Morgunblaðið - 27.09.1978, Page 1
32 SfiDUR
219. tbl. 65. árg.
MIÐVIKUDAGUR 27. SEPTEMBER 1978
Prentsmiðja Morgunblaðsins.
GROMYKO fékk
aðsvif í ræðustóli
Sameinudu þjódunum — 26. september — AP
ANDREI Gromyko utanríkisráðherra Sovétríkjanna fékk aðsvif er
hann stóð á ræðupalli og ávarpaði Allsherjarþing Sameinuðu
þjóðanna í kvöld. Hann var studdur á braut. en 55 mínútum síðar var
hann orðinn svo hress að hann fór aftur í ræðustól og hélt áfram máli
sínu. Engin skýring hefur verið gefin af hálfu sovézku sendinefndar-
innar hjá Sameinuðu þjóðunum á því hvað hrjáði Gromyko. — aðeins
sagt að hann hafi „forfallazt".
Norðmenn stefna að
200 mílna útfærslu
við Jan Mayen í haust
Ósló — 26. september
— frá Jan Erik Lauré
fréttaritara Morííunbiaðsins
NORSKA stjórnin hyggst á
þessu hausti lýsa yfir 200
Átti önnur
Cessna sökina?
San Diejío — 26. september. — AP.
STERKUR grunur leikur á að
önnur Cessna-vél en sú, sem
rakst á Boeing-þotuna í San
Diego í gær, þar sem 150 manns
létu lífið, hafi átt þátt í því að
slysið varð, að því er öryggissér-
fræðingur bandarisku flugum-
ferðarstjórnarinnar skýrði
fréttamönnum frá seint í kvöld.
Hafa hljóðbönd úr Boeing-þot-
unni leitt í ljós, að ekki var um
að ræða eina smáflugvél heldur
tvær, en Phillip Hogue, sem
hefur yfirumsjón með rannsókn
slyssins, segir að enn sé of
snemmt að slá því föstu hverjum
það hafi verið að kenna. Vélin,
sem rekst á Boeing-þotuna, var
eins hreyfils vél, en hin
Cessna-vélin, sem kemur við
sögu, var tveggja hreyfla, og
ienti hún heilu og höldnu sam-
kvæmt áætlun.
• Sjá „Flugmcnnirnir sáu hvor
annan" á blst 16.
Engin ákvörðuií
Washington — 26. scpt. — AP.
HAFT var eftir áreiðanlegum
heimildum í Washington í kvöld, að
loforð Bandaríkjastjórnar til
ísraelsmanna um fjárhagsaðstoð
vegna gerðar tveggja nýrra herflug-
valla verði ekki efnt fyrr en
afdráttarlaus ákvörðun um að stöðva
landnám ísraelsmanna á vestur-
bakka Jórdanárinnar liggi fyrir.
mílna efnahagslögsögu um-
hverfis Jan Mayen, og er,
málið nú til meðferðar í
norska hafréttarmálatáðu-
neytinu, að því er
Adresseavisen skýrir frá í
dag.
Blaðið hefur það eftir Arne
Treholt aðstoðarráðherra, að
ætlun stjórnarinnar sé að
hefja viðræður við íslendinga
um lausn ágreinings um
skiptalínu milli Jan Mayens og !
íslands jafnskjótt og endanleg
ákvörðun hafi verið tekin um
útfærslu, auk þess sem haft
verði samráð við fleiri þjóðir
sem eigi fiskveiðihagsmuna að
gæta á þessum slóðum.
Hið umdeila svæði er um 25
þúsund ferkílómetrar, en ís-
lendingar fallast ekki á það
sjónarmið Norðmanna að mið-
línuregla skuli gilda milli Jan
Mayens og íslands, þar sem
eyjan sé ekki í byggð.
Gromyko var langt kominn meö
ræðu sína þegar viðstaddir merktu
að honum var brugðið. Hann gerði
hlé á máli sínu til að fá sér
Sjónarvott-
ar kallaðir
til vitnis í
Moro-máli
Róm. 26. sopt. AP.
YFIRMENN rannsóknarlög-
reglunnar í Mílanó, Tórínó,
Bologna og Róm eru nú saman-
komnir í dómhöllinni í höfuð-
borginni til að yfirheyra þrjú
vitni í Moro-málinu, en öll eru
þau talin hafa horft á ránið á
Aldo Moro, fyrrum forsætisráð-
herra Ítalíu, hinn 16. marz s.l. Er
þannig talið að vitnin geti borið
kennsl á Corrado Alunni, einn
forsprakka Rauðu herdeildanna,
sem handtekinn var fyrir tveimur
vikum í Mílanó, en ætlað er að
hann hafi verið í fararbroddi
þeirra, sem gerðu skotárásina á
Moro og lífverði hans.
Nöfnum vitna þessara er haldið
stranglega leyndum, en haft er
eftir áreiðanlegum heimildum að
um sé að ræða tvo karla og
hjúkrunarkonu. Konan ber, að
hún hafi séð menn, sem hún telur
hafa verið hryðjuverkamenn,
flytja plastpoka úr einum bíl í
annan um tíu mínútum eftir að
skotárásin og mannránið áttu sér
stað, og er það hald manna að þar
hafi fórnarlambið verið.
Sagt er að vitni þessi hafi gefið
sig fram, og sé annar karlmaður-
inn úr hópi þeirra, sem fyrstir
komu á vettvang, er ránið fór
fram. Hjúkrunarkonan gaf sig
fram við lögregluna eftir að
mynd Alunnis birtist viku eftir
ránið á Moro.
vatnssopa, en megnaði síðan ekki
að halda áfram. Gromyko hefur
verið utanríkisráðherra síðustu
tvo áratugi og á sæti í forsætis-
nefnd sovézka kommúnistaflokks-
ins. Hann er einn þeirra sem
nefndir hafa verið sem liklegustu
eftirmenn Brezhnevs, og er talinn í
hópi þeirra valdamanna, sem eru
hvað traustastir í sessi í Sovétríkj-
unum.
