Morgunblaðið - 10.08.1978, Síða 35
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 10. ÁGÚST 1978
35
ÖRUGGUR SiGUR
KR Á HÚSAVÍK
ÞAÐ virðist fátt geta bjargað Völsungum frá falli niður í 3. deild, í
gær fengu þeir efsta liðið KR í heimsókn og áttu Völsungar aldrei
möguleika á stigi. KR sigraði 3—0 eftir að staðan í leikhléi hafði verið
1-0.
Sverrir Herbertsson skoraði fyrsta markið úr vítaspyrnu þegar á 4.
mínútu. Annað markið skoraði Stefán Örn Sigurðsson eftir að
Sæbjörn Guðmundsson hafði skotið í stöng. Það var á 14. mínútu síðari
hálfleiks. Korteri síðar þakkaði Stefán fyrir sig með því að senda
knöttinn til Sæbjarnar, sem var í dauðafæri og innsiglaði öruggan
sigur.
Sigur KR-inga hefði getað verið enn stærri, því að tvívegis áttu þeir
skot í þverslána hjá Völsungi, auk f jölda annarra færa sem ekki voru
nýtt.
Sæbjörn var bestur í liði KR, en hjá Völsungi réði meðalmennskan
ríkjum, þrátt fyrir mikla baráttu.
Leikinn dæmdi Þóroddur Hjaltalín og var samkvæmur sjálfum sér.
BA/-gg.
OLSARAR
ÍÚRSLIT
VÍKINGUR frá Ólafsvík -tryggði
sæti sitt í úrslitakeppni 3. deildar,
er uppgjör toppliöanna í riðlinum
fór fram á Ólafsvík í gærkvöldi.
Það var Afturelding úr Mosfells-
sveit sem sótti Víking heim.
Víkingur sigraði í leiknum með
tveimur mörkum gegn einu og
voru öll mörkin skoruö í fyrri
hálfleik.
Leikurinn var afar opinn og spenn-
andi, mýmörg færi hjá báöum liðum,
stangarskot og fleira. Atli Alex-
andersson og Jóhannes Kristjónsson
skoruöu fyrir Víking snemma í
leiknum og Aftureldingu tókst aöeins
að svara fyrir sig með marki Hafþórs
Kristjánssonar rétt fyrir leikhlé.
Grétar Norðfjörð dæmdi leikinn
og gekk honum frekar illa aö
hemja leikmennina, tveir fengu þó
aö sjá gula spjaldið.
TM/— gg.
Sjá einnig
íþróttir bls. 23
JHorounltlnbit*
íDróltir
• Sveinn Skúlason. markvörður UBK horfir á eftir knettinum í netið eftir þrumuskot Karls Þórðarsonar.
Matthías (nr. 10) átti sendinguna á Karl. Sveinn var nærri því að verja, hafði hendur á knettinum. en það
dugði ekki til. (Ljósm. -gg.)
Fáliðaðir hlutu Blik-
arnir að tapa fyrir ÍA
ÞAO FÓR eins og flestir reiknuðu reyndar með, að það yrðu lið Vals og ÍA sem leiða myndu saman hesta sína í
úrslitaleik bikarkeppni KSÍ. í fyrrakvöld tryggði Valur sér sinn sess og í gærkvöldi var röðin komin að Skagamönnum.
Og fyrir leikinn hefði mátt ætla, aö hann væri ekkert annað en formsatriöi, vegna þess aö slíkur hörgull er á mannskap
í röðum Bllkanna um þessar mundir, að þeir höfðu aðeins 2 varamenn. Þeir eru einir 7 sem dvelja á Spáni um þessar
mundir og nenna þessu ekki lengur. Fleiri leikmenn UBK eru á leiöinni í sumar og sól á Spáni og þegar agaleysiö er
slíkt, er ekki aö undra þó aö þeir leikmenn, sem heima sitja, nái litlum árangri. Þrátt fyrir þaö var mesta furða hve
Blikarnir stóðu í Skagamönnum, þeir fengu færi sem þeir heföu átt aö skora úr, sérstaklega Hákon rétt fyrlr lelkslok, en
það var sama sagan og fyrr í sumar, lánleysið og klaufaskapurinn var fullkominn. Skagamenn unnu leikinn með marki
Karls Þóröarsonar þegar 10 mínútur voru til ielkhlés.
