Morgunblaðið - 07.11.1978, Side 40

Morgunblaðið - 07.11.1978, Side 40
ÞRIÐJUDAGUR 7. NÓVEMBER 1978 Beið bana í elds- voða í EYJUM Fiskvinnslustöðin Eyjaberg stöðv- ast vegna reyk- og brunaskemmda Það hörmulega slys varð í Vestmannaeyjum s.l. sunnudag að 44 ára gamall maður, Vignir Sigurðsson vélstjóri, beið bana í eldsvoða sem upp kom í fiskvinnsluhúsinu Eyjaberg. Eldsupptök eru ókunn. Allt bendir til þess að Vignir hafi án þess að láta vita af sér, ætlað að reyna að slökkva eldinn sem var laus á geymslulofti í húsinu, en skyndileg reykmyndun lokað fyrir honum leiðir út. Þegar eldsins varð vart var starfsfólk hússins við vinnu á miðhæð og neðstu hæð hússins, en Vignir var við vinnu á verkstæði á efstu hæð. Eldsins varð fyrst vart á neðri hæðunum þegar reykur kom niður stigana og var eldurinn þá laus á geymslulofti fyrir ofan verkstæðið og mikill reykur. Slökkviliðið kom á vettvang laust fyrir kl. 5 og fannst Vignir ekki fyrr en um 45 mín. síðar uppi á geymsluloftinu en þangað hafði hann farið með slökkvitæki. Rannsóknarlögreglumaður úr Reykjavík var fenginn til þess að kanna eldsupptök. Vignir Sigurðs- son lætur eftir sig eiginkonu og þrjú börn. Að undanförnu hefur verið unnið við síldarfrystingu og flökun í Eyjabergi, en fjárhagslegt tjón af völdum brunans er mjög mikið og er ekki hægt að vinna í húsinu eins og það er. Taldi Sigurður Þórðar- son forstjóri Eyjabergs að það myndi taka a.m.k. tvo mánuði að gera húsið klárt fyrir vinnslu á ný. Húsið er stórskemmt af sóti og .einnig þarf að framkvæma mikla smíðavinnu, gera við þakið, smíða nýja kaffistofu og hreinsa og mála allt húsið í hólf og gólf. Vignir Sigurðsson Gódur dagur gegn Búlgörum Buenos Aires — 7. nóv ÍSLENZKA karlasveitin tefldi í gærkvöldi við sveit Búlgaríu. Helgi ólafsson vann Ermenkov í 38 leikjum en allar aðrar skákir fóru í bið. Guðmundur Sigurjónsson hef- ur betri stöðu gegn Radulov, Margeir hefur heldur betri stöðu gegn Tringov en Jón L. Árnason hefur heldur lakari stöðu gegn Padevky. Þetta var dagur hraðskékanna, á öllum borðum nema hjá Heiga var við tímahrak að etja og bardagi við klukkuna. í kvennaflokknum vann Guð- laug sína skák en aðrar skákir voru ekki búnar. Allar horfur eru þannig á að þetta verði góður dagur hjá karlasveitinni gegn jafn sterkri sveit og Búlgararnir eru. — ht. Sjá einnig fréttir af mótinu á bls. 18. Félag ísl. iðnrekenda óskar fundar með ríkisstjórn: MIKILL REYKUR var á efri hæðum Eyjabergs þegar slökkviliðið kom á vettvang. Ljósmynd Mbl. Sigurgeir. Vill skýr svör út af tollalækkunum Félag íslenzkra iðnrekenda hefur ritað forsætisráðherra bréf og óskað eftir fundi stjórnar FÍI með forsætisráðherra og öðrum ráðherrum í ríkisstjórninni til að fjalla um málefni tengd iðnaði, þar sem rætt verði um hvernig ríkisstjórnin hyggst standa við ákvæði í samstarfsyfirlýsingu sinni um frestun tollalækkana. Er vakin athygli á því að í athugasemdum fjárlagafrumvarpsins sé gert ráð fyrir lækkun aðflutningsgjalda í samræmi við EFTA-aðild Islands og samninga við EBE, enda þótt vitnað sé til fyrirheita í samstarfsyfirlýsingunni um tollalækkun, en tekið fram um leið að ekki sé afráðið með hvaða hætti þetta gerist en að sérstök nefnd þriggja ráðuneyta hafi það til meðferðar. Þá er í brefinu vitnað til ummæla Lúðvíks Jósepssonar fyrir skömmu, að það loforð hafi verið gefið að við afgreiðslu fjárlagafrumvarpsins verði tekinn upp nýr tekju-liður sem samsvari þessari tollalækkun og eigi að þjóna því að vernda íslenzkan iðnað í samkeppni við innfluttan iðnað. Bréf þetta fylgdi Fréttabréfi