Morgunblaðið - 20.01.1979, Síða 5

Morgunblaðið - 20.01.1979, Síða 5
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 20. JANÚAR 1979 5 Þjóóin var blekkt________ — snúum vörn í sókn Sjö fundir Sjálfstæðisflokksins víðs vegar um landið um helgina Sjálfstæðisflokkurinn efnir til fjögurra funda víðs vegar um land í dag og þriggja funda á morgun, sunnudag. Fundirnir eru liður í fundarherferð flokks- ins sem haldin hefur verið undir kjörorðinu „Þjóðin var blekkt — snúum vörn í sókn“, en alls verða 36 fundir haidnir vítt og breitt um landið. Fundirnir eru öllum opnir og að loknum framsögu- ræðum verða frjálsar umræður og fyrirspurnir. Stykkishólmur Fundurinn í Stykkishólmi hefst klukkan 14 í dag í Lionshúsinu. Ræðumenn á fundinum verða Kjartan Gunnarsso’n lögfræðing- ur, sem sæti á í miðstjórn Sjálfstæðisflokksins, og Þorvaldur Garðar Kristjánsson alþingis- maður. Patreksfjörður Á Patreksfirði hefst fundurinn einnig klukkan 14 í dag í Skjald- borg. Þar tala þeir Matthías A. Mathiesen alþingismaður og Pétur Sigurðsson fyrrverandi alþingis- maður. Skagaströnd Þeir Eggert Haukdal alþingis- maður og Ellert B. Schram alþingismaður verða ræðumenn á fundinum á Skagaströnd. Fundurinn hefst klukkan 14 í dag, laugardag, og verður hann haldinn í Félagsheimilinu Fells- borg. Eyrarbakki Þá er fundur á Eyrarbakka í dag, hann hefst klukkan 14 í félagsheimilinu Stað. Framsögumenn á fundinum verða Friðrik Sophusson alþingis- maður, Guðmundur Hallvarðsson formaður Sjómannafélags Reykjavíkur og Ólafur G. Einars- son alþingismaður. Búðardalur Á morgun er svo fundur í Búðardal. Hann hefst klukkan 14 í Dalabúð. Ræðumenn verða Kjartan Gunnarsson lögfræðingur og Þor- valdur Garðar Kjartansson al- þingismaður. Bfldudalur Á morgun, sunnudag, er einnig fundur á Bíldudal. Hann hefst klukkan 14 í félagsheimilinu Baldurshaga. Ræðumenn verða Matthías Á. Mathiesen alþingismaður og Pétur Sigurðsson fyrrverandi alþingis- maður. Blönduós Þá er fundur á Blönduósi á morgun, hann hefst klukkan 14 í Félagsheimilinu. Ræðumenn verða Eggert Hauk- dal alþingismaður og Ellert B. Schram alþingismaður. Kjartan Gunnarsson Pétur Sigurðsson Friðrik Sophusson Þorvaldur Garð- ar Kristjánsson Eggert Haukdal Guðmundur Hallvarðsson Matthías Á. Mathiesen Ólafur G. Einarsson. Átökí F.U.F. í Reykja- vík ÁTÖK eru hafin í Félagi ungra framsóknarmanna í Reykjavík vegna aðalfundar félagsins sem verður haldinn þann 31. janúar næstkomandi. Er ljóst að tvö framboð munu koma fram f formannskjöri, en ekki er ljóst hvort einnig verða átök um önnur stjórnarsæti. Jósteinn Kristjánsson sjúkra- liði verður í framboði til for- manns, en enn er ekki ljóst hvort núverandi formaður F.U.F., Björn Líndal laganemi, muni gefa kost á sér til endurkjörs. Állavega mun þó eitthvert fram- boð til formanns koma frá núverandi stjórn. og hefur verið rætt um Jón Geir Hlynason í því sambandi, fari svo að Björn gefi ekki kost á sér. Að baki framboði Jósteins Kristjánssonar standa ýmsir aðilar innan félagsins sem verið hafa óánægðir með störf F.U.F. undanfarin ár, og vilja nú freista þess að gera þar á breytingu. Að stjórnarframboðinu standa auk stjórnarinnar Eiríkur Tómas- son, formaður Sambands ungra framsóknarmanna og fylgismenn hans, Guðmundur G. Þórarinsson og fleiri. Þess má -geta að þeir Guðmundur G. Þórarinsson og Jósteinn Kristjánsson eru hálf- bræður. Síðastliðið ár hefur verið nokkuð stormasamt innan Félags ungra framsóknarmanna í Reykja- vík, einkum vegna deilna um ágæti ýmissa „hreinsunaraðgerða" sem Björn Líndal hefur beitt sér fyrir. Sáttanefnd í deilu FÍA og Flugleiða í SAMRÆMI við ákvæði 3. gr. laga nr. 33/1978 um sáttastörf í vinnu- deilum hefur félagsmálaráðherra í dag skipað sáttanefnd til þess að vinna að lausn deilu þeirrar, sem nú er milli Félags íslenskra atvinnu- flugmanna og Flugleiða h.f. í nefndinni eiga sæti Brynjólfur Ingólfsson ráðuneytisstjóri, Guð- laugur Þorvaldsson háskólarektor og Hallgrímur Dalberg ráðuneytis- stjóri. — (Frétt t'rá félagsmálaráðu- neytinu). Viö erum hræddir um að tilboð þetta standi stutt og því miður verður það ekki endurtekið vegna þess að það eru aðeins til 25 SKODA 120 L AMIGO á þessu lága verði. Sölumenn okkar veita allar nánari upplýsingar. Auöbrekku 44-46, Kópavogi, sími 42600.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.