Morgunblaðið - 07.11.1978, Blaðsíða 18

Morgunblaðið - 07.11.1978, Blaðsíða 18
18 MORGUNBLAÐIÐ; ÞRIÐJUDAGUR 7. NÓVEMBER 1978 Olympíuskákmótið Korchnoi kœrir Karpov og FIDE Oiten. Sviss. 4. nóv; — AP SVISSNESKA skáksambandið tilkynnti í datf að löfffræðinKar Viktors Korchnoi hcfðu sent dómstól í Amsterdam kæru, þess efnis að heimsmeistarinn í skák Anatoly Karpov og Alþjóðaskák- samhandið, sem hefur höfuð- stöðvar í Amsterdam. hefðu brotið reglur varðandi heims- meistaraeinvígið á Filipseyjum. í kærunni eru gerðar þær kröfur að 32. ok síðasta skák einvigisins verði felld úr (fildi og að einvíg- inu vcrði haldið áfram, þannig að áskorandinn ok heimsmeistarinn séu jafnir að vinningum eins og var fyrir 32. skákina. Svissneska skáksambandið mun halda uppi sömu kröfum á Fide-þinginu í Buenos Aires. I ákaerunni er sagt, að sovézka skáknefndin á Filippseyjum hafi brotið samning með því að stilla sálfræðingnum Vladimir Zoukhar Sigur hjá báðum sveitum Buenos Aires, 6. nóvember. I níundu umferð sem tefld var á laugardaginn tefldi íslenzka karlasveitin við Kólumbíu og lauk viðureigninni með jafntefli 2:2. Konurnar tefldu við Nýja-Sjáland og unnu 2'k\ 'k. Eftir níu umferðir hafa Islendingar 21 vinning og eru í 11.—16. sæti og kvennasveitin er í 2.-6. sæti í D-riðlinum með 3'/2 vinning. Á fyrsta borði tapaði Guðmund- ur Sigurjónsson fyrir Gutierrez, Helgi Ólafsson vann Roderiques, Jón L. Árnason og Zapata gerðu jafntefli og Ingvar og Agudelo sömuleiðis. Guðlaug Þorsteins- dóttir og Svana Samúelsdóttir unnu sínar skákir og Ólöf Þráins- dóttir gerði jafntefli. I áttundu umferðinni vann íslenzka karlasveitin þá frönsku 2'á:1 'k, en kvennasveitin tapaði fyrir Wales 1:2. Hér fer á eftir skák Jóns L. Árnasonar við Sellos, en þeir tefldu á þriðja borði í viðureign íslendinga og Frakka. Hvítt: Jón L. Árnason. Svart: Sellos Sikileyjarvörn 1. e4 - c5, 2. Rf3 - e6, 3. d4 - cxd4. 4. Rxd4 — Rc6, 5. Rc3 — Dc7, 6. Be2 - a6, 7. (H) - Rf6, 8. Khl - Be7, 9. Be3 - (H), 10. f4 - d6. 11. Del - Bd7, 12. Dg3 - Rxd4, 13. Bxd4 — Bc6, 14. Ilael - b5. 15. a3 - Db7, 16. Bd3 - Had8. 17. Dh3 - Rd7, 18. e5 - g6, 19. exd6 — Bxd6, 20. He3 — e5, 21. fxe5 — Bc5, 22. Bxc5 — Rxc5, 23. b4 - Rxd3, 24. cxd3 - IIfe8. 25. Hfel - He6, 26. Re2 - IIe7, 27. Rf4 - Hd4, 28. Dg3 - Dc8, 29. Dg5 - Db7. 30. Hg3 - Hxf l. 31. DxM - I)d7, 32. h4 - h5. 33. IIle3 - Kh7. 34. Hg5 - Bd5. 35. e6 - Bxe6, 36. De4 - Kg8. 37. dl - Kf8, 38. Dc5 - Hc8, 39. d5 — gefið. ht. Zanlungo kominn Buenos Aires, 5. nóv. Reuter. RODOLFO Zanlungo formaður framkvæmdanefndar Olympíu- skákmótsins í Buenos Aires, sem rænt var fyrir skákmótið, slapp frá ræningjunum og er nú kominn heim heill á húfi. Ræningjar Zanlungos voru stöðugt með hann á ferðinni til að forðast lögregluna og tókst honum að komast út úr bílnum á laugardag og stinga ræningjana af. Zanlungo höfðu borizt hótanir þess efnis að ef ekki yrði hætt við Olympíuskákmótið, þá mætti hann búast við hinu versta. í fremstu sætaröð, en eftir að Korchnoi hafði ítrekað mótmælt veru hans þar fyrr í einvíginu hafði náðst samkomulag um að hann sæti aftast í salnum hjá hinum Sovétmönnunum. Það var eftir aö Zoukhar hvarf úr fremstu röðinni að