Morgunblaðið - 17.12.1978, Síða 27
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 17. DESEMBER 1978
59
Vörðurinn óð fram og aftur fyrir
framan mennina og bölvaði þeim í
sand og ösku fyrir vonsku þeirra
og slægð, en þó umfram allt fyrir
vanþakklæti þeirra í garð keisar-
ans. Hann varð æstari og æstari,
uns þar kom, að hann missti
algjörlega stjórn á sér. A bjagaðri
ensku heimtaði hann, að hinn seki
gengi fram til þess að taka á móti
refsingu. Enginn hreyfði sig.
var verðinum öllum lokið.
„Allir deyja. Allir deyja,“
öskraði hann viti sínu fjær.
Hann lét ekki sitja við orðin
tóm. Hann miðaði riffli sínum,
albúinn að skjóta á fyrsta mann-
inn í röðinni.
Þá sté Argyllingurinn fram,
heilsaði að hermannasið og sagði
rólegur: „Það var ég.“
Vörðurinn fékk nú innibyrgðu
hatri sínu útrás, því að hann réðist
að fanganum, sparkaði í hann og
sló hann með krepptum hnefanum.
Maður stóð í réttstöðu, eins og
ekkert hefði í skorist, þótt blóðið
streymdi niður andlit hans. Þögn
hans og. virðuleiki espuðu vörðinn
hálfu meir. Hann greip um hlaupið
á riffli sínum og keyrði skeftið í
höfuðið á fanganum, um leið og
hann öskraði eins og villidýr.
Þetta var óhemju högg. Fanginn
hné máttvana til jarðar og hreyfð-
ist ekki framar. Og þótt öllum
mætti ljóst vera, að hann var
dáinn, hélt vörðurinn áfram að
berja á honum, þar til hann
örmagnaðist af þreytu og æsingi.
Vinnuflokkurinn tók upp lík
félaga síns, lagði verkfærin á öxl
sér og gekk heim í búðirnar. Þegar
skóflurnar voru taldar aftur við
verkfærageymsluna, var engrar
þeirra vant.
Þegar þessi saga var sögð, varð
þess vart mörgum til mikillar
undrunar, að hatrið í garð
japanska varðarins mátti víkja
fyrir aðdáun og virðingu fyrir
hinum látna Argyllingi.
Og nú tóku fréttir af álíka
atburðum og þessum að berast
okkur til eyrna frá öðrum fanga-
búðum. Það var sagt, að Japanir
hefðu haft hendur í hári óbreytts,
ástralsks hermanns, þar sem hann
var utanbúða að afla læknislyfja
handa sjúkum vini sínum. Hann
var þegar í stað færður fyrir rétt
og dæmdur til dauða.
Á morgni aftökudagsins gekk
hann glaður í bragði milli varða
sinna til aftökustaðarins. Japan-
irnir höfðu fjölmennt á vettvang
til þess að verða vitni að aftök-
unni. Þeim ástralska hafði verið
leyft að hafa með sér yfirmann
sinn og herprestinn einnig, sem
vitni. Flokkurinn nam nú staðar.
Foringjanum og prestinum var
vikið til hliðar. Ástralíumaðurinn
stóð nú aleinn frammi fyrir
böðlum sínum. Rólegur í fasi virti
hann þá fyrir sér. Síðan kraup
hann niður og tók upp úr buxna-
vasa sínum Nýja testamentið í
smáu broti. Alveg fumlaust las
hann nokkur vers með sjálfum sér.
Varir hans hreyfðust, en rödd
hans heyrðist ekki.
Hvað það var, sem hann las, veit
enginn. Sjálfur get ég ekki annað
en valt því fyrir mér, hvort það
muni ekki hafa verið orðin, sem
Jesú mælti við vini sina í loftsaln-
um forðum:
Hjarta yíar skelfist ekkii
trúið á Guð og trúið á mig.
í húsi fiiður míns eru mörjf híbýlit
vseckrhki svo, mundi éx þá hafa sasct yður
að éíí fn ri burt að búa yður stað?
Og þexar ég er farinn burt.
ok hefi húið yður stað.
kem é« aftur ok mun taka yður til mín,
til þess að þér séuð ok þar sem éK er.
Frið la-t éK eftir hjá yður.
minn frið Kef éK yður(
ekki Kef éK yður eins ok heimurinn Kefur.
Iljarta yðar skelfist ekki né hræðist.
Hann lauk við að lesa, stakk
bókinni í vasann, leit upp og sá
sorgfullt andlit prestsins síns.
Hann brosti til hans og hrópaði:
„Svona nú, séra minn, þetta er nú
ekki alveg svona slæmt. Það
verður allt í lagi með mig.“
Hann kinkaði kolli til böðlanna
til merkis um að hann væri
tilbúinn. Svo kraup hann niður á
ný og rétti vel úr hálsinum, teygði
höfuðið fram.
Hárbeitt sverðið blikaði í sólar-
ljósinu.
Fordæmi þessara manna lýsti
langar leiðir.
