Morgunblaðið - 12.10.1978, Qupperneq 40
FIMMTUDAGUR 12. OKTÓBER 1978
Höfn í
Hornafiröi
Yfir 30 þúsund tunniyn af síld hefur veriö landað á Höfn í Hornafirði í haust til söltunar og frystingar
og hefur verið handagangur í öskjunum þegar mest hefur borizt á land og þá hefur jafnframt verið unnið
langt fram á nótt eins og bezt lét á síldarárunum gömlu þegar silfur hafsins setti afgerandi svip á
síldarbæi landsins. Myndina tók Jens Mikaelsson á Hornafirði yfir höfnina. I fjarska ber hús við
dormandi jökulinn.
VR hafnar afturköllun
á uppsögn kaupliðs-
samninga
Mun grípa til aðgerða, hafi samninga-
mál ekki þokazt verulega fyrir 9. nóv.
TRÚNAÐARMANNARÁÐ
Verzlunarmannafélags Reykja-
vikur hefur falið samninganefnd
félagsins að tjá vinnuveitendum.
að það muni grípa til frekari
aðgerða hafi samingamáium
félagsins ekki þokað veruiega í
samkomulagsátt íyrir 9. nóvem-
bor. I>á hefur stjórn og trúnaðar-
mannaráð VR og samþykkt að
hafna tiimadum Aiþýðusambands
íslands um að það afturkalli
uppsögn kaupgjaldsákvæöa
samninganna. bessar samþykktir
voru báðar samþykktar hinn 9.
októbcr. en hinn sama dag
hafði verið haldinn samninga-
fundur féiagsins og
vinnuveitenda.
I fréttatilk.vnningu frá
Verzlunarmannafélagi Reykjavík-
ur, sem Morgunblaðinu barst í
gær, segir að eins og kunnugt hafi
verið, hafi félagið staðið í samn-
ingaviðræðum við vinnuveitendur
um nokkurt skeið. Hinn 20. júní
Ekki vitað hve
töfin verður mikil
— sagði Þórður Helgason hjá Eldborgu
— í DAG hefur verið unnið að því að taka upp
vélarnar og er ráðgert að þær verði sendar til
Svíþjóðar um hádegi á fimmtudag til yfirferðar, sagði
Þórður Helgason hjá útgerðarfélaginu Eldborgu í
samtali við Mbl. en sem kunnugt er af fréttum fór nýtt
skip, sem er í smíðum í Frederikshavn í Danmörku á
hliðina við bryggju og fylltist vélarrúmið af sjó. —
Starfsmenn hér eru allir af vilja gerðir að hraða
verkinu og með því að senda vélarnar til framleiðenda
á að tryggja að þær verði jafngóðar og eins og ekkert
hefði í skorizt, sagði Þórður, en rafall og hlíðarskrúfu-
vél eru send til Óslóar til sams konar yfirferðar.
Þórður sagðist ekki vita vélarrúmi en venjulega
hversu langan tíma viðgerðin
tæki, en upphaflega hafði verið
ráðgert að skipið yrði afhent 20.
október og sagði hann að töf
þessi kæmi vissulega illa niður á
útgerðinni, en ekki væri hægt að
nefna neinar tölur í því sam-
bandi. Hann sagði að mikil
mildi væri að ekki skyldi hafa
orðið slys á mönnum, en óhappið
hefði gerzt um kl. 8:30 þegar
flestir starfsmenn voru í kaffi
og því aðeins 2—3 starfsmenn í
en venjulega voru
þeir um 17 síðustu dagana.
Ásamt Þórði hafa fylgst með
verkinu ytra þeir Bjarni
Gunnarsson skipstjóri og Sig-
tryggur Ingi Jóhannsson fyrsti
vélstjóri.
Smíðaverð hins nýja skips er
ráðgert um 24 milljónir sænskra
króna eða rúmar 1600 millj. ísl.
en Þórður sagði að það verð ætti
eftir að hækka um 3% þannig að
endanlegt verð verður um 1.730
milljónir króna.
síðastliðinn afhenti félagið vinnu-
veitendum tillögur um verulegar
breytingar á flokkaskipan samn-
inganna, sem eru forsendan fyrir
því að verzlunar- og skrifstofufólk
fái leiðréttingu á launatöxtum
sínum í samræmi við það, sem
viðurkennt hefur verið í samning-
um opinberra starfsmanna, fyrir
sambærileg störf.
I ályktun, sem stjórn og
trúnaðarmannaráðið gerði vegna
beiðni Alþýðusambandsins um
afturköllun á uppsögn kjaraatriða
samninga segir m.a., að þegar
opinberir starfsmenn hafi gert
samninga síðastliðið haust hafi
komið í ljós að launataxtar þeirra
urðu um 10 til 60% hærri en
sambærilegir taxtar VR. I kjölfar
þess hefur félagið átt viðræður við
viðsemjendur sína og er takmark
félagsins að fá hliðstæð kjör
viðurkennd og fengizt hefur í
samningum við hið opinbera. Með
tilliti til þess getur félagið ekki
fallizt á að afturkalla uppsögnina.
