Morgunblaðið - 20.01.1979, Blaðsíða 36

Morgunblaðið - 20.01.1979, Blaðsíða 36
36 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 20. JANÚAR 1979 Vltf> MOR^div- KAffinu GRANI GÖSLARI Flýttu þér! einhver! — Það kemur Var það hjálparstöð dýranna, sem þú sagðir? jSÍM- *í í^J\ jjf t |' 'Á * 'fi * ^ /í i Hvernig á að flýja? BRIDGE Umsjón: Páll Bergsson Hvað hefur hann gert, hvað þýðir það og hvað get ég gert? Þetta eru allt spurningar, sem lesendur þurfa að svara við lausn varnarviðfangsefnis. Fá sér sæti í austri, gefa spilið en norður og suður eru á hættu. Norður S. 74 H. 862 T. K63 * , L. KD1093 g '“ggtur H. D53 T. G974 L. ÁG72 Eftir pass þitt opnaði suður á einum spaða, norður sagði tvö lauf og suður sagði þrjú grönd. Full- komlega eðlilegar sagnir. Útspil spaðakóngur, lágt, og suður lætur áttuna. Vestur skiptir þá í hjarta- gosa og hann fær einnig slaginn. Þá spilar vestur hjartafjarka, sexið, drottning og ás. Sagnhafi spilar þá lauffimmi, áttan frá vestri og tían frá borðinu. Nú tekur þú við. Eftir upphafið má staðsetja bæði ás og gosa í spaða á hendi sagnhafa og í hjarta hefur hann átt ás og kóng ásamt einu smáspili úr því vestur spilaði fjarkanum. Þetta tvennt nægir, því telja má vinningsslagi suðurs með nokkru öryggi, einn í spaða, tveir á hjarta og varla meir en þrír á tígul. Það þýðir, að hann þarf þrjá á lauf og það þarf að koma í veg fyrir. Norður S. 74 H. 862 T. K63 L. KD1093 Vestur Austur S. KD1032 S. 65 H. G1094 H. D53 T. 105 T. G974 L. 84 L. ÁG72 Suður S. ÁG98 H. ÁK7 T. ÁD82 L. 65 Auðvelt er að sjá hvað skeður ef við tökum slaginn. Suður mun þá síðar spila laufi á kónginn, láta okkur síðan fá á gosann og tígulkóngurinn gerir honum kleift að ná laufslögunum. Við gefum því lauftíuna og sagnhafi getur ekki náð nema átta slögum. COSPER 1 r W2 COSPER Ég ætla að fá þessa. — Ég á nefnilega að létta mig á morgun, sagði læknirinn! „Þær fréttir berast nú frá Kambódíu að Víetnamar og skæruliðar hafi lagt Tandið undir sig með hervaldi. Þá minnast margir íslendingar þess að fyrir nokkrum árum kröfðust þeir þess að Bandaríkin færu frá Víetnam svo að þjóðin gæti lifað í friði eins og þeir sögðu þá og þeir hinir sömu hina rauðu Khmera í Kambódíu alveg rétt kjörna til að fara með öll völd þar í landi. Vill nú ekki þetta ágæta fólk lýsa skoðun sinni á ágæti þeirra stjórnarhátta er verið hafa í Kambódíu og Víetnam á síðustu árum. Þá geta þeir í leiðinni gefið okkur Islendingum góð ráð ef til þess skyldi koma að Islendingar fengju samskonar stjórn; væntan- lega hafa þeir óskað þess. Fréttir segja að mikill fjöldi manna flýi Kambódíu og Víetnam á prömmum og trjábátum, yfir- leitt öllu því sem getur flotið. Hvernig hugsar þetta fólk sér að flýja héðan. Það er jú flúið meira eða minna frá öllum kommúnista- ríkjunum í dag og ekki er það auðvelt að komast frá íslandi að minnsta kosti ekki á svipuðum farkostum og notaðir eru við Víetnam og Kambódíu. Ef einhverjir vilja koma á kommúnistastjórn hér á Islandi ætti þeir einnig að gefa fólki ráð til að flýja landið, það gæti bjargað mörgum mannslífum. Lýðræðissinnaðir Islendingar, gætið þess að frelsið það er lífið. Björgvin Þóroddsson, Garði.