Morgunblaðið - 02.02.1979, Blaðsíða 5

Morgunblaðið - 02.02.1979, Blaðsíða 5
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 2. FEBRÚAR 1979 5 Hilmar Þorbjörnsson lögregluvarðstjóri: Hvad eru mann- rétt- indi? í dag las ég í Morgunblaðinu írétt þess efnis að dómsmálaráðu- neytið hefði sent út tilskipun til allra lögreglustjóra á landinu þess efnis, að þeim bæri að láta fjarlægja sjónvarpstæki úr varð- stofum lögreglunnar fyrir 1. júní næstkomandi. Tekið er sérstak- lega fram, að útvarpstæki megi vera á stöðvunum, enda geti þau verið nauðsynleg í mörgum til- fellum. Svo var nú það. Frétt þessi vakti mikla kátínu meðal lögreglumanna í morgun, enda varla á öðru von. En það var bara 1. febrúar en ekki 1. apríl, og menn líta hver á annan. Getur það raunverulega verið að frétt þessi sé rétt? Ójá! Það á að banna lögreglumönn- um að horfa á sjónvarp. Mér er spurn? Hvenær kemur að útvarpinu og blöðunum? Eiga lög- reglumenn von á því á næstunni? Ég vil taka það fram, að ég er ekki neinn sérstakur sjónvarps- unnandi, síður en svo, en ég óttast svona bönn. Ég tel það sjálfsögð mannréttindi að eiga þess kost að mega hlusta og horfa á ríkisfjöl- miðla á mínum vinnustað þegar stund gefst. Ég vil ekki fullyrða um lágalega hlið þessarar tilskip- unar, en lýðræðisleg er hún ekki. Stór hópur lögreglumanna vinnur á vöktum alla daga ársins og fer margs á mis sem aðrir njóta. Það er hlutskipti þeirra. Hins vegar vona ég að samtök lögreglumanna hvar sem er á landinu láti fara fram athugun á því hvort tilskipun þessi eigi við lög að styðjast. Með vinsemd, Hilmar Þorbjörnsson, lögregluvarðstjóri, Reykjavik. Laugar- nesbúar Eins og ykkur mun kunnugt er hafin bygging fyrri áfanga safnaðarheimilis við Laugarnes- kirkju. í þessum hluta byggingar- innar er samkomusalur, eldhús, snyrting og lítil herbergi. Ákveðið er að ganga frá grunni og steypa botnplötu í vetur. Við stefnum að því að gera þennan hluta heimilisins fokheldan næsta sumar. Ekki þarf að rökstyðja hve þýðingarmikið það er að geta gengið frá svæðinu umhverfis bygginguna sem allra fyrst. En þetta kostar mikið fé. Fjáröflunar- nefnd safnaðarheimilisins hefur ákveðið að hafa almennan söfnunardag í Laugarnessókn á morgun, laugardaginn 3. febrúar, og næstu daga. Gengið verður í hús og fólk beðið um fjárframlag. Gjafir til safnaðarheimilisins eru skatt- frjálsar. Við treystum því þessu verði vel tekið og fólk leggi eitthvað af mörkum, hver eftir sinni getu, til stuðnings þessu mikilsverða máli. Minnumst þess að margt smátt gerir eitt stórt. Þorsteinn Ólafsson formaður sóknarnefndar Laugarnessóknar. Súperútsalan okkar margumtalaða Orugglega ein stór- kostlegasta útsala sem haldin hefur veriö afsláttur í fullum gangi í 6 verzlunum samtímis -- ""v"" — — — ““ —““ \ Þetta getið þið fengið á útsölunni: Föt m/ og án vestis úr terelyne, 100% ull og riffluöu flaueli. Verö frá kr. 25.900.- Staka blazer og tweedjakka ......................Kr. 19.900 Herra- og dömu fiauels- og tereiynebuxur.........Kr. 7.900 Herra- og dömu denimbuxur........................Kr. 6.900 Axlabandabuxur fulloröinna.......................Kr. 8.900 Axlabandabuxur unglinga og barna.................Kr. 5.900 Dömudragtir úr fínflaueli ...................... Kr. 25.900 Dömu punkjakkar úr kakhi.........................Kr. 10.900 Herra sjóliðajakkar og vatteraöir mittisjakkar..........................Kr. 14.900 Vatteraöar kakhi mittisúlpur.....................Kr. 9.900 Stórkostlegt úrval af: Herrapeysum ★ Dömupeysum ★ Skyrtum ★ Blússum Bolum ★ Pilsum ★ Kjólum ★ Kápum og ýmsum barna- fatnaöi og skóm. ---------------—------------------------- Nokkur sett af fermingarfötum úr riffluöu flaueli Verö kr. 19.900 TlZKUVERZLUN UNGA FÓLKSINS Wkarnabær Laugaveg 66 Austurstræli 22 Glæsibæ Simi 28155 Vi )

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.