Morgunblaðið - 17.12.1978, Blaðsíða 31
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 17. DESEMBER 1978
63
Plötudómar lirléleg plata ☆☆vonbrigði ☆☆☆útgáfunnar verð ☆☆☆☆góð plata ☆☆☆☆☆eiguleg plata
„Ég syng fyrir þig”
Biörgvin Halldórsson
(Hljómplötuútgáfan JUD 018)^^^t
BJÖRGVIN Halldórsson á alla
vega 10 góðar breiðskífur að
baki, sína fyrstu sólóplötu sem
kom út um 1969, plötu með
Hljómum, „Hljómar 74“, 3
plötur með Lónlí Blú Bojs, 3
plötur með Brimkló og tvær
„vísnaplötur“ með Gunnari
Þórðarsyni auk þess að vera
með á nokkrum öðrum eins og
t.d. núna siðast á „Börn og
dagar“.
„Þó ár og „öld“ hafi liðið síðan
fyrsta sólóplatan kom út má
finna margt líkt með þessum
tveimur plötum þar sem um er
að ræða gott val á léttum
popplögum, flestum við ástar-
ljóð. A. „ur á móti hefur röddin
breyst allduglega og þá auðvitað
til hins betra enda Björgvin
kornungur í fyrra skiptið í
frumraun sinni, en reynslunni
ríkari í þeirri sem nú kemur út.
Eins og fram kemur í hinum
ágæta texta Jónasar Friðriks,
„Eg skal syngja fyrir þig“: „en
þegar ástarsöngva syng ég, skal
ég syngja fyrir þig“ sem er
„þema“ flest allra textanna á
plötunni. Björgvin fer vægast
sagt á kostum á plötunni, hann
hefur ekki sungið jafn örugglega
og vel á plötu fyrr og er þá ekki
sagt að honum hafi ekki tekist
vel upp áður. Lagavalið er
nokkuð gott, allar útsetningar
gerðar með heildarútkomu í
huga og raðað upp á eðlilegan og
góðan hátt. Platan er tólf laga
og um 40 mínútna löng sem er
nokkuð gott á íslenskum mæli-
kvarða, þar sem komist hefur í
vana að láta tíu lög duga og um
30 mínútur. Fjögur af lögunum
eru frumsamin og eru tvö af
þeim eftir Jóhann G. Jóhanns-
son, hin eftir Björgvin Halldórs-
son og Magnús Kjartansson.
Astaróðana semja svo Jóhann
G., Jón Sigurðsson, Jónas
Friðrik, Vilhjálmur Vilhjálms-
son og Kristmann Vilhjálmsson.
Fyrsta lagið er „Eina ósk“
sem er fjörugt og líflegt lag eftir
Jóhann G. sem er útsett ágæt-
lega og kemur sérlega sterkt út
úr fyrstu yfirferðum, lagið er
dæmigert vinsældalag ef svo má
að orði komast, en næsta lag er
„kántri-ballaða", „Ég fann þig“
sem Björgvin syngur með hjálp
félaga úr Karlakór Reykjavíkur
með góðum árangri. Lagið fær
sérstakan blæ fyrir bragðið. „Þó
líði ár og öld“ er ekki breytt
mikið en er sungið af mun
þroskað'ri söngvara og við betri
aðstæður, og það gæti líka orðið
vinsælt á ný.
„Ég er að tala um þig“ er eftir
Jóhann G. og er það auðheyrt
eins og yfirleitt er með flest
hans lög, því sérkenni Jóhanns
koma yfirleitt í gegn hver sem
syngur. „Sumarnótt" er líka
„kántrí" og við texta Jóns Sig.
eins og „Eg fann þig“. Eitt af
faliegri lögum sem Björgvin
hefur sungið og einkennir Ted
Burrows lagið líka nokkuð með
fallegum fetilgítarleik.
„Guð einn það veit“ er við
þýddan texta Jónasar Friðriks á
„God Only Knows", eitt af
meistaraverkum Beach Boys.
