Morgunblaðið - 12.10.1978, Síða 13
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 12. OKTÖBER 1978
13
þeirra eða afstöðuleysi kemur
mönnum jafnt við nú sem á fyrri
áratugum.
Aðstoðarleikstjóri við þessa
sýningu er Viðar Eggertsson,
Akureyringur, sem nú er kominn
heim aftur, eftir nokkra útivist
og skólanám í leiklist.
— Hvar og hvenær stundaðir
þú nám í leiklist, Viðar?
— Ég var í leiklistarskóla SÁL
fyrir allmörgum árum, en stund-
aði svo nám í Leiklistarskóla
íslands 1972—1976, þegar ég
brautskráðist þaðan. Svanhildur
Jóhannesdóttir, sem leikur í
þessu verkefni L.A., var einmitt
samtímis mér í Leiklistarskóla
íslands og tók lokapróf sama ár
og ég. Við höfðum bæði leikið
hér á Akureyri áður en við
hófum nám, og nú urðum við
bæði fastráðnir leikarar hjá L.A.
í haust.
— Er ekki gott að vera kominn
aftur?
— Það er mjög skemmtilegt að
hafa hlotið sína fyrstu reynslu á
leiksviði hér, farið síðan annað
og lært hitt og þetta og fara
Oddur Björnsson leikhús-
stjóri.
síðan að vinna aftur hér á
Akureyri. Það er ný og gleðileg
reynsla að vera kominn heim
aftur. Leikfélag Akureyrar er
líka eina atvinnuleikhúsið, sem
býður nýútskrifuðum leikurum
fastan samning.
Haukur J. Gunnarsson leik-
stjóri.
Loks var hinn nýi leikhús-
stjóri Leikfélags Akureyrar,
Oddur Björnsson, tekinn tali.
Hann hefir í mörgu að snúast
þessa dagana. bæði við að sinna
aðkallandi verkefnum við undir-
búning frumsýningarinnar á
Viðar Eggertsson aðstoðar-
leikstjóri.
föstudaginn og við undirbúning
og ýmis aðföng síðari viðfangs-
efna leikhússins á leikárinu. Þó
gaf hann sér tíma til að leysa úr
fáeinum spurningum.
— Hvenær hófstu störf hjá
L.A. Oddur?
— Ég var ráðinn frá 1.
september, en var að vísu mikið
hér í ágúst við undirbúning
vetrarstarfsins. Síðan varð ég að
bregða mér frá um sinn og kom
ekki aftur fyrr en undir miðjan
september, því að ég var áður
búinn að taka að mér leikstjórn
við uppfærslu á verkum eftir
mig í Edinborg.
— Hver verða verkefni leik-
ársins?
— Þegar eftir frumsýninguna
á „Þess vegna skiljum við“
verður byrjað að æfa Skugga-
Svein, sem verður jólaleikrit
L.A. og Sigrún Björnsdóttir
leikstýrir. Skömmu síðar verður
tekið til við að æfa „Stalín er
ekki hér“ eftir Véstein Lúðvíks-
son, sem sýnt var í Reykjavík i
fyrra. Þá ætlum við að sýna
Sjálfstætt fólk eftir Halldór
Laxness seinna í vetur og ljúka
síðan leikárinu með sýningum á
erlendum söngleik, sem hefur
ekki verið sýndur hér á landi.
Við erum strax farin að undir-
búa það verkefni.
— Verkefnaskráin virðist
óvenju-þjóðleg að yfirbragði,
fjögur leikritin af fimm eftir
íslenska höfunda.
— Já, og við reyndum að
leggja áherslu á sem mesta
fjölbreytni, gefa sem flestum
tækifæri og gera verkefnin
aðlaðandi fyrir sem flesta
bæjarbúa án þess að slá af
listrænum kröfum. Þar að auki
lögðum við kapp á, að hún lægi
fyrir eins fljótt og unnt væri, og
við teljum, að það hafi tekist.
Hún var tilbúin óvenju-snemma
og alveg nægilega snemma, held
ég-
— Hverjir eru fastráðnir
leikarar hjá L.A. í vetur?
Fastráðnir leikarar eru 9, þar
af 6 á A-samningi, en 3 á
B-samningi. Á A-samningi eru
Aðalsteinn Bergdal, Gestur E.
Jónasson, Sigurveig Jónsdóttir,
Svanhildur Jóhannesdóttir,
Viðar Eggertsson og Þráinn
Karlsson. Á B-samningi eru
Kristjana Jónsdóttir, Nanna I.
Jónsdóttir og Theódór Júlíusson,
Freygerður Magnúsdóttir og
Heimir Ingimarsson. — Allir
fastráðnir leikarar leika í
sýningunni á „Þess vegna skilj-
um við“ nema Viðar Eggertsson,
sem er aðstoðarleikstjóri. En þar
að auki voru 4 leikarar lausráðn-
ir aðeins í þetta verkefni, þau
Björg Baldvinsdóttir, Marínó
Þorsteinsson, Þórey Aðalsteins-
dóttir og Þórhalla Þorsteins-
dóttir.
