Morgunblaðið - 20.01.1979, Qupperneq 22

Morgunblaðið - 20.01.1979, Qupperneq 22
22 - MOftGUNBLAÍ)!}), LAU«ARDAGUR 20. JANÚAR 197!» Lúðvik Jósepsson formaður Alþýðubandalagsins: Með sparnaði og verðmæta- aukningu má bæta 50 millj- örðum við hagkerfið á ári „í OKKAR efnahaKsmálatillöjí- um ber hæst hajíræðintfu í at- vinnuveKunum. hetri fjárfestin«- arstjórn ug sparnað í hinu aimenna rekstrarkerfi. Að mínu mati væri hæjít með því að framkvæma þessar tillögur að spara og auka á verðmætin í hajíkerfinu. sem ncmur 50 milljörðum króna á einu ári,“ sa»?ði Lúðvík Jósepsson formaður Alþýðubandalajísins er Mhl. spurði hann í uær um efnahatfs- málatillÖKur Alþýðubandalatfsins sem lagðar voru fram á ráðherra- ncfndarfundi í gær. „I þessum tillöffum okkar hytfgjum við á þremur grundvall- aratriðum,“ satrði Lúðvík. „Þau crut full atvinna, minnkandi verðb<')lt;a og verndun umsamins kaupmáttar og síðan auknintf hans eítir því sem tök verða á. Eitt stærsta málið er fjárfest- ingarstjórnin. Við leggjum til að stofnuð verði deild í framkvæmda- stofnun ríkisins til að semja fjárfestingaráætlanir og hafa með höndum eftirlit með því að eftir þeim sé farið. Eitt veigamesta málið í tillög- unum að mínu mati er hagræðing í atvinnurekstrinum. Við leggjum til að útvegaðir verði þrír milljarð- ar til að auka framleiðnina í fiskiðnaði og almennum iðnaði um 10—15%. Þessa þrjá milljarða viljum við láta taka úr gengis- munarsjóði, en þar var áætlað að rynnu í sérstakan hagræðingar- sjóð 1,2—1,3 milljarðar, sem við viljum taka einn af. Annan milljarð viljum við taka af ráð- gerðri fjáröflun til stuðnings iðnaðinum og síðan útvegi ríkið lán, sem nemur einum milljarði. Þetta fé viljum við nota til véla- og tækjakaupa og skipulagsþáttarins. 10—15% markinu í sjávarútvegi mætti auðveldlega ná með því að koma öllum frystihúsarekstrinum upp á það stig, sem nokkur beztu frystihús okkar eru rekin á. Slík framleiðsluaukning i frystiiðnað- inum næmi á ári 10—15 milljörð- um króna, eða svo ég noti saman- burð, sem allir þekkja: 10% framleiðniaukning í fiskiðnaði jafngildir 40% í kaupgjaldslið. Framleiðnin í okkar iðnaði er ennþá verr stödd en í fiskiðnað- inum og þar er því hægt að vinna inn ennþá hærri fjárhæðir. Það er mín skoðun að verði tekizt á við þetta verkefni eigi auðveldlega að vera hægt að lyfta framleiðninni í þessum tveimur þýðingarmestu atvinnugreinum svo að þær legðu þjóðarbúinu til 20—30 milljarða króna til viðbót- ar. Þriðja meginmálið í tillögum okkar er að knýja fram sparnað í almenna rekstrarkerfinu, bæði með rækilegri endurskoðun á opinbera kerfinu og einnig öðrum mikilvægum rekstrargreinum. Eg nefni til bankareksturinn, vá- tryggingafélögin, olíudreifinguna, vöruflutninga að og frá landinu, tryggingastofnunina og spítala- reksturinn, menntamálin, land- helgisgæzluna, Hafrannsókna- stofnunina og Póst og síma. Þessar tillögur okkar Alþýðu- bandalagsmanna um langtímaað- gerðir í efnahagsmálum ganga í grundvallaratriðum í aðra átt en tillögur annarra stjórnarflokka. Höfuðatriðið hjá hinum hefur verið og er ennþá glíma við vísitöluútreikning, að ná fram stöðvun kauphækkana, að ákveðá almennan samdrátt í hagkerfinu með minnkandi lánum eða hækk- andi vöxtum eða niðurskurði í almennum framkvæmdum. Allt eru þetta neikvæðar tillögur, sem leiða til átaka á vinnumarkaðnum ogjafnvel atvinnuleysis. Okkar tillögur ganga í þveröf- uga átt. Þær miða að því að auka það sem verður til skiptanna. Við erum ekki fyrst og fremst