Þá átelur fundurinn í annarri
ályktun harðlega seinagang og
tómlæti, sem vinnuveitendur hafa
sýnt í samningaviðræðum um
kjaramál.
Rússneskar her-
flutningavélar milli-
lenda í Reykjavík
FIMM rússneskar hcrfiutninga-
flugvélar af gerðinni AN 20. sem
áætlað var að lentu á Reykja-
víkurflugvelli í gærmorgun. voru
í gærkvöldi ókomnar til Prest-
víkur í Skotlandi. frá Kaup-
mannahöfn. en hingað eiga
vélarnar að koma frá Prestvík.
Vélar þessar eru á leið frá Kiev til
Ilavana og var ætlunin að þær
hefðu tveggja daga viðdvöl á
Reykjavíkurflugvelli. Sex menn
eru í hverri vél.
Hörður Helgason skrifstofustjóri
utanríkisráðuneytisins sagði Mbl.
að beðið hefði verið um lendingar-
leyfi fyrir flugvélarnar með eðli-
legum fyrirvara og þá á Reykja-
víkurflugvelli. Síðar hefði komið
fram ósk um þá breytingu að
vélarnar fengju að lenda á Kefla-
víkurflugvelli, en þá hefði verið
búið að ganga frá málum varðandi
komu vélanna til Reykjavíkur
þannig að ekki hefði verið fallizt á
breytingu varðandi lendingarstað.
Um erindi vélanna til Kúbu kvaðst
Hörður ekki vita, né heldur hvort
þær fl.vttu einhvern varning, en
sex manna áhöfn er á hverri vél.
Sagðist Hörður vita það eitt að
þetta væru tveggja hreyfla flug-
vélar í svipuðum flokki og Fokker
Friendship-vélar Flugfélags ís-
lands. Ætlun Rússanna var að
dvelja hér í tvo daga, taka bensín
og hvíla flugmennina.
Kristinn Olafsson tollgæzlu-
stjóri sagði að utanríkisráðuneytið
Hafnarfjörður:
hefði gert tollgæzlunni viðvart um
komu flugvélanna. Sagði Kristinn
að vélarnar yrðu tollafgreiddar
eins og herflugvéiar og herskip:
gefnar yrðu komuskýrslur, en í
þeim yrði ekki sérstaklega leitað
né neitt innsiglað á meðan á dvöl
þeirra stæði.
23
árekstrar
FJÓRIR voru íluttir á
slysadeild í Reykjavík í
gær en alls urðu 23
umferðaróhöpp í Reykja-
vík og tvö í Hafnarfirði.
Ekki varð um nein alvar-
leg meiðsli að ræða.
Allharður árekstur varð kl.
20:17 á mótum Réttarholtsveg-
ar og Sogavegar og var öku-
maður annars bílsins og far-
þegi úr hinum fluttir á slysa-
deild. Meiðsl þeirra voru ekki
alvarleg, en bílarnir skemmd-
ust allmikið. Þá var ökumaður
bíls er lenti í árekstri á mótum
Ásgarðs og Bústaðavegar flutt-
ur á slysadeild svo og stúlka er
varð fyrir bíl á Bústaðavegi, en
þar var ekki heldur um alvarleg
meiðsli að ræða.
Bæjarstjórnin áfrýjar
skaðabótamáli fyrr-
verandi bæjarlögmanns
KVEÐNIR hafa verið upp dómar í bæjarþingi Hafnarfjarðar í tveimur
málum Ingvars Björnssonar fyrrverandi bæjarlögmanns í Ilafnarfirði
gegn bæjarsjóði. bæjarstjóra og bæjarfulltrúum.
í skaðabótamáli Ingvars gegn bæjarsjóði voru stefnukröfur kr.
15.003.150.00 auk vaxta og kostnaðar. Niðurstaða dómsins varð sú að
bæjarsjóður var dæmdur til þess að greiða Ingvari kr. 1.000.000.00.
í meiðyrðamáli Ingvars gegn
bæjarstjóra og bæjarfulltrúum
var krafizt kr. 25.000.000.00 auk
ómerkingar ummæla. Stefn,du
voru sýknaðir af kröfum um bætur
en nokkur ummæli stefnanda og
stefndu voru ómerkt.
Bæjarstjórn Hafnarfjarðar hef-
ur ákveðið að áfrýja til Hæstarétt-
ar skaðabótamáli Ingvars gegn
bæjarsjóði.
Seldi fyrir
76 miíljómr
TOGARINN Ögri seldi 277
tonn af fiski í Þýzkalandi í
gær fyrir 474,132 þýzk mörk
eða 76,6 milljónir íslenzkra
króna. Er þetta hæsta sala
íslenzks skips í Þýzkalandi.
Meðalverðið er 277 krónur
íslenzkar fyrir kg. 100 tonn
af aflanum var karfi, hitt
ufsi.