Morgunblaðið - 20.01.1979, Side 38
38
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 20. JANÚAR 1979
Sundurslitin 1. deildar-
keppnin enn í járnum
ÞÓ AÐ JANÚAR sé nú rúmlega hálfnaður, hafa þau lið sem flestum leikjum hafa lokið í 1. deild handboltans,
aðeins leikið 7 leiki. Valsmenn eru sér á báti með sína 5 leiki, þar sem tveimur leikja þeirra var frestað vegna
leikja Valsmanna og Dynamo Búkarest á sínum tíma. Þá hefur FH lokið 6 leikjum eins og HK, en önnur lið
hafa leikið 7 leiki. 1. deildin hefst um helgina á nýjan leik, en að vanda hefur íslandsmótið verið klippt í
sundur. Að þessu sinni vegna undirbúnings landsliðsins fyrir Spánarkeppnina í febrúar.
Staða Vals sterkust
Það er sannarlega nóg eftir af
mótinu til þess að allt geti gerst.
Samkvæmt venju veðja flestir á
Val eða Víking. En með góðum
spretti gætu ýmis lið skákað þeim,
ekki síst FH eða Haukar og jafnvel
Frammarar. Þá gæti það farið illa
með Víking og Val, að landsliðs-
kjarninn er byggður upp úr þeim
liðum og þau gætu hæglega átt
erfitt uppdráttar eftir HM á
Spáni, þegar þau endurheimta
landsliðsmenn sína örþreytta eftir
stranga ferð.
Fallbaráttan er óljós. Neðstu
liðin HK, Fylkir og ÍR hafa síður
en svo sýnt lakari leiki heldur en
efstu liðin þegar þeim tekst vel
upp og nægir að benda á úrslit eins
og Fylkir — Víkingur 23—24,
Haukar — HK 19—20 og fleiri
mætti telja. I stuttu máli er mótið
allt eins og það leggur sig í
járnum. Staðan í fyrstu deild er nú
þessi:
Víkingur 7 5 1 1 159-143 11
Valur 5 4 1 0 99-84 9
FII 6 4 0 2 118-102 8
Ilaukar 7 4 0 3 149-142 8
Fram 7 3 0 4 140-153 6
ÍR 7 2 1 4 124-136 5
Fylkir 7 1 2 4 126-135 4
HK 6 1 1 4 108-122 3
Svo sem sjá má, er staða
Valsara sterkust, en auðvitað
getur allt gerst eins og menn vita
mæta vel.
Sömu menn
markahæstir
Síðast þegar Mbl. birti lista yfir
markahæstu leikmenn 1. deildar,
21. nóvember síðastliðinn, var
Gústaf Björnsson Framari marka-
hæstur með 27 mörk, Geir Hall-
steinsson hafði skorað 26 mörk og
Hörður Harðarson, Haukum, hafði
skorað 25 mörk. A þessu stigi
mótsins eru þessir sömu leikmenn
jafnir og efstir með 41 mark hver.
Það er einkum félagi Gústafs, Atli
Hilmarsson, sem veitir þeim ein-
hverja keppni að ráði. Afrek
Gústafs er fyrir ýmsar sakir
merkilegast, ekki síst vegna þess
að að hann hefur misst úr einn
leik. Þá hefur Geir aðeins leikið 6
leiki, en Hörður 7. Gústaf fær ekki
tækifæri til að bæta við sig
mörkum um helgina, þar sem
hann neyðist til að taka út
leikbann sem búið er að skella á
hann. Er þar skarð fyrir skildi hjá
Fram. Markahæstu leikmenn 1.
deildar eru þessir:
Gú.staf Björnssun Fram 41
Geir Hallsteinsson FH 41
IIörAur IlarAarsun Haukum 41
Atli Hilmarssun Fram 37
Gunnar Bjarnason Fylki 31
Páil Björnvinsson Vfkingi 29
Brynjólfur Markússun ÍR 29
GuAjún Marteinssun ÍR 28
Björn Blnndal IIK 27
Þorbjörn GuAmundsson Val 23
Erlendur Hermannsson Vík. 22
Ólafur Einarsson Vík. 22
Víkkó SijjurAsson Vík. 21
Jón Pétur Jónsson Val 21
flilmar SiKurxíslason HK 21
Einar Einarsson Fylki 20
Stefán Ilalldórsson IIK 20
Ólafur Jónsson VikinKÍ 20
Árni IndriAason Vík. 20
Jens er
stigahæstur...
