Morgunblaðið - 07.11.1978, Qupperneq 30

Morgunblaðið - 07.11.1978, Qupperneq 30
38 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 7. NÓVEMBER 1978 + Móöir okkar, tendamóóir og amma VALGERÐUR EINARSDÓTTIR Hávallagötu 39 veróur jarösungin frá Dómkirkjunni þriöjudaginn 7. nóvember kl. 13.30. Ellen Siguröardóttir, Björn Þorlákaaon, Guörún Þóröardóttir, Einar Þorlákaaon börn og barnabörn. Maöurinn minn, faöir, tengdafaöir og afi ALFRED Þ. KRISTINSSON, bakarameiatarj, Áagaröi 155, Reykjavík, andaöist í Borgarsjúkrahúsinu 4. nóvember. Sigurvaig Oddadóttir, Lilja B. Alfreöadóttir, Guömundur JEgir Aöalateinaaon, Margrát Óaklín Alfreóadóttir, Einar Pálmi Matthíaaaon, Eyjólfur K.L. Alfreöaaon, Haraldur Gunnar Borgfjörö og barnabörn. + Eiginmaöur minn og faöir DR. GUNNAR SIGURÐSSON verkfraaöingur, Stekkjarflöt 18, andaöist föstudaginn 3. nóvember. Helga Ólafadóttir og börn. + Konan mín, móöir, tengdamóöir og amma ELÍN JÓNÍNA HELGADÓTTIR Öldutúni 3, Hafnarfirði, lést í Landakotsspítala 5. nóvember. Þóröur Pálaaon, Erna Guðjónadóttir Baröi Benediktaaon og barnabörn. + Sonur okkar og bróöir, ÞORLÁKUR BJARNI HALLDÓRSSON, lést af slysförum laugardaginn 4. október. Elae, Halldór Þorlákaaon og börn. Fósturfaöir minn, + BJARNI GUNNARSSON, frá ÍMfirði er látinn. Guörún Gunnarason. + FRIDJÓN M. STEPHENSEN er látinn. Jaröarförin auglýst síöar. Anna Oddadóttir og aöatandendur. + Móöir okkar, ERLÍN JÓNSDÓTTIR, andaöist aðfaranótt 5. þ.m. Fyrir hönd vandamanna. Hrefna Jenaen, Siguróur Jensen, Guórún Klaueen. + Eiginkona mín INGIBJÖRG ÞÓR, frá Patrekafiröi veröur jarösungin frá Fossvogskirkju miövikudaginn 8. nóvember kl. 13.30. Þórarinn Þór. Valgeröur Einars- dóttir—Minning Fædd 31. janúar 1895 Dáin 1. nóvember 1978. Frú Valgeröur á Hávallagötu 39 er látin. Við lát hennar er líklegt að allstór hópur fólks, sem nú er á miðjum aldri, staldri við í önn dagsins og láti hugann reika 30—40 ár aftur í tímann. Þá hefur frú Valgerður verið á svipuðum aldri og þessi hópur er nú. Hún bjó þá með eiginmanni sínum Þorláki Björnssyni, prests hins sterka frá Dvergasteini, og sonum þeirra tveim, Birni og Einari, á Hávallagötunni. Hávallagatan og svæðin þar í kring voru þá óðum að byggjast ungu, og athafnasömu fólki með barnahópa. Þarna voru allar þjóðfélagsstéttir samankomnar og ekki hafði enn verið fundið upp orðið svefnbær. Reykjavík var ekki ennþá orðin borg og bærinn ekki stærri en svo, að menn gengu heim til hádegisverðar og síðan aftur til vinnu. Nær allir gengu Túngötuna sem varð í nokkrar klukkustundir á dag þjóðbraut heimsins. Að minnsta kosti datt okkur ungling- unum ekki í hug að sumt fólk ætti erindi austur í bæ eða að þar byggi yfirleitt nokkur maður. Miðpunktur heims okkar var Landakotstúnið, þar sem kirkjan var og á bak við hana Landakots- spítali, þar sem Matthías læknir og svartklæddar systur voru grímuklædd að skera fólk upp. Landakotstúnið var leiksvið okkar og íþróttavöllur, að vísu gegn vilja Ferdinands munks, sem rak ötul- lega úr