“ • Alltof margir „Velvakandi. Einhver nafni minn, er ritað hefir tvívegis í dálka þína nýverið, hefir með undirskrift sinni valdið þeim misskilningi hjá mörgum, að undirritaður væri höfundur þeirra greina. Hef ég því fengið lof sem mér eigi bar, hjá þeim er styðja málstað og sjónarmið greinarhöf- undar, en last frá öðrum, er taka upp þykkju fyrir þann sem að er vegið. Um innihald pistla þeirra er nafni minn ritar skal ég ekki fjölyrða. Sjálfsagt gætum við orðið sammála um ýmsa þætti er varða skýrslu um Ríkisútvarpið, að margt hefði mátt betur fara þár. Að því er tekur til fullyrðinga Péturs nafna míns um að Ólafur Ragnar Grímsson sé „leiðinlegasti þingmaðurinn" gæti skýringar á þeirri afstöðu bréfritara verið að leita á nafnaskrá hluthafa Flug- leiða og Eimskipafélagsins og hagsmunasamstöðu með þeim félagsskap. Haukur Guðmundsson, sá er pressari var nefndur, var tíður gestur á heimili mínu. Hann var „Fjólur — mín Ijúfa" Framhaldssaga eftir Else Fischer Jóhanna Kristjórisdóttir pýddi 38 hafi verið á skógarveginum verða þeir auðvitað að rann- saka það, sagði Martin. — og jafnskjótt og þeir hafa lokið því af fara |)eir. — Eí hann hcfur verið þar og ef hann hefur keyrt út af, eða það hefur verið keyrt á hann. þá er ekkert annað að gera en finna manninn sem gerði það og handtaka hann. — Það hefur sjálfsagt verið sami fulii maðurinn sem sló Susanne niður ... nema það hafi verið Susanne sem keyrði yfir Einar, sagði Gitta. og settist á stólarminn hjá Martin og hallaði sér kumpánlega að honum. Susanne starði á hana, orð- laus um hríð. — Að ég hafi keyrt mann niður! Af hverju ætti ég þá að vera að röfla um árás á mig. — Vegna þess að þú hefur auðvitað vitað að þetta kæmist upp fyrr eða síðar. Þú hefur víst fundið hjá þér þörf til að reyna að haktryggja þig. Gitta horfði á Susanne full fyrirlitningar. — Nei... nú líst mér á ... byrjaði Susanne. — Nú er nóg komið. Gitta. Það var Martin sem greip fram í, en komst ekki lengra því að dyrnar að bókasafninu opnuð- ust og út kom Lydia sem hafði verið kölluð inn til „skrafs og mas“ eins og Bernild kallaði það. Hún var mjög föl, en mjög róleg. En áfjáð tók hún við koníaksglasi sem Herman rétti henni. — Góða dreyptu á þessu. Þú lítur illa út. Magna frænka klappaði á setuna við hlið sér. — Mér líður líka illa. Lydia lét fallast á stólinn eins og fæturnir neituðu að bera hana lengur. — Mér fyndist það hræðilegt ef... Hún hikaði og horfði beint framan í Susanne. — Ef það hefur verið keyrt á einhvern í grennd við Eikar- mosabæ án þess að viðkomandi hafi fengið nauðsynlega hjálp og aðhlynningu. — Hvað áttu við? Nú var það Martin. — Ég meina bara það sem ég segi. Susanne kom í gær og röflaði eitthvað um að hún hcfði snarstansað hjá dauðum manni sem lá á miðjum veginum... — Ég sagði ekki að hann væri dáinn, tautaði Susanne. — Það skiptir ekki öllu, hélt Lydia áfram. — Þú komst hingað og sagðir frá því að maður hcfði legið á veginum. en það er staðreynd að þú hjálpaðir honum ekki og að þú fannst á allt öðrum stað og maður hefur fyrr heyrt að ökumenn sem hafa keyrt á fólk hafi fyllzt skelfingu ... — Þú átt scm sagt við... Susanne horfðist óhikað í augu við Lydiu og svo hvarflaði hún augum á Gittu sem horfði á hana sigri hrósandi. — Þú og Gitta eruð sem sagt á því að ég hafi flúið af slysstað af ótta við að vera ákærð fyrir manndráp af gálcysi og skilið þar af leiðandi meðvitundar lausun mann eftir og í ofanálag búið til sögu mér til verndar. — Já, ætli við séum ekki flest á þessari skoðun, svaraði Lydia. Það varð dayðakyrrð í stof- unni. Meira að segja lögreglu- maðurinn gleymdi að látast vera að lesa blaðið og horfði til skiptis á fólkið. — Þú gleymir víst að þú ert að tala við unnustu mína... Itödd Martins skalf af niður bældri reiði, en hann var samstundis talaður í kaf af hinum. Gitta sagði hæðnislega. — Einhvcr kvenpersóna sem þú hefur þekkt í fáeina mánuði — og hlaut óspart stuðning frá Lydiu sem kinkaði kolli í ákafa

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.