Morgunblaðið - 10.08.1978, Blaðsíða 11

Morgunblaðið - 10.08.1978, Blaðsíða 11
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 10. ÁGÚST 1978 11 Hlutverk Grænlands í vörnum Norður- Atlantshafsrík j anna Einhvern kann að undra. að á dögum þotuflugs og gervi- hnatta nota Danir hundasleða við gæzlu á Grænlandi. Þetta er einn liður í vörnum landsins. Vegna legu sinnar skiptir Grænland miklu fyrir öryggi landanna við Norður-Atlants- haf. í síðari heimstyrjöldinni reyndu bjóðverjar nokkrum sinnum að setja upp veðurat- hugunarstöðvar á austurströnd Grænlands. Vænta má, að svip- aðar tilraunir hafi verið gerðar síðar. Árið 1950 tóku Danir að nota hundasleða við gæzlu á ný, en það höfðu þeir ekki gert síðan á stríðsárunum. Sleðaeftirlits- ferðirnar eru kallaðar Sirius. Þær hefjast í Daneborg á austurströnd Grænlands og ná yfir 10.000 kílómetra langa strandlengju, jafnt sumar sem vetur. Þegar herfræðingar fjalla um Norður-Atlantshafið, nefna þeir ^ft línuna mijli Grænlands, íslands og Bretlands. Þeir ættu heldur að tala um línuna milli Grænlands, íslands og Noregs. Á því svæði leggur NATO mesta áherzlu á að fylgjast með umsvifum Sovétmanna. Bækistöð Bandaríkjamanna í Keflavík er burðarásin í þessúm eftirlitsstörfum Atlantshafs- milli Grænlands og Svalbarða. Grænland tengist þó ekki síður vörnum Norður-Ámeríku. Bandaríkjamenn hafa stóra bækistöð í Thule á Norðvest- ur-Grænlandi. Þar var í mörg ár miðstöð kjarnorkusprengjuflug- véla, sem lúta stjórn bandarísku kjarnorkuherstjórnarinnar (Stratagic Air Command, SAC). Sprengjuflugvélarnar hurfu á brott fyrir nokkrum árum, eftir að flugvél með fjórar kjarnorku- sprengjur innanborðs fórst skammt frá stöðinni. Síðan hefur bækistöðin í Thule fyrst og fremst verið notuð sem ratsjárstöð. Eins og sams konar stöðvar á Englandi og Alaska er hún búin tækjum til að fylgjast með hugsanlegum loftárásum eldflauga og flugvéla frá Sovétríkjunum á Norð- ur-Ameríku. Mjög fullkomið viðvörunarkerfi, sem er í stöð- ugu sambandi við bandarísku kjarnorkuherstjórnina, gæfi sprengjuflugvélum hans nokkr- ar mínútur til að forða sér undan eyðileggingu á jörðu niðri. Þessar ratsjárstöðvar heita á ensku Ballistic Missile Early Warning System (BMEWS), en eins og heitið gefur til kynna er það megin- hlutverk ratsjárkerfisins að vara við árás langdrægra eld- flauga. Ferhyrningarnir sýna Þaö ratsjárkerfi Atlantshafsbandalagsríkjanna, sem gera á viövart um árás kjarnorkueldflauga á Noröur-Ameríku. Hin keðjan sýnir Dær ratsjárstöövar, sem fylgjast meö feröum sovézkra sprengjuflugvéla. bandalagsríkjanna. Þaðan fara eftirlitsflugvélar reglulega til að fylgjast með skipaferðum á höfunum frá Grænlandi til Noregs. Samkvæmt upplýsing- um frá Alþjoðaherfræðistofnun- inni í London (International Instituete of Strategic Studies), en vitneskja, sem vélarnar afla, samræmd upplýsingum frá raf- eindatækjum neðansjávar. Norski flugherinn gerir einnig Eftir John C. Ausland út gæzluvélar frá bækistöðvum sínum í Noregi. Þessar flugvélar stunda eftirlit á hafinu milli Noregs og íslands og á Barents- hafi. Ekki er fullljóst, hvernig starfsemi á Grænlandi tengist eftirlitsstörfunum á Norður-At- ' lantshafi. Einu herflugvélarnar, sem Bandaríkjamenn eru með á Grænlandi, eru þyrlur. Hins vegar er dönsk „vísindastöð" á norðausturodda Grænlands, en danskir embættismenn eru orð- varir um hana. Ætla má, að þessi stöð