Morgunblaðið - 10.08.1978, Blaðsíða 12
12
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 10. ÁGÚST 1978
Leifur Jónsson læknir:
Enn um Hafn-
arfjarðarveg
Rvk. 5/8 '78.
Þessu máli hefur verið mikill
gaumur gefinn upp á síðkastið,
fundir haldnir, greinar skrifaðar í
dagblöð og kosningabæklinga og
nú loks í gangi undirskriftasöfnun.
Ætla mætti þannig að nóg væri
að verið, en skrif Ágústs Þor-
steinssonar í Mbl. 5/8. sýna að enn
er á sveimi mikill misskilningur á
eðli málsins. Hér er um samgöng-
ur Reykjavíkur við aðrar byggðir á
Reykjanesi að ræða. Allir munu
sammála um nauðsyn og hlutverk
Reykjanesbrautar framtíðarinnar,
en enn vantar sem kunnugt er
spottann frá Breiðholtsbraut,
fram hjá Vífilsstöðum, að
núverandi Keflavíkurvegi við Set-
berg.
Þessi vegur á eftir að hafa
verulega þýðingu fyrir samgöngur
Garðbæinga við Reykjavík og eins
til vesturs.
Vegna eðlis umferðar um þessa
væntanlegu Reykjanesbraut, er
vart hægt að hugsa sér tengingu
hennar við gatnakerfi Garðabæjar
í öðru en slaufuformi, þ.e. einfald-
ar lausnir á borð við umferðarljós,
koma ekki til greina. Þegar hins
vegar er farið að ræða um
Hafnarfjarðarveginn, er deilt um
margt, m.a. staðsetningu í fram-
tíðinni.
Sé vegi þessum fylgt frá Reykja-
vík, nefnist hann fyrst Kringlu-
mýrarbraut og eru tvær akreinar
hvora leið.
Kópavogsbúar líta á veg þennan
sem hraðbraut og hafa lagt í
tugmiljónakostnað til að komast í
samband við hana sem slíka, enda
hægt að aka viðstöðulaust í átt til
Garðabæjar. Á Arnarneshálsi
tekur hins vegar draumurinn
enda. Vegarspottinn þaðan og í
Engidal er samkvæmt skýrslum
sfeærsta slysagildra í vegakerfi
landsins.
Þó ekki kæmi til nema þessi
ástæða, er þörf á róttækum
aðgerðum og dugar þá hvorki
breikkun né ljós.
Leifur Jónsson, læknir.
Umferðarljós eiga þar að auki
ekki heima á miðri hraðbraut, og
hraðbrautin á ekki að enda í
Garðabæ heldur í Hafnarfirði.
í framtíðinni á því að vera hægt
að aka viðstöðulaust í gegnum
Garðabæ, svo sem menn nú aka
gegnum þéttbýlið í Kópavogi.
Hraðbraut með tveim tvöföldum
akreinum er engan vegin heppi-
lega staðsett í miðju íbúðahverfi
og þarf þar að auki sitt rými.
Byggðin í Silfurtúni, Fitjum og
Ásum kemur í veg fyrir breikkun
núverandi vegar auk þess sem sú
staðsetning klýfur byggðina.
Er þá vissulega fátt um góða
drætti, en hliðrun vegarins nær
sjónum og síðan áfram norðan í
Hraunsholtinu er möguleiki, sem
margir hafa bent á. Ágúst Þor-
steinsson telur staðsetningu
þessari margt til foráttu, en rök
hans eru léttvæg, og aðalatriðið er,
að við eigum ekki annarra kosta
völ.
Aðrar ráðstafanir yrðu kák eitt.
Ég sé hvorki að fjara né
Gálgahraun þurfi að bíða tjón af
braut þessari, og útivistarsvæði
getur allt eins verið upp með
Arnarneslæk.
Að svo sögðu máli má ljóst vera
að núverandi Hafnarfjarðarvegur
verður á kaflanum frá Arnarnes-
hálsi að Engidal innanbæjarvegur
Garðabæjar og tengist hraðbraut-
inni með slaufum til beggja enda.
Hér hafa ekki verið ræddar
ódýrar bráðabyrgðalausnir heldur
óhjákvæmileg samgöngu og
öryggismál framtíðarinnar.
Kór Öldutúnsskóla til
Kanada eða Bandarík j anna
Kór Öldutúnsskóla — Myndin er tekin á listahátíð í júní s.l.
í DAG (fimmtudaginn 10.
ágúst) heldur Kór Öldu-
túnsskóla í tónleikaferð
vestur um haf. Kórinn
mun taka þátt í XIII þingi
alþjóðasamtaka tónlistar-
uppalenda, sem fram fer í
London, Ontario í Kanada
dagana 11.—20. ágúst.
Þaðan fer kórinn síðan til
Washington D.C. og mun
koma fram á alþjóðlegu
kóramóti, sem haldið er í
Kennedy Center. Efnis-
skrá kórsins er mjög
fjölbreytt, en sérstök
áhersla er lögð á kynn-
ingu íslenskra verka yngri
og eldri höfunda auk
þjóðlaga. Stjórnandi kórs-
ins er Egill Friðleifsson.
