Morgunblaðið - 07.11.1978, Side 11
MORGUNBLAÐIÐ. ÞRIÐJUDAGUR 7. NÓVEMBER 1978
11
staðinn ásamt lögmanni sínum.
Hins vegar hafði forstjóri Hjelle-
gjerde þá hringt og tilkynnt að
hann myndi ekki koma á þann
fund sem hann hafði sjálfur óskað
eftir þar sem Sigmundur Kristj-
ánsson hefði ekki tíma til þess að
koma þangað og hann kvaðst ekki
vilja mæta einn á fundinn.
Um ástæður þessara deilna
sagði Emil:
„Trésmiðjan Meiður (TM
húsgögn) er einn af fáum íslenzk-
um húsgagnaframleiðendum sem
reynt hafa að halda uppi hús-
gagnagerð hér á landi síðustu árin.
Fyrirtækið er í dag það eina á
íslandi sem framleiðir húsgögn til
heimila í einhverju úrvali. Flest
þau fyrirtæki sem fengist hafa við
slíkt eru annaðhvort búin að
leggja niður starfsemi sína eða
hafa snúið sér að innflutningi og
sölu húsgagna. Þeim sem stunda
innflutning og sölu erlendra hús-
gagna er það að sjálfsögðu áhuga-
mál að innlend framleiðsla á þessu
sviði hverfi algjörlega sem allra
fyrst.
Ég vil taka það fram að þessar
deilur sem Hjellegjerde stol-
fabrikk á í við mitt fyrirtæki eru
algjörlega ólíkar þeim kynnum
sem ég hef haft af norskum
húsgagnaframleiðendum. Þvert á
móti hef ég haft mjög ánægjuleg
og gagnleg viðskipti við nokkra
þeirra og í sumum tilfellum mætt
alveg sérstakri vinsemd og ekki
síður hjá þeim sem eru í hliðstæðri
framleiðslu og Trésmiðjan
Meiður,“ sagði Emil að lokum.
„Ég tel að um 80% inn-
lendrar húsgagnafram-
leiðslu séu eftirlíkingar”
— segir Sigmundur Kristjánsson umboðsmaður Hjellegjerde stolfabrikk
SIGMUNDUR Kristjánsson um-
boðsmaður Hjellegjerde á íslandi
gætir og hagsmuna verk-
smiðjunnar í deilumáli því sem
risið er upp á milli hennar og
trésmiðjunnar Meiðs í Reykjavík.
Sigmundur tjáði Mbl. að þann
20. desember hefði verið skrifað
undir samning þar sem Meiður
lofaði að hætta framleiðslu og sölu
stóla sem voru eftirlíkingar þeirra
sem Hjellegjerde framleiðir.
Sigmundur sagði að þrátt fyrir
loforð þetta hefði Meiður haldið
áfram framleiðslu og sölu þessara
stóla. Þá krafðist Hjellegjerde
þess að lögbann yrði sett á og var
það gert í maí. Sigmundur sagði að
þá hefði Meiður breytt stólunum
örlítið.
Sigmundur Kristjánsson.
„Við kröfðumst þess þá að nýju
að lögbann yrði sett á framleiðslu
og sölu þessara nýju stóla og voru
matsmenn til kvaddir. Þeir skiluðu
það ófullkomnum úrskurði að við
báðum um yfirmat og þar standa
málin núna,“ sagði Sigmundur.
Sigmundur tjáði okkur einnig að
fyrir nokkru hefði forstjóri Hjelle-
gjerde, Johann Hjellegjerde, verið
staddur hér á landi og þá hefði
verið búið að boða forstjóra Meiðs
ásamt lögmanni hans á fund
lögfræðings Hjellegjerde.
Lögmaður Meiðs boðaði hins vegar
forföll og bað um annan fundar-
tíma sem Sigmundur og Johann
gátu ekki gengið að vegna brott-
farar Johanns af landinu.
„Þegar Meiður hafði framleitt
eftirlíkingarnar í 3 mánuði óskuðu
þeir eftir samningum við Hjelle-
gjerde en við sáum okkur ekki
unnt að ganga að þeim fyrr en
framleiðsluskýrslur hefðu verið
lagðar fram.
