Morgunblaðið - 02.02.1979, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 02.02.1979, Blaðsíða 1
32 SÍÐÚR 27. tbl. 66. árg. FÖSTUDAGUR 2. FEBRÚAR 1979 Prentsmiðja Morgunblaðsins. „Lýðveldi íslams komið á — útlendingar gerðir burtrækir” — sagði Khomeini við komuna til Teheran í gær Teheran, 1. febrúar. AP. Reuter. „ÉG MUN koma á ríkisstjórn í íran með stuðningi fólksins og þar sem tvær stjórnir geta ekki verið samtímis í sama ríkinu verður hin ólöglega stjórn Bakthiars að fara frá,“ sagði íranski trúarleiðtoginn Ayatollah Ruhollah Khomeini við komuna til Teheran í dag. Khomeiiífr kvað sigur múhameðstrúar í landinu aðeins mundu geta náð fram að ganga ef „hendur útlendinganna“ verða höggnar og erlend áhrif í íran upprætt. Er talið að með þessum ummælum hafi Khomeini einkum átt við bandarísk áhrif. Þota Khomeinis lenti snemma í morgun á flugvellinum í Teheran en þar var saman kominn gífurleg- ur fólksfjöldi til að taka á móti trúarleiðtoganum, sem ekki hefur stigið fæti á íranska jörð í nærfellt hálfan annan áratug. Eitt þúsund manns var boðið í sérstaka mót- töku í flugstöðinni, en þaðan flaug Khomeini í þyrlu inn í borgina. Khomeini var sigri hrósandi og sagði í ræðu sinni við komuna, að hann og stuðningsmenn hans væru á sigurbraut og héðan í frá yrði ekki komið í veg fyrir að íranska þjóðin sameinaðist undir merkjum Islams. I ræðu sinni hét Khomeini á herinn að veita sér stuðning og sagði að herafli landsins yrði eftir sem áður að vera öflugur, en án tengsla við vestræn ríki. Herinn hafði hægt um sig í dag, en flestir foringjar hans eru taldir hollir keisaranum og stjórn Bakhtiars. Engin átök urðu í Teheran við komu Khomeinis og í fyrsta sinn í nærri því ár, er talið að ekki hafi verið hleypt af einu einasta skoti í borginni. Stjórn Bakhtiars lét ekki frá sér heyra í dag og er talið að forsætis- ráðherrann bíði átekta á meðan fagnaðarlætin vegna komu Khom- einis ganga yfir. Bakhtiar hefur marglýst því yfir, að hann muni ekki nokkurn tíma afsala sér völdum í hendur Khomeinis og er uppgjör milli þeirra tveggja af flestum talið óhjákvæmilegt innan skamms. Khomeini og fylgdarlið hans hafa fengið til umráða skólahús í borginni, en búizt er við að hann haldi bráðlega til hinnar helgu borgar Gom í um 150 km fjarlægð frá Teheran, en þar var hann trúarleiðtogi áður en keisarinn vísaði honum úr landi árið 1964. Khomeini hélt að mestu kyrru fyrir eftir komuna á aðseturstað sinn og búizt er við að hann hvílist á morgun, föstudag, á hvíldardegi múhameðstrúarmanna. Khomeini í bíl á leið til Teheran frá flugvellinum umkringdur fylgismönnum sínum. Talið er að um tvær milljónir manna hafi fagnað komu hans til borgarinnar í gær. (Símamynd AP) „Sovétríkin seilast til áhrifa í Kína” - segir Teng Hsiao-Ping í Bandarík junum Atlanta. 