Morgunblaðið - 27.09.1978, Síða 19
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 27. SEPTEMBER 1978
19
AUit.VsiNGASIMlNN KR:
22410
JHergimblabitt
Starfshópur ”
athugi stöðu
fiskvinnslu-
fyrirtækja
Sjávarútvegsráðuneytiö hefur
kvatt saman starfshóp til þess að
gera athugun á stöðu fiskvinnslu-
fyrirtækja, sem búa við svæðis-
bundin vandamál og gera tillögur
um úrlausn þeirra. I starfshópnum
eru Gamalíel Sveinsson, viðskipta-
fræðingur frá Þjóðhagsstofnun, en
hann er jafnframt formaður hóps-
ins, Helgi Ólafsson, framkvæmda-
stjóri og Karl Bjarnason, tækni-
legur ráðgjafi frá Framkvæmda-
stofnun ríkisins, segir í fréttatil-
kynningu frá sjávarútvegsráðu-
neytinu. Við framangreinda at-
hugun starfshópsins skal haft
samráð við heimamenn svo og
hagsmunaaðila og lánastofnanir
sjávarútvegsins.
Starfshópurinn skal skila tillög-
um um fjárhagslega, tæknilega og
stjórnunarlega endurskipulagn-
ingu fyrirtækja í 'sjávarútvegi á
hverju svæði. Við athugunina og
áætlunargerð skal sérstaklega
stefnt að því, að tryggja atvinnu-
öryggi, samræmi í uppbyggingu
veiða og vinnslu og aukna hag-
kvæmni og bætta nýtingu í vinnsl-
unni.
Á fundinum kom fram, að ekki
mun óalgengt að mánaðarleiga
fyrir tveggja til þriggja herbergja
íbúðir sé milli 50 og 60 þúsund
krónur á mánuði, og algengt er að
greitt sé fyrir eitt ár fyrirfram.
Dæmi munu vera um að tveggja
herbergja íbúðir séu leigðar á 75
þúsund krónur á mánuði eða
jafnvel enn meira.
Að mati leigjendasamtakanna á
Bræla
á loðnu-
miðunum
BRÆIjA hefur verið á loðnumið-
unum undan Norðurlandi undan-
farna þrjá sólarhringa og engin
veiði, að sögn Andrésar Finnboga-
sonar hjá Loðnunefnd. Bátarnir
dólá úti á miðunum og bíða eftir
því að veður batni.
annar frá land- og húseigendum.
Hafa Leigjendasamtökin þegar
skipað Ragnar Aðalsteinsson, hrl.
í nefndina, og væntanlega verður
Sigurður E. Guðmundsson for-
maður. Mun aetlunin vera sú, að
nefndin skili drögum að lagafrum-
varpi hið fyrsta, jafnvel svo fljótt
að leggja megi það fram á Alþingi
fyrir þingslit í vor.
Þá kynnti stjórn Leigjendasam-
takanna einnig nýtt form húsa-
leigusamnings, sem að þeirra sögn
tryggir jafnt réttindi og skyldur
leigusala sem leigutaka. Vap við
gerð samningsins haft í huga
opinbert form slíkra samninga í
Noregi, en Ragnar Aðalsteinsson
var samtökunum til ráðuneytis við
gerð hans. Það form húsaleigu-
samnings sem Húseigendafélag
Reykjavíkur hefur boðið upp á er
ónothæft, að sögn Leigjendasam-
takanna, þar sem þar er aðeins
gætt hagsmuna leigusala.
Um 150 manns eru nú í Leigj-
endasamtökunum, aðallega lág-
launafólk, að sögn formanns
þeirra, Jóns frá Pálmholti. Sam-
tökin hafa nú tekið á leigu
húsnæði að Bókhlöðustíg 7 í
Reykjavík, þar sem starfsemi
þeirra mun hafa aðsetur framveg-
is.
Nr. 61 en ekki 59
MYNDIN af skúrbyggingunni, sem
birtist á baksíðu Morgunblaðsins í
gær var ekki á lóð hússins nr. 59
við Laugaveg, heldur á lóð nr. 61,
að baki húsa Aiþýðubrauðgerðar-
innar sem var. Þetta leiðréttist
hér með.
Stjórn Leigjendasamtakanna:
Allt að 75 þús. kr. mánaðarleiga
fyrir tveggja herbergja íbúðir
„Þær leigumiðlanir sem starfa
hér í Reykjavík skaða tvímæla-
laust hag lcigjenda, þar sem þær
eiga þátt í að spcnna upp
húsaleiguna," sagði Jón Ásgeir
Sigurðsson, einn stjórnarmanna í
Leigjendasamtökunum á fundi
með blaðamönnum í gær. Á
fundinum var starfsemi samtak-
anna kynnt, skýrt frá nýju
eyðublaði fyrir gerð húsaleigu-
samninga. skýrt frá nefnd scm
fclagsmálaráðherra hyggst skipa
til að semja lagafrumvarp um
húsalcigu, auk þess sem stjúrn
samtakanna svaraði fyrirspurn-
samkeppni leigumiðlananna stór-
an þátt í síhækkandi húsaleigu,
þar sem þær verði að sjá húseig-
endum fyrir leigjendum sem geta
greitt hæstu leigu, ef þær eiga á
annað borð að fá nokkrar íbúðir á
skrá. Leigjendur greiða allan
kostnað við rekstur þessara leigu-
miðlana.
Á blaðamannafundinum skýrði
formaður Leigjendasamtakanna,
Jón frá Pálmholti, frá því, að
félagsmálaráðherra hefði ákveðið
að skipa nefnd til að gera frum-
varp til laga um húsaleigu. Eiga
þrír aðilar að sitja í nefndinni,
formaður frá hinu opinbera, og svo
einn frá samtökum leigjenda og