Morgunblaðið - 07.11.1978, Page 43
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 7. NÓVEMBER 1978
23
TnntapfrfáÞórsurum
ÞÓR írá Akureyri tapaði
sínum fjórða leik í úrvals-
deildinni suður í Njarðvík-
um á sunnudag. Er nú
heldur farið að syrta í
álinn fyrir þeim norðan-
mönnum, en þess ber þó að
geta, að af fjórum leikjum
sínum. hafa þeir aðeins
leikið einn á heimavelli.
Leiknum á sunnudag lykÞ
aði með 9 stiga sigri
Njarðvíkinga 108—99, en í
hálfleik var staðan 50 — 41
þeim í hag.
Strax í upphafi fyrri hálfleiks
náöu Njarðvíkingar nokkuð afger-
andi forskoti og var engu líkara,
en þeir ætluðu að kafsigla heldur
slaka Þórsara. En forvsta þeirra
varð þó aldrei meiri en 10—15 stig,
en staðan í hálfleik var, eins og
áður segir, 50—41 Njarðvíkingum í
vil. En skjótt skipast veður í lofti.
Að liðnum 5 mínútum í síðari
hálfleik hafði Þórsurum tekist að
jafna leikinn og raunar náðu þeir
eins stigs forystu, 58—59. En þá
vöknuðu Njarðvíkingar líka til
lífsins og d.vggilega studdir af
fjölmörgum áhorfendum náðu þeir
öllum tökum á leiknum og gefa
lokatölur hans raunar ekki rétta
mynd af yfirburðum þeirra, en
honum lauk, sem fyrr segir, með
sigri Njarðvíkinga, 108—99.
Njarðvíkurliðið er létt leikandi
og skemmtilegt lið og raunar
engin furða, að leikir þeirra skuli
vera svo vel sóttir, sem raun ber
vitni. Mikil breidd er í liði þeirra
og virðist nánast einu gilda hvaða
fimm ntenn leika hverju sinni,
alltaf vinnur liðið saman sem ein
heild. Bandaríkjamaðurinn Ted
Bee átti mjög góðan leik að þessu
sinni, ætlaði sjálfum sér engin
kraftaverk, heldur vann fyrst og
fremst f.vrir liðið. Er Ted þessi
einstaklega prúður leikmaður og
mættu aðrir Njarðvíkingar láta
sér prúðmennsku hans til eftir-
breytni verða. A þetta sérstaklega
við um Gunnar Þorvarðarson, en
ýmsir tilburðir hans eiga frekar
heima á leiksviði en á íþróttavelli,
og lýtir þetta mjög þennan annars
ágæta leikmann. Geir Þorsteins-
son lék vel að vanda og Júlíus
Valgeirsson átti einnig ágætan
leik.
Ef skráð yrði saga ísiensks
körfuknattleiks yrði trúlega dá-
góður kapítuli helgaður Jóni
nokkrum Indriðasyni. Hvort hahs
yrði þar að góðu einu getið skal
hér ósagt látið. Skoraði Jón alls 35
stig, en skotanýting hans var alls
ekki góð í leiknum og varnarleikur
hans heldur slakur. Eins og áður
var það Mark Christensen sem bar
höfuð og heröar yfir aðra leik-
ntenn Þórsara, en einnig áttu þeir
Eíríkur Sigurðsson og Birgir
Rafnsson ágætan leik.
Stigin fyrir UMFN: Ted Bee 28,
Stefán Bjarkason og Gunnar
Þorvarðarson 14 hvor, Geir Þor-
steinsson 13, Júlíus Valgeirsson 11,
Brynjar Sigmundsson 10, Jónas
Jóhannessön og Þorsteinn
Bjarnason 6 hvor, Jón Matthíasson
4 og Guðjón Þorsteinsson 2.
