Morgunblaðið - 11.01.1979, Blaðsíða 17
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 11. JANÚAR 1979
17
V andræðaástand víða á
landamærum Sovétríkjanna
AÐ sögn vestrænna stjórnmálafréttamanna í Moskvu ríkir nú
vaxandi óvissa í flestum landamærahéruðum Sovétríkjanna utan
Evrópu, meiri óvissa en Sovétríkin hafa nokkru sinni staðið frammi
fyrir á einum og sama tíma frá lokum síðari heimsstyrjaldarinnar.
Áður hafa komið upp ólgutímar í Tyrklandi, íran, Pakistan og
Afghanistan, en aldrei fyrr í öllum ríkjunum á sama tíma. Ofan á
þetta bætist svo Kína, sem nýlega hefur tekið upp stjórnmálasam-
band við Bandaríkin, en sameiginleg landamæri Kína og
Sovétríkjanna eru 6.960 kílómetra löng, og sumsstaðar umdeild.
Niðurstaðan er sú, að ef Mongólía er undanskilin, þá ríkir algjör
óvissa í Kreml um þróun mála í löndum þeim, sem liggja að
Sovétríkjunum, allt frá Mið-Austurlöndum til Kyrrahafsins.
Fyrir utan þróunina í Kína,
verða yfirvöld í Kreml að hafa í
huga:
— íran, sem aðskilur Sovét-
ríkin frá Persaflóa, og á skyld-
leika að rekja til íbúa sovézku
ríkjanna Azerbaydzhan og
Turkmeniya, er í uppnámi vegna
óeirðanna, sem stefna að því að
hrekja Mohammad Reza Pahl-
avi keisara frá völdum. Iran
hefur fylgt Vesturveldunum að
málum, en einnig selt Sovétríkj-
unum mikið gas, og erfitt er að
spá um utanríkisstefnu hugsan-
legra arftaka keisarans.
— í Tyrklandi, sem er aðili að
NATO, hafa yfirvöld reynt að
bæta sambúðina við Sovétríkin,
en þar hefur nú verið lýst
hernaðarástandi vegna uppþota
í austurhéruðum landsins.
— í Afghanistan hafa Sovét-
ríkin orðið virkur aðili í baráttu
stjórnvalda við að halda velli.
Mjór rani, aðeins nokkurra
kílómetra breiður á köflum,
teygir sig austur úr Norð-
ur-Afghanistan, en sunnan hans
liggur Pakistan. Þar hefur
Sulfikar Ali Bhutto fyrrum
forsætisráðherra áfrýjað dauða-
dómi, sem kveðinn var upp yfir
honum, en verði dóminum fram-
fylgt, má reikna með vandræða
ástandi í landinu.
Ekki er vitað hver viðbrögðin
verða í Moskvu við þessu óvissu-
ástandi. Telja stjórnmálafrétta-
ritarar þar hugsanlegt að þróun
mála í Ásíu og Kína geti leitt til
aukins samningsvilja Sovétríkj-
anna gagnvart Vesturveldunum
— eða þá að allt verði gert til að
spilla þróuninni.
Eitt þeirra vandamála, sem
Sovétríkin verða að hafa í huga,
er það hvort Múhameðstrúar-
menn þar í landi hrífist með í
þeim uppgangi trúarbræðranna
í Iran og Pakistan, en sjöundi
hver íbúi Sovétríkjanna er
talinn Múhameðstrúar.
Mest er í húfi í íran
Fjölmiðlar í Sovétríkjunum
hafa ásakað Bandaríkin fyrir að
birta „ögrandi uppspuna" um
ógnanir frá Sovétríkjunum í
þeim tilgangi einum að afsaka
eigin yfirgang. Pravda, málgagn
kommúnistaflokksins, hefur
hvað eftlr annað haldið því fram
að undanförnu að Bandaríkin
væru að skipta sér af innanrík-
ismálum írans, og vísaði í því
sambandi til frétta af banda-
rískum, flugvélamóðurskipum,
sem sögð voru á leið til Persa-
flóa.
Fyrst þegar yfirstandandi
mótmælaalda hófst í íran túlk-
uðu sovézk blöð þá stefnu
yfirvalda að keisarinn væri
skárri en allt annað, sem kostur
væri á, og birti yfirleitt fréttir
frá vestrænum fréttastofum frá
Teheran. Nú hefur Pravda sinn
eigin fréttamann í Teheran og
talar um „uppreisn alþýðunnar".
