Morgunblaðið - 20.01.1979, Síða 20

Morgunblaðið - 20.01.1979, Síða 20
20 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 20. JANÚAR 1979 Utgefandi Framkvæmdastjóri Ritstjórar Ritstjórnarfulltrúi Fréttastjóri Auglýsingastjóri Ritstjórn og afgreiösla Auglýsingar hf. Arvakur, Reykjavík. Haraldur Sveinsson. Matthías Johannessen, Styrmir Gunnarsson. Þorbjörn Guðmundsson. Björn Jóhannsson. Baldvin Jónsson Aðalstræti 6, sími 10100. Aðalstræti 6, sími 22480. Áskriftargjald 2500.00 kr. á ménuði innanlands. I lausasölu 125 kr. eintakið. Heimastjóm í Grænlandi Með miklum meirihluta atkvæða samþykktu grannar okkar, Grænlendingar, heimastjórn í landi sínu, sem væntanlega verður áfangi á leið þeirra til fulls sjálfstæðis. Anker Jörgensen, forsætisráðherra Danmerkur, hefur lýst sig ánægðan með úrslit kosninganna, sem leiddu til þessarar niðurstöðu. Astæða er til að fagna þessum áfanga í sögu og þjóðlífi granna okkar og árna þeim velfarnaðar á vegi heimastjórnar. Samskipti grannþjóðanna, Grænlendinga og íslendinga, hafa ekki verið mikil, þó vaxandi hafi farið í seinni tíð. Með heimastjórn í Grænlandi er ástæða til að vona, að breyting verði hér á, bæði varðandi menningarleg tengsl og viðskipti hvers konar, sem góðir grannar rækta sín á milli. Viðskipti milli íslendinga og Grænlendinga eiga að geta aukizt verulega en til þess að svo megi verða þurfa reglulegar samgöngur að komast á milli landanna. Eyjólfur Konráð Jónsson, alþingismaður, fagnar samningum og samstarfi við Færeyinga um hafréttarmál í Mbl. í gær. Hann telur nauðsynlegt að taka upp nánara samstarf fiskveiðiþjóðanna við Norður-Atlantshaf: Islendinga, Færeyinga, Norðmanna og Græn- lendinga, um verndun og hagnýtingu auðæfa hafs og hafsbotns — á sameiginlegu hagsmunasvæði. Auðæfi hafs eru undirstaða velmegunar í bráð og lengd hjá þessum þjóðum öllum. Það er því rík ástæða til að taka undir orð þingmannsins um ræktun vináttu og samstarfs þeirra eins og kostur er. Grænlendingar hafa um flest sérstöðu í hópi þjóðanna við Norður-Atlantshaf. Þeir eru fámenn þjóð í stóru og sérstæðu landi. Islendingum ber að rétta þeim bróðurhönd og ljá þeim lið, eftir því sem óskir þeirra standa til og eigin geta leyfir. Morgunblaðið árnar Grænlendingum heilla með heimastjórn og lætur í ljós vonir um, að þjóðlíf þeirra megi dafna og blómgast: menningarlega, efnahagslega og á sviði almennra þegnréttinda. Veri þeir velkomnir í hóp þeirra þjóða norðursins, sem nú þurfa að taka höndum saman um varðveizlu sameiginlegra hagsmuna og gagnkvæmt samstarf á fjölmörgum sviðum. Bitið í skjaldarrendur Benedikt Gröndal, utanríkisráðherra og formaður Alþýðuflokks- ins, greindi frá því á fundi með fréttamönnum í Svíþjóð, þar sem hann var í opinberri heimsókn, að komist íslenzka ríkisstjórnin ekki að samkomulagi um langtíma áætlun í efnahagsmálum fyrir 1. febrúar n.k. væri hún fallin. Fari svo sagði ráðherrann, veit ég ekki hvað við tekur, en nýjar kosningar þurfa ekki endilega að vera eina lausnin. Hann talaði ekki um, hverjar samkomulagslíkur væru, en