Ég vil að lokum taka það fram
að ég á mjög góð samskipti við
marga íslenzka húsgagnafram-
leiðendur og ef menn óska þess að
fyrra bragði er ég fús til að ganga
til samninga. Ég tel að um 80% af
allri innlendri húsgagnafram-
leiðslu séu eftirlíkingar erlendra
húsgagna og sumar tegundir eru
unnar í samvinnu við erlendu
framleiðendurna," sagði Sig-
mundur.
skyldi Karpov leika hvítu
mönnunum.
Lúalegar aðgerðir og
svindl Sovétmanna
En nú ákvað sovéska sveitin
að reyna að knýja fram sigur í
einvíginu með svindli og aðferð-
um af lúalegustu og andstyggi-
legustu gerð, að því er ég fæ bezt
séð. Sovétmenn mótmæltu til-
vist Ananda Marga mannanna,
sem þeir nefndu alltaf hryðju-
verkamenn, í búðum Korchnois,
skömmu áður en mikilvæg skák
skyldi tefld. Þessir tvímenning-
ar, sem veitt höfðu Korchnoi þá
miklu sálrænu aðstoð sem raun
ber vitni um, höfðu um vorið
verið látnir lausir gegn
tryggingu eftir að hljóta langa
fangelsisdóma fyrir morð. Þetta
var í undirrétti og biðu þeir
rannsókn sinna mála og nýrra
réttarhalda, Það að þeir voru
látnir lausir gegn tryggingu
ætti að vera þeim málsbót og
benda til sakleysis. Alla vega er
það ekkert annað en rag-
mennska af hálfu Sovétmanna
að krefjast þess að þeim yrði
vísað á brott frá Baguio.
Og dómnefnd einvígisins
ákvað að þeir skyldu á brott frá
borginni. Og þó að aðstoðar-
menn Korchnois gerðu allt sem í
þeirra valdi stóð til að dylja
málið áskorandanum, þá var
ekki hægt að koma í veg fyrir
það að hann gerði sér grein fyrir
gangi mála.
Korchnoi er
enn stórmenni
Þar af leiðandi var hann
óstyrkur við taflborðið og tafl-
mennskan einkenndist af fáti.
Karpov færði sér þetta í nyt og
lék hentuglega. Vann hann
skákina og þar með einvígið, og
við svo búið er ég ekki í
nokkrum vafa um að það var
betri skákmaðurin« sem varð að
lúta í lægra haldi í einvíginu.
Ef litið er á taflmennsku
keppendanna þá kemur eftir-
farandi í ljós: Karpov náði að
sýna mikla hæfileika í tveimur
skákum, áttundu skákinni og 32.
skákinni, þ.e. síðustu skák
einvígisins. Hann lék einnig
mjög góðan varnarleik og
nokkrum sinnum komst hann
ágætlega frá sjaldgæfum
byrjunarafbrigðum. Korchnoi
náði oft mjög skemmtilegum og
frábærum endatöflum og lék þá
heimsmeistarann sundur og
saman. En hann gerði einnig
fleiri skyssur og afleiki en ég hef
orðið áður var við í einvígi um
heimsmeistaratitilinn í skák. Ég
vona að eftir að titill Karpovs
verður endanlega í höfn nái han
á ný að sýna sínar beztu hliðar
og sitt fyrra form. Og enn-
fremur vona ég að Korchnoi láti
tapið ekki hafa of mikil áhrif á
sig og haldi áfram. Það er mitt
álit að Viktor Korchnoi sé enn
stórmenni í skákheiminum og
hann á að líkindum eftir að ná á
toppinn á ný.
Það er
staðreynd
aö meö hagstæöum innkaupasamningum hefur okkur tekist aö bjóöa
hin vönduöu ITT litsjónvarpstæki á ótrúlega lágu verði.
Auk þess veitum viö yður hagstæöa greiösluskilmála meö allt ofaní
180.000 kr. útborgun eöa ríflegan staögreiösluafslátt en meö honum er
verö á 20 tommu tæki
aðeins kr. 450.000 Þús. með fjarstýringu.
Viö fullyrðum að betri kaup mun erfitt aö finna.
___myndiójarL_
ESÁSTÞÓRf
Suðurlandsbraut 20 Sími 82733 — 82726
Hafnarstræti 17 Sími 22580
ITT
Gæói, Þjónusta