Morgunblaðið - 07.11.1978, Qupperneq 42
22
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 7. NÓVEMBER 1978
I
I
I
!
!
Tap og sigur hjá
Tindastóli í 1. deild
Grindavík — Tindastóll
92-82 (51-35)
Á sunnudag léku í Iþróttahúsi
Njarðvíkur lið Grindvíkinga og lið
Tindastóls frá Sauðárkróki. Var
leikur þessi mjög skemmtilegur á
að horfa. Fyrri hálfleikur var jafn
til að byrja með en í lok hálfleiks-
ins misstu Tindastólsmenn nokkuð
einbeittnina og Grindvíkingar
náðu góðu forskoti og var staðan í
hálfleik 51—35 Grindvíkingum í
vil.
í seinni hálfleik náðu Tinda-
stólsmenn að minnka muninn, en
það nægði þeim samt ekki til
sigurs.
Besti maður Grindvíkinga var
Bandaríkjamaðurinn Mark
Holmes sem skoraði mikið, en lék
samt ekki allan leikinn þar eð
hann fékk 5 villur í seinni
hálfleiknum og þar af tvö tækni-
víti fyrir munnsöfnuðinn. Hjá
Tindastóli var Kári Marísson
bestur og er norðanmönnum mikill
fengur að þessum ágæta körfu-
knattleiksmanni.
Keflavík — Tindastóll
51-66 (26—29)
Keflvíkingar fengu Tindastóls-
menn í heimsókn á laugardaginn.
Tindastóll náði forystunni strax í
upphafi, drifinn áfram af góðum
leik Kára Maríssonar. Keflvíking-
ar gáfust þó ekki upp og náðu að
minnka muninn niður í þrjú stig
fyrir leikhlé.
í upphafi síðari hálfleiks kom
góður kafli hjá Tindastóli og þeir
gerðu þá í rauninni út um leikinn
og sigruðu örugglega með 15 stiga
mun, 66:51.
Kári Marísson er aðalmaðurinn
í liði Tindastóls eins og vænta má
og var það fyrst og fremst
stórleikur hans sem sigraði í
þessum leik. Þá átti Sigurjón
Magnússon ágætan leik og skoraði
12 stig, en Kári var langstigahæst-
ur með 28 stig.
Keflvíkingar náðu sér aldrei
fyllilega á strik í þessum leik og
því fór sem fór. Þeir eiga þó
efnilegu liði á að skipa og geta
vafalaust náð langt í framtíðinni.
Björn V. Skúlason var stigahæstur
Keflvíkinga með 19 stig, Einar
Steinsson skoraði 12 stig og Ágúst
Líndal 10.
Kristján Agústsson skorar gegn KR.
Ljósm. Gísli Gíslason.
Valssigur i hörku-
leik gegn KR-ingum
• Ilreinn Ilalldórsson færist upp um eitt sæti í kúiuvarpskeppninni á
Evrópumeistaramótinu. og varð því sjöundi.
Hreinn upp um
eitt sæti á
Silfurhafinn dæmdur úr leik
MJÖG hefur verið til umræöu að
undanförnu hjá hinum ýmsu
alpjóðasamböndum I ípróttum
hversu mikið parf að herða eftirlit
með notkun örvandi lyfja meðal
ípróttamanna.
Nú hafa nokkrir íþróttamenn veriö
dæmdir frá keppni og sviptir
verðlaunum sínum á Evrópu-
meistaramótinu í frjalsum íþróttum
sem fram fór í Prag í september.
Þetta varó til þess aö Hreinn
Halidórsson færöist upp í sjöunda
sæti í kúluvarpinu, því að Sovét-
maöurinn Mironov Yevgeni, sem
hlaut silfurverölaunin, hefur verið
sviptur þeim því að í Ijós hefur komiö
aö hann hafði neytt anabolic
steroids hormónalyfja. Mironov
varpaöi kúlunni 20.87 metra á EM en
sá árangur hans hefur verió þurkaöur
út. Landi hans Baryshnikov hlýtur því
silfurverölaunin og heimsmethafinn í
kringlukasti, Wolfgang Schmidt frá
Austur-Þýskalandi, fær bronsið.
Finninn Stahlberg verður fjóröi,
Jaros, Sovétríkjunum, fimmti, Vik,
Tékkóslóvakíu, sjötti og Hreinn
sjöundi.