BÓKAFORLAG ODDS BJÖRNSSONAR ■ AKUREYRI
Valgeir Sigurösson:
UM MARGT AÐ SPJALLA
í þessari fjölbreyttu og skemmtilegu
bók, birtast 15 viðtalsþættir Valgeirs
Sigurðssonar blaðamanns við
merka, núlifandi íslendinga, sem allir
hafa eitthvað sérstakt, fræðandi og
skemmtilegt í þokahominu. Viömæl-
endur Valgeirs eru: Einar Kristjáns-
son, Hannes Pétursson, Indriði G.
Þorstensson, Kristján frá Djúpalæk,
Rósberg G. Snædal, Broddi Jó-
hannesson, Eysteinn Jónsson, Guð-
rún Ásmundsdóttir, Jakob Bene-
diktsson, Sigurður Kr. Árnason,
Anna Sigurðardóttir, Auður Eiríks-
dóttir, Auður Jónasdóttir, Stefán Jó-
hannsson, Þorkell Bjarnason. í bók-
inni birtast myndir af öllum viðmæl-
endum Valgeirs, og í bókarlok er
mannanafnaskrá.
Verð kr. 6.480.
Sidney Sheldon:
ANDLIT I SPEGLINUM
(fyrra var það „Fram yfir miðnætti"
og nú kemur „Andlit í speglinum".
Þessi nýja ástarsaga eftir Sidney
Sheldon er þrungin hrollvekjandi
sþennu sem heldur lesandanum
hugföngnum allt til óvæntra sögu-
loka. Metsöluhöfundurinn Sidney
Sheldon kann þá list að gera sögur
sínar svo spennandi að lesandinn
stendur því sem næst á öndinni
þegar hámarkinu er náð . . .
Hersteinn Pálsson þýddi.
Verð kr. 6.600.
Þjóðsagnasafn Odds Björnssonar
ÞJÓÐTRÚ
OG ÞJÓÐSAGNIR
Sígild og göð bók í nýrri og aukinni
útgáfu. Bók, sem ætti að vera til á
hverju íslenzku heimili, ungum sem
öldnum til ánægju.
Verð kr. 9.600.
Erlingur Davíðsson:
NÓI BÁTASMIÐUR
Endurminningar Kristjáns Nóa Krist-
jánssonar, sem í daglegu tali gengur
undir nafninu Nói bátasmiður. Hann
er mjög sérstæður þersónuleiki sem
gaman er að kynnast. Hér segir Nói
bátasmiður frá ýmsum atvikum lið-
innar ævi, hefir sérstök orðatiltæki á
hraðbergi og kallar ekki allt ömmu
sína.
Verð kr. 6.840.
SKOÐAÐ í SKRÍNU
EIRÍKS Á HESTEYRI
Jón Kr. ísfeld bjó til prentunar.
Eiríkur ísfeld á Hesteyri í Mjóafirði
fæddist 8. júlí 1873. Á yngri árum
sínum skráði hann mikið af þjóðsög-
um og ævintýrum, sem birtast í
þessari bók.
Bókin skiptist í eftirfarandi kafla:
Dularfull fyrirbrigði — Óvættir —
Reimleikar, svipir o. fl. — Ævintýri —
Sögur ýmiss efnis — Draumar —
Slitur úr Dagbók.
Þetta er kjörin bók fyrir þá sem unna
þjóðlegum, íslenskum fróðleik.
Verð kr. 6.480.
Ragnar Þorsteinsson:
SKIPSTJÓRINN OKKAR
ER KONA
Hér kemur hressileg íslenzk sjó-
mannasaga, 10. bókin eftir hinn
ágæta rithöfund Ragnar Þorsteins-
son, sem kunnur er fyrir sínar raun-
sönnu lýsingar á sjómennsku hér við
land. Hér segir frá svaðilförum og
mannraunum og björgun úr sjávar-
háska. En jafnframt er þetta hugljúf
ástarsaga.
Verð kr. 4.200.
Ingibjörg Sigurðardóttir:
ÓSKASONURINN
Sumir rithöfundar njóta margvíslegr-
ar viðurkenningar og verðlauna fyrir
ritstörf sín. Aðrir njóta hylli almenn-
ings. Ingibjörg Sigurðardóttir á sér
stóran hóp lesenda, sem fagnar
hverri nýrri skáldsögu frá hennar
hendi.
Verð kr. 4.200.
Þorbjörg frá Brekkum:
STÚLKAN
HANDAN VIÐ HAFIÐ
Óttar hefur orðið fyrir mikilli ástar-
sorg og ætlar sér svo sannarlega
ekki að láta ánetjast á ný. En þegar
Sandra kemur óvænt eins og nýr
sólargeisli inn í líf hans, þá blossar
ástin upp. Þau reyná að bæla niður
ofsalegar og heitar tilfinningar sínar
og verða að berjast við margskonar
erfiðleika áður en hin hreina og
sanna ást sigrar að lokum.
Verð kr. 4.200.