sagðist vera búinn undir hvað sem er. Alþýðuflokkurinn hefur fyrr látið frá sér fara upphrópanir og yfirlýsingar af þessu tagi, sem runnið hafa út í sandinn, samhliða því, sem þingflokkur Alþýðuflokksins hefur samþykkt hvaðeina, sem hann hefur harðast talað gegn. Minna má á bráðabirgðaráðstafanir í efnahagsmálum í september sl., enn einar bráðabirgðaráðstafanir í desember sl. og loks afgreiðslu fjárlaga, sem endaði í algjörri eftirgjöf Aiþýðuflokksins. Alþýðuflokkurinn hefur breytzt í nokkurs konar tvíhliða fyrirbæri. Önnur hliðin, ágreiningshliðin, snýr út í þjóðfélagið í áróðursglugga flokksins, hin hliðin, hlið eftirgjafar, hefur snúið — þrátt fyrir allt — að Ólafi Jóhannessyni, forsætisráðherra og formanni Framsóknarflokksins. Yfirlýsing Benedikts Gröndal hefur þó e.t.v. meira gildi en hinar fyrri, sem flestar hafa verið gefnar af minni spámönnum flokksins, sem reynzt hafa meiri í orði en á borði. Einnig sökum þess, að hún er gefin á erlendri grund, sem naumast verður skoðuð sem áróðursvettvangur leikhússdeildar flokksins. Enn lifa nokkrir dagar þess mánaðar, sem spannar gefin tímamörk til samkomulags innan ríkisstjórnarinnar, að sögn formanns Alþýðuflokksins. Þess er því ekki langt að bíða að aftur reyni á, hvað er að marka stóru orðin forvígismanna þessa flokks. Formaður hans beit í skjaldarrendur á blaðamannafundi úti í Svíþjóð, þar sem falli ríkisstjórnar var spáð eftir fáeina daga, ef samkomulag hefði ekki tekizt um frambúðarstefnu í efnahagsmálum fyrir nk. mánaðamót. Spurningin er einfaldlega sú, hvort hugrekki, sýnt úti í Svíþjóð, lifi af komandi mánaðamót heima á Islandi. Birgir ísl. Gunnarssont Yfirlit yfir álögur vinstri meirihlutans Undanfarnar vikur hafa birzt hér í Mbl. fréttir og greinar um þær miklu skattahækkanir, sem vinstri meirihlutinn í Reykjavík hefur samþykkt á borgarbúa. Hefur þetta efni birzt jafnóðum og skattahækkanirnar hafa ver- ið samþykktar. Til glöggvunar verður hér birt skrá yfir þær hækkanir á gjöldum, sem sam- þykktar hafa verið, en stór hluti þessara gjalda er á fasteigna- gjaldaseðlunum, sem verið er að bera út þessa daga. Fasteigna- skattur Fasteignaskattur er lagður á allar fasteignir, þ.e. hús og eignalóðir, og reiknast sem ákveðin hlutfallstala af fast- eignamati. Aðalregla laganna er sú, að lagt skuli 0,5% á íbúðar- húsnæði, en 1,0% á fasteignir í atvinnurekstri. Sveitarstjórnum er þó heimilt að veita allt að 25% afslátt eða leggja 25% á ofangreindan grunn. Á s.l. ári veitti borgin tæplega 20% af- slátt og lagði á íbúðarhúsnæði 0,421% og á atvinnuhúsnæði 0,842%. Nú hefur verið sam- þykkt að fella niður afslátt á íbúðarhúsnæði og leggja 25% álag á fasteignaskatt atvinnu- húsnæðis. Álagningarprósentan á íbúðarhúsnæði verður því 0,5% en 1,25% á atvinnuhús- næði. Þetta þýðir 807 millj. kr. í auknar álögur á borgarbúa. Fasteignaskattur af íbúðarhús- næði hækkar um 68,6% að meðaltali, en af atvinnuhúsnæði um 110,8%. Lóðarleiga Lóðarleiga er það endurgjald, sem borgin innheimtir af þeim, sem tekið hafa á leigu lóðir hjá borginni