Er Gromyko fékk aðsvifið var
hann í miðri skammaræðu sinni
vegna sáttaumleitana Bandaríkj-
anna á fundinum i Camp David.
Kvað hann frumkvæði Banda-
ríkjastjórnar í málinu vera tilræðí
við Araba og yrði það til þess eins
að torvelda enn að sættir kæmust
á í Miðausturlöndum. Hann taldi
útilokað að „gervimennskuherferð
og tilgerðarleg bjartsýni" gætu
slegið ryki í augu manna, enda
væri það alemnn skoðun að
deilurnar yrðu ekki leystar nema
tryggt væri sjálfstæði allra þjóða í
þessum heimshluta. Hann gagn-
rýndi leiðtogana þrjá, sem hittust
í Camp David, einkumiþó Sadat
Egyptalandsforseta.
Sættir 1
sjónmáli?
WashinKton — 26. sept. — AP.
Utanríkisráðuneytið í
Washington skýrði frá því í kvöld
að þegar hafi bandariskum
stjórnarerindreka orðið „nokkuð
ágengt" í því að miðla málum
milli uppreisnarmanna í Nicara-
gua og Somoza forseta. Jafnframt
var frá því sagt að allir helztu
deiluaðilar hefðu fallizt á að
Bandarikjamenn reyndu að koma
á sáttum. þannig að endi yrði
hundinn á ófremdarástandið í
landinu.
„Bókmenntaleg sprengja”
Ósló. 26. september.
Frá Jan Erik Lauré íréttaritara Mhl.
segja norskir f jölmiðlar um
„Réttarhöldin yfir Hamsun
í DAG kom samtímis út í Noregi,
Danmörku og Svíþjóð bók
danska rithöfundarins Torkild
Hansens um hinn látna norska
rithöfund Knut Ilamsun. Dögum
saman hafa norskir fjölmiðlar
fjallað ítarlega um bókina. og er
það mál manna að hér sé um að
ræða „bókmenntalega sprengju",
sem verða muni tilefni margvís-
legra skoðanaskipta á næstunni.
betta cr 800 blaðsíðna verk, sem
ber titilinn „Réttarhöldin yfir
Hamsun", og enda þótt hún kosti
260 norskar krónur hefur ös
verið í bókaverzlunum í allan
dag, svo mikil cr eftirspurnin.
Móttökurnar, sem bókin fær,
eru mjög jákvæðar og bera vott
um óvenjulegan áhuga. Verkið
vekur fyrst og fremst umtal af því
að hér eru ýfðar upp minningar
um réttarhöldin, sem haldin voru
yfir Hamsun eftir stríðið. Ekki
eru bornar brigður á að hann hafi
verið nazisti og að hann hafi
brugðizt trúnaði við konung sinn
og fósturjörð meðan landið var
hernumið af Þjóðverjum. I stríðs-
lok var hann settur á elliheimili,
látinn gangast undir geðrannsókn
og úrskurðaður „varanlega van-
heill andlega“, en síðar var hann
dæmdur fyrir föðurlandssvik.
Skömmu síðar ritaði hann bókina
„Grónar götur“, sem enn þann dag
í dag er talin meistaraverk.
Alla þessa atburðarás setur
Torkild Hansen nú í brennidepil.
Hvað kom fyrir Hamsun í stríð-
inu? Hvað gerðist meðan á réttar-
höldunum stóð — opinberlega og í
einkalífinu?
Bókin er árangur margra ára
rannsókna á birtum og óbirtum
skjölum, hundruðum bréfa og
dagbók, sem til þessa hefur ekki
séð dagsins ljós. Hansen gagnrýn-
ir harðlega hvernig norsk stjórn-
völd stóðu að geðrannsókninni og
telur að þar hafi röng niðurstaða
verið grundvölluð á allsendis
ótækum vinnubrögðum.
Gagnrýnendur eru mjög sam-
mála um bókina, og segir Carl
Fredrik Engelstad m.a. í Aften-
posten: „Hansen gengur hreint til
verks. Hann læðist inn í alla
afkima. Hann hefur ekki lagt frá
sér eitt einasta pappírssnifsi án
þess að skoða það í krók og kring,
hvert einasta lítið leyndarmál
hefur hann látið freista sín og
allar upplýsingar, hversu smá-
vægilegar, sem þær eru, hefur
hann sett undir smásjá. Hann
hefur farið um langan veg til að
leiðrétta hálfsannleika og hálfan
hálfsannleika. Hann sparar
hvorki fyrirhöfn né aðgangshörku
við þá, sem koma við sögu, hversu
lítilfjörlegt sem hlutverk þeirra er
í atburðarásinni. Allir fá sitt:
Marie Hamsun, börnin, vinir
Hamsuns, lögfræðingar, dómarar,
útgefendur og þjónar réttvísinnar.
Hér er ekki farið í manngreinar-
álit. Öll spil eru lögð á borðið. En
það sem merkilegast er við bókina
— og hér er freistandi að nota
orðið „snilld“ — er hæfileiki
Torkild Hansens til að lifa sig inn
í viðfangsefnið, fyrst og fremst
Knut Hamsun sjálfan. Þessi bók
mun um ókomna tíð gegna megin-
hlutverki í öllu því sem varðar
Hamsun," segir Engelstad.