Morgunblaðið - 20.01.1979, Page 1
40 SIÐUR OG LESBOK
16. tbl. 66. árg.
LAUGARDAGUR 20. JANÚAR 1979
Prentsmiðja Morgunblaðsins.
Eldfjall á Mars — Þetta er staersta eldfjall sem vitað er um,
Olympíufjallið svonefnda á norðurhluta plánetunnar Mars. Myndin
var tekin úr bandaríska geimfarinu Víkingi. Gígur fjallsins er um 80
kílómetrar í þvermál.
íslamskt lýðveldi í
uppsiglingu í Iran
-segir Khomaini
Teheran, París, Aswan,
19. janúar. Reuter. AP.
MILLJÓNIR manna gengu í
dag um götur í borgum í
íran til að fagna brottför
keisarans og krefjast þess
að komið verði á fót í
landinu hreinni stjórn í
anda múhameðstrúar. Trú-
arleiðtoginn Khomaini, sem
býr í útlegð í Frakklandi,
sagði í dag að með mótmæl-
um sínum undanfarna mán-
uði hefði almenningur 1 íran
komið keisaranum úr landi
og sýnt að hvorki keisarinn
Líbanon:
Israelsmenn ráðast
á búðir skæruliða
Tel Aviv, New Yorlt, 19. janúar
AP — Reuter
ÍSRAELSKI herinn gerði
snemma í morgun óvænta árás á
tvetinar búðir palestínskra
skæruliða í Suður-Líbanon. Pal-
estínumenn svöruðu í sömu mynt
síðar í dag og skutu eldflaugum á
ísraelska landamærabæinn Kir-
at Shmona. í New York ákvað
ryggisráf 3 Sameinuðu þjóðanna
í dag að framlcngja dvöl gæzlu-
liðs S.Þ. í Lfbanon um fimm
mánuði.
8
V-Þýzkaland:
Sjónvarpsþœtti mót-
mœltmeð sprengjum
Karlsruhe, 19. janúar. Reuter.
SPRENGJUR ollu í gærkvöldi
miklu tjóni á útsendingar-
möstrum v-þýzka sjónvarpsins
í Kobienz og Nottuln, meðan
verið var að sýna upphafsþátt-
inn í bandarískri þáttaröð, þar
sem fjallað er um örlög Gyð-
inga á tímum nasismans í
Þýzkalandi.
Ríkissaksóknarinn í Karls-
ruhe, Kurt Rebmann, sagði í dag
að talið væri að öfgasinnaðir
hópar manna yzt til hægri væru
valdir að skemmdarverkum
þessum, vegna andstöðu við efni
sj ón varpsþáttanna.
I Koblenz varð að hætta
sjónvarpsútsendingum í um
klukkustund vegna sprengingar-
innar og gert er ráð fyrir að
fullnaðarviðgerð á mastrinu
taki langan tíma.
Frásagnir ísraelsmanna og Pal-
estínuaraba af atburðunum í
Líbanon í morgun stangast mjög á.
Israelsmenn segjast hafa gereyði-
lagt báðar skæruliðabúðirnar og
fellt 20—25 skæruliða, en Palest-
ínumenn segja að 16 hafi fallið.
Israelsmenn segja að enginn hafi
fallið og aðeins einn særzt úr
þeirra röðum, en skæruliðarnir
halda því fram að 60 -Israelsmenn
hafi látið lífið og hafi ísraelski
herinn orðið að senda þyrlur á
vettvang til að koma liðsafla
sínum og hinum föllnu á brott.
Atökin í S-Líbanon í dag eru hin
mestu sem orðið hafa þar um
slóðir sl. tíu mánuði, en Palestínu-
arabar hafa undanfarið staðið
fyrir sprengjuárásum á ýmsa staði
í ísrael. Er aðgerð ísraelsmanna í
dag talin svar við þeim árásum.
Talsmaður Palestínuaraba sagði í
dag að þeir myndu halda árásum
sínum áfram tvíefldir eftir það
sem gerst hafði í dag.
Hyggjast stórauka
aðstoðina við Tyrki
Bonn, 19. janúar. AP — Reuter
STÓRVELDIN fjögur Bandarikin, Bretland, Vestur-Þýzkaland og
Frakkland hafa' hyggju að stórauka efnahagsaðstoð sína við Tyrki að
því er haft var eftir talsmanni stjórnarinnar í Bonn í morgun.
Að sögn talsmannsins var
ákvörðun um þetta tekin á sam-
eiginlegum fundi efnahagsráð-
gjafa landanna í vjkunni. Ástæður
fyrir ákvörðuninni eru af sér-
fræðingum aðallega taldar þær að
stórveldin telja Tyrkland sitt
síðasta vígi í Miðausturlöndum.
