Morgunblaðið - 02.02.1979, Blaðsíða 22

Morgunblaðið - 02.02.1979, Blaðsíða 22
22 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 2. FEBRÚAR 1979 Sigríður Gísladótt- ir—Minningarorð Fædd 20. júlí 1897. Dáin 26. janúar 1979. Stundum gerist það á lífs- leiðinni, þegar okkur liggur ef til vill við að örvænta um mannkynið í öllum þess grimmilegu æðisköst- um og vonskuverkum, að óvænt birtir í kringum okkur, ekki frá rafmagnsljósi, tungli eða sól, heldur frá mannveru sem orðið hefur á leið okkar, og þá förum við aftur að trúa því að mannkynið geti náð þroska og átt framtíð fyrir sér. Eitt slíkt ljós er nú nýverið slokknað, en bjarmi þess lifir áfram innra með þeim sem fengu að njóta þess. Það var þegar við hjónin höfðum sest að á Ljósvallagötu 32 hér í Reykjavík og búið þar skamma hríð, að barið var létt á hurðina hjá okkur. Inn kom bjartleit kona, nokkuð við aldur, fríð sýnum, og sagðist vera í leiðinlegum erinda- gerðum. Hún kom ofan af efri hæðinni og erindið var að færa okkur hitareikning, því hún hafði það embætti að reikna út hlut hverrar íbúðar í sameiginlegum hitakostnaði. Þessi kona var Sigríður Gísladóttir sem bjó á efri hæð hússins ásamt eiginmanni sínum, Guðmundi Bjarnasyni sem nú er kominn á tíræðisaldur, en í fæði hjá þeim var Sveinn, bróðir Guðmundar, elsti maður hússins, sem nú er að verða 98 ára gamall. Hún átti oft síðan eftir að koma niður til okkar með hitareikning- inn, þessi bjartleita kona, en aldrei þótti okkur það leiðinleg heim- sókn, miklu fremur eins og okkur hefði í hvert skipti verið færð blóm, því Sigríður staldraði að jafnaði dálítið við, og skein af henni hýran, þegar hún talaði, og var bæði greindarleg og skemmti- leg. Dóttir okkar, sem þá var sex ára gömul, fann það undireins ekkr síður en við hjónin, að frá þessari konu stafaði birtu og hlýleik. Hún laðaðist því fljótlega að henni og fór að venja komur sínar upp á efri hæðina til hennar, þar sem hún sat að jafnaði með prjónana sína, og ævinlega var litla stúlkan velkomin og gat verið eins lengi og henni þóknaðist hversu mikið sem hún talaði og hvernig sem henni datt í hug að vilja leika sér. Það var iðulega, ef illa lá á dóttur okkar og hún vissi ekki hvað hún ætti að taka sér fyrir hendur eða eitthvað ieiðinlegt hafði gerst eða eitthvað dapurlegt, að hún sagði: Má ég ekki fara upp til Sigríðar? Og það brást aldrei, að þegar litla stúlkan kom aftur frá Sigríði, hafði hún tekið gleði sína. Hún hafði í rauninni eignast nýja ömmu í húsinu, þolinmóða, hjarta- hlýja og skilningsríka ömmu, sem hún gat leitað til þegar þörfin knúði hana. Þarna sat þessi bjarta kona með reynslu áranna á herðum sér og stafaði frá sér elsku og friði, reynslu og gleði, en þrátt fyrir árin mörgu, var eins og hún gæti ekki orðið gömul, birta sálar- innar var alltaf jafn skær og yngdi hana upp, svo nú furðar okkur á því að hún skuli vera horfin okkur, þó hún væri í sannleika komin á níræðisaldur. Hún var fædd 20. júlí 1897 að Felli í Mýrdal. Foreldrar hennar voru Gísli Kjartansson prestur og kona hans Elín Guðbjörg Guðmundsdóttir frá Háeyri á Eyrarbakka. Faðir Sigríðar þjón- aði á ýmsum stöðum og stundaði um tíma skrifstofustörf í Reykja- vík. Þar var Sigríður á unglingsár- um sínum, en þegar hún var sextán ára og búin að stunda nám einn vetur í Kvennaskólanum, var faðir hennar beðinn að taka að sér prestskap austur á Sandfelli í Öræfum, og varð að ráði að húri færi með honum þangað, en