Morgunblaðið - 22.10.1978, Síða 16
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 22. OKTÓBER 1978
48
„Saturday
night
Fever"
dansæðið
* ■,
Fólk hópast í dansskólana til Þess
að taka þátt í „Laugardagsfárinu“.
KVIKMYNDIN „Sadurday night FeverM sem nú er verið að sýna
hér á landi hefur notið mikilla vinsælda víða um heim að
undanförnu. í myndinni er mikið um dansatriði enda er
aðalpersónan, sem John Travolta leikur, „danskóngur“ á diskóteki
sem hann gjarnan sækir.
Samfara myndinni virðist eins konar „dansæði" hafa gripið um
sig á flestum þeim stöðum þar sem myndin hefur verið sýnd. Eru
danskennarar sammála um að fólk sæki dansskóla meira nu en
áður þar sem þeir hafa tekið upp kennslu á þeim dönsum sem sjást
í kvikmyndinni.
Blaðamenn Mbl. heimsóttu dansskóla höfuðborgarsvæðsins til
að kynnast dönsunum og viðhorfum til þeirra.
„Fullorðna
fólkið er æst
í þessa dansa“.
„Mér finnst þessir dansar
vera komnir út í jave og tangó“
sagði Sigvaldi Þorgilsson er við
heimsóttum dansskóla hans.
„Aðalbreytingarnar sem orðn-
ar eru með tilkomu dansanna
úr „Saturday night Fever“ eru
að nú er herrann farinn að
gera svo mikið í dansinum
enda er aðalhlutverkið í mynd-
inni leikið af karlmanni.
Hreyfingarnar í dönsunum eru
líka orðnar miklu mýkri.
Fullorðna fólkið er alveg æst
í að læra þessa dansa. Þeir eru
mjög auðveldir og auðlærðir
fyrir alla, það eru ekki nema
1—2 spor í hverjum dansi.
Við reynum að sjálfsögðu að
kenna dansana eins og þeir eru
í myndinni en stíllinn verður
aldrei sá sami, Travolta er
mjög góður dansari," sagði
Sigvaldi.
Sigvaldi hélt að dansarnir
myndu ekki orsaka byltingu í
dansi.
„Þetta er líkt og þegar