að velta því fyrir okkur hvernig eigi að miðla erfiðleikunum niður á launafólk, atvinnurekstur eða opinberar félagslegar fram- kvæmdir. Okkar tillögur miða fyrst og fremst að því að við vinnum okkur upp og fram úr vandanum." Aðspurður um stefnu Alþýðu- bandalagsins í vaxtamálum sagði Lúðvík að í efnahagsmálatillög- unum væri almennt talað um lækkandi vexti með lækkandi verðbólgu. Mbl. spurði hann þá álits á tilíögum framsóknarmanna í vaxtamálum og sagði Lúðvík að hann teldi þær ekki fara langt frá því sem hann gæti fellt sig við. „Ég get vel hugsað mér 7—8% vexti og verðtryggingu á lánum til lengri tíma en 6 mánaða." Varðandi tillögur í vísitölumál- inu sagði Lúðvík að nú væri að störfum nefnd sem endurskoðaði vísitölumálið og vildi Alþýðu- bandalagið bíða eftir niðurstöðum hennar. Mbl. spurði, hvort Al- þýðubandalagið gæti fallizt á að óbeinir skattar og niðurgreiðslur yrðu teknar út úr vísitölunni, eins og framsóknarmenn leggja til og svaraði Lúðvik því neitandi. Um viðskiptakjaravísitölu sagði hann, að Alþýðubandalagið væri mót- fallið hreinni viðskiptakjaravísi- tölu, en hins vegar teldi hann koma til greina að taka tillit til viðskiptakjara þannig að vísitölu- bætur tækju eitthvert mið af þróun þeirra. Steingrímur Hermannsson ritari Framsóknarflokksins: Æskilegt að ná verðbólgunni niður í 15—20 % á næsta ári „í>að hefur verið talað um að það væri æskilegt að ná verðbólgunni niður í 15—20% árið 1980,“ sagði Steingrímur Hermannsson ritari Framsóknarflokks- ins er hann og Guðmundur G. Þórarinsson kynntu efnahagsmálatiilögur Framsóknarflokksins á blaðamannafundi í gær en r Agrein- ingur um gerð fjár- festingar- áætlana I efnahagsmálatillbgum Al- þýðubandalagsins er lagt til að deild í Framkvæmdastofn- un ríkisins annist gerð fjúr- festingaráa'tlunar í samræmi við einróma niðurstöðu nefnd- ar stjórnarflokkanna. sem í sátu Lúðvík Jósepsson. Björn Friðfinnsson og (juðmundur G. Þórarinsson. í tillögum F'ramsóknarflokksins er hins vegar lagt til að gerð fjárfest- ingaráætlunar verði í höndum fjármálaráðuneytisins. en að eftirlit með framkvæmdinni verði í höndum Framkvæmda- stofnunarinnar. tillögurnar voru lagðar fram á ráðherra nefndar- fundi í gærmorgun. Verðbólgan verði undir 30% í árslok 1979 og áframhaldandi hjöðnun verðbólgu 1980. Staða atvinnuveganna verði styrkt og full atvinna haldist. Kaupmáttur umsaminna launa verði tryggður, sérstaklega meðal og lægri launa og félagslegt öryggi verði aukið. Þessum markmiðum verði náð með aðgerðum á sviði fjárfest- ingarmála, ríkisfjármála, kjara- mála, j)eningamála og verðlags- mála. Aherzla er lögð á eftirgreind atriði: Fjárfestingar- og ríkisf jármál Með fjárlögum og fjárfestingar- og lánsfjáráætlun verði mörkuð stefna í efnahagsmálum til fjög- urra ára. Gerð fjárlaga og fjárfestingar- og lánsfjáráætlun verði stórbætt og sveigjanleiki aukinn til þess að hafa áhrif á verðlagsþróun. Eftirlit með framkvæmd fjár- laga og fjárfestingar- og lánsfjár- áætlunar verði stórlega hert. Starfsemi fjárfestingasjóða verði endurskoðuð. Kjaramál Um leið- og lögð er áherzla á viðleitni til að halda þeim kaup- mætti launa sem um hefur verið samið er lagt til; að áfram verði leitað samkomulags við aðila vinnumarkaðarins um félagslegar umbætur í stað launahækkana og nefna framsóknarmenn þar til hækkun húsnæðislána i áföngum í 80% til frumbyggjenda af bygg- ingakostnaði íbúðar af eðlilegri stærð. Breytingar á tilfærslukerfi almannatrygginga, skattafslátta og