Morgunblaðið - 20.09.1978, Side 19

Morgunblaðið - 20.09.1978, Side 19
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 20. SEPTEMBER 1978 19 Samtök verzlunarinnar mót- mæla bráðabirgðalögunum KAUPMANNASAMTÖK íslands. Félag ísl. stórkaupmanna og Verzlunarráð íslands telja bráða- birKðalög ríkisstjórnarinnar um lækkun álagningarákvæða ólög- leg ob sé þarna um að ræða brot á stjórnarskránni, auk þess sem þessi samtök telja að tilkynning verðlagsnefndar nr. 33/1977 sé enn í gildi. í frétt frá samtökum verzlunarinnar eru fyrirtæki hvött til að hafa samband við félag sitt varðandi túlkun á lögum og reglugerðum og eins ef verðlagsyfirvöld gera athuga- semdir við einstaka verðútreikn- ingá. I frétt samtaka verzlunarinnar segir um bráðabirgðalögin: „í fyrsta lagi telja samtökin að hér sé um að ræða brot á stjórnarskránni, þar sem ríkis- stjórnin geti með engu móti sýnt fram á, að brýna nauðsyn beri til þess að lækka álagningarákvæði verzlunarinnar. Þvert á móti hafa samtökin undir höndum tölur frá Þjóðhagsstofnun, sem gefa til kynna- að afkoma heildverzlunar og smásöluverzlunar mánuðina júlí—ágúst í ár, hafi verið miklum mun lakari en nokkurt ár frá því skýrslugerð hófst um þessi mál árið 1971. í öðru lagi byggjast bráða- birgðalögin á því, að lækka beri áður auglýst álagningarákvæði nr. 10/1978, en þá auglýsingu hefur Verzlunarráð íslands, Kaup- mannasamtök íslands og Félag ísl. stórkaupmanna kært til Verðlags- dóms og ríkissaksóknara og höfðað mál á hendur viðskiptaráðherra og formanni verðlagsnefndar til ógildingar þeirri auglýsingu. Af ofansögðu má vera ljóst, að samtök verzlunarinnar telja að tilkynning. verðlagsnefndar nr. 33/Í977 sé enn í gildi.“ Morgunblaðið sneri sér í gær til Svavars Gestssonar viðskiptaráð- herra og spurði hann álits á þessum mótmælum samtaka verzl- unarinnar. Sagði Svavar að hann legði á það áherzlu að hann teldi að auglýsingin frá 10. september sl. væri í gildi og hún væri sett með stoð í lögum, sem sett hefðu verið með réttum hætti. Kaup- mönnum bæri að sjálfsögðu að fara eftir lögum en það væri þeirra mál, sagði Svavar, hvort þeir kysu að reka deilumál fyrir dómstólun- um. „Eg vona ákveðið að þeir hlýði þeim reglum, sem settar voru og vænti þess fastlega að það verði gert,“ sagði Svavar. Trúður og lát- bragðsleikari í Norræna húsinu SÆNSKI trúðurinn og látbragðs- leikarinn Armand Miehe flytur væntanlega dagskrá í Norræna húsinu fimmtudaginn 5. október en ekki hefur endanlega verið gengið frá efni þeirrar dagskrár. Söng- og ljóða- dagskrá í Norræna húsinu FINNAR minntust 60 ára sjálf- stæðis þjóðar sinnar í fyrra. Þess var minnst með dagskrám og sýningum víða um landið og ein þeirra sem vakti athygli var söng- og ljóðadagskrá Östens Engströms í Vasaleikhúsinu, „Medborgare í Finland". Östen Engström og píanóleikarinn Guillermo Michel flytja þessa dagskrá í Norræna húsinu þriðjudaginn 3. október kl. 20.30. Leiðrétting í VIÐTALI sem birtist í blaðinu i gær við sjúkling á Grensásdeilc Borgarspítalans misritaðist nafr viðmælanda og er rétt nafr Steinunn Þorsteinsdóttir, ekk: Bjarnadóttir. Einnig var sagt, af hún hefði verið á Grensásdeildinn í 6 mánuði en rétt er, að hún hefui verið á Grensásdeildinni í 6 vikur Er beðist velvirðingar á þessurr mistökum. Carter fái friðar- verðlaun Washington 19. sept. Reuter FUNDINUM í Camp David va) naumast lokið þegar fulltrúadeild arþingmaðurinn Ronald Mottl frí Ohió lagði til við Nóbelsnefndiní að Jimmy Carter Bandaríkjafor seti yrði sæmdur friðarverðlaun um í ár vegna sáttasemjarastarf: síns og mikilvægs framlags í þv að jafna ágreining með aðilum Miðausturlöndum. Hann sagði bréfi til Nóbelsnefndarinnar ai hefði ekki komið til þýðingarmikil skerfur Carters myndi sama þrá staðan nú ríkja í þessum heims hluta og hefði verið um margr: ára skeið. Prestur kveikti í sér Austur BerKn. 19. sept. Reuter. AUSTUR-þýzkur Lúterstrúar prestur sem sagður er hafa veri útskúfaður í prestakalli sínu þa sem hann hafði þjónað í tíu ái brenndi sig til bana við morgun guðsþjónustuna í kirkju sinni sunnudag. Presturinn, sr. Rol Guenther, mun hafa bugast vegn djúpstæðs trúarágreinings í söfn uðinum og var ekki álitið a stjórnmálaástæður kæmu nokkur staðar inn í málið. Presturinn hellti yfir sig eldfim um vökva við altarið í kirkju sinr í bænum Falkenstein, teygði henc urnar að logandi kertunum o varð alelda á örskammri stundi Þrjú hundruð flemtri slegni kirkjugestir urðu vitni að þessui atburði. Presturinn var látin þegar slökkvilið kom á vettvang. þú flýgur í vestur til New York. . . . Svosuður á sólarstrendur Florida. Flatmagar á skjannahvítri Miami ströndinni eða buslar í tandurhreinum sjónum. Býrð á lúxus hóteli í tveggja manna herbergi, með eða án eldunaraðstöðu, eða í hótelíbúð. Shoðar Cape Kennedy Safari Park, Everglades þjóðgarðinn og hin litríku kóralrif Florida Keys. Tehur í hendina á Mikka mús á flmmtugsafmælinu. Slærð til og færð þér bílaleigubíl fyrir 19-23 þúsund kr. á viku. Ekkert kílómetragjald. Snæðir safaríkar amerískar steikur. (Með öllu tilheyrandi). íslenskur fararstjóri verður að sjálfsögðu öllum hópnum til halds og trausts. Næstu 3ja vikna ferðir verðat 1. september (uppseld), 21. september, 12. október, 2. nóvember, 23. nóvember. Búið er á Konover hóteli, Konover íbúðum eða í Flamingo club íbúðum. Um marskonar verð er að ræða. Nefna má að gisting á hótelinu í 3 vikur, og ferðir, kosta kr. 256.000, en ódýrari gisting er einnig fáanleg. ■-&ftiiyL&v desemberJhækkar bf tt M ÉLlQnfr rúmj Næstu brot^q^aylajyy^yB^frr, 12. okt., . jan., 25. jan. Nánari upplýsingar: Söluskrifstofur okkar Lækjargötu 2 og Hótel Esju, sími 27800, farskrárdeild, sími 25100, skrifstofur okkar úti á landi, umboðsmenn og ferðaskrifstofur. GYLMIR ♦ G&H 3.1

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.