— Verður nokkur sérstök
nýbreytni í sambandi við þessa
sýningu?
— Já, reyndar. Við höfum
ákveðið að opna málverka-
sýningu í forsölum leikhússins í
hvert sinn, sem frumsýnt er.
Fyrstur sýnir Óli G. Jóhannsson,
listmálari, og verða allar myndir
hans til sölu. — Þá ætla þau
Soffía Guðmundsdóttir og
Michael Clarke að leika saman á
fiðlu og píanó létta klassíska
tónlist, áður en sýningar hefjast
og milli þátta, rétt eins og
tíðkaðist í leikhúsi Akureyringa
fyrr á árum, m.a. á þeim tíma,
þegar leikurinn er látinn gerast.
Þannig reynum við að gefa
leikhúsgestum tækifæri til að
njóta þriggja listgreina í leik-
húsinu í senn, myndlistar, tón-
listar og svo leiklistarinnar
sjálfrar.
Sv.P.
Þórey Aðalsteinsdóttir og Aðalsteinn Bergdal.
Ingi Ú. Magnússon, gatnamálastjóri:
Mælir með ónegld-
um snjóhjólbörð-
um í Reykjavík
Stjórn Hagtrygginga, sem eitt
dagblaðanna ruglar saman við Hag-
vang h.f., hefir sent frá sér greinar-
gerð til fjölmiðla um umferðarör-
yggi. Á stjórnin þakkir skilið fyrir að
vekja athygli almennings á þessum
málum, þar sem ekki mun af veita
eins og slysatilfelli þessa síðustu
daga bera vitni um.
Eitt atriði í greinargerðinni, sem
snýr að hálkuvörnum, leyfi ég mér
að vefengja. Það er skoðun okkar
sem þessum málum stjórnum hjá
borginni að hálkueyðing með salti
stuðli að auknu umferðaröryggi og
greiði auk þess mjög fyrir umferð
þar eð ella væri hálka á götunum.
Með því að sinna fljótt og vel þessu
verkefni er talið að verið sé að auka
umferðaröryggið en greinargerð
tryggingarfélagsins virðist gefa hið
gagnstæða í skyn. Margir bifreiða-
eigendur hér í Reykjavík fara
örsjaldan út fyrir borgarmörkin yfir
vetrartímann og er fyllilega óhætt
að mæla með því að þeir noti ekki
neglda heldur naglalausa snjóhjól-
barða, enda spara þeir með því bæði
sjálfum sér og samfélaginu fjárútlát.
Keðjum er hægt. að bregða undir í
þeim fáu tilvikum sem um er að
ræða.
Negldu hjólbarðarnir eru mesti
skaðvaldurinn á slitlögunum og
hjólför og skemmdir sem þeir valda
auka slysahættuna. Getsakir trygg-
ingafélagsins um að saltnotkun
skemmi malbik meira en nagla-hjól-
barðarnir eru alrangar og notkun
orðsins saltaustur í því sambandi
óverðskuldað, þar sem leitast er við
að nota aðeins það saltmagn sem
þörfin krefur hverju sinni.
Að lokum skal eftirfarandi tekið
fram: Það er engin skylda að aka
með neglda hjólbarða eftir 15. okt.
n.k., en þá má skv. lögum setja slíkan
búnað undir bifreiðarnar. Mælt er
með ónegldum snjóhjólbörðum til
notkunar hér í borginni.
Eins og undanfarna vetur verður
sólarhringsvakt á gatnakerfinu þeg-
ar sá tími er kominn til að eyða
hálkunni. 15 kg sandpokar til að
þyngja bifreiðarnar og til notkunar í
viðlögum verða afhentir ókeypis í
hverfisbækistöðvum gatnamála-
stjóra við Elliðaár, Sigtún og
Meistaravelli virka daga frá kl.
7.30-16.00.
AUGLÝSING
UM INNLAUSNARVERÐ
VERÐTRVGGÐRA
SRARISKÍRTEINA Rl'KISSIÓÐS
FLOKKUR INNLAUSNARTÍMABIL INNLAUSNARVERÐ) 10.000 KR. SKlTREINI
1967-2.FL. 20.10.78-20.10.79 kr. 299.776
x) Innlausnarverð er höfuðstóll, vextir, vaxtavextir og verðbót
Innlausn spariskírteina ríkissjóðs fer fram í afgreiðslu Seðla-
banka íslands, Hafnarstræti 10, og liggja þar jafnframt frammi
nánari upplýsingar um skírteinin.
SALA VERÐTRYGGORA SPARISKÍRTEINA í 2. FLOKKI 1978
STENDUR YFIR OG ERU SKÍRTEININ ENN FÁANLEG HJÁ
FLESTUM SÖLUAÐILUM.
Reykjavík, október 1978
SEÐLABANKI ÍSLANDS
»