Hugmyndin um aukna efna-
hagsaðstoð til handa Tyrkjum var
fyrst reifuð á Guadeloupe-fundi
þeirra Carters, Callaghans,
né stjórn hans væri velkom-
in í íran. Sagði Khomaini að
lögmæt þjóðaratkvæða-
greiðsla hefði farið fram á
götum úti í mótmælaaðgerð-
unum og vilji fólksins komið
ótvírætt fram.
Khomaini sagðist reiðubúinn að
snúa aftur til írans, þegar rétta
stundin rynni upp, en aðstoðar-
menn hans sögðu að brottför
Khomainis byggðist fyrst og
fremst á því hvenær öryggi hans í
Iran væri ekki hætta búin.
Khomaini er sagður reiðubúinn til
að eiga fund með Ramsey Clark
fyrrum dómsmálaráöherra Banda-
ríkjanna, en hann hefur verið í
Iran nokkra undanfarna daga
ásamt tveimur bandarískum há-
skólamönnum. Ekkert opinbert
samband hefur verið milli Banda-
ríkjastjórnar og Khomainis.
íranskeisari var í dag í Aswan í
Egyptalandi og átti hann bæna-
stund með Sadat Egyptalandsfor-
seta. Hvorugur leiðtoganna ræddi
við fréttamenn, en síðar hittu þeir
Gerald Ford, fyrrum Bandaríkja-
forseta, sem nú er á ferð í
Egyptalandi. Búizt er við að
keisarinn haldi um helgina til
Marokkó í boði Hassans konungs,
en haldi síðan til vesturstrandar
Bandaríkjanna, en þar mun hann
dvelja fyrst um sinn.
Bandaríkjastjórn hefur lokað
einni hlustunarstöð sinni í íran,
sem notuð er til að fylgjast með
eldflaugatilraunum Sovétmanna,
en starfrækslu annarrar slíkrar
stöðvar veröur haldið áfram.
Verkfallið
óbreytt í
Bretlandi
London, 19. janúar. Reuter. AP.
BREZKIR ráðherrar beindu þvf
enn í dag til leiðtoga verk-
fallsmanna að þcir hliðruðu til
og leyfðu flutning á helztu
nauðsynjum og viðkvæmum
varningi til þess að ekki kæmi
tii neyðarástands f landinu.
Leiðtogar flutningaverkamanna
og annarra verkfallsmanna hafa
ekki gefið ákveðin fyrirheit um
að slaka á aðgerðum sfnum, en
þó er e.t.v. talið að þeir muni
reyna að haga aðgerðum si'num
þannig að þær bitni ekki á
aðilum, sem ekki eiga beina
aðild að vinnudeilunni.
Talsmenn brezka íhaldsflokks-
ins hafa harðlega gagnrýnt
Callaghan forsætisráðherra fyrir
að lýsa ekki yfir neyðarástandi
eða kveðja til herinn. Skoðana-
könnun sem birt var í dag sýnir
að íhaldsflokkurinn hefur bætt
við sig fylgi meðal kjósenda að
undanförnu og hefur nú fylgi
49% kjósenda, en verkamanna-
flokkurinn hefur fylgi 41.5%
kjósenda.
Skærur á landamærum
Thailands og Kambódíu
Bangkuk. New York. 19. janúar. AP. Reuter.
ÁTÖK URÐU í dag milli thailenzkra landamæravarða og hermanna
frá Kambódíu Thailandsmegin við landamæri ríkjanna, að því er
lögreglan í Thailandi skýrði frá. Var skipzt á skotum í' um ti'u
mínútur, en ekkert mannfall varð. Ekki er ljóst hvort um var að ræða
hermenn fyrri eða núverandi stjórnar í Kambódíu.
Bardagar geisa enn innan landa-
mæra Kambódíu milli fylgis-
manna stjórnar rauðu khmeranna
og hinna nýju valdhafa. Var í dag
barizt á allstóru svæði í landinu og
notuðu hermenn nýju stjórnarinn-
ar m.a. langdrægt stórskotalið.
í New York átti Shianouk fursti
fyrrum þjóðhöfðingi Kambódíu
samtal við Vance utanríkisráð-
herra Bandaríkjanna, en ekki var
látið uppi hvað þeim fór í milli.
Shianouk liggur enn á sjúkrahúsi í
New York.
Schmidts og D‘estaing fyrir
nokkrum vikum.
Þá var haft eftir talsmanni
Vestur-þýzku stjórnarinnar að
stórveldin hefðu í hyggju að reyna
að fá aðrar vestrænar þjóðir til að
feta í fótspor þeirra með aukinni
aðstoð við Tyrki. Ekki voru neinar
tölur gefnar upp en að mati
sérfræðinga er hér um að ræða
tugi milljarða dollara.
„ísfugl“ — Kynjamynd þessi varð til á trjágrein í Sviss í frostinu á
dögunum. Þótti þetta að sönnu vera skrýtinn fugl, enda úr vatni einu
saman.