Það var forseti Evrópusam-
bandsins, Arthur Could, sem skýröi
frá þessu á fundi sambandsins í
Grikklandi um helgina.
Þrír aörir keppendur frá Sovét-
ríkjunum og einn frá Búlgaríu voru
dæmdir úr leik vegna lyfjanotkunar.
Meóal þelrra sem dæmdir voru úr
leik var sigurvegarinn í fimmtarþraut
kvenna, Nedezhda Tkachenko. Þaö
verður ungverska stúlkan Margit
Papp sem hlýtur gullverðlaunin.
VALSMENN eru nú komn-
ir á góðan skrið í úrvals-
deildinni í körfuknattleik,
en á sunnudag sigruðu þeir
KR með 86 stigum gegn 81.
Ilafa Valsmenn nú sigrað í
3 siðustu leikjum liðanna,
en síðast liðið ár hefur
engu li'ði tekist slíkt gegn
KR. Valsmenn tryggðu
þarna stöðu sína verulega
og settu mikla spennu í
mótið, en nú hafa öll lið
deildarinnar tapað leik.
Valsmenn sýndu það strax í
upphafi leiksins að þeir ætluðu að.
halda áfram á sömu braut og um
síðustu helgi er liðið sigraði
Njarðvíkinga. Þeir tóku þegar
forystuna gegn seinum KR-ingum
og var staðan 11—4 eftir 6
mínútna leik. Mikil harka var í
varnarleik beggja liða til að byrja
með og leyfðu dómarar leiksins,
þeir Hörður Túliníus og Sigurður
Valur Halldórsson, e.t.v. fullmikla
hörku. Þegar líða tók á hálfleikinn
virtust KR-ingar aðeins hressast
og minnkuðu það forskot sem
Valsmenn höfðu. Var staðan síðan
41—38 í hálfleik Valsmönnum í
vil.
I upphafi seinni hálfleiks kom
síðan ungur og efnilegur leikmað-
ur, Garðar Jóhannsson, KR-ingum
yfir, 42—41. Vakti nokkra athygli
að þessi leikmaður skyldi ekki
hafa verið notaður fyrr, en al-
menna ubdrun vakti það er
pilturinn var tekinn útaf skömmu
síðar og kom ekki meira við sögu.
En áfram hélt leikurinn og var
barist hart á báða bóga. Skiptust
liðin á um að hafa forystuna. En
um miðjan hálfleikinn náðu Vals-
menn góðum spretti og komust 6
stig yfir. Var það m.a. fyrir
stórkostlegan leik Þóris Magnús-
sonar, sem skoraði mikið með
sínum frægu langskotum. Þegar
um 3 mínútur voru til leiksloka
var staðan 83—73 fyrir Val, en þá
tóku KR-ingar kipp og minnkuðu
muninn í 5 stig, áður en flautað
var til leiksloka, en þá var staðan
86-81 Val í vil.
Valsmenn eru nú allir að hress-
Óbreytt staða
EKKERT lát er á sigurgöngu
Kaiserslautern, liöið lagöi nú aö
velli Frankfurt, eitt af Þeim
félögum sem hvaö haröast hefur
sótt aö Þeim aö undanförnu.
Hamburger skaust í annað sætiö
með stórsigri gegn Dortmund.
Fjögur lið koma Þar næst, Bay-
ern, Schalke, Fankfurt og Stutt-
gart. Köln er enn í fallbaráttu,
hefur aðeins hlotið einu stigi
meira en Þriðja neösta liöið, sem
er Duisburg.
Borchers náöi forystunni fyrir
Frankfurt eftir aöeins 15 mínútur,
en Meier og Toppmúller innsigluóu
sigur heimaliósins. Öll mörkin voru
skoruð í fyrri hálfleik,
Kevin Keegan skoraöi fyrsta
mark sitt á haustinu í stórsigri
Hamburger gegn Dortmund. Þaö
var fjórða mark liósins, en Bertl,
Hrubesch, Reiman og Wehmaier
sáu um hin mörkín.
Eggert, Eggling og Bast (víti)
skoruöu mörk Bochum í stórsigri
gegn Brunswick. 24.000 heima-
menn glöddust yfir árangrinum.
Botnliöin Darmstadt og Biele-
feldt skildu jöfn, bæði lið skoruóu
eínu sinni. Graul skoraöi fyrir
gestina, en Eigl jafnaöi.