gegni mikilvægu hlutverki og þaðan sé fylgzt með því, sem fram fer á svæðinu Frá íslandi til Alaska reygir sig svo kölluð Distant Early Warning lína, sem tengir fjórar ratsjárstöðvar í suðurhluta Grænlands. Þessar ratsjár eru til þess gerðar að gefa til kynna árás sovézkra kjarnorku- sprengjuflugvéla. Nú starfa menn í þessum ratsjárstöðvum, en í Pentagon, varnarmálaráðu- neyti Bandaríkjanna, er stefnt að því að þær geti starfað mannlausar. Hernaðarlegt gildi Grænlands í framtíðinni er mjög komið undir því, hvað verður um varnarstöðina í Keflavík. Gildi Grænlands verður líklega fyrst og fremst í þágu varna Norð- ur-Ameríku eins lengi og NATO hefur aðstöðu í Keflavík. Ef íslenzka ríkisstjórnin ákveður að segja upp varnarsamningn- um við Bandaríkin, mun gildi Grænlands breytast. Þáttur landsins í vörnum alls Norð- ur-Atlantshafssvæðisins mundi stóraukast. Yrði bandaríska varnarliðið að hverfa frá íslandi mundi hlutur Norðmanna óhjá- kvæmilega aukast í eftirliti Atlantshafsbandalagsins með sovézka flotanum í Norðurhöf- um. Líklega fær Grænland heima- stjórn árið 1979, en Danir munu fara áfram með utanríkismál landsins. Hljómlistarfólk frá Akur- eyri leikur á orgel, trompet og flautu. Gyða Halldórsdótt- ir leikur á orgel. Hjálmar og Sveinn Sigurbjörnssynir leika tvíleik á trompet. Rún Halldórsdóttir leikur á alt-blokkflautu. Kristján Einarsson skáld frá Djúpa- læk flytur ræðu. Kirkjukór. Hólahátíð á sunnudag Hólahátíðin verður haldin á Hólum í Hjaltadal n.k. sunnudag 13. ágúst og hefst kl. 2 e.h. með því, að klukkum Dómkirkjunnar verður hringt og prestar ganga í skrúðgöngu til kirkju. Þar fer fram hátíðarguð- þjónusta. Sr. Gunnar Gísla- son, prófastur í Glaumbæ, predikar, en altarisþjónustu annast sr. Pétur Sigurgeirs- son vígslubiskup, sr. Hjálmar Jónsson á Bólstað og sr. Sighvatur Birgir Emilsson á Hólum. Kirkjukór Sauðárkróks syngur undir stjórn Jóns Björnssonar organista. Að lokinni guðsþjónustu verða kaffiveitingar á boð- stólum í skólahúsinu. Kl. 5 e.h. verður samkoma í Dómkirkjunni, er hefst með ávarpi formanns Hólafélags- ins, sr. Árna Sigurðssonar. Sauðárkróks syngur. Að lok- um flytur sr. Pétur Sigur- geirsson vígslubiskup lokaorð og bæn. I sambandi við Hólahátíð- ina verður aðalfundur Hóla- félagsins haldinn í setustofu Bændaskólans og hefst kl. 10.30 f.h. Fundarefni: Venju- leg aðalfundarstörf. Fjöl- mennum „Heim að Hólum" á sunnudaginn kemur. (Fréttatilkynning frá Hólafélaginu). Hann er allt þetta og mikiö meira. Pólski Fíatinn hefur nú veriö seldur á íslandi í nokkur ár meö góöum árangri. Sem dæmi um þaö sem fylgir meö í kaupunum þegar þú kaupir Pólska Fíatinn má nefna: kraftbremsur meö diskum á öllum hjólum, radial dekk, tvöföld framljós meö stillingu, læst bensínlok, bakkljós, teppi horn í horn, öryggisgler, 2ja hraöa miöstöö, 2ja hraöa rúöupurrkur, rafmagnsrúðusprauta, kveikjari, Ijós í farangurs- geymslu, 2ja hólfa karprator, synkromeseraður gírkassi, hituö afturrúöa, hallanleg sætisbök, höfuöpúðar o.fl. Þaö er óhætt aö segja aö þú færö mikiö fyrir peninginn þegar þú kaupir Pólskan Fíat. Aö innan og utan er bíllinn laglega unninn og þægilegur. HAGSTÆÐASTA BÍLVERÐIÐ í DAG. Kominn á götuna meö ryövörn og ollu tilheyrandi 1.815.000 - kr. Til öryrkja 1.395.000.- kr. i FÍAT EINKAUMBOÐ Á ÍSLANOI DAVÍÐ SIGURÐSSON hf. SÍÐUMULA 35. SÍMI 85855 1

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.