móðir hennar var áfram í Reykjavík með önnur börn þeirra hjóna, og skyldi koma seinna austur að Sandfelli, sem þó ekki varð. Þar fyrir austan vötnin ströngu, undir ægishjálmi jökulsins, kynntist Sigríður ungum og gervi- legum manni, Gumundi Bjarna- syni, ættuðum frá Hofi í Öræfum, og felldu þau hugi saman. Þau giftu sig árið 1920 og hófu búskap þar austurfrá undir jöklunum, órafjarri höfuðjborginni, kvenna- skólanum og menntuninni, jöklar efra, sandar neðra, illvíg vötn að vestan, svo jafnvel spánska veikin komst ekki yfir þau tveimur árum áður, þegar hún lagði undir sig landið. En þessi afskekkta sveit bjó engu að síður yfir stórfenglegri fegurð í andstæðum gróðurs og hrikalegra jökla, stórfljóta og eyðisanda. Og á Skaftafelli í Öræf- um, þar sem þau hjónin bjuggu var hlýtt á sumrum, þegar tíð var góð. Var oft gestkvæmt á þeim bæ. Þarna bjuggu þau Sigríður og Guðmundur í mörg ár og eign- uðust mannvænlegar dætur. En hugur Sigríðar, sem sextán ára gömul hafði komið austur undir jöklana, hvarflaði oft til Reykja- víkur, þar sem hún hafði verið á unglingsárunum, og hún þráði alla tíð að komast þangað aftur. Og með því að búskapur var erfiður austur þar, varð að ráði í lok kreppunnar, að þau fluttust til Reykjavíkur árið 1939 og settust að í því húsi, þar sem ég sit nú og festi þessi orð á blað. Hér höfum við notið þess að umgangast greinda konu og skemmtilega, hýra og spaugsama, oft eins og brosandi og alvörugefna í senn, en þó umfram allt einlæga, svo sem vel kemur fram í fáeinum ljóðum sem ég sá eftir hana skömmu áður en hún dó, haglega gerð ljóð sem hún ekki flíkaði, ég hafði til dæmis ekki fyrr en þetta hugmynd um hagmælsku hennar. Hún var mjög söngelsk og lærði dálítið á orgel í æsku, en hafði ekki tækifæri til að halda því námi áfram, gat þó notið þess í ellinni að taka í orgel sem henni hafði verið gefið og heyra aðra leika á það. Þau hjónin Sigríður og Guðmundur eignuðust fjórar dætur. Þær voru Þuríður Elín, sem lést 1960, Katrín sem er gift Ragnari Kjartanssyni myndlistar- manni, Ragna Sigrún giftist Bjarna Runólfssyni stýrimanni, en missti hann 1961, og Theódóra er gift Ragnari Ólafssyni deildar- stjóra á Skattstofunni. Og við höfum kynnst fólkinu hennar Sigríðar. Og allt var það á sama veg, engu líkara en konan bjartleita, sem eitt sinn barði svo létt og hæversklega á hurðina hjá okkur, hafi geislað út frá sér þeim krafti mannúðar og hlýju sem hafi haft áhrif á allt umhverfis hana. Og þannig hafði hún einnig áhrif á okkur sem nú sendum henni þakk- ir yfir höfin breið, því ljósið sem áður blasti við okkur og skein á okkur, það lifir nú innra með okkur. Jón Óskar. Hinn 26. þ.m. andaðist frú Sigríður Gísladóttir, Ljósvallagötu 32 hér í bæ, eftir löng og erfið veikindi, Hún hafði þó oftast fótavist, þar til síðustu vikurnar á sjúkrahúsi. Eg heyrði hennar fyrst getið haustið 1920, þegar ég gerðist kennari við barnaskólann á Eyrar- bakka, lítt reyndur og öllum ókunnur þar. Atvikin höguðu því svo til, að ég kynntist þar einna fyrst frú Guðbjörgu Guðmunds- dóttur frá Háeyri og fjölskyldu hennar, en Sigríður var elst henn- ar barna og farin að heiman, þegar hér var komið sögu. Hún hafði farið með sr. Gísla föður sínum austur í Öræfi, sem síðar segir frá. En hér minnist ég þess, að ég heyrði fjölskylduna tala um þessa fjarlægu stúlku á sérstakan hátt, mér skildist með meiri ást og virðingu en almennt gerist um skyldmenni. Ég man, að mig