Morgunblaðið - 07.11.1978, Blaðsíða 5

Morgunblaðið - 07.11.1978, Blaðsíða 5
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 7. NÓVEMBER 1978 5 „...og eg er svo- lítið montinn... ” — segir Tómas Gíslason sem varð þriðji í heimsmeistara- keppni í Master Mind FYRIR skömmu var haldið heimsmeistaramót í Master Mind-spili á Stratford upon Avon í Englandi. íslenzkur þátttakandi, Tómas Gíslason, stóð sig afburða vel og náði þriðja sæti í keppninni. Mótið, sem er hið fyrsta sinnar tegundar, stóð í tvo daga. Þátttakendur voru ellefu frá jafnmörgum löndum. Morgunblaðið hafði samband við Tómas og spurði hann um þátttöku hans í mótinu. — Undankeppni var haldin í október hér á Hótel Loftleiðum, sagði Tómas, — en þar kepptu tuttugu manns. Mér gekk mjög vel, en þetta er fyrsta keppnin í Master Mind, sem haldin er hér heima. Bretlands- meistarakeppni hefur verið haldin nokkrum sinnum, en keppnin í Englandi er fyrsta heimsmeistarakeppnin. — Hvernig gengur Master Mind-spilið fyrir sig, Tómas? — I stuttu máli sagt er það þannig, að tveir keppendur spila hvor á móti öðrum. Annar stillir upp kúlum í fjórum litum eða færri af sex mögulegum á bak við hlíf — eða skilur eftir eyðu, eina eða fleiri. Hinn getur sér síðan til um uppstillinguna og fær stig hjá andstæðingi sínum fyrir hverja rétta lausn. — Hvernig var fyrir- komulagi keppninnar í Eng- landi háttað? — Fyrstu þrjár um- ferðirnar voru hópkeppnir. Fimm leikir voru í hverri umferð og stig gefin fyrir hverja þeirra. Því næst voru undanúrslitin, en það voru þrír leikir. Þar féllu sjö manns út. Hinir fjórir, sem þá voru eftir, urðu síðan að keppa innbyrðis til lokaúr- slita. Ég átti möguleika á öðru sætinu í lokaúrslitunum. Þá kom í ljós, að andstæðingur minn hafði gefið mér vit- laust fyrir, svo að hefja varð spilið að nýju, en þá gekk mér ekki eins vel. Én þetta var virkilega gaman og ég er svolítið montinn af því hvað mér gekk vel, sagði Tómas að lokum. Tómas náði 118 stigum í keppninni og lenti í þriðja sæti. Fékk hann gullstyttu og 100 sterlingspund í verð- laun. í fyrsta sæti varð Bretinn John Serjeant, sem er 16 ára gamall, með 154 stig. Fékk hann gullstyttu og 300 sterlingspund. í öðru sæti varð stúlka frá Kanada, Cindy Forth, 18 ára gömul með 123 stig. Hlaut hún í verðlaun gullstyttu og 150 sterlingspund. Næst á eftir Tómasi komu keppendur frá Nýja-Sjálandi Ítalíu, Póllandi, Noregi og Ástralíu. RAMMISLAGUR eftir Einar Pálsson kemur út í desember. Rammislagur er mesta rit Einars til þessa, um 500 bls. aö stærö meö 43 skýringamyndum í vönduöu bandi. í bókinni er glímt viö sumar torræðustu gátur forníslenzkrar menningar. Er þar rakinn uppruni helztu goösagna Eddu, fornaldarsagna og þjóösagna. Skýrö eru tengsl tölvísi fornmanna og frjósemisdýrkunar. Sýnt er fram á hvernig allegóría Njálu var saman sett. Skýrö eru helztu miöaldafræöi um Höfuöskepnur og heimsmynd og hliöstæöur í íslenzkum ritum skilgreindar. Grundvöllur goöaveldisins er rannsakaöur og mörkun Alþingis sýnd. Þá er sagt frá helztu tónsláttum og fornum dönsum. Niöurstaöa ritsins er sú aö bein samsvörun sé milli allra meginþátta forníslenzkrar menningar og hugmyndafræði fornra samfélaga Miöjaröarhafsbotna. Áskrifendur aö ritsafninu Rætur íslenzkrar menningar eru beönir aö hafa samband viö skrifstofu Mímis í síma 10004 (kl. 2—6 e.h.) næstu daga. Mímir, Brautarholt 4, Reykjavík. VESTUR-ÞYSKU LITSJÓNVARPSTÆKIN Komið og skoðið ITT Schaub-Lorens litsjónvarpstcekin hjá Gelli, Brceðraborgarstíg 1. ITT litsjónvarpstcekin sýna raunverulega liti, hafa fallegt útlit og eru vestur-þýsk tcekniframleiðsla sem vert er að veita athygli. Forsenda góðrar þjónustu er tceknikunnátta sem tceknimenn okkar scekja beint til framleiðanda. Vestur-þýsku ITT litsjónvarpstcekin eru vönduð og vegleg eign. Þau eru gerð til að endast lengur Veljið varanlegt. Brceðraborgarstíg 1 Sími 20080 (Gengið inn frá Vesturgötu)

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.