Morgunblaðið - 12.10.1978, Blaðsíða 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 12. OKTÓBER 1978
99
„Mál hinna
einstöku
ráðherra
— segir Ólafur
Jóhannesson
„ÉG TEL nú að það sé
hinna einstöku ráðherra
að hafa samband við sína
stuðningsflokka," sagði
Ólafur Jóhannesson for-
sætisráðherra, er Mbl.
bar undir hann þau um-
mæli Lúðvíks Jósepsson-
ar, formanns Alþýðu-
bandalagsins, að ríkis-
stjórninni hefði láðst að
leita eftir samkomulagi
við sína stuðningsflokka
um meginstefnuna í fjár-
lagafrumvarpinu. Að
öðru leyti kvaðst forsæt-
isráðherra ekki vilja
ræða þetta mál opinber-
lega.
60 manns starfa við
pflagrímaflug Flugleiða
Strengur-
inn í lag
um helgina
— ANNAR rafstrengur-
inn til Eyja slitnaði rétt
norður af Faxaskeri og
síðan á mánudag hefur
norskt kaplaskip unnið að
viðgerð, en hún hefur
gengið heldur hægt, þar
sem erfitt er að athafna sig
vegna straums, sagði
Garðar Sigurjónsson raf-
veitustjóri í Vestmannaeyj-
um í samtali við Mbl.
Garðar sagði að vegna straums
væri erfitt um köfun með tækja-
búnað þann sem þyrfti til við-
gerðarinnar, en álitið er að
strengurinn sé slitinn við splæs-
ingu. Strengur þessi er annar
strengjanna til Eyja þannig að
ekki hefur verið um neinn raf-
magnsskort að ræða. Um tjónið
sagðist Garðar ekki vita, en að það
kæmi á erlenda aðila að greiða
það, annað hvort framleiðendur
strengsins eða þá sem sáu um
lögnina, en strengurinn er í eigu
Rafmagnsveitna ríkisins. Gert er
ráð fyrir að viðgerðinni verði lokið
um eða eftir helgi ef vel gengur.
Skipaður
skrifstofustjóri
AÐALSTEINN Guðlaugsson heftir
verið skijiaður skrifstofustjóri
Rannsóknarlögreglu ríkisins frá 1.
nóvember að telja. Aðalsteinn
hefur um árabil verið skrifstofu-
stjóri Sakadóms Reykjavíkur.
— UM PESSAR mundir eru
tæplega G0 manns frá Flugleiðum
starfandi við pílagrímsflug milli
Surabaya, Colombo og Yeddah, en
flug þetta hófst 5. október og
stendur í einar G vikur, sagði
Sveinn Sæmundsson blaðafulltrúi
Flugleiða í samtali við Mbl.
— Sex áhafnir sinna þessu flugi
og auk þeirra 10 dðrir starfsmenn
og gista áhafnirnar í þessum
þremur borgum, sagði Sveinn, en
þeir sem stjórna fluginu hafa
aðsetur í Colombo. Flugið gengur
þannig fyrir sig að nú er flogið frá
Surabaya til Yeddah með viðkomu
í Colombo, en flugtíminn hvorn
áfanga um sig er um 5 lA tími. I
bakaleiðinni þegar flogið er með
tómar vélar er hægt að fara án
viðkomu og tekur þá flugið nærri
11 tíma, en þetta er hægt vegna
þess að þá er hægt að taka meira
eldsneyti en þegar vélin er full-
hlaðin.
Kristján Benediktsson börgarfulltrúi:
Of geyst í hlutina farið
að vilja veita fulltrúum
starfefólks atkvæðisréti
„ÉG VIL á þessari stundu ekki
segja neitt um skoðun mína á því
hvort fulltrúar starfsfólks í
stjórnum horgarfyrirtækja eigi
að fá þar atkva'ðisrétt. Fyrst vil
ég fá reynslu á það að fulltrúarn-
ir sitji stjórnarfundi með mál-
frelsi og tilliigurétti og kanna
áhugann á bak við það áður en ég
tek afstöðu til hins." sagði
Kristján Benediktsson borgar-
fulltrúi Framsóknarflokksins. er
Mbl. spurði hann í gær um
afstöðu hans til þess að íulltrúar
starfsfólks í stjórnum borgar-
fyrirtækja fái þar atkvæðisrétt.
eins og borgarfulltrúar Sjálf-
stæðisílokksins gerðu tilliigu um.
en meirihluti borgarstjórnar
vildi ekki samþykkja.
