Morgunblaðið - 07.11.1978, Side 1
48 SIÐUR MEÐ 8 SIÐNA IÞROTTABLAÐI
254. tbl. 65. árg.
ÞRIÐJUDAGUR 7. NÓVEMBER 1978
Prentsmiðja Morgunblaðsins.
Róstur í íran bældar
niður af mikilli hörku
Frá óeirðunum í íran í
síðustu viku. Andstæðing-
ar keisarans hafa borið
eld að herflutningabíl á
götu í höfuðborginni
Tehran. Vegna bilana í
sæsímastreng reyndist
ókleift að fá myndir sím-
sendar til landsins í gær.
Teheran, London, Washinifton, Bonn, París, 6. nóv. — AP — Reuter
IIERSTJÓRNIN sem tók við völdum í íran í morgun gckk í dag fram
af hörku til þess að bæla niður róstur þær sem verið hafa í landinu
síðustu daga. Meðal fyrstu verka stjórnarinnar var að koma á
ritskoðun, handtaka fimm ritstjóra og kalla til fjölmennt herlið til að
dreifa mótmælaseggjum.
Til nýrra átaka kom á nokkrum
stöðum í Teheran í dag. Heyra
mátti skothvelli á nokkrum stöð-
um, en engar fréttir fara af
mannfalli. Sögðu kunnugir að
hermenn hefðu skotið upp í loftið
til að dreifa óeirðaseggjum.
Þegar Iranskeisari gerði grein
Cavling
svalt sig
íhel
DANSKI ástarsöguhöfundurinn
Ib Henrik Cavling svalt sig í hel,
að því er dönsk blöð segja, en
Cavling er nýlátinn á Ítalíu,
sextugur að aldri. Rétt fyrir
andlátið kom út sextugasta bók
hans.
Maður gekk undir manns hönd
til að fá Cavling til að neyta
matar, en síðustu tvo mánuði ævi
sinnar lét hann ekki matarbita
inn fyrir varir sínar. Vinir
Cavlings komu til Genúa frá
Danmörku til að dekstra hann en
allt kom fyrir ekki. Cavling
léttist um fimmtán kíló á mjög
skömmum tíma, og fór heiisufari
hans hrakandi dag frá degi unz
hjartað gafst upp.
Margir hafa furðað sig á því
hversu afkastamikill Cavling var,
því að hann þótti drykkfelldur.
Síðustu árin hafði hann þó farið
vægar í sakirnar en áður og fékk
sér aðeins duglega neðan í því
þegar hann hafði skilað af sér
handriti að nýrri bók. Cavling var
vellauðugur, enda voru margar
bækur hans metsölubækur. Hann
vakti athygli hvar sem hann fór
fyrir glæsibrag og óaðfinnanleg-
an klæðaburð. Hann ók í Rolls
Royce, sveiflaði í kringum sig
silfurslegnum göngustaf, og hélt
sig ríkmannlega í hvívetna og var
annálaður fyrir örlæti. Fyrsta
skáldsaga hans kom út árið 1952.
Það var „Erfinginn", og sú saga
gerðist eins og aðrar sögur
höfundar í umhverfi, þar sem
allir eru ríkir og fallegir. Þrátt
fyrir það eru vegir ástarinnar
framan af þyrnum stráðir, en að
lokum fellur allt í ljúfa löð.
fyrir þeirri ákvörðun sinni að
skipa háttsetta embættismenn í
her landsins í ráðherraembætti
sagði hann að stjórninni væri
fyrst og fremst ætlað það hiutverk
að bæla niður öldur ófriðar í
landinu og koma á friði. Keisarinn
sagði að stjórnin yrði þó aðeins við
völd til bráðabirgða.
Talið er að nýju stjórninni verði
ágengt í að bæla niður róstur, því
að ólætin í Teheran í morgun voru
fljótt bæld niður. Ætlun stjórnar-
innar er að framfylgja í einu og
öllu herlögum, sem sett voru í
landinu fyrr á árinu. Þegar í dag
mátti sjá á götum Teheran fjöl-
mennara herlið og fleiri stórar
vígvélar en verið hefur að undan-
förnu.
Bandaríkjastjórn lét í dag í ljós
ánægju með þá ákvörðun keisar-
ans að koma á herstjórn í landinu.
Hvatti stjórnin ennfremur banda-
ríska þegna í landinu til að snúa
aftur til vinnu ef óróinn í landinu
minnkaði.
Stjórnir Bretlands og Vest-
ur-Þýzkalands hvöttu hins vegar
þegna' sína í íran, um 30.000
talsins, til að halda sig innan dyra
fyrst um sinn.
Karim Sanjáby, leiðtogi stjórn-
arandstöðunnar í íran, sagði í dag
að almenn mótmæli gegn keisara-
dæminu héldu áfram svo lengi sem
keisarinn yrði við völd í landinu.
Sanjaby sagði ennfremur að keis-
arinn væri í dag einangraðri en
nokkru sinni fyrr.
Sjá „Herforingjar með völdin“
bls. 47.
* *
Kreisky verður
áfram í embætti
Vínarborg, 6. nóv. AP — Reuter
BRUNO Kreisky kanslari Aust-
urríkis ávann sér í kvöld fullt
traust flokks jafnaðarmanna í
landinu og batt enda á allar
vangaveltur um að hann segði af
sér vegna úrslitanna í þjóðarat-
kvæðinu um kjarnorkuver í Aust-
urríki um helgina.
