Morgunblaðið - 17.09.1978, Side 22
54
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 17. SEPTEMBER 1978
| raöauglýsingar — raðauglýsingar — raðauglýsingar
Mallorcaferð
Feröaskrifstofan Sunna býöur Hafnfiröing-
um 60 ára og eldri, þátttöku í Mallorcaferö-
um 29. okt.—26. nóv. og 26. nóv.—20. des.
n.k. meö sérstökum kjörum.
Nánari upplýsingar um feröirnar veitir
stjórn Styrktarfélags aldraðra í Hafnarfiröi,
síma 51090 hjá Láru Jónsdóttur og 50405
hjá Kristínu Magnúsdóttur, þar sem
umsóknum veröur veitt móttaka.
Félagsmálastjórinn í Hafnarfiröi.
Iðnaðarhúsnæði
lönaöarhúsnæöi óskast ca. 60—100 fm.
Þarf aö vera á 1. hæö. Hreinlegur og
hljóölátur iönaöur. Upplýsingar í síma
44649.
Lager- og
skrifstofuhúsnæði
óskast á leigu ca 80 fm til 200 fm. Þarf aö
vera á jaröhæö.
Tilboö leggist inn á afgreiðslu Mbl. fyrir 22.
sept. merkt: „G — 3935".
ÞARFTU AÐ KAUPA?
ÆTLARÐU AÐ SELJA?
i>r \t <;n sm t m allt land þk<;ar
I>1 AKíLVSIR I MORíit''NBLADIM'
Björgunarsveitir á Suðurlandi:
70 björgunar-
sveitarmenn
að æfingum
— Settu meðal annars á svið flugslys
SAMÆFING björgunarsveita
Slysavarnafélags Islands á
svæði tíu fór nýlega fram, og
tóku um sjötíu björgunar-
sveitarmenn þátt í æfingunni
auk fjölmargra annarra áhuga-
manna. Svæði eða umdæmi tíu
nær yfir Vestur-Skaftafells-
sýslu og Rangárvallasýslu auk
Vestmannaeyja. Á þessu svæði
eru starfandi níu björgunar-
sveitir Slysavarnafélags Is-
lands.
Æfingin hófst með stuttum
námskeiðum og æfingum í
skyndihjálp og sjóbjörgun, og
ennfremur var farið yfir notkun
ferðakompása og korta.
Ennfremur var haldinn
fundur þar sem rædd voru
björgunarmál og þjálfun og
fræðsla björgunarsveita, þar
sem skipst var á skoðunum um
þessi mál.
Þá var flugslys sett á svið í
Hvolsfjalli, og þurftu sveitirnar
meðal annars að finna „slys-
staðinn". Fannst vélin fljótlega,
og þeir tveir menn sem með
henni voru. Var æft hvernig á að
hlúa að mönnum eftir slys, og
hverng á að búa um sár þeirra,
og voru „hinir slösuðu" síðan
fluttir í æfingabúðirnar.
Þá skoðuðu þátttakendur enn-
fremur kvikmyndir um björgun
og slysahjálp, þar á meðal
tuttugu mínútna kvikmynd frá
æfingu S.V.F.Í. sem haldin var í
Vestmannaeyjum í fyrra.
Yfirumsjón með undirbúningi
og framkvæmd æfinganna
höfðu björgunarsveitir S.V.F.Í.
á Hvolsvelli og í Landeyjum.
Þótti þessi samæfing takast
mjög vel, og var hún að áliti
björgunarsveitarmanna mjög
góð æfing fyrir þá menn sem
starfa í hinum fjölmörgu
björgunarsveitum á fyrrnefndu
svæði.
Hér er verið að undirbúa skot úr fluglínutæki, sem einkum er notað
þegar bjarga þarf fólki ur strönduðum skipum. Eldflauginni úr
byssunni er skotið að ákveðnum stað, og dregur hún með sér línu,
sem björgunarlinan er siðan dregin á.
Hér höfðu björgunarsveitarmenn sett á svið bílslys. Hver sem er lent f því að koma á slysstað, og þá er
mikils virði að kunna undirstöðuatriðin f skyndihjálp, en það er einmitt slík skyndihjálp sem
björgunarsveitarmenn sjást hér vera að æfa.
Á þessari mynd sést hvar björgunarsveitarmenn draga mann yfir Rangá í björgunarstól.
Fengu hvalbein 1 trollið
Magnús Magnússon skipstjóri (á
svörtu peysunni) er hér við
beinið, en það er yfir 5m langt.
Mótorbáturinn Fanney
fékk nýlega rifbein úr hval í
trollið er báturinn var að
veiðum norður af Önd-
verðarnesi. Skipstjóri á
Fanneyju er Magnús
Magnússon, Grundarfirðí, og
hefur hann nú komið beininu
fyrir í garði sínum á
Grundarfirði.
Bein þetta fékkst á um 70
faðma dýpi og er það 5,80 m
að lengd og mesta þykkt þess
er 23 cm og taldi ljósmynd-
ari Mbl. í Grundarfirði Bær-
ing Cecilsson að hér væri um
eitt stærsta hvalbein að
ræða sem sést hefði hérlend-
is.
Hér hefur heininu verið komið fyrir í garði Magnúsar. Ljósm. Bæring