„Eg tel að það þurfi að athuga
ýmsar hliðar málsins áður en
hægt er að taka ákvörðun varð-
andi svona miklar breytingar,"
sagði Kristján. „í fyrsta lagi þarf
að athuga lagalegu hliðina. Sam-
kvæmt sveitastjórnarlögum á að
kjósa nefndir og ráð hlutbundinni
kosningu og sýnist mér því í fljótu
bragði að það þurfi að breyta
lögunum, ef samþykkja á at-
kvæðisrétt til handa fulltrúa
starfsfólksins. Einnig tel ég rétt að
kanna hug starfsfólksins sjálfs til
þess að það sé látið hafa bein áhrif
á stjórn fyrirtækjanna áður en
slíkt er ákveðið, því að það er
mikill munur á því að gefa
starfsfólki kost á að fylgjast með
starfsemi varðandi stjórn . fyrir-
tækis og því að setja það í þann
vanda að eiga aö taka beinar
stjórnunarlegar ákvarðanir.
Þetta tel ég að verði að athuga
vel og að þessu Ieytinu tel ég
tillögu sjálfstæðismanna um at-
kvæðisréttinn fljótfærnislega.
Sjálfstæðismenn höfðu í 50 ár
tækifæri til að veita starfsfólki
einhverja innsýn í stjórnun fyrir-
tækja og létu þau ónotuð, en nú
fjórum mánuðum eftir að þeir eru
hættir á stjórna borginni, þá
hoppa þeir umsvifalaust yfir í það
að veita starfsfólki fuila aðild að
stjórnunum og meðan við viljum
fara hægar í sakirnar og veita
starfsfólkinu einn áhe.vrnarfull-
trúa þá vilja sjálfstæðismenn tvo
fulltrúa með fullum réttindum og
skyldum.
Þetta eru snögg umskipti og að
mínum dómi of geyst í hlutina
farið.“
Sveinn Sæmundsson sagði að
ráðgert væri að farnar yrðu 22
ferðir í þessari lotu, sem lyki
væntanlega 3. nóvember, en síðari
lotan hæfist 17. nóvember og
kæmu starfsmennirnir þá til
íslands, og yrði skipt að nokkru
leyti um fólk en aðrir færu utan í
annað sinn.
Sveinn Sæmundsson var spurð-
ur frétta af flugfélagi því sem
Cargolux hefði átt aðild að því að
stofna, Aero Uruguay, og sagði
|hann að það hefði gengið vel,
Ráðinn til
Útflutnings-
miðstöðvar
iðnaðarins
INGI Tryggvason, fyrrverandi
alþingismaður, hefur verið ráðinn
til starfa hjá Útflutningsmiðstöð
iðnaðarins til að veita forstöðu
ullar- og skinnaverkefni því, sem
unnið hefur verið að á vegum
stofnunarinnar undanfarin ár og
ráðgert er að halda enn áfram um
óákveðinn tíma. Tekur Ingi við af
Sveini Hallgrímssyni, sem hverfur
aftur til fyrri starfa hjá Búnaðar-
félagi íslands sem sauðfjárræktar-
ráðunautur en sl. ár var hann í
leyfi frá því starfi. Ingi hefur störf
hjá Útflutningsmiðstöðinni seinni-
hluta nóvembermánaðar n.k. og er
ráðinn til tveggja ára.
annaðist flutninga um Mið- og
Suður-Ameríku og hefði félagið
einnig sótt um lendingarleyfi í
Bandaríkjunum.
Slökkviliðs-
menn í bílaburði
Akureyri 10. okt. — Eldur kom
upp í húsinu nr. 5 við Munka-
þverárstræti kl. 03.15 í nótt.
Eldurinn kviknaði á rishæð húss-
ins, en þar var einn ungur maður
heima og vaknaði hann af svefni
við eld og reyk. Hann komst
nauðuglega út úr íbúðinni og gerði
slökkviliði viðvart.
Slökkvilið bæjarins átti í
miklum erfiðleikum við að komast
leiðar sinnar að húsinu bæði vegna
sundurgrafinna gatna af hita-
veituskurðum og vegna þess að
ýmsir bíleigendur í nágrenninu
höfðu lagt bílum sínum þannig að
slökkviliðsmenn urðu að byrja á
því að bera þá út að brún
akbrautarinnar. Að öðru leyti
gekk slökkvistarfið greiðlega
þegar það loksins gat hafist en
miklar skemmdir urðu á húsinu og
húsmunum af eldi, reyk og vatni.