túninu, en gætti þess að ná engum. Þarna spruttu upp beztu íþróttamenn landsins. Klukkurnar í Landakoti voru tímavörður hverfisins og raunar miðbæjarins alls. Varla mun nokkur kaupmaður hafa þorað að loka verzlun sinni að kvöldi fyrr en Landakotsklukkunum var hringt. Svo kom stríþið, hernám, loft- varnabyrgi og sprengjuflugvélar yfir bænum. Islenzk skip voru skotin niður. Múrað var fyrir kiukkurnar í Landakoti. Þetta var sá vettvangur, sem skáldið Matthías Johannessen hefur reist minnisvarða í Morgni í maí þegar „á þessum árum hrundi veröldin í kringum okkur“. Ég hef reynt að setja þennan bakgrunn upp, því að án hans er Valgerður ekki möguleg í hugsun minni né heldur hann án hennar. Ég get ekki skrifað um hana öðru vísi en sem part af ævi minni og lífsreynslu. Svo er um fleiri íbúa þessa hverfis, bæði lífs og liðna að þeir hafa haft áhrif á lífsmótun margra sem þeir hafa ekki hug- mynd um. Sum heimili voru opnari okkur unglingunum en önnur. Hávalla- gata 39 var eitt af þeim. Bræðurn- ir Björn og Einar voru vinamargir og gott að koma til þeirra. Minnisstæður er mér Þorlákur faðir þeirra. Hann var þögull maður og hægur, en hlýr. I næsta húsi bjó Finnur bróðir Valgerðar, glaður maður sem ekki hafði uppgötvað kynslóðabilið og talaði við unglingana eins og einn af þeim. Valgerður sinnti okkur meira en Þorlákur, bóndi hennar, enda meira heima. Hún var hávaxin og beinvaxin kona, að- sópsmikil og ákveðin en aldrei hranaleg. Hún var samkvæmt nútíma orðalagi „pottþétt". Allir vissu hvar hún stóð og hún stóð með okkur unglingunum í öllu sem var okkur til góðs. Hún var dugleg og stjórnsöm. Hún var mikil húsmóðir. A það reyndi lika. Þorlákur maður hennar varð bráðkvaddur á bezta aldri, er hann var að tala við hana í síma, og Valgerður stóð uppi með drengina tvo. Vissulega var gengið hljóðlega um á Hávallagötu eftir að dauðinn hafði vitjað þar, en heimilishald hélt áfram og jafngott var að koma þangað og áður; alltaf voru móttökurnar hlýlegar þegar kvatt var dyra. Svo liðu mörg ár og ungt fólk fór að sinna sínum hugðarefnum og ævistarfi. Tíminn fór í húsbygg- ingar og brauðstrit, en ekki þarf stöðugar heimsóknir til að við- halda vináttu. Vegna starfs míns fékk ég þó tækifæri til að hitta Valgerði aftur, koma og fylgjast með henni síðustu árin. Hún taldi sig gæfusama og hún var þakklát fyrir að fá að halda fullum andlegum kröftum, þrátt fyrir að ellin færðist yfir hana. Hún var áfram bein og fyrirmannleg og hélt sinni reisn. — Hún var að nálgast að verða það hrum að hún þyrfti að vera upp á aðra komin. Það átti ekki við hana. Þegar hún var farin að finna vanmátt sinn, Mánudaginn 6. nóvember var Sigrún Sigurjónsdóttir kvödd hinstu kveðju. Hún andaðist 26. október eftir langvarandi van- heilsu. Sigrún var fædd að Nautabúi í Hjaltadal í Skagafirði. Snemma hneigðist hugur hennar til mennta og kennslu. Tók hún kennarapróf vorið 1935. Hún var ráðin kennari við Skóla Isaks Jónssonar árið 1936 en hafði áður fengist við kennslu í Rípurhreppi. Árið 1938 