Um ástandið í Tyrklandi
hefur hinsvegar lítið verið rætt í
sovézkum fjölmiðlum, en Tyrk-
land liggur milli Sovétríkjanna
og Mið-Austurlanda. Þó hefur
Tass fréttastofan sovézka sagt
að erfiðleikarnir þar stafi frá
„ögrunum hægrisinnaðra öfga-
manna“. Talið er víst að sovézk
yfirvöld kjósi heldur áframhald-
andi samsteypustjórn vinstri-
flokkanna, undir forsæti Bulent
Ecevits, en nýja stjórn íhalds-
afla eða hersins, enda hefur
Ecevit unnið að bættri sambúð
Tyrklands og Sovétríkjanna.
Mest eru bein afskipti Sovét-
ríkjanna í Afghanistan, þar sem
þau reyna að tryggja áfram-
haldandi setu valtrar ríkis-
stjórnar Nur Mohammeds
Tarakis forsætisráðherra. í því
skyni hefur sovézkum ráðgjöf-
um í Afghanistan fjölgað úr um
1.200 í 5.000 frá því Taraki
hrifsaði völdin í apríl í fyrra.
Fyrir áramótin kom Taraki til
Moskvu til að undirrita vináttu-
og samvinnusáttmála við Sovét-
ríkin, sem án efa á eftir að vekja
ugg í vestrænum ríkjum og
Kína, og ótta við að Afghanistan
verði nýr stökkpallur fyrir
Sovétríkin til aukinna áhrifa,
aðallega í Iran og Pakhistan.
Músagangur
á Akureyri
MÚSAGANGUR hefur verið
meiri en venjulega gerist á
Akureyri að undanförnu
vegna hitaveituframkvæmd-
anna, að sögn meindýra-
eyðisins fyrir norðan.
Virðast mýsnar leita í
hitann sem kemur frá rörun-
um en einnig hafa þær leitað
inn í hús í leiðinni. Á eyrinni
á Akureyri þar sem músa-
gangur er mjög sjaldgæfur
fann kona mús í rúmi hjá
sofandi barni í svefnherberg-
inu. Stökk músin á andlit
barnsins en við það vaknaði
það en varð ekki meint af.
Einnig fann konan 4 mýs í
vaskahúsinu.
Mikið af músum sást einn-
ig kringum korngeymslu
bæjarins í sumar og haust og
var talið að þær hefðu borist
með ósekkjuðu mjöli erlendis
frá en að sögn meindýra-
eyðisins hefur allt mjölið
verið rannsakað og ekkert
benti til þess að svo væri.
Lítið barn
hefur
lítið sjónsvið
6
Forsiða Rásar 6 í hinum nýja
búningi.
Rás 6 í nýj-
um búningi
RIT Félags farstöðvaeigenda, Rás
6. er nýlega komið út í breyttum
búningi, en blaðið er nú að hefja
sinn 5. árgang. Fyrir nokkru var
kosin ný stjórn Félags farstöðvaeig-
enda og er núverandi formaður
Ragnar Magnússon.
í ávarpi til lesenda segir Ragnar
Magnússon, sem er ábyrgðarmaður
blaðsins, að með hinum nýja búningi
blaðsins sé það hugmynd stjórnar
F.R. að auka tengslin við almenna
félagsmenn og deildir F.R. úti um
landið, en þau tengsl hafi verið með
minnsta móti að undanförnu. Þá eru
í ávarpinu rædd ýmis vandamál er
upp hafa komið hjá F.R.-félögum og
greint er frá því að viðræður standi
yfir við Póst og síma um að fá
aukinn sendistyrk.
Ragnar Magnússon var á síðasta
aðalfundi Félags farstöðvaeig-
enda kosinn formaður F.R. og er
hann hér í ræðustól. Fráfarandi
formaður. Þorlákur Ásgeirsson.
er fremst á myndinni.
Þessi
smábátur:
— Hefur mikla og góða sjóhæfni.
— Er með mjög góða vinnuaðstöðu.
— Fæst fram- eða afturbyggður
— Fæst afgr.: Fullfrágenginn með
haffærisskírteini, eða óinnréttaður
og án vélar og tækja, allt eftir
óskum kaupanda.
— Gerir meir en að fullnægja styrkt
arkröfum Norsk Veritas.
Smábátur
úr trefjaplasti:
Höfuðmál:
Lengd 7,80 m
Dýpt 1,00 m
Djúprista 0,80 m
Breidd 2,20 m
Rúmlestir 3,27
öll vatnsþétt hólf og hólf undir hlunningarkanti
eru fyllt með URITHAN frauðplasti, sem tryggir að
báturinn sekkur ekki þótt að hann fylli af sjó.
Auk þess sem URITHAN plastið gefur
bátnum aukinn styrkleik.
hf
HJALLAHRAUNI 2
220 HAFNARFIRÐI
SÍMI 5-37-55