... en mjóu munar þó á honum
og næstu mönnum. Fáir munu þó
deila um að Jens á fyllilega skilið
að vera í efsta sætinu í stigagjöf
Mbl. á þessu stigi. Að öðrum
ólöstuðum hefur hann sýnt jöfn-
ustu leikina og varið markvarða
best í 1. deild. Staðan í þessari
töflu er þó ófljós og munu ýmsir
sakna þar Valsmanna. Það á sér
eðlilegar ástæður, því að eins og
fyrr segir, hafa Valsmenn leikið
tveimur leikjum minnna en flest
hinna félaganna og munu því
ýmsir Valsmannanna koma til
álita þegar fram í sækir.
Jens er með 22 stig, en Hörður
Harðarson, stórskyttan úr Hauk-
um, hefur hlotið 21 stig í jafn-
mörgum leikjum og Jens. Arni
Indriðason, Páll Björgvinsson og
Atli Hilmarsson eru á næstu
grösum með 20 stig, einnig eftir 7
leiki. En stigahæstu leikmenn
Islandsmótsins eru á þessu stigi
eftirfarandi. Leikjafjöldi innan
sviga:
Jrns Einarsson ÍR 22(7)
IIörAur HarAarson Hauk. 21(7)
Árni IndriAason Vfk. 20(7)
Páll BjörKvinsson Vík. 20(7)
Atli Hilmarsson Fram 20(7)
Erlendur Hermannsson Vík. 19(7)
BirKÍr Jóhannesson Fram 18(7)
SÍKUrberKur SÍKsteinss. Fram 18(7)
Andrés Kristjánsson Hauk. 18(7)
Gcir Hallsteinsson FH 17(6)
Gústaf Björnsson Fram 17(7)
Jón Gunnarsson Fylki 17(7)
Einar ÁKÚstsson Fylki 17(7)
Ólafur Jónsson Vík. 17(7)
Saemundur Stefánsson FH 16(6)
Einar Einarson Fylki 16(7)
Þórir Gíslason Haukum 10(7)
Guójón Marteinsson lR 16(7)
Brynjólfur Markúss. ÍR 16(7)
49 varin víti
Islensku markverðirnir hafa
varið eigi færri en 49 vítaköst og
fullyrða má, að ekki miklu færri
hafa farið forgörðum á annan
hátt. Þeir markverðir sem flest
vítin hafa varið, eða 7 hvor, eru ný
nöfn í íslenskum handknattleik.
Þeir eru Jón Gunnarsson hjá
Fylki, sem leikið hefur svo vel í
vetur, að hann lék sinn fyrsta
landsleik eigi alls fyrir löngu.
Hinn er Gunnlaugur Gunnlaugs-
son í Haukum, Islandsmeistur-
unum í maraþonhandbolta. Gömlu
brýnin, Magnús Ólafsson FH og
Kristján Sigmundsson Víkingi, eru
skammt undan með 5 varin
vítaköst hvor. Þar af varði Kristj-
án 3 sinnum í sama leiknum, gegn
Haukum í Hafnarfirði. Annar
nýliði í 1. deild, Einar Þorvarðar-
son HK, hefur einnig varið 5
vítaköst í vetur, svo og stigahæsti
leikmaður Mbl. Jens Einarsson.
Ólafur Benediktsson hefur hirt 4
víti og Guðjón Erlendsson Fram 3
víti.
Víkingar utanvallar
í 53 mínútur!
Það er ekki síður fjörugt að
fylgjast með hvaða einstaklingum
hefur oftast verið vikið af velli.