1. febrúar AP — Reuter KÍNVERSKI aðstoðarforsætis- ráðherrann Teng Hsiao-Ping, sem nú er í opinberri heimsókn í Bandaríkjunum, sakaði Sovétrík- in í kvöld um að reyna að koma Kína inn á áhrifasvæði sitt. Teng sagði að þjóðskipulagið í Sovét- ríkjunum bæri ekki merki um sannan sósíalisma heldur sósíal- íska heimsvaldastefnu. Teng lét þessi orð falla á fundi með frétta- mönnum í borginni Atlanta í Georgíufylki, en þangað kom hann í dag í fyrsta áfanga fimm daga ferðar sinnar vftt og breitt um Bandarfkin. Teng mun skoða fyrirtæki og stofnanir í ferð sinni og kynna sér ýmsar tækninýjungar af eigin raun. Hópur andstæðinga Rauða-Kína stóð framan við hótel Tengs í Atlanta og mótmælti komu hans, en ekki kom til neinna átaka. Áður en Teng hélt frá Washing- ton í morgun var gefin út sameig- inleg tilkynning hans og Carters Bandaríkjaforseta um viðræður þeirra að undanförnu. Segir þar að leiðtogarnir hafi átt vinsamlegar og gagnlegar viðræður. Jafnframt segir að báðir leiðtogarnir leggist gegn tilburðum annarra ríkja til þess að leggja undir sig eða drottna yfir öðrum og telja frétta- skýrendur að hér sé um augljósa sneið til Sovétríkjanna að ræða. í frétt sovézku fréttastofunnar Tass í dag frá Washington er farið harkalegum orðum um ummæli Tengs á meðan á dvöl hans í Washington stóð og Bandaríkin eru krafin skýringa á því hver afstaða þeirra sé til niðrandi ummæla Tengs um Sovétríkin. í gærkvöldi átti Teng óvæntan fund með Sihanouk fyrrum þjóð- arleiðtoga í Kambódíu. Hittust þeir í gestahúsi Bandaríkjastjórn- ar, þar sem Teng dvaldist meðan hann var í Washington. Ekkert var látið uppi um hvað þeim Teng og Sihanouk fór í milli. Ayatollah Khomeini, trúarleiðtogi múhameðstrúarmanna í Iran, stígur út úr júmbóþotu franska flugfélagsins Air France í Tehcran í gær ásamt fylgdarliði sínu eftir 14 ára útlegð. (Símamynd AP) Spjótum beint að bama- spítölum í Bretlandi Llkum sökkt í sjó? London, 1. (ebrúar. Reuter — AP VERKFÖLLUNUM í Bretlandi linnir ekki. Verkfallsmenn ákváðu í dag að beina spjótum sínum næst að barnaspítölum í London og ákvað samhand opinberra starfsmanna að starfsfólk í eldhúsi og göngum í Ormond Street-barnaspítalanum skyldi leggja niður vinnu í fjóra tíma í dag. Jafnframt var boðað 24 tíma verkfall þessara aðila á sama spítala og iiðrum harnaspítala frá og með miðnætti. Callaghan forsætisráðherra fordæmdi þessar aðgerðir mjög harðlega í þinginu í dag og sagði það ekki sæmandi að meina sjúklingum, börnum eða fullorðnum. um mat og aðhlynningu. í Ormond Street-spítalanum dveljast fyrst og fremst börn með langvarandi sjúkdóma. Thatcher, leiðtogi brezka í- haldsflokksins, hvatti í dag stjórnina til að skipuleggja sveitir sjálfboðaliða til að koma læknum og hjúkrunarliði til aðstoðar á þeim spítölum, sem orðið hafa fyrir barðinu á verk- föllum. Víða í London og í öðrum borgum Bretlands eru nú stórir haugar af sorpi, sem stefnt geta heilbrigði íbúanna í háska, og verkföll starfsfólks í skólum hefur lamað starfsemi þeirra víða í landinu. í Liverpool hefur komið til tals að sökkva likum í sjó á hafi úti, en greftrunarmenn í borg- inni eru í verkfalli og hafa safnast fyrir ógrafin lík. Ástand þetta er talið geta skapað alvar- leg heilbrigðisvandamál innan tíðar. Verkfallsmenn féllust í dag á að grafa þau 60 lík, sem mest lá á að grafa. Verkfall vörubílstjóra virðist vera á enda og kom stór hluti þeirra aftur til starfa í dag eftur fjögurra vikna verkfall, sem leiddi til 21% launahækkunar.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.