Björgvin einfaldar
útsetningarnar í stíl plötunnar
og er það ágæt afsökun. Hann
skilar laginu vel og getur verið
hreykinn af. „Ég skal syngja
fyrir þig“ er erlent lag við
reglulega vel orðaðan og góðan
texta Jónasar Friðriks, nokkuð
reynir á rödd Björgvins í þessu
lagi og að vanda vex hann með
vanda hverjum. „Fiðrildi" er eitt
af lögum hljómsveitarinnar
Bread við texta Jóns Sig. Lagið
er einna litlausasta lagið á
plötunni þó ekki sé það lélegt.
Rödd Björgvins er sett í gegnum
eitthvað tæki sem breytir henni
og sveiflar, sem er ekki sérlega
viðeigandi í jafn „hreinskilnum“
texta og hér um ræðir. „Skýið"
er mjög gott. Björgvin samdi
lagið við texta Vilhjálms heitins
Vilhjálmssonar, eins mesta ljúf-
mennis og ágætisdrengs sem
íslenski tónlistarheimurinn
hefur átt. Texti Vilhjálms er
efnismikill og vel saminn eftir
kúnstarinnar reglum og lag
Björgvins nær textanum vel og
er reglulega fallégt og vel flutt.
„Korndu" er eftir David Gates
úr Bread og er líflegt og einna
helst í stuðstíl Lónlí Blú Bojs.
„Elskar þú mig á morgun" er
þýðing Jóns Sigurðssonar á lagi
Gerry Goffin og Carole King,
„Will You Still Love Me
Tomorrow", og hefur verið
vinsælt hérlendis bæði í út-
setningu Kings og fleiri. Það
jaðrar því við að verið sé að bera
í bakkafullan lækinn. Annars er
þýðing Jóns ágæt og flutningur.
„Heyrðu" er lag Magnúsar
Kjartanssonar við texta Jóns.
Lagið er stutt og lítið lag sem
stenst síst samanburð á
plötunni. „Ég skal syngja fyrir
þig“ er að vissu leyti merkilegt
spor í ferli Björgvins, platan er
hans að mestöllu leyti og hefur
hann t.d. líka séð um hönnun
slíðursins sem er óvenjugott og
stemningin í tónlistinni á vel við
hulstrið líka. 3 bestu lögin eru:
„Skýið", „Eina ósk“ og „Sumar-
nótt“.
„Þegar mamma var ung
Diddú og Egill
(Steinar hf 028) ☆ ☆ ☆ ☆ ☆
99
Án efa verður platan „Þegar
mamma var ung“ ein vinsæl-
asta platan fyrir þessi jól enda
eðlilegt. hér á ferðinni fullkom-
lcga lýtalaus plata sem stendur
fullkomlega undir sínu hvernig
sem á er litið og höfðar líklega
til allra aldurvhópa. Lögin eru
öll þekkt, „gamlir kunningj-
ar“, sem hljóma vel í nýjum
bættum útsetningum.
Flutningur allra aðstandenda
er fyrsta flokks, Diddú hefur
aldrei sungið betur, Egill leikur
sitt hlutverk vel, hljóðfæraleik-
ararnir Grettir Björnsson,
harmónikka, Guðmundur R.
Einarsson, trommur, Sigurður
Rúnar Jónsson, fiðla, Árni
Elfar, píanó, og Helgi Kristjáns-
son, bassi, standa allir mjög
fyrir sínu. Eftir að Spilverk
Þjóðanna lék og söng nokkra
gamla slagara í áramótaskaupi
fyrir um þremur árum, var
nokkuð ýtt á eftir þeim að gefa
út plötu með þessum gömlu
slögurum, en þar á meðal var
eitt laganna sem prýðir þessa
plötu, „Það er draumur að vera
með dáta“. Nú hefur draumur
þeirra, sem þess óskuðu að
Spilverkið gæfi þetta efni út,
ræst þó flytjendur séu aðeins
helmingur Spilverksins. En það
má líka geta þessa að þeir
Sigurður Bjóla og Valgeir
Guðjónsson koma hér fram sem
tæknimaður og upptökustjóri.
