hljómsveit
Tónlistarháskólans í París
leikur Sinfóníu nr. 3 í c-moll
op. 78 eftir Camille Saint-
Saenst Georges Pretre
stjórnar.
12.00 Dagskrá. Tónleikar. Til-
kynningar.
12.25 Veðurfregnir. Fréttir.
Tilkynningar.
Á frívaktinni. Sigrún Sig-
urðardóttir kynnir óskalög
sjómanna.
SÍÐDEGiÐ_____________________
15.00 Miðdegissagan.
„Brasilíufararnir“ eftir
Jóhann Magnús Bjarnason,
Ævar R. Kvaran leikari
byrjar lesturinn.
15.30 Miðdegistónleikar. Osian
Ellis leikur á hörpu lög eftir
Benjamin Britten og
William Mathias. / Margot
Rödin syngur Ljóðsöngva
eftir Hugo Alfvém Jan
Eyron leikur með á pínaó.
16.00 Fréttir. Tilkynningar.
(16.15 Veðurfregnir).
16.20 Tónleikar.
17.10 Lagið mitt. Helga Þ.
Stephensen kynnir óskalög
barna.
17.50 Víðsjá. Endurtekinn
þáttur frá morgni sama
dags.
18.05 Veðurfregnir. Dagskrá
kvöldsins.
KVÖLDIÐ
19.00 Fréttir. Fréttaauki. Til-
kynningar.
19.35 Daglegt mál, Gísli Jóns-
son flytur þáttinn.
19.40 Leikrit. „Alfa Beta“ eftir
E.A. Whitehead
Þýðandi. Kristrún
Eymundsdóttir. Félagar í
Leikfélagi Akureyrar flytja.
Leikstjóri. Brynja Bene-
diktsdóttir. Persónur og
lcikendur.
Norma Elliot / Sigurveig
Jónsdóttir. Frank Elliot /
Erlingur Gíslason.
21.10 íslenzkir einsöngvarar
og kórar syngja.
21.40 Staldrað við á Suðurnesj-
um. Fjórði þáttur frá
Grindavik, Jónas Jónasson
ræðir við heimafólk.
22.30 Veðurfregnir. Fréttir.
22.45 Reykjavíkurleikar í
frjálsum íþróttum,
Hermánn Gunnarsson lýsir
frá Laugardalsvelli.
23.05 Áfangar, Umsjónar-
menn. Ásmundur Jónsson og
Guðni Rúnar Agnarsson.
23.55 Fréttir. Dagskrárlok.
7.55 Morgunbæn
8.00 Fréttir. 8.10 Dagskrá.
8.15 Veðurfr. Forustugr.
dagbl. (útdr.).
8.30 Af ýmsu tagi. Tónleik-
ar.
9.00 Fréttir.
9.05 Morgunstund barn-
anna. Kristín Sveinbjörns-
dóttir heldur áfram lestri
sögunnar „Áróru og litla
bláa bflsins“ eftir Anne
Cath. — Vestly (4).
9.20 Tónlcikar. 9.30 Tilkynn-
ingar. Tónleikar.
10.00 Fréttir. 10.10 Veður-
fregnir.
10.25 Fréttir. 10.10 Veður-
fregnir.
10.25 Það er svo margt. Einar
Sturluson sér um þáttinn.
11.00 Morguntónleikar.
„Harmonien“ hljómsveitin í
Björgvin leikur Hátíðar-
pólonesu op. 12 eftir Johan
Svendsent Karsten Andersen
stjórnar. Elisabeth Schwarz-
kopf syngur Ijóðsöngva eftir
Richard Strauss. Ffl-
harmóniusveitin í Vínarborg
leikur „IInotubrjótinn“,