- Sv. P.
Heybruni að
Kjarnholtum
IIEYBRUNI varð að bænum
Kjarnholtum í Biskupstungum sl.
þriðjudag. er kviknaði í heyi í
1500 hesta fjárhúshliiðu á bæn-
um. Var unnið við slökkvistörf
allan þriðjudaginn og fram til kl.
5 um morguninn og höfð vakt þar
til kl. 9 á miðvikudagsmorgun.
Samkvæmt upplýsingum Jakobs
Helgasonar slökkviliðsstjóra í
Biskupstungum varð vart við
re.vkinn um hádegisbilið á þriðju-
dag og komu fljótlega um 20 menn
slökkviliðsins og unnu við að ráða
niðurlögum eldsins fram á mið-
vikudagsmorgun. Um helmingur
heysins í hlöðunni, sem rúmar uni
1500 hesta og var nærri full,
skemmdist, en hinu tókst að
bjarga. Skemmdir urðu ekki á
hlöðunni að öðru leyti en því að
rjúfa varð hlið hússins að nokkru
til að komast að heyinu. Tvær
gröfur voru notaðar við slökkvi-
starfið. Jakob sagði að tjón
Magnúsar Einarssonar bónda væri
allnokkuð, en heyið hefði verið
tryggt og ekki ætti að vera erfitt
að útvega hey í staðinn.
O'
Tilboð opnuð í
Hótelísafjörð
OPNUÐ hafa verið tilboð í hótelbyggingu á ísafirði, en það er
hlutafélagið Hótel ísafjörður h.f., sem stendur að byggingunni.
Lægsta tilboðið barst frá Guðmundi Þengilssyni í Reykjavík og
hljóðaði það upp á 115,2 milljónir króna, en kostnaðaráætlun var 98
milljónir. en þar hafði ekki verið gert ráð fyrir kostnaði við uppihald
starfsmanna sem ráðgerður er um 10 m.kr.
Tvö önnur tilboð bárust, frá
INNLENT
Kærði gæzlu-
varðhalds-
úrskurðinn
BÍLASALINN, sem úrskurðaður
var í gæzluvarðhald á laugardag-
inn hefur kært úrskurð sakadóms
Reykjavíkur til hæstaréttar. Hef-
ur hæstiréttur ekki enn afgreitt
kæruna.
önnur
Sigurði og Jóhannesi hf. á Isafirði
og Haraldi Haraldssyni, Reykja-
vík, og voru þau nokkru hærri en
kostnaðaráætlunin.
Ólafur B. Halldórsson stjórnar-
formaður Hótels ísafjarðar sagði
að ákveðið hefði verið að taka
tilboði Guðmundar Þengilssonar
og hefði þegar verið undirritaður
bráðabirgðaverksamningur og
gert væri ráð fyrir að framkvæmd-
ir gætu hafist í vikunni. Búið er að
grafa grunn og steypa sökkla og
hljóðar tilboðið uppá vinnu við
lagnir í sökkla, steypu botnplöt-
unnar og að steypa upp 5 hæðir
hússins, sem alls er 5.126 rúm-
metrar. Áætlað er að verktakinn
skili byggingunni fokheldri 1.
október 1979 og sagðist Ólafur
vonast til að hægt væri að taka í
notkun fyrstu og aðra hæðina á
árinu 1980, en það væri þó komið
undir fjármögnun. Á fyrstu hæð er
gestamóttaka, matsalur, fundar-
salur og skrifstofa og á annarri til
fjórðu eru alls 33 tveggja manna
herbergi með baði, en á 5. hæð,
sem er nokkru minni en hinar
hæðirnar, eru 3 herbergi, setustofa
og snyrting, en hver hæð er 336
fermetrar.
Bæjarsjóður ísafjarðar er meðal
hluthafa og auk hans ýmis fyrir-
tæki og einstaklingar á ísafirði og
hafa Flugleiðir nýlega gefið loforð
um hlutafé. Sagði Ólafur B.
Halldórsson að lokum að með
tilkomu þessa hótels sem stendur
við Silfurtorg væri bætt úr mjög
brýnni þörf gistirýmis á ísafirði.