Lutkeböhmert og Fischer skor-
uöu mörk Schalke gegn Núrnberg
og hvorki fleiri né færri en 59.000
manns sáu viðureign Kölnar og
Bayern sem lauk meö því aö hvort
lið skoraöi eitt mark. Nafnarnir
Dieter hjá Köln og Gerd hjá Bayern
skoruðu. Eftirnafnið? Auövitaö
Múller.
25.000 manns sáu Stuttgart ná
aöeins jafntefli á heimavelli gegn
Werder Bremen, sem skriöiö hefur
hægt og bítandi upp töfluna aö
undanförnu. Dressel náði forystu
fyrir gestina, en Lotz tókst aö
jafna.
Fortuna vann öruggan sigur
gegn síðari hálfleiks mörkum
Bommer Zimmerman (víti) og
Allofs og Eric Beer skoraði sigur-
mark Herthu gegn Mönchenglad-
bach á 81. mínútu lelksins.
Staöan í Búndeslígunni er nú
þessi: Fc Kaiscrslautern 7 5 0 26,12 19
Hamburg SV 7 2 3 6,10 16
Bayern MUnchen 6 3 3 26,14 15
FC Sc-halkc 04 5 5 2 21,14 15
VFB StuttRart 6 3 3 21.16 15
Kintracht Frankfurt 7 1 4 21,17 15
VFL Bochum 4 5 3 19,16 13
Eintracht Brunswick 5 3 4 18,21 13
Fortuna DUsseldorf 4 4 4 23,20 12
Borussia Dortmund 4 3 5 18.26 11
Borussia Mönchen- Cladhach 3 4 5 16,15 10
Hertha Berlin 3 4 5 18,19 10
FC Koln 2 6 4 12,15 10
Werder Bremen 3 4 5 17,22 10
Arminia Bielefeld 3 4 5 13,19 10
Msv Duisburg 3 3 6 18,29 9
FC NiirnberR 3 1 8 12,26 7
Darmstadt 98 1 4 7 17,30 6
ast eftir slæman kafla í byrjun
mótsins. Munar þá og miklu að
Þórir Magnússon hefur aldrei á
sínum ferli verið betri. Bæði
skorar hann mikið og aðstoðar
félaga sína bæði í vörn og sókn.
Var Þórir potturinn og pannan í
þessum sigri Valsmanna. Var oft
ótrúlegt að sjá hvernig hann
skoraði úr undarlegustu færum.
Þá var Tim Dwyer mjög góður í
þessum leik og hirti aragrúa
frákasta bæði í vörn og sókn. Ekki
má gleymast að minnast á
Kristján Ágústsson, sem að vanda
var drjúgur bæði í vörn og sókn.
Valsmenn hafa nú komið sér upp
úr þeim öldudal, sem þeir voru í
áður og með þeim leik, sem þeir
hafa sýnt síðustu tvær helgar,
verður fátt til að stöðva þá.
KR-ingar settu í upphafi leiks-
ins traust sitt á „gömlu mennina"
þá Kolbein Pálsson, Einar Bolla-
son og Kristinn Stefánsson. Það
bar þó ekki árangur þar sem
Valsmenn voru oft skrefinu á
undan þeim og kostaði það nokkr-
ar ódýrar körfur en dýrmætar.
Bestu menn KR voru þeir Hudson
og Jón Sigurðsson, en einnig var
Gunnar Jóakimsson frískur auk
Birgis Guðbjörnssonar.. KR-ingar
hafa oft sýnt betri leik en þennan
og þetta tap hleypir spennu í
mótið.
Stigin fyrir Val: Þórir Magnús-
son 32 stig, Tim Dwyer 18,
Kristján Ágústsson 16, Ríkharður
Hrafnkelsspn 11, Lárus Hólm 4,
Torfi Magnússon 3 og Hafsteinn
Hafsteinsson 2 stig.
Stigin fyrir KR: John Hudson
30, Jón Sigurðsson 15, Einar
Bollason 10 stig, Gunnar Jóakims-
son 9, Árni Guðmundsson, Birgir
Guðbjörnsson og Garðar Jóhans-
son 4 stig hver, Kristinn Stefáns-
son 3 stig og Kolbeinn Pálsson 2
stig.
Dómarar voru þeir Hörður
Túliníus og Sigurður Valur Hall-
dórsson og voru þeir mistœkir án
þess þó að annað liðið hagnaðist á
dómum þeirra.
gÍK
Kðriuknatlielkur