Korchnoi tókst að snúa stöðunni úr 2:4 í 5:5. Fulltrúar FIDE í Baguio City eru ásakaðir fyrir að hafa ekki komið í veg fyrir að sálfræðingurinn settist í fremstu röð, þegar 32. skákin var tefld. Talsmaður svissneska skáksam- bandsins sagði að búizt væri við því að lögfræðingar Karpovs eða sovézka skáksambandið brygðust fljótt við þessari ákæru. V-Þjóðverjar unnu Rússa í ÁTTUNDU umferð unnu Sovét- menn Bandarikjamenn 3il, Ung- vcrjar unnu Englendinga 3il, Kúha og Danmörk skildu jöfn 2i2, Júgóslavar unnu Pólverja 2,5il,5, Vestur-Þjóðverjar unnu Argentínu 3il, úrslit íengust ekki í viðureign Rúmena og Búlgara. þar sem ein skákin fór aftur í bið, en vinningar að öðru leyti stóðu l,5il,5. í níundu umferðinni vakti sigur V.-Þjóðverja yfir Sovétmönnum mesta athygli, en þeir unnu 2,5:1,5, Bandaríkjamenn unnu Dani 3:1, Englendingar unnu Kanadamenn 3:1, Kúba vann Júgóslavíu 2,5:1,5 og Ungverjar unnu Búlgara 2,5:1,5. Eftir níu umferðir voru Sovét- menn í fyrsta sæti með 24 vinninga, V-Þjóðverjar höfðu 23 'k vinning, Ungverjar 23, Banda- ríkjamenn 22!á, Kúbumenn 22 og Englendingar 21 'k. Spassky: Einsogsmá- seiði á milli tœggjahuala Buenos Aires, 6. nóv. Frá Höffna Torfasyni fréttaritara Mbl. „NÚ þegar bæði Karpov og Korchnoi eru komnir hingað beinist sviðsljósið að þeim og ég verð bara eins og smáseiði á milli tveggja hvala,“ sagði Boris Spassky í samtali við Mbl. er hann skýrði frá því að hann væri hættur við að leggja erindi sitt fyrir Fide-þingið. Spassky hafði óskað eftir því að fá að taka til máls á þinginu og þá sérstaklega reynslu sína í einvígi hans og Korchnois í Belgrad, sem Spassky telur að sýni glöggt nauðsyn þess að settar verði nýjar og gleggeri reglur um einvígishald og rétt og framkomu keppenda. Spassky sagðist ætla að skrifa bók um einvígið í Belgrad og gera þannig grein fyrir skoðunum sínum og sagði að væntanlega myndi bókin koma út næsta vor. Karpov mœtir í Argentínu Buenos Aires, 5. nóvember. AP. Anatoly Karpov, heimsmeistari í skák, kom hingað í dag til að sitja Fide-þingið. Með Karpov kom forseti sovézka skáksam- bandsins, Vitaly Sebastianov. Heimsmeistarinn mun ekki tefla í sovézku skáksveitinni á Olympíuskákmótinu, en áskorandi hans, Viktor Korchnoi, teflir nú á fyrsta borði svissnesku sveitar- innar. _ r Bandalag ísl. listamanna styður aðgerðir FIM: Allsherjar listbann allra aðildarfélaga? Morgunblaðinu hefur borizt eftirfarandi tilkynning frá Bandalagi íslenzkra listamannai „Á sameiginlegum fundi stjórn- ar Bandalags íslenzkra Íista- manna og formanna aðildarfélag- anna 4. nóvembcr var eftirfar- andi ályktun samþykkt einróma. Bandalag íslenzkra listamanna harmar, að í annað sinn á skömmum tíma skuli rísa ágrein- ingur um stjórnskipan myndlist- arhúss Reykvíkinga að Kjarvals- stöðum. Það er skoðun Bandalagsins, að ekkf sé unnt að reka menningar- stofnun á við Kjarvalsstaði svo vel sé án virkrar og ábyrgrar stjórn- arþátttöku listamanna. Þessi sjón- armið voru viðurkennd í samningi um Kjarvalsstaði, sem ráðamenn Reykjavíkurborgar gerðu við sam- tök listamanna í desember 1975, en þar var kveðið á um, að listráð, skipað 3 pólitískum fulltrúum og 4 fulltrúum listamanna, skyldi fara með þau