Morgunblaðið - 20.09.1978, Side 28

Morgunblaðið - 20.09.1978, Side 28
28 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 20. SEPTEMBER 1978 M0 Rö-J h/ - KAtfinö ! 5 30$ Þetta er skelfilegt. — Mér sem svo oft hættir til að ganga í svefni! Ertu búinn að vera hérna lengi? Eins og við mátti húast. Made in Hong Kong. fjV* ri fl í ; ^ * fi . Gestir frá ödrum hnetti? BRIDGE Umsjón: Páll Bergsson Spilið i dag getur ekki talist merkilegt. Jafnvel eitt af þeim, sem allir vinna. En þegar frægur maður stýrði úrspilinu þótti það aðdáunarvert. Austur gaf, allir utan hættu. Norður S. Á632 H. K972 T. 85 L. 864 Vestur S. 95 H. 5 T. G10932 L. K10973 Suður Austur S. KG84 H. 84 T. ÁD764 L. DG S. D107 H. ÁDG1063 T. K L. Á52 Margfaldur heimsmeistari, ítal- inn Belladonna, var í suður og varð sagnhafi í fjórum hjörtum eftir að austur hafði opnað á einum tígli, suður doblað og vestur hækkað í þrjá tígla. Ut kom tígulgosi, sem austur tók með ás og hann fékk að eiga næsta slag á laufdrottningu. Belladonna sá auðvitað, að vörnin mátti aðeins fá einn slag á lauf og tók því næsta lauf með ás, síðan tvisvar tromp og spilaði lágum spaða frá borð- inu. Austur lét lágt og eftir nokkra umhugsun lét Belladonna tíuna. Þá var spilið unnið. Hann gat spilað aftur að spaðadrottning- unni og síðan látið lauf af hendinni í spaðaásinn. Meðhöndlun spaðalitarins þótti glæsileg og var getið sérstaklega í bridge-dálkum heimsblaðanna. En í rauninni var hún stórhættuleg. Eftir sögnum að dæma var mjög sennilegt, að tígulliturinn skiptist 5—5 á höndum austurs og vesturs. Austur hafði sýnt tvö hjörtu, mátti aðeins eiga tvö lauf því annars var spilið dauðadæmt og þannig upplagt, að hann átti fjóra spaða. Vestur, samkvæmt þessu, var upplýstur með laufkónginn og austur gat því ekki átt opnun nema hann ætti spaðakónginn. Ef marka má þessar röksemdir var of hættulegt að láta spaðatíuna þegar spaðanum var spilað í fyrsta sinn. Betra var að taka spaðana tvo af hendi vesturs með drottn- ingu og ás og spila síðan laufi. Vestur fengi þann slag en yrði síðan að gefa tíunda slaginn þegar hann spilaði næst út í tvöfalda eyðu. •ll/, 7769 i..>,„,„„„1,,,,..... ■i I, ........... ............ >' h. ,11, ,ll(, •>'" COSPER „Enn hefur komist á kreik saga um vatnaskrímsli (sjá Morgunbl. 26. ágúst 1978). Að þessu sinni á slíkt furðudýr að hafa sést í Seljordvatninu á Þelamörk í Noregi. Og þetta virðist ekki vera einstæð sýn heldur hefur dýrið sést hvað eftir annað. Vísindamenn hafa farið á stað- inn til að rannsaka raunveruleika þessara sagna. Og þeir hafa haft með sér þann bezta tækjabúnað sem völ er á til slíkra rannsókna. Telja þeir sig svo vel í stakk búna, að þeir ættu að hafa komist að öruggri niðurstöðu innan fárra mánaða. Samkvæmt lýsingum sjónar- votta er vatnaormur þessi um 15—20 m langur með stór- hreistraðan búk og höfuð sem minnir á elgshöfuð. Við og við berast óvæntar fregnir af furðudýrum, og vísinda- menn hafa lagt sig fram um að rannsaka þessi fyrirbæri með nýjustu tækni, því þeir hafa álitið, að hér sé um enn óþekktar dýrategundir að ræða. En þeir hafa ekki haft erindi sem erfiði. Dýrin hafa lítt eða ekki gert vart við sig í námunda vísindamann- anna eða tækja þeirra. Þau eru því enn sem fyrr furðudýr, sem ekki hefur tekist að henda reiður á. Þau sjást stundum óvænt en í næstu andrá eru þau horfin með öllu. Slíkt kemur og fram í fregninni um þetta norska furðudýr. Þar segir m.a.: „Við athuganir í júní sl. kom fram á línuriti mælingatækja „eitthvað“ sem nálgaðist rann- sóknarbátinn, síðan stanzaði það og hvarf svo skyndilega." Undarlegt, er að dýr þessi hverfa stundum skyndilega. Slíkt á sér ekki stað um venjuleg „jarðnesk” dýr. Þetta er eitt af því sem menn hafa enn ekki áttað sig á, hvorki vísindamenn né aðrir. Einhverra orsaka verður að leita annarra en þeirra sem þekktar eru og viðurkenndar. Hvert gæti verið eðli þessara