Hulstri plötunnar hefur áður
verið hrósað og er engu þar við
að bæta.
Platan hefst á „Drykkjuvísu
1942“ sem Diddú syngur vel og
fjallar um drykkjuástandið hér í
landi í „den tid“, þ. á m.
„gasmjólkina".
Egill syngur síðan „Gamla
Reykjavík" sérlega vel og létt og
um tímann „áður en Ólafur
Thors“ var til.
„Anna í Grænuhlíð" fjallar
um saklausa sveitarstúlku í
Reykjavík á ástandstímabilinu.
Diddú syngur.
í „Hann var einu sinni lítill"
syngur Egill um forna mektar-
menn eins og Pétur Halldórsson
sem ku vera afi Péturs
Halldórssonar þess sem hannar
hulstur plötunnar.
„Kerlingavísur" er eina lagið
sem er líka á Revíplötu SG
hljómplatna og er það vel
sloppið fyrir revíuunnendur.
Diddú syngur lagið sem Nína
Tryggvadóttir „átti“ áður. Það
þarf ekki að hafa mörg orð um
næsta lag sem Diddú syngur,
„Það er draumur að vera með
dáta“, frekar en næsta lag á
eftir, „Ég er maðurinn hennar
Jónínu hans Jóns“, sem Egill
syngur. „Slæður“ fjallar um
miðilsfundina hennar Láru sem
fræg varð að endemum fyrir
rest. Það er Diddú sem glæðir
þetta lag lífi að ógleymdum
Gretti Björnssyni en hann á
margar dúllurnar á plötunni.
„Kirkjuvísur", er fjörugt lag
sem Egill syngur og fjallar um
líferni prestanna í „den tid“ þar
á meðal núverandi biskups að
því er Slagbrandi skilst.
„Síldarstúlkan" fjallar um líf
síldaráranna og hið mikla og
blómlega skemmtanalíf á þeim
tíma og vinnugleðina. Sigurður
Rúnar ljær laginu líf með
fiðlunni sinni ásamt Diddú.
Diddú syngur líka „Lambeth
Walk“ og fjallar um spillinguna
í pólitíkinni í þá daga og eins og
að hún sé eitthvað minni núna!
Egill syngur svo „Syrpuþulu"
af mikilli innlifun og Diddú
endar plötuna með laginu „Þeg-
ar amma var ung“.
Eins og sjá má eru orðin
fátækleg enda lítið hægt að
segja um jafn vel unnið fram-
tak.
Plata þessi verður án efa til
þess að varðveita minningu
þessara ágætu laga. Innlifun
þeirra Egils og Diddú er slík að
allir hljóta að dást að. Það eina
sem gæti skyggt á ánægju
manna væri ef fólk þekkti ekki
þær persónur eða leiksvið sem
byggt er á. Því þyrfti eitthvað
eins og Öldin okkar að vera við
höndina.
„Þegar mamma var ung“ er
ein besta plata sem út hefur
komið á þessum áratug og
jafnvel þó engin tímatakmörk
væru sett.
„Með eld í hjarta
Brunaliðið
99
(Hljómplötuútgáfan JUD 019)☆☆☆
ÞÁ ER önnur plata Bruna-
liðsins komin á markaðinn, þar
sem hin fyrri varð jafn vinsæl
og raun bar vitni. Á þeirri
plötu var það lagið „Ég er á
leiðinni“ sem seldi plötuna
fyrst og fremst. „Með eld í
hjarta“ er líka fyrsta jóla-
platan í ár eftir því sem
Slagbrandur kemst næst, og
má segja að plata þcssi standi
ekki fyllilega samanburð jóla-
platna nokkurra síðustu jóla,
en platan „Gleðileg jól“ sem
Hljómarnir gáfu út á sínum
tíma telst enn toppurinn af
léttum fslenskum jólaplötum.