mál, er snertu listræna starfsemi hússins. Meirihluti nú- verandi hússtjórnar Kjarvalsstaða hefur hins vegar gert það að tillögu sinni, að stjórnunaraðild listamanna skuli framvegis ein- skorða við málfrelsi og tillögurétt tveggja fulltrúa á stjórnarfundum, og rökstyðja tillöguna með því, að myndlistarmönnum hafi verið greidd út hlutdeild þeirra í bygg- ingu Kjarvalsstaða. Þessum rök- stuðningi mótmælir Bandalagið eindregið og bendir í því sambandi á, að gerólík lögmál hljóta að gilda um stjórnun menningarmála ann- ars vegar og hlutafé og eignarétt hins vegar. Það skal tekið fram, að verði tillaga meirihluta hússtjórn- ar Kjarvalsstaða samþykkt í borgarstjórn, verður enginn lista- maður í samtökum listamanna tilnefndur til ‘ ráðuneytis hús- stjórnarinni. Að gefnu tilefni vill Bandalagið þakka þeim ráðamönnum Reykja- víkurborgar, sem stuðluðu að lausn deilumála í desember 1975, svo og þeim, sem hafa lýst sig fúsa til þess sama nú. Bandalagið skorar á þessa sömu aðila að beita sér fyrir því, að samningar náist sem fyrst við samtök listamanna um stjórn Kjarvalsstaða. Bandalag íslenzkra listamanna lýsir yfir eindregnum stuðningi við aðgerðir F.I.M. og mun beita sér fyrir allsherjar listbanni allra aðildarfélaga sinna á Kjarvals- staði, ef samkomulag næst ekki innan skamms tíma.“ Þeir ílugu vélinni í fyrstu fcrðinni til Baltimorei Frá ha“grii Magnús Guðmundsson flugstjóri. Ásgeir Péturs- son yfirflugstjóri. Ólafur Agnar Jónasson flugvélstjóri og Magnús Friðriksson aðstoðarflugmaður. Yfirmenn flugvallarins bjóða forráðamenn Flugleiða og aðra gesti velkomna. en myndin er tekin við afgreiðslu Flugleiða í flugstöðvarbyggingunni. Bindum vonir við Baltimore-flugið” FLUGLEIÐIIl fóru sína fyrstu ferð til Baltimore sl. föstudag ug verður flogið þangað vikulega fyrst um sinn, til Baltimore á föstudögum. og þadan á laugar- dagskvöldi. Flugleiðir eru fyrsta Evrópuflugfélagið sem flýgur á þessari leið, en lent er á Balti- morc-Washington International flugvellinum og sögðu forráða- menn Flugleiða sem Mbl. ræddi við að þarna væri vaxandi mark- aður scm hægt yrði að binda vonir við, þótt hægt væri farið af stað í fyrstunni. Við komuna til Baltimore tóku yfirmenn flugvallarins og flug- mála í Marylandfylki á móti vélinni og afhentu flugstjóranum Ásgeiri Péturssyni yfirflugstjóra Loftleiða blómvönd og buðu vel- komna yfirmenn Flugleiða og aðra gesti. Miklar framkvæmdir standa nú yfir og eru ráðgerðar til að stækka flugvöllinn og búa hann undir að taka á móti aukinni umferð og kváðu yfirmenn flug- vallarins mikið hafa verið unnið að því að auka umferðina. í ferðinni frá Baltimore að kvöldi laugardags var þota Flug- leiða þéttskipuð og voru flestir á leiðinni til Luxemborgar, en fréttamenn og aðrir boðsgestir félagsins fóru frá bórði í Keflavík. Páll Sigurðsson dósent varði á laugardag doktorsritgerð sína — Þróun og þýðing eiðs og heitbindinga í réttarfari, við lagadeild Háskóla íslands. Andmælendur voru Sigurður Líndal, prófessor og Þór Vilhjálmsson hæstaréttardómari en Gunnar Schram, forseti lagadeildar stýrði athöfninni. Myndin er tekin er dr. Páll flutti vörn sína.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.