Morgunblaðið - 22.10.1978, Blaðsíða 29

Morgunblaðið - 22.10.1978, Blaðsíða 29
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 22. OKTOBER 1978 61 VELVAKANDI SVARAR í SÍMA 0100KL. 10— 11 FRÁ MÁNUDEGI ^(UAinfOí’ua'ii ir aldrei við merktar gangbrautir á götum með tveimur akreinum. Sagt er að bílstjórum liggi oft mikið á, aki eins og þeir eigi lífið að leysa. Rétt er það, en gangandi vegfarendum liggur oft mikið á líka, og mega alls ekki vera að því að horfa í kringum sig. Ljós við gangbrautir Á nokkrum stöðum hefur ljós verið isett við gangbrautir og er það til fyrirmyndar. Engum bíl- stjóra dylst hvað rauða ljósið táknar, en það ætti líka engum bílstjóra að dyljast hvað græna ljósið táknar. Fyrir nokkrum dögum ók ég á eftir bíl vestur Hringbraut. Þar er gangbrautarljós — og það græna blasti við. Á gangbrautinni stóð Þessir hringdu . . Skatt- lausir enn? Sveinn Sveinssoni „Á beinni línu Vísis til hátt- virts forsætisráðherra bar ég fram þá fyrirspurn hvort núverandi ríkisstjórn hefði nokkuð rætt þann möguleika að reyna að ná í skottið á þeim sem jafnan reyna að koma sér undan sköttum. Hann svaraði því til að það væri í athugun. Nú er búið að ákveða endurskatta á þá sem alltaf bera skatta og það nokkuð þunga. En ekki þykist ég hafa orðið var við að þeir sem áratugum saman hafa komið sér undan sköttum hafi verið skatt- lagðir. Ég benti þá háttvirtum ráðherra á að ég vissi dæmi þess að skattsvikarar drægju hér 260 þúsund krónur undan skatti og það ekki aðeins í eitt ár heldur árum saman. Hvernig væri nú fyrir nýskipaða ríkisstjórn að athuga þetta dálítið betur? Gæti það ekki orðið til þess að gjaldendurnir yrðu mun fleiri? Þar með álögin minni á aðra. EF ÞAÐ ER FRÉTTNÆMT ÞÁ ER ÞAÐ í MORGUNBLAÐINU \n;i.VsiN<;.\- SIMINN KK: 22480 maður hinn rólegasti og ætlaði sýnilega að bíða þess að hann kæmist óhindrað yfir án þess að neyta þess möguleika að ýta á hnappinn og stöðva umferð. En bílstjórinn á bílnum á undan var mjög „kurteis" og stanzaði við græna ljósið. Ég vissi hvað á spýtunni hékk og stöðvaði fyrir aftan hann, en maður sem kom í bíl á hinni akreininni á eftir okkur áttaði sig ekki á hvað um var að vera og ók óhindrað áfram á sínu græna ljósi. En maðurinn, sem beðið hafði á gangstéttinni, bjargaði málum. Að vísu fór hann út á götuna, en gáði vel til „veðurs" áður en hann hélt áfram út á hina akreinina. Ég þykist vera sæmilega tillits- samur í umferðinni, en svona „kurteisi“ kann ég ekki að meta. Tillitssemi Talandi um tillitssemi. Hún á að vera aðall hvers bílstjóra — og mat á aðstæðum. En gangandi vegfarendur eiga líka að sýna bílstjórum tillitssemi. Ég er oft gangandi vegfarandi og hef þá oft tekið eftir, hve mikið skortir á í þeim efnum. Það er auðveldara fyrir gangandi vegfaranda að bíða andartak við gangbraut en þjóta út á hana svo bílstjórar þurfi að snögghemla. Hvað skyldi það hafa kostað marga aftanákeyrsluna (fyrirgefið orðið)? Líka fer það í taugarnar á mér, þegar vegfarend- ur ganga löturhægt yfir gang- braut, þegar bíll hefur stöðvað þar. Þetta er orðið lengra bréf en ég ætlaði í fyrstu, en ég vona samt að þú getir birt það eða eitthvað úr því.“ • Betri umferð- armenning íbúi í Breiðholti, sem oft leggur leið sína um Kleppsveg, vildi að komið yrði á framfæri við lögregluna þökkum fyrir hraða- mælingar þær sem hún hefur annast á Kleppsveginum að undanförnu, sem hann sagði að hefði orðið til þess að ökumenn færu þarna um með mun meiri varúð en oft áður og til þess væri tekið hve umferðarhraðinn hefði skánað við þessar aðgerðir. Sagði hann að líklega væri það vegna þess að menn ættu jafnan sektir yfir höfði sér vegna mælinganna og væri það því miður eina leiðin, sem ökumenn virtust skilja til þess að bæta úr hegðan sinni á götunum. HÖGNI HREKKVÍSI 9- ©1978 ; ; MtNiugbt Syod., Inc. ¥ “ 1 WuwTt dýpa MAtoe & f- F7 m .UíJl " WÍp-RNA £(? ÓPiWV HoNUÞT CTTV A© IÁKA...M€Ð ZPPoM!" Q3r> SIGCA V/GGÁ £ llLVEgAkJ w w Z/ÍM \ ÓLWI, Vlá&KAQ VÚ m(5TVÓ ALmi OfóKuÓtioQ 5V0, KOLVlrtAO'y A9 V(j Yi/HWimmA)— Jól á skíðum Austurríki 22.12—5.1. ■ iPH „í" ■■ OflHMK FERÐASKRIFSTOFA lönaðarhúsínu - Hallveigarstíg 1, s. 28388 — 28580.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.