Flest laganna á þessari jóla-
plötu hafa áður komið út, eins
og „Það á að gefa börnum
brauð“, „Yfir fannhvíta jörð“,
„Hvít jól“, „Þorláksmessukvöld"
og „Óli lokbrá".
Pálmi Gunnarsson og Ragn-
hildur Gísladóttir skipta
söngnum að mestu sín á milli,
með þeim undantekningum að
Laddi syngur frumsamið lag
sem hann nefnir „Leppalúði"
sem virkar líkt og að hann sé
farinn að taka lífið alvarlega og
sjálfan sig með, þó textinn sé
algert „flipp" eins og hans var
von. Einnig syngur hún Diddú
okkar (Sigrún Hjálmtýsdóttir)
tvö lög, „Hvít jól“ og „Einmana
á jólanótt". Að mati flestra telst
það nokkuð mikil ábyrgð að
syngja lagið hans Bing Crosby,
„Hvít jól“, og stóðst Björgvin
RUNALIÐHE)
MEÐ ELD I HJARTA
#
Halldórsson prófið á „Gleðileg
jól“ en Brunaliðinu mistekst að
því leyti að útsetningin er
fráhrindandi og virkar ekki jafn
melódísk og ætti að vera.
„Einmana á jólanótt“ er lag sem
Slagbrandur minnist ekki að
hafa heyrt á íslenskri plötu
áður. Lagið er dreymandi og
skilur reyndar lítið eftir.
Af þeim þremur lögum sem
Pálmi Gunnarsson syngur er lag
Magnúsar Kjartanssonar við
texta Halldórs Gunnarssonar,
„Náin kynni (Vitavon)", eitt
besta lag plötunnar, og er
reyndar nokkuð keimlíkt „Ég er
á leiðinni", hvort sem það er
tilviljun eða ekki. Þó er ólíklegt
að lagið nái jafn miklum vin-
sældum. Hin lögin sem Pálmi
syngur eru „Yfir fannhvíta jörð“
sem er komið ágætlega til skila,
og „Faðir vor“ sem hann syngur
með kór Söngskólans í Reykja-
vík undir stjórn Garðars Cortes.
„Faðir vor“ er nokkuð
frábrugðið öðru efni plötunnar,
fullhátíðlegt, þrátt fyrir að
jarðvegurinn sé undirbúinn með
„Óla lokbrá,“ lagi Carl Billích,
sem Ragnhildur, Pálmi og
Magnús Kjartansson syngja
saman á undan.
Ragnhildur syngur þau lög
sem eftir eru ónefnd, 4 talsins.
„Það á að gefa börnum brauð“ er
nauðgað með hvimleiðri útsetn-
ingu sem breytir hinni fallegu
upprunalegu melódíu, en hin
lögin sem Ragnhildur syngur
eru öll ágæt, „Lítið jólalag" er
„lítið“ og nett lag eftir Magnús
Kjartansson og sæmilegt sem
slíkt, „Jóla Jólasveinn", lag og
texti Ólafs Gauks er hér líklega
í sinni bestu útgáfu, og á söngur
Ragnhildar sem oftast er léttur
og líflegur mestan þátt í því.
Ragnhildur syngur líka lagið
„Þorláksmessukvöld" og nær
mjög vel stemmningu þessa
merkilega og skemmtilega dags
(ef þú ert búinn að sinna þínum
skyldum!). Þórir Baldursson
söng þetta lag inn á plötu fyrir
tveimur árum og náði þá líka
ágætri stemmningu. „Með eld í
hjarta" er sæmileg plata en
heldur sundurlaus á köflum.
Ekkert sérstakt lag sker sig úr í
gæðum og neikvæðu punktarnir
liggja helst í útsetningum sem
eru í nokkrum tilfellum hug-
myndasnauðar og jafnvel nei-
kvæðar.
3 bestu lögin eru „Náin
kynni", „Jóla Jólasveinn" og
„Þorláksmessukvöld".