Leikurinn var þófkenndur framan boltann, en uppi við mörkin réð alger breytast, því að þó leikurinn væri lítið
af, Skagamenn heldur meira með lognmolla ríkjum. Það átti eftir að augnayndi fengu bæði liðin góð
------------------------------------------- marktækifæri, en þó Skagamenn
&
Meistararnir þegar
í forystu í golfinu
BJÖRGVIN Þorsteinsson frá Akureyri, íslandsmeistari í golfi fimm síðastliðin ár, tók forystuna strax fyrsta
keppnisdaginn á íslandsmótinu í ár. Meistaraflokkurinn leikur í Leiru og að loknum fyrstu 18 holunum eru þeir
efstir og jafnir Björgvin Þorsteinsson og Sigurður Hafsteinsson, GR, en báðir léku þeir á 73 höggum. í meistaraflokki
kvenna, sem keppir á Nesvellinum, er íslandsmeistarinn frá í fyrra, Jóhanna Ingólfsdóttir, GR, í efsta sæti. Hún lék í
gær á 80 höggum, einu höggi betur en Kristín Pálsdóttir úr Keili.
Útlit er fyrir hörkukeppni í
öllum flokkum, en eftir fyrsta
keppnisdaginn er staðan þessi í
meistaraflokki karla.
Bjtfrgvin þorstoinsson. GA 73
SÍKurður Hafsteinsson. GR 73
Óskar Sæmundsson. GR 75
I»orbjtfrn Kjærbo. GS 75
Geir Svansson. GR 7fi .
Sveinn SÍKurberKsson. GK 77
Hannes Eyvindsson. GR 79
Ilallur þórmundsson GS 79
Gunnar Finnbjtfrnsson. GK 80
Óttar Ynsvason. GR 80
þórhallur IIólmKUÍrsson. GS 80
Eins og áður sagði, þá keppir
meistaraflokkurinn á Hólmsvelli
í Leiru. Völlurinn skartar sínu
fegursta um þessar mundir og
veðurguðirnir léku við hvurn
sinn fingur í gær. Veðrið var ekki
síðra á Hvaleyrarvellinum og á
Nesinu og þeir hafa örugglega
verið margir kylfingarnir, sem
báðu þess í gærkvöldi, að veðrið
héldi áfram að vcra eins blítt.
Keppnin í meistaraflokki hefst
klukkan 13 í dag.
í 1. flokki karla keppa þeir
kylfingar sem eru með forgjöf frá
7 —12 og taka 37 kylfingar þátt í
þessum flokki. Keppt er á Hval-
eyrarvelli og hefst keppnin í dag
klukkan 13 hjá þeim. f gær voru
eftirtaldir sterkastir.
Jón I'nr Ólafsson. GU
Guðmundur í’nrarinssnn. GV 81
Virtar Þorsteinsson. GA
llrnninK Bjarnason. GK 82
SÍKurdur II. UinRsted. GA 83
Knútur Ujörnsson. GK 81
GuAlauRur Kristjánsson. GS 81
2. flokkur karla er fjölmenn-
asti flokkurinn í þessu íslands-
móti en keppendur þar eru 62.
Kylfingar í þessum flokki hafa
forgjöf 13—18. Eftir fyrsta dag-
inn er staðan þar þessi.
Ilannes Hall. NK
Jóhann Einarsson. NK 83
Einar Guólaujfsson. NK 81
Finnbjtfrn Finnbjtfrnsson. GK 85
3. flokkur karla keppir á
Hvaleyrinni og fara fyrstu
kylfingarnir úr þeim flokki út
klukkan 8.30 í dag. 34 kylfingar
A
»i
• Sveinn Sigurbergsson var meðal
keppninnar í meistaraflokki í golfi.
þeirra bestu fyrsta dag
eru í flokknum, forgjöfin er 19 og
hærra. í gær náðu eftirtaldir
beztu skori.
