Morgunblaðið - 10.08.1978, Blaðsíða 7

Morgunblaðið - 10.08.1978, Blaðsíða 7
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 10. ÁGÚST 1978 7 r L Hafta- tímabiliö Dagblaðiö Vísir birti fyrir skemmstu fróölegt og skemmtilegt viðtal við Guido Bernhöft stór- kaupmann, um hafta- tímabilíö, víti til varnaðar í íslenzkri pjóöarsögu, sem unga fólkið pekkir engin deili i. Þá var allur innflutningur háöur opin- berum leyfum, sem oft var erfitt aö fá, timafrekt og preytandi. Orðrétt segir í viðtalinu: „Viö spurjum Guido Bernhöft hvað hafi verið til bjargar pegar innflutn- ingsbeíðni var synjað. „Þá var að fara á fund nefndarmanna og biðja um viðtal og reyna pann- ig að kría út leyfi. Þegar komið var upp á loft á ! Skólavörðustígnum par sem skrifstofur nefndar- innar voru til húsa hófst bið eftir viötali. Biðin varð oft löng, en ekki var talin pörf á að gera hana pœgilega. Menh voru látnir standa upp á endann í gangiuum og bíða par tímunum saman. Stundum var hægt að fá leyfi fyrir einhverju sem viö höfðum ekki verið með í sölu og pannig urðum viö aö fara að flytja inn alls konar annan varning. Má par nefna sem dæmi vefnaö- arvörur, en bannað var að flytja ínn ávexti. Þegar undantekningar voru gerðar á pví banni, til dæmis fyrir jól, má segja að hátíð hafi ríkt. Þá kom paö fyrir að Grænmetis- verslun ríkisins flutti inn ávexti og deildi út til peirra sem höföu lyfseðla frá læknum út á pessa vöru.“ 30 ára stríö „Á stríðsárunum var nægur erlendur gjaldeyr- ir í umferö og innflutn- ingsleyfi greiðlega veitt. En eftir aö stríðinu lauk sótti fljótt í sama horfið. „Það var árið 1948 sem skömmtun hófst aö nýju og stóð svo fram yfir 1960. Þetta var pví orðið 30 ára stríð og haftatíma- bilið var hreint út sagt hræöilegt," sagöi Guido Bernhöft. Guido Bernhöft, stórkaup- maöur. „Það dróst mjög aö afnema höftin og enn bryddar á haftastefnu og get ég nefnt par kexið sem dæmi. Þaö er út í hött að takmarka inn- flutning á kexi sem ekki er framleitt Tiérlendis, en um innflutning á ýmsu ööru sem framleitt er hér í bakaríum gegnir ef til vill öðru máli. Ég er á móti öllum höftum og pótt nú purfi aö gera ýmsar ráðstafan- ir í efnahagsmálum er ekki hægt aö hverfa aftur tii haftatímans, pótt ekki væri nema vegna samn- inganna við EFTA. Ég styö heilshugar íslenskan iðnað en pað er ekki hægt að vernda hann með höftum og bönnum, heldur á verð og gæði að ráða pegar fólk ákveður hvað kaupa skal“, sagði Guido Bernhöft." „Svíviröa hvorir aöra“ Aðalheiður Bjarnfreðs- dóttir ritar grein í Tímann um eftirleik alpingis- kosninganna. Hún segir: „En hvaö finnst nú peim almenna alpýðumanni? Þeir, sem ég tala viö, eru yfirleitt sárir og von- sviknir. Verkalýðsflokk- ana vantaði áður pólitísk- an styrk. Þeir veifuðu höndum í sjónvarpi fyrir kosningar og töldu sig hafa fullt af úrræöum. Hver voru svo úrræðin — loks pegar pau komu á borðin? Mest gamlar lummur, eða a.m.k. of mikið af peim. Samning- ana í gildi aö vísu með gengisfellingu hjá kröt- um, og vísitöluhækkun frestað hjá öllum laun- pegum. Gamla uppbóta- kerfið, útjaskad og ger- spillt (leturbr. hér), og einhverskonar lausn til 5 mánaða hjá Alpýðu- bandalaginu. Ýmislegt gagnlegt fannst hjá báð- um. En peir ræddu pað ekki. Þeir ruku frá og hafa síðan svívirt hvorir aöra meira en dæmi eru til í langa tíö...“ Já, paö var mikill kál- vöxtur í kartöflugarði vinstri flokkanna í kosn- ingunum. En undirvöxt- urinn var enginn. GODGJÖF SAMEINAR NYTSEMI . OG FEGURD . HÚSGfiGnflVERSLUn KRISTJflnS SIGGEIRSSOnflR HF. LAUGAVEG113. REYKJAVÍK. SÍMI 25870 Gjafavörurnar hjá Kristjáni Siggeirssyni hf. eru valdar úr framleiðslu heimsþekktra listiðnaðarfyrirtækja. Við mælum með finnskum glervörum frá Iittala, þýzkum kertastjökum frá Rondo, sænskum lömpum frá Lyktan, finnskum stálvörum m.a. pottum frá OPA, dönskum könnum frá Stelton, að ógleymdum vörunum frá Dansk Design. Finnsku kertin frá Juhava eru til í úrvali. Góð gjöf sameinar nytsemi og fegurð. Látið okkur aðstoða við valið. HRAUN KERAMIK íslenskur listiðnaður %> GLIT HÖFOABAKKA9 REYKJAVIK SIMI 85411 Ferðatöskur Aldrei meira úrval. PÓSTSENDUM GEísm

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.