Eru
þeir að
fá 'ann
■
Ameríkani flengir Grímsá í Borgarfirði, en þar hefur í sumar verið
framúrskarandi veiði og hefur þegar veiðst meira af laxi en allt
síðastliðið sumar.
(Ljósm. — kk.)
Stærsti
iaxinn í sumar
úr Víðidalsá?
„Útlendingur nokkur dró hérna
25 punda lax um daginn, og er
það stærsti fiskurinn hjá okkur
í sumar. Laxinn fékk hann á
flugu við Dalsárós," sagði Gunn-
laug Hannesdóttir í Veiðihúsinu
í samtali við Mbl. í gær, en þá
voru komnir á land að sögn
Gunnlaugar 783 laxar. Fram að
síðustu mánaðamótum, var
meðalþunginn um 10 pund, en
hann hefur farið dálítið lækk-
andi undanfarið og er það ekki
aðeins vegna þess að meiri
smálax fer að ganga er líður á
sumarið, heldur einnig vegna
þess að stóri laxinn fer að rýrna
er hann verður leginn. Sem fyrr1
segir, veiddist sá stóri viðj
Dalsárós, en á sama stað
veiddist fyrr í sumar anriar 24
punda og sá þriðji var 21 pund.
Á Laufásbreiðu var 23 punda
laxi landað og í Gapastokk
einum 20 punda. Veiðin hefur í
sumar verið yfirleitt jöfn og góð
að sögn Gunnlaugar, en allra
síðustu misseri hefur hún treg-
ast dálítið, enda áin orðin
vatnslítil. í Víðidalsá veiðist
jafnan nokkuð af bleikju, er
líður á sumarið og sagði Gunn-
laug, að nú væri hún farin að
sýna sig og vænni en oftast
áður, þannig hefur veiðst 8
punda bleikja, auk 5 punda
fiska.
Vatnsdalsá:
lax um alltl
„Það er geysilega mikill fiskur
um alla á og veiðin er orðin
rúmum 200 löxum meiri en hún
var á sama tíma í fyrra," var
það sem Ingibjörg í veiðihúsinu
að Flóðvangi opnaði ræðu sína
með er við hringdum í gær. „Það
eru 5 stangir leyfðar og laxarnir
Falleg morgunveiði úr einni af
hinum gjnfulu ám Borgarfjarðar.
eru orðnir rúmlega 800, þar af
um 100 síðustu vikuna, þrátt
fyrir að áin er orðin vatnslítil
eftir þurrkana," sagði Ingibjörg
ennfremur. í byrjun júlí var
meðalþunginn hvorki meira né
minna en 12,6 pund en hefur
farið nokkuð rénandi undanfar-
ið eins og vænta mátti. Stærsta
laxinn, 24 punda, dró útlending-
ur á flugu í Hnausastreng, en
Ingibjörg taldi veiðistaðinn
þann hafa verið einna drýgstan í
sumar. Auk 24 pundarans, hafa
veiðst 20 og 21 punds laxar i
Vatnsdalsá í sumar. Það ber enn
nokkuð við að laxar ataðir sjólús
veiðist og er það auðvitað góðs
viti. Útlendingar eru nú við
veiðar í ánni, en stöður þeirra
taka íslendingar hinn 16. ágúst,
en veiði lýkur um miðjan
september.
Leirvogsá
daufari en
í fyrra
Þær upplýsingar fengum við
hjá manni nokkrum er eyddi
degi við Leirvogsá fyrir
skömmu, að heildarveiðin í
sumar væri orðin nokkuð á
annað hundrað fiskar. Þetta er
nokkru lakari veiði en á sama
tíma í fyrra. Meðalþunginn í
Leirvogsá er í kring um 5 pund.
Veitt er á 3 stangir í ánni fram
til næstu mánaðamóta, en síð-
asta sprettinn verður aðeins
veitt á 2 stangir, enda verður þá
gljúfrið fyrir ofan Ketilhyl
lokað laxveiðimönnum.
Reykjadalsá,
Vestmannavatn
og
Eyvindarlækur
Eftirfarandi fréttir sendi okk-
ur Halldór Valdimarsson veiði-
vörður að Laugum og kunnum
við honum bestu þakkir fyrir.
1. ágúst höfðu um 330 laxar
veiðst á stöng í Reykjadalsá,
Vestmannsvatni og Eyvindar-
læk S-Þing. 4 stengur eru
leigðar út á svæðinu. Upp á
síðkastið hefur veiði verið mjög
góð og ekki óalgengt að veiði-
menn fylli kvóta sinn.
Mikil laxgegnd er nú í Vest-
mannsvatni og muna menn ekki
annað eins. Veiðibændur við
vatnið mega leggja silunganet,
því mikið er af silungi, sem þarf
að grisja. í þessi net höfðu
veiðst um 200 laxar 1. ágúst og
var þá ákveðið af veiðibændum
og stjórn veiðifélagsins að
stöðva netaveiði til 9. ágúst.
Samtals hafa því um 530 laxar
verið veiddir á veiðisvæðinu það
sem af er sumri.
— 99-