Stigin fyrir Þór: Jón Indriðason
35, Mark Christensen 27, Eiríkur
Sigurðsson 19, Birgir Rafnsson 11,
Karl Ólafsson 4, Hjörtur Einars-
son 2 og Þröstur Guðjónsson 1.
Leikinn dæmdu þeir Jón Otti
Ólafsson og Hilmar Viktorsson og
gerðu þeir það ágætlega.
G.I.
Rautt spjald ð
lofti og Þróttur
fékk lokastigið
ÍSLANDSMÓTIÐ í blaki hófst um
helgina. Þá fóru fram tveir leikir í 1.
deild karla, og Þrír leikir í 1. deild
kvenna.
íslandsmeistarar ÍS hófu vörn sína
á titlinum fyrir norðan er þeir sóttu
U.M.S.E. heim og léku við þá á
Akureyri. IS sigraði 3—0, sigraði í
öllum þrem hrinunum þó að naum-
lega færi í fyrstu tveimur en þá skiidu
aðeins tvö stig. Báðar hrinurnar
enduðu 16—14. Þriðja hrinan endaði
hinsvegar 15—10. Eyfirðingarnir
stóðu sig vel í keppninni við
meistarana og veittu verðuga mót-
spyrnu.
Reykjavíkurmeistarar og bikar-
meistarar Þróttar fengu U.M.F.L. í
heimsókn. Leika þurfti fjórar hrinur til
að fá fram úrslit og var hart barist. I
fyrstu hrinunni sigruðu Þróttarar
15—11, en í þeirri næstu snéru
Laugdælir blaðinu við og léku mjög
vel og sigruðu með tveggja stiga mun
15—12. En Þróttarar voru ekki á
þeim buxunum að gefa neitt eftir og
sigruðu með nokkrum yfirburðum í
þriðju hrinunni 15—9. Nú var að
duga eða drepast fyrir Laugdæli og
mikið gekk á í hrinunni. Þegar staðan
STAÐAN
Staðan í úrvalsdeildinni í körfu-
knattleik: S|jg
KR 4 3 1 362:299 6
ÍR 4 3 1 371:334 6
UMFN 5 3 2 481:481 6
Valur 5 3 2 443:459 6
ÍS 4 1 3 357:373 2
Þór 4 0 4 325:389 0
Stigahæstu menn:
Dirk Dunbar ÍS 135
Þórir Magnússon Val 125
Ted Bee UMFN 125
Paul Stewart ÍR 118
John Hudson KR 115
Jón B. Indriðas. Þór 102
Mark Christiansen Þór 99
Kristján Ágústss. Val 97
Tim Dwyer Val 78
Kristinn Jörundsson IR 78
Þorsteinn Bjarnason UMFN 77
Jón Sigurðsson KR 70
var 14—13 tókst Þrótti að vinna
boltann af UMFL, en ekki voru allir
sammála um að það hefði veriö gert
á löglegan hátt og var því mótmælt.
Fékk einn leikmanna Laugdæla rautt
spjald hjá dómara leiksins og
samkvæmt blakreglunum þýðir það
stig til andstæðinganna. Var það
lokastig Þróttara í hrinunni og nægði
þeim til sigurs 15—13. Já það þýðir
ekki að deila við dómarann. þ.r.
• Mikil barátta undir körfunni í leik Njarðvíkinga og bórsara á
sunnudag. Ilér er það Geir Þorsteinsson sem hefur átt skot á körfu. en
Mark Christensen og Jónas Jóhannsson eru við öllu búnir.
Einkunnagiofm
Handknaltieikur
FYLKIR: Jón Gunnarsson 2,
Ragnar Árnason 1, Halldór
Sigurðsson 3, Örn Jensson 1, Jón
Ágústsson 2, Örn Hafsteinsson 2,
Magnús Sigurðsson 2, Ágúst
Sigurösson 1, Einar Ágústsson, 3,
Einar Einarsson 2, Gunnar
Baldursson 3, Stefán Hjálmars-
son 3.
VÍKINGUR: Kristján Sigmunds-
son 2, Eggert Guðmundsson 1,
Viggó Sigurðsson 1, Árni Indriða-
son 3, Ólafur Jónsson 3, Páll
Björgvinsson 4, Ólafur Einarsson
2, Sigurður Gunnarsson 2,
Erlendur Hermannsson 3, Steinar
Birgisson 2, Magnús Guöfinnsson
1.
ÍR: Jens Einarsson 2, Bjarni
Hákonarson 1, Bjarni Bessason 2,
Ársæll Hafsteinsson 2,
Guðmundur Þórðarson 2, Jóhann
Ingi Gunnarsson 1, Vilhjálmur
Sigurgeirsson 2, Brynjólfur
Markússon 2 Sigurður Svavars-
son 2, Guöjón Markússon 3,
Haflíði Halldórsson 1, Ingimundur
Guðmundsson 1.
HK: Einar Örn Þorvarðarson 2,
Vignir Baldursson 1, Kristinn
Ólafsson 2, Bergsveinn Þórarins-
son 1, Hilmar Sigurgislason 2,
Erling Sigurðsson 2, Stefán
Halldórsson 2, Björn Blöndal 2,
Friðjón Jónssn 2, Kolbeinn
Andrésson 1.
VALUR: Ólafur Benediktsson 3,
Bjarni Guðmunds son 2, Gísli
Arnar Gunnarsson 2, Karl Jóns-
son 1, Steindór Gunnarsson 2,
Stefán Gunnarsson 3, Þorbjörn
Jensson 1, Jón H. Karlsson 2, Jón
Pétur Jónsson 4, Þorbjörn
Guðmundsson 3, Brynjar Kvaran
1.
HAUKAR: Gunnlaugur Gunn-
laugsson 3, Svavar Geirsson 2,
Ingimar Haraldsson 2, Árni
Hermannsson 4, Hörður Haröar-
son 3, Stefán Jónsson 2, Sigur-
geir Marteinsson 1. Hörður Sig-
marsson 2, Andrés Kristjánsson
2, Þórir Gíslason 3. Árni Sverris-
son 1.
Körfuknattlelkur
VALUR: Hafsteinn Hafsteinsson
2, Kristján Ágústsson 3, Lárus
Hólm 2, Ríkharður Hrafnkelsson
2, Sigurður Hjörleifsson 1, Torfi
Magnússon 1, Þórir Magnússon 4.
KR: Árni Guðmundsson 1, Birgir
Guðbjörnsson 2, Eiríkur
Jóhannesson 2, Einar Bollason 2,
Garðar Jóhannsson 2, Gunnar
Jóakomsson 2 Jón Sigurösson 3,
Kolbeinn Pálsson 1, Kristinn
Stefánsson 1.
UMFN: Brynjar Sigmundsson 2,
Geir Þorsteinsson 3, Guðjón
Þorsteinsson 1, Gunnar Þor-
varðarson 3, Jón Matthíasson 2,
Jónas Jóhannesson 2, Júlíus
Valgeirsson 2, Stefán Bjarkason
2, Þorsteinn Bjarnason 2.
ÞÓR: Alfreð Túliníus 1, Birgir
Rafnsson 2, Eirikur Sigurðssn2
Hjörtur Einasson 1, Jón Indriða-
son 2, Karl Ólafsson 1, Ómar
Gunnarsson 1, Sigurgeir Sveins-
son 1, Þröstur Guðjónsson 1.
JOCK Stein, einn snjallasti fram-
kvæmdastjóri bresku knattspyrn-
unnar, hefur til Þessa átt alia sína
sæludaga í Skotlandi með ^
Glasgow-liðinu Celtic. Hann fluttist |
suður til Englands fyrir skömmu, tíl ^
Leeds, en undi ekki lengi Þar, fór
aftur noröur til að taka við skoska V
landsliðinu, sem átt hefur erfitt
uppdráttar að undanförnu.
Það var Stein sem gerði Celtic að ^
því stórveldi sem það var síðasta ^
áratuginn og undir hans handleiöslu ^
vann liðið skoska meistaratitilinn 9
sinnum í röð, auk þess að verða ^
fyrsta breska liðið til þess að vinna
hinn eftirsótta Evrópubikar meistara- V
liða. Stein haföi unnið með Celtic til
allra verðlauna sem hugsanleg eru
þar í landi og hann hafði ekki áhuga á ^
að gerast stjórnarmaður, eins og
honum var boðið hjá Celtic. Hann W
hafði lengi alið þá von í brjósti að
gerast framkvæmdastjóri hjá ensku ^
liði og þegar Leeds sýndi honum ^
áhuga, gat hann vart annað en látið J|
undan. Honum þótti að vísu tækifær- ^
ið koma nokkuð seint í lífi sínu, hann
er 55 ára, en það kom þó og það var «
fyrir öllu. Stein sagði við það
tækifæri: — Ég tek nú við liði, sem er ^
skipaö mörgum snjöllum og reynslu- ^
miklum leikmönnum, sem vilja kom-
ast á toppinn á nýjan leik eins og ég ^
sjálfur. Ég fékk fleiri tilboð, en þetta ^
var það girnilegasta. A
Samningur Steins hjá Leeds var
talinn bjóða upp á um 25.000 ^
sterlingspund á ári og er þaö með því
besta sem gerist með Englum og
Söxum. Ekki kemdi Stein hærurnar í ^
herbúðum Leeds og undir hans
stjórn gerði liðið engar rósir, Stein ^
var boðið að taka við skoska
landsliðinu, er Ally McCleod tók W
pokann sinn, og Stein var fljótur að
flytjast heim til Skotlands á ný. Að ^
sögn eru tekjur hans hjá landsliðinu ^
síst minni en hann hafði samið um |
hjá Leeds. Sem ungur maður vann ^
Jock Stein viö kolagröft, áður en
hann gerðist leikmaður með Celtic. ^
Stjórnarmenn Leeds voru yfir sig l^
ánægðir er þeir höfðu klófest Stein, V
töldu sig hafa landað þeim stóra. —
Hann er besti framkvæmdastjóri í J
heimi, kvað við úr öllum áttum. Ætli ^
þeir séu á sömu skoðun nú, þegar
maðurinn hefur rift samningnum eftir m
fáar vikur og enga uppskeru? Leeds ^
hefur aðeins orðið tvívegis meistari V
síðustu 10 árin, en orðið í 2. sæti alls
5 sinnum, unnið bikarinn einu sinni
en tvívegis orðið í 2. sæti. Þá má ekki ^
gleyma því að liðið lék gegn Bayern .
til úrslita um Evrópubikar meistara- ^
liða og tapaði 0—2, Öllu þessu átti
Stein að kippa í liðinn, en nú er hann ^
farinn.
Það er erfitt hlutskipti sem nú V
bíður Stein. Skoska landsliöið er í
sárum eftir hroðalegar ófarir í JB
Argentínu síðastliðið sumar. Sárið Él
greri ekki þó að HM lyki, Skotar
töpuðu sínum fyrsta leik í Evrópu-
keppni landsliða fyrir Austurríki og í ^
fersku minni er naumur sigur Skota, ^
3—2, gegn Norðmönnum á
Hampden Park. Norðmenn eru ekki .
hærra skrifaöir en svo, að þeir hafa ^
tapað tveimur síðustu landsleikjum
sínum gegn íslendingum. Kunnugir W
telja þó, aö geti nokkur maður rifið
skoska liðið upp, þá sé það Stein. *
Ljóst er að það eina, sem hrjáir
Skota, er að góðan foringja skortir,
mannskapurinn er allur fyrir hendi. ^