lang- aði til að kynnast þessarri stúlku. Það varð líka mörgum árum seinna, því að hér mun minn eigin örlagavaldur hafa gripið í taum- ana. Hjá þessarri fjölskyldu kynntist ég systur frú Guðbjargar, Sólveigu, er síðar varð ástrík eiginkona mín og tryggur föru- nautur til hinstu stundar. Svo var lítill aldursmunur þeirra frænkna, Sigríðar og hennar, að þær voru nær því að vera systur en frænd- konur. Ég kynntist því Sigríði nokkrum árum seinna, þegar við bæði áttum orðið heima hér í bæ. Hún hefur því verið tryggðavinur minn um 40 ára skeið. Og eigi ég að lýsa Sigríði með einu orði, verður það svo, að elskulegri manneskju hefi ég ekki þekkt. Það er ótrúlegt, en satt, að ég hefi aldrei heyrt henni hallmælt. Ég mun nú reyna að segja sögu hennar í svo stuttu máli, sem unnt er, enda þótt ég finni vanmátt minn til þess. Sigríður var fædd að Felli í Mýrdal 20. júlí 1897, en faðir hennar, Gísli Kjartansson, var þá prestur Myrdalsþinga. Móðurfor- eldrar Sigríðar voru hjónin Guðmundur ísleifsson, óðalsbóndi og útgerðarmaður á Eyrarbakka og k.h. Sigríður Þorleifsdóttir, „ríka" á Stóru-Háeyri, en föður- foreldrar Kjartan Jónsson, prestur í Ytri-Skógum og Ragnhildur Gísladóttir, kona hans. Eru þetta Bergsveinn Ólafsson vélvirki — Minning Fæddur 23. febrúar 1951. Dáinn 22. janúar 1979. Guð leiði þig en likni mér, sem lengur má ei fylgja þér. En ég vil fá þér englavörð, mér innsta hjarta beenavörð. Guð leiði þig. (Matthfas Jochumsson þýddi). Bergsveinn Ólafsson var fæddur í Reykjavík 23/2 1951, sonur hjón- anna Ólafs Andréssonar járn- smiðs og Geirþrúðar Hjartardótt- ur og eru þau bæði látin. Geirþrúð- ur lést í júní 1974 og Ólafur lést í júní 1976. Bemmi, eins og hann var oftast kallaður af okkur ættingj- um hans, var yngstur af fimm börnum þeirra. Hin eru: Hrafn- hildur, fædd 3. maí 1937, gift Rósa J. Arnasyni, eiga þau fimm börn; Andrés vélstjóri, fæddur 16. marz 1940, kvæntur Kristbjörgu Helga- dóttur, eiga þau tvær dætur; Hjör- dís, fædd 1. ágúst 1941, gift Sigurði Kristjánssyni, eiga þau fjögur börn; og Eggert rafvirkjameistari, fæddur 1. desember 1942, kvæntur Þóru Gunnarsdóttur og eiga þau fimm börn. Bemmi ólst upp með foreldrum sínum á Nesvegi 46 til 24 ára alduís. Þar bjó einnig Hrafnhildur systir hans og fjölskylda hennar. Mikil breyting varð á högum Bemma þegar hann missti móður sína og föður sinn tveim árum seinna, en þeir voru mjög sam- rýndir. Þar við bættist að hann fluttist í annan borgarhluta. Bemmi vann um langt skeið í Vélsmiðjunni Héðni og lærði hann þar einnig vélvirkjun. Bemmi var í eðli sínu mjög góður maður, glaður og rólegur og vildi öllum hjálpa, sem til hans leituðu og það gerðum við systur- börn hans oft. Við þökkum honum fyrir ógleymanlegt ferðalag til Vestfjarða síðastliðið sumar. Þeg- ar hann kom til okkar á jóladag, hress og kátur að vanda þá grun- aði okkur ekki að þetta yrðu síðustu jólin hans í lifandi lífi. Það er erfitt að hugsa sér að hann skuli vera farinn svona snögglega, að- eins 27 ára gamall. kunnar ættir, sem ekki verða raktar hér. Sigríður ólst upp hjá foreldrum sínum, fyrst á Felli og síðan í Reykjavík, þegar faðir hennar varð að láta af embætti sökum heilsubrests 1903 og fluttist til Reykjavíkur. En árið 1905 fluttist fjölskyldan að Stað í Grunnavík til sr. Kjartans Kjartanssonar, bróður sr. Gísla. Var hann aðstoðarprestur bróður síns næstu 4 árin. Síðan fluttust þau hjón aftur til Rvíkur með börn sín og vann sr. