Morgunblaðið - 07.11.1978, Síða 47
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 7. NÓVEMBER 1978
27
• Eyjamaðurinn Þór Valtýsson skorar eitt af mörgum mörkum liðs síns gegn Stjörnunni í Ásgarði.
16 ára markvörður
varði 5 vítaköst!
HINN 16 ðra gamli Vestmanneyingur Sigmar Óskarsson varöi 19 skot í
leiknum gegn KR á taugardaginn, Þegar Þór krækti þar í eitt stig. Og skotin
hafa ekki veriö lærri sem hann varöi, þegar Þór vann Stjörnuna óvænt í
heita pottinum í Garðabæ á sunnudaginn. M.a. varöi Sigmar S vítaköst, 2
önnur fóru forgöröum, Stjarnan skoraöi aöeins úr tveimur af 9 vítaköstum.
Sigmar er algert markvaröarundur og hann hefur verið lykilmaöur í
stórgóöri bæjarferö Þórsara, bar sem beir hafa tekiö 3 stig af 4 mögulegum
gegn liðum sem margir hafa spáö 1. deildar sæti aö ári. Þór sigraöi
Stjörnuna 26—22, staðan í hálfleik var 16—10 fyrir Eyjapeyja.
son góður að venju. Hörður og
Gunnar Björnsson fóru að skora
undir lokin, og báöir, einkum Hörður,
léku vel. Allir léku þó undir getu.
Ómar markvörður Karlsson var nú
illa fjarri góðu gamni, hann er farinn
að vinna úti á landi, en arftakar hans í
marki Stjörnunnar vörðu lítið í
leiknum.
Þórarar náðu strax forystunni, en
um miðjan hálfleikinn skildi þó aðeins
eitt mark eftir góöan sprett hjá
Stjörnunni. Því svöruöu Eyjamenn
með 5 mörkum gegn einu, var þar
komin yfirburðastaða, 12—7, og létu
Þórarar þá forystu ekki af hendi. Um
tíma snemma í síöari hálfleik var
munurinn 7 mörk, en þeir Hörður
Hilmarsson og Gunnar Björn
vélritaöar línur á hvert blaö fyrir
Stjörnuna undir lokin, þannig að
munurinn minnkaði án þess þó að
sigri Þórs væri nokkurn tíma ógnaö.
Tveir menn öðrum fremur skópu
sigur Þórs. Áður er getið um
frábæran leik Sigmars Óskarssonar,
en auk hans var Hannes Leifsson í
miklum ham. Stjörnumenn settu
margsinnis mann til höfuös Hannesi,
en allt kom fyrir ekki, og hann hristi
púkana af sér fyrirhafnarlítiö og
skoraði sæg af mörkum, auk þess
sem hann opnaði leiðina fyrir sam-
herja sína.
Hjá Stjörnunni var Magnús Teits-
Mörk Stjörnunnar: Hörður og
Gunnar 5 hvor, Magnús Teitsson 3,
Árni Árnason, Eyjólfur og Magnús
Andrésson 2 hver, Hilmar og Eggert
eitt hvor.
Mörk Þórs: Hannes 11 (2 víti),
Herbert Þorleifsson og Ragnar
Hilmarsson 4 mörk hvor, Þórarinn
Ólafsson 3 mörk, Ásmundur Friðriks-
son 2, Þór Valtýsson og Andrés
Bridde eitt hvor.
— gg-
Auðveldur sigur KA
KA sigraói Þróttara næsta auöveld-
iega í 2. deildinni í handboltanum
norður á Akureyri á sunnudag. Eftir
nokkuð jafnan fyrri hálfleik tóku
KA6menn völdin í peim síöari og
sigruöu örugglega með 27 mörkum
gegn 21.
Það var aðeins framan af leiknum
sem nokkurt jafnræði var með
liðunum. Þannig var jafnt á öllum
tölum upp að 6 mörkum gegn 6, en
síðan skildi með liðunum og KA
leiddi í fialfleik með 12 mörkum gegn
9. í síðari fialfleiknum jókst munurinn
enn og varð mestur átta mörk, en
Þróttara réttu aðeins úr kútnum í
lokin og úrslitin urðu 27 mörk gegn
21 sem fyrr greinir.
Þrátt fyrir öruggan sigur KA í
þessum leik var langt í frá að leikur
liðsins væri sannfærandi. Of mikið
var um rangar sendingar og varnar-
leikurinn var veikur lengst af. Halldór
Rafnsson lék nú að nýju meö KA eftir
langa fjarveru vegna meiösla og var
Halldór besti maður liðsins. Þá átti
Þorleifur Ananíasson og ágætan leik.
Mörk KA: Þorleifur 7, Alfreð
Gíslason 6, Jón Hauksson 4(1), Jón
Árni 3(1), Páll Kristjánsson og
Guðbjörn Gíslason 2 hvor, Jóhann
Einarsson, Guðmundur Lárusson, og
Halldór Rafnsson eitt mark hver.
Mörk Þróttar: Konráð Jónsson 7, Páll
Ólafsson 4(1), Einar Sveinsson og
Árni Einarsson 3 hvor, Halldór
Harðarson 2, Jóhann Frímannsson
og Sveinlaugur Kristinsson eittmark
hvor. Sigb.G.
Aftur tap hjá Þrótti
ÞÓR og Þróttur leiddu saman hesta
sína í 2. deildinni í handboltanum
og fór leikurinn fram á Akureyri.
Lengst af var leikurinn ákaflega
jafn, en í lokin voru Þórsararnir
sterkari og sigruðu með 19 mörkum
gegn 17.
Framan af fyrri hálfleiknum höföu
Þórsarar jafnan frumkvæðið, höfðu
þetta eins til tveggja marka forystu,
en lengra hleyptu Þórttarar þeim
ekki. Rétt undir lok hálfleiksins náðu
Þróttarar að jafna leikinn, 9 mörk gen
9 og þegar blásið var til leikhlés
höfðu Þróttarar eins marks forystu,
11 gegn 10. Fljótlega í síðari
hálfleiknum náöu Þórsarar aö jafna
metin og jafnt var á öllum tölum upp í
16 mörk, en þá sögöu Þórsarar skilið
við Þróttara og sigruöu með 19
mörkum gegn 17.
Lið Þórsara hefir- tekið miklum
framförum frá því í fyrsta leiknum
gegn Leikni. Leikgleðin er meiri og
mun meiri ógnun í sóknarleiknum þó
fjarri sé að ógnunin sé mikil, þar sem
Þórsarar leika með eindæmum
hægan handknattleik. Arnar Guð-
laugsson var hetja Þórsara í þessum
leik. Arnar kom lítt sem ekki inn á
fyrr en í lok leikslns og skoraði þá
þrjú af síðustu fjórum mörkum
liðsins. Þá átti Sigurður Sigurösson
ágætan leik. Sigurður skoraði fimm
af mörkum Þórs í fyrri hálfleik, en lék
litiö eftir það. Raunar virtust inná-
skiptingar Þórsara fremur handa-
hófskenndar og þurfa Þórsarar að
lagfæra það atriði.
Þróttarar virkuðu mun veikari nú
en í fyrra. Liðið virðist ekki í mikilli
æfingu og af þessum leik að dæma
er hætt við að Þróttarar veröi fremur
í fallbaráttu en baráttu um sæti í 1.
deild. Það er umhugsunarefni fyrir
annars ágætan leikmann, sem Kon-
ráð Jónsson er, að hann einn vinnur
ekki leiki fyrir Þrótt. Iðulega var
Konráð skjótandi úr vonlitlum færum
þegar félagar hans voru í opnum
færum við hlið hans, en nei, Konráð
skaut sjálfur. Slíkt getur ekki gengiö
ef árangur á að nást.
Ragnar Maríónsson og Marel
Sigurðsson dæmdu leikinn ágætlega.
Mörk Þórs: Sigurður Sigurösson 6,
Sigtryggur Guðlaugsson 5(4), Arnar
Guölaugsson 4, Jón Sigurðsson 3,
Aöalsteinn Sigurgeirsson eitt mark.
Mörk Þróttar: Konráð 7 (3),Einar
Sveinsson og Páll Ólafsson 3 hvor,
Halldór Harðarson 2, Sveinlaugur
Kristinsson og Oddur Jakopsson eitt
mark hvor.
Sigb. G.
Þórarar tóku
stig af KR
ÞÓRARAR frá Vestmannaeyjum hófu bæjarferð sína með því að gera
jafntefli við KR-inga í Laugardalshöll. Er það árangur sem þeir mega
vel við una, ekki síst er á það er litið, að KR-inga telja margir
sigurstranglega í 2. deild og bórarar leika nú í fyrsta skipti í 2. deild.
hafa áður dvalið í 3. deild. Lokatölur leiksins voru 13—13, staðan í
hálfleik 8—7 fyrir bór.
Liðið skiptust á um forystuna
allan leikinn og aldrei var munur-
inn meiri en 2 mörk. Þórarar
höfðu oftár forystu en KR. Loka-
kaflann var jafnt á öllum tölum
frá 9—9 og upp í 13—13.
Lið KR-inga var slakt í þessum
leik. Þessi texti byrjar á því m.a.
að margir telji KR-inga sigur-
stranglega í deildinni. Eftir þess-
ari frammistöðu að dæma, mega
þeir hins vegar þakka fyrir ef þeir
forðast fallbaráttuna. Skástir hjá
þeim voru þeir Haukur Ottesen og
Björn Pétursson, en báðir hafa
óteljandi sinnum leikið betur.
Lið Þórara er mjög jafnt út í
gegn. I því eru 4 yfirburðamenn.
Markvörðurinn, Sigmar Óskars-
son, aðeins 16 ára, varði eigi færri
en 19 skot í leiknum og segir það
sína sögu. Haannes Leifsson er
illviðráðanleg skytta, Herbert er
mjög efnilegur línumaður og hann
skoraði nokkur eftirminnileg mörk
í leiknum. Síðast en ekki síst
Andrés Bridde, sem stýrir öllu
spili liðsins. Vegna þess hve mikið
mæðir á þessum fáu leikmönnum,
spáir undirritaður því að liðið eigi
eftir að fá töluvert bakslag í
seglin, þegar líður á veturinn,
breiddin í liðinu er ekki nægilega
mikil.
Mörk KR: Björn Pétursson 6 (4
víti), Símon 3, Haukur 2, Kristinn
og Sigurður Páll eitt hvor.
Mörk Þórs Ve: Hannes Leifsson
6, Herbert Þorleifsson 3 (1 víti),
Ragnar Hilmarsson 2, Böðvar
Bergþórsson og Andrés Bridde eitt
hvor. — gg.
I
Þú byggir upp
alla
vöðva
llkamans
með
BULLWORKER
* Já — Aöeins
5 mín. æfing
Á DAG
* Árangurinn eftir 2—3 vikur
veröur meiri en pig
nokkurntíma gæti grunað
* Reyndu sjálfur í 14 daga
og ef árangurinn veröur ekki
sjáanlegur
skilaöu pá tækinu og bú færö
fullnaöar endurgreiðslu
* Viljir þú ná þér á strik almennt
eóa vegna íþróttaiökana
er Bullworker besta aðstoðin sem
völ er á
* Fáðu nánari upplýsingar í pósti
strax.
Niðurstöður rannsókna sýna að heildar
árangur vöðvastælinga meö Bullworker
æfingum gæti verið eins
og taflan sýnir
skíft í aldursflokka.
Aldur 16 .... um 100%
20 .... um 150%
30 .... um 200%
40 um 150%
50 um 100%
60 .... um 70%
*SENDU AFKLIPPINGINN SEM BEIÐNI UM NANARI
UPPLÝSINGAR ÁN SKULDBINDINGAR EÐA £EM PÖNTUN
GEGN PÓSTKRÖFU MEÐ 14 DAGA SKILARETTI FRÁ
MÓTTÖKU TÆKISINS.
SENDIO MER:
□ UPPLÝSINGAR
N-AEN
D
STK BULLWORKER
HEIMILISFANG
Póstverzl. Heimaval - Box 39 - Kóp.
-------»------------------------æ----