Morgunblaðið - 10.08.1978, Blaðsíða 33

Morgunblaðið - 10.08.1978, Blaðsíða 33
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 10. ÁGÚST 1978 33 U Tí7 ^ VELVAKANDI SVARAR í SÍMA 0100KL. 10—11 FRÁ MANUDEGI Lærið vélritun lega gott erindi um daginn og veginn, flutt í útvarpið mánudag- inn 7. ágúst s.l. Þorkell Hjaltason.“ • Undarlegt sjónarmið „Heiðraði Velvakandi. Aldrei hefði ég trúað því að óreyndu að Velvakandi ætti eftir að leggjast svo lágt að birta annað eins bréf og birt var 6. ágúst sl. (sjá meðf. úrklippu). — Og það frá ónafngreindum aðila! Mér finnst þetta eitthvert und- arlegasta sjónarmið sem ég hef séð, sérstaklega í okkar þjóðfélagi, og þar að auki ómakleg árás á heila stétt manna, leikara þjóðar- innar. • Slysahætta á Nesvegi? Ö.Á.. — Mikil slysahætta er nú á Nesveginum þar sem eru grindur meðfram endilangri akbrautinni milli gangstéttar og akbrautar. Þetta mun eiga að takmarka umferðarhraðann, en þarna er um að ræða hálfgerða gildru eða a.m.k, aukna hættu og án efa stafar meiri hætta af þessum grindum heldur en 10—20 km hraðari akstri. Ekki sízt verður hættan þegar skyggja tekur á kvöldin eins og nú er byrjað og því ætti að taka þetta burtu hið fyrsta. Er ég raunar hissa á því að ekki skuli menn hafa fett fingur út í þessar hindranir til þessa, eitthvað var greint frá því í blaði um daginn, en síðan ekkert. Um leið vil ég fá að minnast á annað mál, en það er bensínverð. Nú er talað um gengislækkun, a.m.k. meðal manna, og því er haldið fram að sú stjórn er nú verði mynduð velji gengislækkun- arleiðina. Bensínverðið stígur því áreiðanlega enn meira og sumir halda því fram að það muni nálgast 190 krónur lítrinn. Bíleig- endum verður því spurn hvers vegna sé alltaf verið að hækka SKÁK Umsjón: Margeir Pétursson I undanúrslitum Moskvu- meistaramótsins í ár vakti skák þeirra Goldins og Arbakovs geysimikla athygli. Við skulum nú líta á lokafléttuna í skákinni. Arbakov, sem þegar er orðinn hrók og riddara undir, hefur svart og á leik: 33. — IId4!, 34. Bxd4 — Bxd5+, 35. Kgl - Bxd l+, 36. Hf2 - De4! og hvítur gafst upp. Ákaflega er þessi F.S.Þ. andlega fátækur að hafa svona sjónarmið, burtséð frá „hatri" hans og (sennilega) öfund í garð leikara- stéttarinnar. Gerir F.S.Þ. sér ekki grein fyrir að verið gæti að erlendir starfsbræður íslenzku leikaranna færu í samúðarverkfall með Islendingunum? Sennilega lítur F.S.Þ. ekki á leikara sem atvinnumenn. Hann (eða hún) ætlast sennilega til þess að leikarar séu í fullri atvinnu að deginum, rétt eins og ég og þú, og „leiki svo bara á kvöldin" sjálfum sér, fyrst og fremst, til ánægju! Mér þykir að Velvakandi hafi lagst mjög lágt. Það er stundum hallað á „síðdegisblöðin" í Mbl. fyrir að þau leggist lágt, — en maður líttu þér nær. Persónulega á ég ekki neinna hagsmuna að gæta í þessu sam- bandi nema að ég er í Blaða- mannafélagi íslands og tilheyri þannig ákveðinni starfsstétt. Ég vil því ekki una við að „stærsta" blað þjóðarinnar taki svona bréf til birtingar og það nafnlaust. Með fyrirfram þökk fyrir birt- inguna. Anna Bjarnason, hlaðamaður á Dagblaðinu. P.S. Það kemur náttúrlega ekki málinu við, en mér finnst persónu- lega að íslenzkir leikarar séu starfi sínu mjög vel vaxnir og vildi alls ekki missa þá úr hinu „stórömur- lega útvarpi", sjónvarpinu eða af fjölunum. En það er í rauninni aukaatriði í þessu sambandi." bensínverð og iðgjöld trygginga? Og bæta má brennivíni við. Hví er mest ráðist á sömu vörutegundirn- ar? • Meiri umferð í Breiðholt? Breiðhyltingur vildi fá að nefna það að verði umferðinni í Garðabæ beint inn á hraðbraut um Fossvog neðan Breiðholts- hverfa eins og rætt hefur verið um skv. aðalskipulagi, megi búast við mjög mikilli aukningu umferðar þarna neðan Breiðholtshverfanna og því sé það álitamál hvort þetta sé hagkvæm lausn. Umferðin sé nú þegar nóg þótt ekki verði bætt við hana. HÖGNI HREKKVÍSI „Ástarsætiö er upptekið!“ Ný námskeiö hefjast í kvöld. Kennsla eingöngu á rafmagnsritvélar, engin heimavinna. Innritun og upplýsingar í síma 41311 eftir kl. 13:00. Vélritunarskólinn Suðurlandsbraut 20 Hjólbarðar fyrir dráttarvélar Framdekk: 600 x 16 — 6 strigalaga meö slöngu Kr. 18.766 650 x 16 — 6 strigalaga meö slöngu Kr. 21.397 750 x 16 — 6 strigalaga meö slöngu Kr. 26.053 Afturdekk: 10 x 28 — 6 strigalaga Kr. 58.753 11 x 28 — 6 strigalaga Kr. 66.109 12 x 28 — 6 strigalaga Kr. 78.600 Ath.: Söluskattur er innifalinn í veröinu. Véladeild HJÓLBARÐAR Sambandsins^^ Isrá,A,".S'S»9oo 'Hafið þið heyrt um hjónin sem máluðu húsið sitt með HRAUNI fyrit 12 árum. os ælla nú að endurmála það í sumar bara til að breyta um liL” Sögurnar um ágæti þessarar sendnu akrýlmálningar, HRAUN-málningarinnar frá Málningu h/f magnast með árunum, og hróður hennar eykst með hverju árinu, sem líður. Nú, eftir að HRAUN hefur staðiö af sér íslenska veðráttu í rúmlega 10 ár, er enn ekki vitað um hinn raunverulega endingartíma þess, sé það notað rétt í upphafi. Þess vegna gerir þú góð kaup, þegar þú velur HRAUN á húsið. HRAUN málninghlf MANNI OG KONNA HAGTRYGGING HF 4<!, Vn.VlADOW. SÁSTU HVAÐ HHNN FOR HRRTT j----- HfthJN E« KRNSKt AO FLÝTA SÉft OT ÚR VlYNDlbiNt —v i \ AKIÐ GÆTILEGA ÞAR SEM BÖRN ERU AÐ LEIK

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.