IIcIkí Gunnarsson. GK 93
Stcfán II. Stofánsson. NK 93
Samúcl Jónsson. GR 95
SÍKuróur Runólfsson. NK 95
SÍKurður Hólm. GK 97
Kolbcinn Kristlnsson. GOS 98
Meistaraflokkur kvenna keppir
á Nesvellinum og þar er útlit
fyrir hörkubaráttu. Eftir fyrsta
dag er staða efstu þessi«
Jóhanna Imcólfsdóttir. GR 80
Kristín Pálsdóttir. GK 81
Jakohína GuðlauKsdóttir. GV 81
Hanna Aóalstcinsdóttir. GK 85
SóIvcík Porstcinsdóttir. GK 80
í 1. flokki kvenna eru efstar
eftir íyrsta dag.
Ivristin Eidc. NK 92
SÍKríöur II. Ólafsdóttir. (íll 97
Sjiifn Guöjónsdóttir. GV 98
Hcrdís SÍKuröardóttir. GR 99
Elín Ilanncsdóttir. (íL 99
Kvennaflokkarnir og 2. flokk-
ur karla leika á Nesvellinum og
heiðrar Nesklúbburinn einn
kylfing á hverju kvoldi. Er þá
eitthvað fundið til, sem með öllu
er óskylt efstu sætunum í
hverjum flokki. Þannig fékk
Sveinn Finnsson málverk fyrsta
dag mótsins og í gær var Kristin
Einarsdóttir úr Eyjum sú heppna
og fékk hún matarboð á Hótel
Sögu fyrir tvo.
miklu fleiri. A 10. mínútu kom það
fyrsta, en Sveinn varði vel frá Pétri.
Tveimur mínútum síðar átti Sigurjón
Rannversson gott skot eftir snjallan
undirbúning Hákons, en Jón Þor-
björnsson varði meistaralega. Þetta
var besta færi Blikanna í fyrri hálfleik,
en Skagamenn fengu nokkur í
viðbót, Matthías, sem byrjaður er að
leika með að nýju, og Jón Alfreösson
voru í færi án þess að nokkuð yrði úr.
Markið kom á 35. mínútu, er
Matthías lék upp að er.damörkum
vinstra megin og gaf góðan bolta út á
Karl Þórðarson sem skaut þrumu-
skoti í markvinkilinn. Sveinn var mjög
nærri því að verja, hafði hendur á
knettinum, en hélt honum ekki og
inni lá hann.
Fyrri hálfleikur vai slakur í heildina,
en sá síðari var enn verri, einkum
síðari hlutinn. Skagamenn fengu
nokkur færi framan af, Matti skallaði
yfir opið markið og Sveinn varði vel
skot frá Jóni Alfreðssyni og Pétri. Um
miðjan hálfleikinn fékk Hákon Gunn-
arsson síðan dauöafæriö sem áður
var minnst á, Skagavörnin gufaðf
skyndilega upp og Hákon stóð einn
með boltann í vítateignum, en hann
hikaði um of og Jón bjargaði
frábærlega með úthlaupi. Eftir þetta
hafði leikurinn einkennileg svæfandi
áhrif á mann og hann fjaraði smám
saman út, uns Valur Ben, sem hefur
gert betur, blés og tilkynnti leikslok.
Skagamenn gera því í haust níundu
tilraun sína til þess að klófesta
bikarinn og leika gegn liðinu sem
gerði að engu sjöundu tilraunina fyrir
tveimur árum, Val.
Blikarnir gerðu það gott miðað viö
aðstæður, vörnin vár í betra lagi, þó
langt væri hún frá því að vera trygg
og spil Blikanna úti á vellinum var oft
laglegt. En sóknin var í kalda koli.
Hákon var langbestur í liði UBK og
þeir Benedikt og Einar voru einnig
góðir. Skagamenn verða sennilega
fyrstir að viðurkenna það, að þetta
hafi ekki verið þeirra besti leikur í
sumar. Þetta var þó ekki heppnissig-
ur. Karl Þórðarson og Pétur Péturs-
son voru framúrskarandi í liði ÍA, en
vörnin var einnig mjög góð í heildina.
—99