FH-ingar voru í ótvíræðu forystu-
sæti síðast þegar Mbl. tók saman
skýrslu og birti. En síbrotamenn
Víkings hafa skotist fram úr þeim
og vantar þá aðeins 7 mínútur upp
á að hafa leikið einum færri sem
svarar einum leik. Útilokun Ólafs
Einárssonar, auk örra brott-
rekstra Páls, Viggós, Erlends og
Árna vega þungt. En Víkingar
hafa aldeilis ekki hrist hina sterku
FH-inga af sér. Þeir eru á hælum
Víkinga með aðeins 3 mínútum
minna, eða samanlagt 50 mínútur.
Gils Stefánsson er þarna að vanda
eins og kóngur í ríki sínu, með
samanlagt 16 mínútur utan vallar.
Valgarð tekur einnig fast á
andstæðingum sínum og hefur
verið kældur samanlagt í 12
mínútur.
Víkingur og FH virðast vera í
sérflokki á þessu sviði, því að það
lið sem næst þeim kemur, Fram,
hefur aðeins 37 mínútur alls, þar
af Gústaf Björnsson í 13 mínútur.
Prúðastir til þessa eru Valsmenn
með aðeins 8 mínútur. En menn
verra hjá Fram og FH. Fram
hlýtur að hafa það.
Botnbaráttan er einnig frekar
skýr. Breiðablik hefur tekið sig á
og fellur varla. Þór frá Akureyri
hefur enn ekki hlotið stig og
vermir því botnsætið. Liðið hefur
að vísu leikið mun færri leiki en
hin liðin, en eigi að síður virðist
ekkert annað en fall bíða þess. Og
Ioks er að geta Víkings. Liðið er
mikið fyrirbæri, hóf mótið sterk-
lega með jafnteflum við Val og
FH, en síðan hefur liðið verið svo
lélegt, að varla er hægt að lýsa því
með orðum. Leikir Þórs og Víkings
gætu orðið athyglisverðir í meira
lagi. En nógur tími er fyrir bæði
liðin að taka sig á. Staðan í 1. deild
kvenna er þessi:
Fram
FH
Valur
Ilaukar
KR
BreiAablik
VíkinKur
Þór Ak.
8 7 0 1 102-61 14
6 4 1 1 85-73 9
6 3 1 2 77-72 7
7 3 1 3 64-84 7
7 3 0 4 80-78 6
6 2 1 3 49-71 5
6 0 2 4 57-76 2
4 0 0 4 39-58 0
skyldu ekki láta blekkjast um of,
Valsmenn hafa aðeins leikið 5 leiki
eins og kemur fram hér að framan.
Eigi að síður er meðaltalið lágt hjá
Val. Gott hjá þeim.
Örugg íorysta
Fram
Línurnar eru skýrari í 1. deild
kvenna en í karladeildinni. Fram
hefur örugga forystu. FH getur
minnkað muiiinn í 1 stig með því
að vinna tvo leiki sem liðið á til
góða, en það eru engan veginn
gefin stig, ekki síst vegna þess að
lið FH hefur ekki verið eins
sannfærandi og lið Fram. Nema
þ.e.a.s. þegar FH vann Fram fyrr í
vetur, en það er eini tapleikur til
þessa. Valur, Haukar og KR gætu
komið til álita, en ekki nema
gífurleg breyting verði til hins
Markhæstu konurnar erui
Oddný Sigsteinsdóttir Fram 28
Margrét Theodórsd. Haukum 28
Hansína Melsteð KR 27
Harpa GuÓmundsd. Val 25
Ingunn Bernódusdóttir Vík. 25
Guðríóur Guðjónsdóttir Fram 23
Svanhvít Magnúsdóttir FH 21
Erna Lúóvíksdóttir Val 21
Hrærigrautur
á toppinum
I fljótu bragði virðist sem
baráttan um tvö efstu sæti 2.