Miðnefnd og framkvæmdastjórn
Jafnaðarmannaflokksins veitti
Kreisky „skilyrðislausan" stuðn-
ing á fundi sínum. Sagði aðstoðar-
forseti flokksins, Hertha Firnberg,
að aldrei hefði komið til þess að
Kreisky byðist til að segja af sér á
fundum flokksleiðtoga um úrslit
þjóðaratkvæðisins.
Kreisky vildi ekki segja frétta-
mönnum á fundi í morgun hvort
hann íhugaði að segja af sér
embætti vegna úrslita þjóðarat-
kvæðagreiðslunnar en hann tjáði
fréttamönnunum að úrslitin væru
Ætla að leggja
Amin að velli
áfall og vantraust á stjórnina.
Þjóðaratkvæðinu lyktaði með
naumum sigri andstæðinga kjarn-
orkuvera í Austurríki.
Fyrr í dag sagðist Kreisky einn
vera ábyrgur fyrir úrslitum þjóð-
aratkvæðisins þar sem hann hefði
fyrir tveimur vikum hótað að
segja af sér ef andstæðingar
kjarnorkuveranna færu með sigur
af hólmi í atkvæðagreiðslunni.
Firnberg sagði hins vegar í kvöld
að kanslarinn gæti ekki einn tekið
á sig ábyrgðina þar sem allar
ákvarðanir stjórnarinnar væru
háðar samþykki flokksins.
Sjá „Persónulegur ósigur"
bls. 46.
Dar Es Salaam, Nairobí,
6. nóvember. AP. Reuter.
MOIIAMED Al-Zawi, mennta- og
upplýsingaráðherra Líbýu, sem
nú reynir að miðla málum í deilu
Tanzaníu og Uganda, sagðist í
kvöld vonast til þess að brátt yrði
bundinn cndir á deiluna. Al Zawi
lét þessi orð falla þegar hann
kom til Tanzaníu í dag, en hann
hefur að undanförnu rætt við Idi
Amin Ugandaforseta í Kampala.
Al Zawi neitaði að láta nokkuð
uppi um viðræður hans og Amins,
en hann mun á morgun eiga
viðræður við Julius Nyerere
forseta Tanzaníu. Kunnugir telja
að lítils árangurs sé að vænta af
viðræðum AlZawi og Nyerere,
því Nyerere hefur lýst því yfir að
deila Uganda og Tanzaniu skuli
leidd til lykta með vopnum.
Ennfremur sagði málgagn
stjórnarinnar í Tanzaníu í dag að
það væri ásetningur Tanzaníu-
manna að leggja Amin að velli og
binda endi á veldi hans í Uganda.
Blaðið sagði að innrás Uganda-
manna og hernám þeirra í
Tanzaníu yrði að verða síðasta
„ofstopaverk" Amins.
Þúsundir Tanzaníumanna búa
'sig nú undir herþjónustu og er hér
svo til eingöngu um að ræða menn
sem lokið hafa herskyldu. Verði
Arás á
fréttastofu
Á MILLI 15—20 grímuklæddir
menn, vopnaðir bareflum,
réðust í kvöld inn í skrifstofu
vestur-þýzku fréttastofunnar
DPA í Frankfurt og kefluðu
fimm starfsmenn. Árásar-
mennirnir ætluðu að neyða
starfsfólk fréttastofnunnar til
að senda út tilkynningu í nafni
hryðjuverkamanna sem eru í
fangelsi. Skömmu eftir
áhlaupið kom lögregla á vett-
vang og handtók átta af árásar-
mönnunum, en hinir komust
undan á flótta.
deila Uganda og Tanzaníu lang-
vinn verða þeir sendir á vígvöllinn
við Kagera ána í norðvesturhéruð-
um Tanzaníu þar sem 2—3.000
hermenn Uganda hafa grafið um
sig.
. Lítið hefur borizt af fréttum af
vígvellinum, en daglega skiptast
hermenn Uganda og Tanzaníu þó á
skotum. Pólitískar heimildir í
Nairobí sögðu þó í dag að Tanzan-
íumenn væru nú að flytja tvö
herfylki á svæðið við Kagera ána
og yrðu þeir við svo búið helmingi
fleiri en innrásarmenn Uganda, á
svæðinu. Hins vegar sagði útvarp-
ið í Uganda í dag að staða
hersveita Uganda á umdéilda
svæðinu væri örugg því Uganda-
menn hefðu sprengt í loft upp einu
brúna sem var yfir hið straum-
harða fljót, Kagera.
Utvarpið í Uganda sagði enn-
fremur að Amin forseti hefði í dag
lagt til að Einingarsamtök Afríku-
ríkja (OAU) skipuðu sérstaka
nefnd til að miðla málum í deilu
Uganda og Tanzaníu.
Fjölskylda
Agapovs
frá Sovét
Stokkhólmi, 6. nóvember. AP.
HÁTTSETTUR sænskur verka-
lýðsleiðtogi sagði í dag, að
honum hefði verið tjáð í
Sovétríkjunum að fjölskylda
sovéska flóttamannsins
Valentins Agapovs sem býr í
Sviþjóð, fengi að fara frá
Sovétríkjunum í lok ársins eða
snemma á næsta ári.
Verkalýðsleiðtóginn, Stig
Malm, sagði að hann hefði átt
viðræður við Nikolai Dragunov,
forseta félags starfsmanna í
bifreiðaverksmiðjum, fyrir
skömmu í Moskvu, og þegar
gengið hefði verið hart að
Dragunov hefði hann gefið
fyrrnefndar upplýsingar. Malm
sagði að óhætt væri að treysta
upplýsingum Dragunovs, því að
hann væri fyrrverandi meðlim-
ur í miðnefnd kommúnista-
flokksins og hefði aldrei farið
að gefa slíkar upplýsingar án
heimildar stjórnvalda.