giftist Sigrún ísak Jónssyni skólastjóra. Var það lán fyrir skólann, því að þau hjónin voru mjög samhent við uppbygg- ingu hans og brautryðjendur á sviði yngri barna kennslu hér á landi. Sigrún kenndi við Skóla Isaks Jónssonar til ársins 1953. Jafnhliða húsmóðurstörfum og barnauppeldi tók hún virkan þátt í störfum manns síns og leitaði hann til hennar í sambandi við ritstörf og kennslumál. í formála að bók sinni Átthagafræði þakkar ísak konu sinni sérstaklega. En þar stendur orðrétt: „Eru mér efst í huga þakkir... til konu minnar Sigrúnar Sigurjónsdóttur, sem var samkennari minn í 18 ár og ber bókin svip af því samstarfi". Saman gáfu þau út Sólskin 1949. Veturinn 195T—’52 fór ísak Jóns- son námsferð til Ameríku og fól hann konu sinni skólastjórnina í fjarveru sinni. Sigrún Sigurjónsdóttir var frá- bær kennari. Hún var góður stjórnandi og átti gott með að leiðbeina. í samskiptum við börn sýndi hún lipurð og lagni. Hún hafði glöggan skilríng á, hvaða aðferð hentaði hverju barni eftir þroska þess og lyndiseinkunn. I viðkynningu var hún hlý og einlæg, vinföst og trygg. Sigrún var gáfuð kona, víðlesin, ljóðelsk, hafði næma tilfinningu fyrir íslensku máli og mat þjóðleg- ar hefðir. Hún var vel hagmælt, en fátt mun hafa komið út eftir hana. óskaði hún eftir að fá að kveðja þennan heim og um það ræddi hún jafn blátt áfram og æðrulaust og hennar var vandi. Sú kynslóð, sem byggði þennan bæjarkjarna fyrir tæpri hálfri öld, er nú að smákveðja. Þó eru nokkrir eftir og meðan svo er finnst okkur að ekki sé alveg slitið samband við bernskustöðvarnar og jafnvel að maður sé ekki svo voðalega gamall. Smá vonarglæta um að tíminn standi kyrr. En við lát frú Valgerðar hefur eitthvað dáið í okkur öllum, sem lékum á Landakotstúninu í gamla daga. Blessuð sé minning hennar. Guðjón Lárusson. Minning Uppeldismál voru henni hugleikin en móðurhlutverkið rækti hún af mestri alúð og munu börnin þeirra fimm búa að því. í skólastarfinu var Sigrún jafn- an tillögugóð, þegar vanda bar að höndum og leituðu samkennararn- ir oft ráða hennar. Til hinstu stundar bar hún hag skólans mjög fyrir brjósti og sýndi það í verki m.a. með góðum gjöfum og störf- um í hans þágu löngu eftir að hún hætti kennslu. Mun skólinn njóta þess um ókomin ár. Við kveðjum Sigrúnu Sigurjóns- dóttur með virðingu og þökk og sendum börnum hennar og öðrum aðstandendum samúðarkveðju. Kennarar við Skóla ísaks Jónssonar. Afmælis- og minningar- greinar ATIIYGLI skal vakin á því. að afma'lis- og minningargreinar verða að berast blaðinu með góðum fyrirvara. Þannig verð- ur grein, sem birtast á í miðvikudagsblaði. að berast í síðasta lagi fyrir hádegi á mánudag og hliðsta'tt með greinar aðra daga. Greinar mega ekki vera í sendibréfs- formi eða hundnu máli. Þær þurfa að vera vélritaðar og með góðu línuhili. Skrifstofa og efnisafgreiösla veröur lokuö, eftir kl. 13, þriðjudaginn 7. nóv. vegna jarðarfarar. Landssmiðjan. Sigrún Sigurjóns- dóttir —

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.