deildar muni standa milli Ár-
menninga, sem eru efstir, Þórs frá
Akureyri og KR, sem bæði hafa
aðeins einu stigi minna en Ár-
mann. Eigi alls fyrir löngu hefði
ekki nokkuð maður hikað við að
nefna Þór frá Vestmannaeyjum,
þegar talað var um toppsætin, en
svo undarlega hefur brugðið við,
að Þórsliðið hefur sprungið alger-
lega. Síðustu tveir leikir liðsins í
Reykjavík gegn Þrótti og Ármanni
voru hrein leikleysa frá hendi
Þórs. Liðið er byggt í kringum
aðkomumenn, Framarana Hannes
Leifsson, Andrés Bridde og Ragn-
ar Hilmarsson. Sé fylgst vel með
þeim í leikjum, hrynur til grunna
allur leikur Þórs. Það er nú altalað
í Eyjum, að þeir þremenningar
hyggi ekki á Eyjadvöl næsta
keppnistímabil og hefur auk þess
heyrst, að Þór kunni einnig að sjá
af sínum snjallasta heimamanni,
Herbert Þorleifssyni, sem mun
hyggja á nám á meginlandinu
næsta vetur. Má með nokkurri
vissu reikna dæmið um toppbar-
áttu 2. deildar án þess að taka
Eyjaþór með. Það borgar sig þó að
fullyrða sem minnst.
Botnbaráttan virðist nokkuð skýr
og hefur léleg frammistaða
Stjörnunnar komið verulega á
óvart, en litlu munaði að liðið
kæmist nærri 1. deildinni síðast-
liðinn vetur. Ef svo heldur sem
horfir verða einu sigurleikir
Stjörnunnar auk sigursins gegn
KA frá haustinu leikirnir tveir
gegn Leikni. Um félagið það er
best að segja sem allra minnst.
Staðan í 2. deild er nú þessi:
Ármann 8 5 2 1 175-173 12
KR 7 5 1 1 180-135 11
Þór Ak. 8 5 1 2 151-136 11
Þór Vc. 7 4 1 2 120-127 9
Þróttur 7 3 1 3 162-156 7
KA 7 3 0 4 118-112 6
Stjarnan 6 1 0 5 120—134 2
Leiknir 7 0 0 7 97-175 0
Hamskiptingurinn
Konráð Jónsson
Konráð Jónsson Þrótti er mark-
hæstur í 2. deild. Og aðrir eins
yfirburðir hafa varla sést. Konráð
hefur skorað 79 mörk í 7 leikjum
og guð má vita hvað hann væri
búinn að skora mörg, ef hann hefði
ekki farið rólega af stað og skorað
„aðeins" 14 mörk í tveimur fyrstu
leikjunum! Nú skorar hann ekki
undir 10 mörk í leik og er það
fátítt meðaltal. Konráð skorar
lítið úr vítaköstum, en næsti
maður á eftir honum, Ármenning-
urinn Björn Jóhannesson, hefur
skorað 31 mark af 49 úr vítum.
Markhæstu menn eru þessir:
KonráÓ Jónsson Þrótti 79
Björn Jóhannesson Árm. 49
Hannes Leifsson Þór Ve. 47
SigtrygKur GuÓlaugss. Þór Ak. 41
Sigurður SigurÓarson Þór Ak. 41
Björn Pétursson KR 40
Friðrik Jóhannsson Ármanni 33
Símon Unndórsson KR 32
Yfirburðir Týs
Loks skulum við líta á stöðuna í
3. deild, en þar virðist eitt lið vera
að skera sig úr. Týr frá Vest-
mannaeyjum hefur til þessa unnið
alla leiki sína og er því með fullt
hús stiga í efsta sætinu. Týrarar
leika síðustu útileiki sína um
helgina og eru það erfiðir leikir,
gegn Aftureldingu og Breiðablik.
Staðan er nú þessi:
Týr
Aftureiding
Grótta
UBK
ÍA
Njaróvík
fBK
Dalvík
6 6 0 0 140-109 12
7 5 1 1 135-122 11
6 4 0 2 127-115 8
7 3 1 3 146-140 7
7 3 0 4 139-130 6
6 2 0 4 125-138 4
5 1 0 4 89-115 2
6 0 0 6 109-141 0