Morgunblaðið - 17.12.1978, Blaðsíða 14
46
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 17. DESEMBER 1978
íslenskt
jólatré í
Chicago
í VÍSINDA- og iðnaðarsafni
Chicagoborgar í Bandaríkjun-
um er árlega haldin hátíð er
nefnist „Jól um allan heim“.
Nú er þessi hátíð haldin í 37.
skipti og hefur stóru jólatré
verið komið þar fyrir er á að
sýna jólavenjur og -siði á
íslandi.
Tréð var útbúið af íslend-
ingafélaginu í Chicago og
íslenska saumaklúbbnum und-
ir forystu frú P. Sveinbjörn
Johnson.
31 jólatré ásamt ýmsu öðru
er tilheyrir jólunum á hinum
ýmsu stöðum verður á þessari
hátíð sem stendur til 7. janúar.
Einnig munu þar verða leik-
sýningar, kvöldverður og kór-
söngur.
Pólverjar kaupa 10 þúsund
tunnur af saltsíld í viðbót
SÍLDARÚTVEGSNEFND hefur
horizt staðfesting frá pólsku
fiskinnflutningsstofnuninni Ryb-
ex þess efnis að innflutningsleyfi
hefði nú loks fengist fyrir 10
þúsund tunnum af saltsíld til
viðbótar þeim 30 þúsund tunnum,
sem áður hafði verið samið um
sölu á til Póllands. Er nú verið að
ganga formlega frá samningum
um þetta viðhótarmagn.
Er söltun lauk upp í fyrirfram-
samninga á hinum hefðbundnu
tegundum saltaðrar síldar síðari
hluta nóvember, var saltendum
tilkynnt að stöðva yrði söltun á
öllum tegundum nema ediksöltuð-
um síldarflökum fyrir markaðinn í
í
U5>,
v y
FAGURRAUÐ DELICIOUS
fást í næstu matvöruverzlun
Einkaumboð:
BJergvin Schram heildverzlun — Reykjavík— Sími 24340
Söluumboð:
AKUREYRI: Valgarður Stefánsson hf., heildverzlun
Vestur-Þýzkalandi, en aðeins 6
söltunarstöðvar höfðu aðstöðu til
þessarar framleiðslu. Þó var salt-
endum heimiiað að salta á eigin
ábyrgð allt að 10.000 tunnum
umfram fyrirframsamninga, með
því skilyrði að verkun síldarinnar
yrði hagað þannig að hún hentaði
fyrir Póllandsmarkað.
Með fyrirframgreindri viðbótar-
sölu til Póllands hefir sala verið
tryggð á allri þeirri síld, sem
söltuð var á vertíðinni.
Ef umframsöltunin hefði verið
framkvæmd við aðra markaði en
Pólland benda allar líkur til þess
nú, að ekki hefði verið unnt að
selja þá síld nema með miklum
afslætti, enda var fitumagn fersk-
síldar orðið mjög lágt síðari hluta
nóvember. Lágmarksfitumagn
samkvæmt hinum nýja samningi
við Pólland er 12%.
Umferðarráð
B fer fram á
hækkun fjár-
veitingar
fyrir 1979
Á FUNDI Úmferðarráðs 29.
nóvember 1978 var gerð ályktun
sem send var fjárveitinganefnd
Alþingis. Það er skorað á Alþingi
og fjárveitinganefnd þess að
hækka til muna fjárhæð þá er
ráðinu er ætlað til starfsemi
sinnar i fjáriagafrumvarpi fyrir
árið 1979.
Auk hinnar almennu umferðar-
fræðslu telur ráðið brýnt að
starfsfé fáist tiþ eftirtalinna
verkefna:
A. 1. til aukinnar umferðar-
fræðslu í skólum og víðar í
þágu yngstu kynslóðarinnar.
Verði þær aðgerðir skoðaðar
sem framlag Úmferðarráðs til
hins alþjóðlega barnaárs Sam-
einuðu þjóðanna og beinist að
því að tryggja öryggi barna í
umferðinni.
2) til könnunar á umferðarað-
stæðum barna um land allt, við
skóla og aðra staði, sem börn
sækja sérstaklega. Könnun
verði hliðstæð þeirri, sem gerð
hefur verið í Reykjavíkurborg
til úrbóta á skólalóðum og í
næsta nágrenni skóla í sam-
starfi ríkis og hlutaðeigandi
sveitarfélaga.
B. til víðtækrar kynningar á
nýjum umferðarmerkjum, sem
öðlast munu gildi á árinu 1979,
og til almenns átaks til bættrar
umferðarmenningar í tengslum
við þá gildistöku, líkt og gert
var í byrjun hægri umferðar í
mámánuði 1968 fyrir rúmum
áratug.
í lok ályktunarinnar er þeirri
skoðun lýst að fyrirbyggjandi
aðgerðir á sviði umferðaröryggis-
mála muni er til lengdar lætur
halda aftur af útgjaldaaukningu
ríkisins til sjúkrahúsa og endur-
hæfingarstöðva og hinum mikla
kostnaði sem umferðarslysum er
samfara svo sem viðgerðarkostn-
aði ökutækja.
Lítiðbarn
hefur
lítið sjónsvió