Morgunblaðið - 12.10.1978, Page 33
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 12. OKTÓBER 1978
33
fólk í
fréttum
+ FLÓÐIN. — Hin miklu vatnsflóð í ýmsum stórám í fjarlægari Austurlöndum hafa verið mjög í
fréttum undanfarið. Milljónir manna hafa misst heimili sín og hundruð hafa drukknað. — Þetta er
götumynd frá milljónaborginni Kalkutta. Maður með það sem hann gat bjargað heima hjá sér og
vaðið með en við hlið hans í vatni upp undir höku er dóttir hans. bvílíkt regn og verið hefur í borginni
hefur ekki komið þar í yfir 60 ár herma fregnir.
+ EKKI í SÖK. — ítalski kappaksturskappinn Riccardo Patrese
fór fyrir nokkru vcstur um haf. en þar hélt hann fund með
hlaðamönnum til þess að leggja þar fram myndir sem hann taldi
sýna. að akstur hans á kappakstursbrautinni í Monza á Ítalíu
hefði ekki valdið því slysi sem leiddi til dauða sænsku
kappaksturshetjunnar Ronnie Peterson. Patrese hefur síðan
slysið varð verið í akstursbanni á kappakstursbrautunum.
+ GAFST UPP. — Þetta er ein
af fáeinum maraþon-sundkon-
um heimsins. Hún heitir Stella
Taylor. bandarísk. — Hún
hafði ætlað sér að synda frá
Bahamaeyjum til strandar
Florida. — En hún varð ^ð
gefast upp á leiðinni. — Er
myndin tekin af Stellu. er hún
hafði verið flutt á land í
Florida.
+ MANNRÆNINGI.
— Ilér er verið að
fylgja í dómssal í bænum
Oakland í Kaliforníu
Emily Harris, en hún og
maður hennar rændu
Patricíu Hearst blaða-
kóngsdóttur hér á árun-
um. Emilía og maður
hennar sem heitir
William eiga yfir höfði
sér fangelsisdóm fyrir
mannrán þetta.
Tísku-
sýning
á morgun föstudag í hádeginu og um kvöldiö.
Sýningarnar eru haldnar á vegum Rammagerðarinnar,
íslensks Heimilisiönaöar og Hótels Loftleiða. Módel-
samtökin sýna skartgripi og ýmsar geröir fatnaöar sem
unninn er úr íslenskum ullar- og skinnavörum.
HLnir vinsælu réttir kalda borösins á boöstólum.
★ Veriö velkomin.
HÓTEL
LOFTLEIÐIR
Simi 22322
I Vatnsvirkinn hf.
Sérverslun meö vörur til pípulagna
Ármúla 21 sími 86 4 55