niðurgreiðslna þannig að við- komandi fjármunir nýtist betur í þágu félagslegs öryggis. Tekju- skattskerfi, sem hefur aukinn félagslegan jöfnuð að meginmark- miði. Bætta framkvæmd skatta- laga, en ófullnægjandi fram- kvæmd, sem m.a. kemur fram í skattsvikum, mismunar þegnun- um. Jöfnuð eignaskiptingar, m.a. með skattlagningu verðbólgu- gróða. Stofnun sameiginlegs verð- tryggðs lífeyrissjóðs allra lands- manna. Vísitöluviðmiðun launa verði breytt þannig að breytingar á óbeinum sköttum og niðurgreiðsl- um hafi ekki áhrif á verðbótavísi- tölu launa. Vísitölubætur taki mið af breytingum viðskiptakjara. Tímabil milli verðbótadaga verði fyrst um sinn lengt í 6 mánuði. Samráði aðila vinnumarkaðar- ins og opinberra aðila um kjara- mál verði komið í fast form og tilhögun vinnutíma og launamála verði tekin til endurskoðunar með það að markmiði að dregið verði úr eftirvinnu og stefnt að því að afnema hana í áföngum í sem flestum starfsgreinum. Vinnutími verði sveigjanlegri, þannig að fjárfesting nýtist betur og auðveldara verði fyrir foreldra að skipta með sér forsjá heimilis. Kjarasamningar verði einfald- ari. Allir launataxtar verði brúttótaxtar og samtökum laun- þega sé meira í sjálfsvald sett hve miklum hluta af launum er varið til félagslegra þarfa. Peningamál „Ég hef sagt það, að ég telji eðlilegt að byrja til dæmis með 8% vexti og 90% verðtryggingu og síðar meir verði vextirnir þetta 3—4% með fullri verðtryggingu," sagði Steingrímur Hermannsson dómsmálaráðherra er hann var spurður á blaðamannafundinum í gær, hvernig framsóknarmenn ætluðu að framkvæma vaxtalækk- un sína. Framsóknarmenn leggja til að vextir verði lækkaðir í áföngum og komið á verðtryggingu inn- og útlána, þannig að höfuðstóll breyt- ist með verðlagsþróun. Verðtrygging hefur áhrif á ýmis önnur atriði, sem þarfnast endur- skoðunar, og má í því sambandi nefna að verðtrygging krefst samræmingar á ákvæðum skatta- og bókhaldslaga um endurmat eigna og meðferð verðbóta. Nauðsynlegt verður að heimila endurmat vörubirgða í samræmi við verðlag. Afborgun og vextir reiknist af verðbættum höfuðstól. Verðtrygging verði reiknuð eftir á í hlutfalli við verðlagsþróun. Þegar um mjög stutt lán er að ræða er ekki talið framkvæman- legt að reikna verðtryggingu eftir á. I þeim tilfellum verði verðtrygg- ing miðuð við áætlaða verðlags- þróun. Samhliða verðtryggingu verði lánstími almennt lengdur. Verðlagsmál I meginatriðum er lagt til að fylgt verði þeim lögum um verðlag o.fl. sem samþykkt voru á sl. ári þar sem stefnt er að frjálslegri verðlagslöggjöf en þó fyrst um sinn með öflugu eftirliti, auglýstu hámarksverði á helztu nauðsynj- um og fleiri aðgerðum til þess að vinna gegn óréttmætum viðskipta- og samkeppnisháttum. Ballett byggður á íslenzkri smásögu NORRÆNA leiklistarnefndin hefur veitt Þjóðleikhúsinu styrk til þess að fá hingað í febrúar finska danshöfundinn Marjo Kuusela sem hingað kom í íyrra með flokk sinn Raatikko og sýndi þá m.a. ballettinn Sölku Völku. Kuusela vinnur nú að samningu bellctts fyrir ís- lenska dansflokkinn og byggir á íslenskri smásögu. Mun Kuusela stjórna uppsetningu hans hér í Þjóðleikhúsinu. Einnig veitti leiklistarnefndin finnskum aðilum styrk til þess að bjóða Þjóðleikhúsinu með leikritið Fröken Margrét til Helsinki um páskana. Verður leikritið sýnt á Lilla Teatern en það er sem kunnugt er Herdís Þorvaldsdóttir sem fer með hlutverk kennslukonunnar í sýningunni.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.