merkilegu dýra, sem enn hefur ekki tekist að handsama eða gera rannsóknir á? Og þó eru menn vissir um tilvist þeirra. Það skyldi þó ekki vera, að furðudýr þessi, eins og það sem nú er reynt að finna og rannsaka í Seljordvatninu, séu með nokkrum hætti annars eðlis en önnur jarðnesk dýr? Tilheyra þau í ráuninni dýraríki jarðar okkar? Eða verður að leita annarra skýringa, og þá hverra? Hygg ég að skýringar dr. Helga Pjeturss um eðli lífs og lífsam- banda verði hér drýgstar til skilningsauka: Á óteljandi hnöttum alheimsins þróast lífið fram. Lífgeislan stafar frá öllu sem lifir og bylgjast fram um geimdjúpin frá einum hnetti til annars. Fjarlægðir eru lífgeisl- aninni engin hindrun. Það er eitt eðli lífgeislunar, að svipur eða líkamningur þeirrar lífveru, sem Hvað verður um mig og börnin, ef þú ferð í burtu? Kirsuber í nóvember Framhaldssaga eftir Mariu Lang Jóhanna Kristjónsdóttir íslenzkaði 70 og gekk á eftir henni inn á skrifstofuna. — Ég ætla ckki að tala við hann, heldur langar mig að skrafa við þig. — Nú, sagði hún án sýni- legrar hrifningar. — Er þér sama þútt ég fari úr sloppnum? Ég var í þann veginn að fara. Hún fór úr sloppnum og í gulan dragtarjakkann og rcnndi greiðu gegnum hrafn- svart, slétt hárið. — Og um hvað? sagði hún svo og settist við skrifborðið. — Um Matta Sandor. í fyrsta skipti sem við töluðum saman sagðir þú að hann hefði verið dapur og niðurdreginn siðustu dagana sem hann lifði. — Já, sagði hún. — Hvað meinarðu með „síð- ustu dagana“? Fimm daga? Fjóra eða tvo? Hann sá á svip hennar að þessar spurningar höfðu komið henni á óvart. — Tja, sagði hún óákveðin. — Síðustu vikuna eða svo. Eftir nokkra þögn lciðrétti hún sig og sagðii — En langmest bar á því á sunnudaginn og mánudaginn... það er að segja daginn sem hann dó. Við vorum... í Bergmannskaffi- stofunni þann eftirmiðdag. — Minntist hann ekkert á hvers vegna hann væri svona niðurdreginn? — Ifann SAGÐI alltaf svo lítið... En það sem ég man bezt er að hann sagði aldrei neitt sem var yfirdrifið eða falskt eða hvunndagslegt. Þá kaus hann heldur að þegja. Honum var um megn að segja ósatt, held ég. — Gat verið að honum hafi sinnast við einhvern? — Ég veit það ekki. — Ég held öllu heldur að Matti hafi aldrei verið dús við sjálfan sig. — Nefndi hann að hann hefði séð hvað Zacharias Ivarsen hafði verið með mikið af seðlum í veskinu sínu? — Nei, það held ég ekki. En það vissu allir um það. Skiptir það máli? — Sólarhring eftir að gamli maðurinn dó, sagði Christer — voru seðlarnir horfnir og eng- inn hefur nokkurn timann vitað hvað af þeim varð. Manstu hvort hann fór í öku- ferð á mótorhjólinu sínu þenn- an sunnudag? — Ja... það getur vel verið. En... — Hann var í raun og veru bláfátækur. Ekki satt. Það var með herkjum að hann gæti látið eftir sér að kaupa kirsu- ber hjá Lisu Billkvist. Og svo varð hann allt í einu stórtækur f meira lagi og sagðist ætla að kaupa fjörutíu mola. Varðst þú ekki undrandi? Veltirðu ekki fyrir þér hvort hann hefði unnið happdrætti? — Fjörutíu mola! Hún brosti við tilhugsunina. — Ég spurði hvort hann væri að halda upp á eitthvað sérstakt og hann neitaði því. Ilvort hann þyrfti huggunar við af einhverri ástæðu. Nei, um það var ekki að ræða. — Þú hcfur bersýnilega ekki spurt hvaðan honum hafi kom- ið peningarnir? — Auðvitað gerði ég það ekki, sagði hún hvasst. — MATTI hafði að minnsta kosti ekki stolið þeim. Hvorki á Móbökkum né annars staðar. Ef þú ert að gefa slíkt í skyn hefurðu gersamlega glatað dómgreind þinni. Daniel Severin leit eins og ósjálfrátt í kringum sig í herberginu áður en hann bjóst til að fara upp. Alls staðar var snyrtilegt og þrifalegt, öll hættuleg efni höfðu verið lokuð inni og ísskápurinn var lokað- ur. Jú. víst var Judith hið mesta gersemi, elskuleg við sjúklingana og hlífði sér hvergi og var til í að vinna ýmis verk

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.