Félags ísl. iðnrekenda sem Mbl. barst í gær og kemur þar ennfrem- ur fram, að í Ijósi þess sem að framan er getið sé einsýnt að málefnið sé ekki til lykta leitt innan ríkisstjórnarinnar og vakin er athygli á að aðeins séu tveir mánuðir þar til tollar eigi næst að lækka samkvæmt samningum við EBE og EFTA-aðild en einungis 14 mánuðir eftir af aðlögunartíman- um í heild. ítrekað er að fyrirheit- ið um frestun tollalækkana sé aðeins önnur hliðin á málinu en hin sé raunhæfar iðnþróunarað- gerðir til að tryggja samkeppnis- aðstöðu ísl. iðnaðar, og þar sém fastlega megi gera ráð fyrir að bæði þessi atriði komi til kasta löggjafans sé því raunar um skemmri tíma að ræða en tvo mánuði ef einhverjar þessara aðgerða eigi að taka gildi um næstu áramót. í bréfinu kemur og fram, að FÍI telur málið svo brýnt að það þoli ekki bið eftir því að athugun starfshóps ljúki enda sé hér mál sem stjórnmálamönnum beri að taka ákvörðun um en eigi ekki að vera til athugunar hjá embættismönnum. Spassky styður fram- boð Friðriks SSSSKl góðgerðarstofnun, sem eigi að hafa það eitt að markmiði að koma Bobby Fischer að tafl- borðinu.“ „Fyrir um það bil tveimur árum reyndu Sovétmenn að útiloka mig frá öllum skákmót- um á vegum FIDE, þar með er talin kandidatakeppnin. Dr. Euwe tókst að verja mig þá. Ég heid að Gligoric myndi ekki gera slíkt hið sama fyrir mig og frá mínum bæjardyrum séð er Friðrik Olafsson eini frambjóð- andinn," sagði Korchnoi í sam- talinu við Mbl. Buenos Aires, 6. nóvember. Frá Höxna Torfasyni Fréttaritara Mbl. „VÆRI ég fulltrúi á Fide-þinginu myndi ég styðja framboð lslendinga,“ sagði Boris Spassky í samtali við Mbl. í gærkvöldi. Þessi yfirlýsing Spasskys sætir nokkrum tíðindum, þar sem hann teflir hér á fyrsta borði fyrir Sovétríkin, en sovézka skáksambandið styður Gligoric til forseta FIDE. En Spassky segist ekki treysta júgóslavenska skáksam- bandinu eftir einvígi hans og Korchnois í Belgrad og því geti hann ekki hugsað sér Gligoric sem forseta FIDE. „Að Friðrik Olafssyni frágengnum myndi ég styðja Rabel Mendez," segir hann. „Friðrik Ólafsson er sá eini frambjóðendanna sem ég styð,“ sagði Viktor Korchnoi í samtali við Mbl. í morgun. Hefur Korchnoi í samtölum við forystumenn Skáksambands ís- lands lýst sig reiðubúinn til að koma til Islands á næstunni og tefla, annað hvort í skákmóti eða þá fjölteflí, og einnig segist hann reiðubúinn til að tefla í næsta Reykjavíkurskákmóti, sem halda á 1980. „Ég styð framboð íslendinga því ég hef mjög góða reynslu af þeim frá einvígjum mínum á Islandi bæði 1972 og 1977," sagði Spassky. „Ég lít svo á að íslendingar séu góðir skipulegg- jendur og traustir mótshaldarar og að Island sé vel til þess fallið að halda jafnvæginu milli tveggja krókódíla, en ég held einmitt að eitt af grundvallar- málum FIDE sé að samræma ólík sjónarmið. Ég get ekki litið svo á að FIDÉ sé einhver í samtali við Mbl. í gærkvöldi sagði Pétur Sveinbjarnarson, tals- maður Félags ísl. iðnrekenda, að svar hefði enn ekki borizt frá stjórnvöldum við þessu bréfi félagsins en það var sent hinn 1. nóvember sl. Drengur lézt eftir gang- brautarslys LITLI drengurinn, sem slasaðist lífshættulega er hann varð fyrir bifreið á gangbraut á Þingvalla- stræti á Akureyri miðvikudaginn 25. október s.l. lézt á gjörgæzludeild Borgarspítalans í Reykjavík á fimmtudagskvöld. Hann hét Birgir Már Björnsson, Stekkjargerði 13, Akureyri. Birgir heitinn var sjö ára gamall, sonur hjónanna Áslaugar Þorsteinsdóttur og Björns Jakobs- sonar bifvélavirkja.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.