til að byggja á húseign- ir. Lóðarleiga vegna íbúðarhúsa- lóða verður óbreytt, en lóðar- leiga vegna atvinnuhúsnæðis Birgir ísleilur Gunnarsson hækkar úr 0,58% af fasteigna- mati í 1%. Heildarhækkun á lóðarleigu eftir slíkt húsnæði verður 144,8% og er þá hækkun vegna fasteignamats á milli ára meðtalin. Aukaálögur vegna þessa eru 70,6 millj. kr. Aðstöðugjöld Aðstöðugjöld eru lögð sem ákveðin hlutfallstala á útgjöld fyrirtækja og er álagningin mismunandi eftir atvinnugrein- um. Sjálfstæðismenn hafa á undanförnum árum hlíft ýmsum greinum, einkum þeim sem tengdar eru nauðþurftum almennings. Vinstri meirihlut- inn hefur nú samþykkt að fara með allt upp í hæsta lögleyfðan topp. Það þýðir m.a. auknar álögur á rekstur fiskiskipa, fiskiðnað, kjötiðnað, tryggingar- starfsemi, útgáfustarfsemi og matsölur. Ennfremur á mat- vöruverzlanir, en þar er hækk- unin nálægt þreföldun frá því aðstöðugjaldi, sem gilt hefur. Samtals mun þetta hafa í ,för með sér auknar álögur að fjárhæð 757 millj. kr. Kvöld- söluleyfi Allir þeir sölustaðir í borg- inni, sem hafa fengið heimild til að reka kvöldsölur, hafa þurft að greiða sérstakt leyfisgjald í borgarsjóð. Þetta gjald var 50 þús. kr. á s.I. ári. Nú hefur verið ákveðið að hækka það í 240 þús. kr., þ.e. næstum fimmföldun á gjaldinu. Það mun gefa í auknar tekjur um 18,7 millj. króna. PóUinn á ísafirdi: Nota rafeindavog við innviktun á óunnum físki FRAMKVÆMDASTJÓRI Pólsins á ísafirði Ásgeir Erling Gunnars- son. hafði samband við blaðið vegna viðtals við Rögnvald Ólafs- son hjá Raunvísindastofnun há; skólans í útvarpi nýlega. f viðtalinu lét Rögnvaldur að því liggja að á vegum raunvísinda- deildar væri verið að vinna brautryðjendastarf á sviði raf- eindavoga á Islandi. Hið rétta í málinu er. að Póllinn h.f. á Isafirði hóf að hanna rafeindavog til notkunar við innvigtun á óunnum fiski fyrir Ilraðfrysti- húsið Norðurtanga h.f. á árinu 1977. Vogin var tekin í notkun í júlí á síðasta ári og hefur reynst mjög vcl. Vogin. sem komið er fyrir við lyftumótor sem flytur hráefnið frá fiskmóttöku að flökunarvélasal skráir hverja viktun á strimil á skrifstofu fyrirtækisins, ásamt upplýsing- um um fisktegund. Nú er í framleiðslu hjá fyrir- tækinu Völundi í Vestmannaeyj- um flokkunarvél fyrir fisk, sem fara á til Neskaupstaðar. Við flokkunarvélina verður tengd Her sést skrifstofustúlka Pólsins lesa aí strimli síritans á tölvuvoginni, en unnt er að lesa af vigtinni jafnóðum á skrifstofu fyrirtækisins. Ljósm. íllfar. un á þessum tækjum til handa. fiskvinnslufyrirtækjunum fer fram samkvæmt óskum kaupenda og byggir á nánu samstarfi tæknimanna framleiðendanna og fagfólki kaupenda. Sú spurning hefur því vaknað hér vestra, hvort þar sé best nýttur mannafli Raunvísinda- stofnunar háskólans og almannafé við að hanna og framleiða tækni- búnað sem þegar er í notkun hérlendis smíðaður af innlendum fyrirtækjum. Úlfar. tölvuvog frá Pólnum h.f., sem skráir sjálfvirkt hverja viktun inn á sérstaka vinnslutölvu. Öll hönn-

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.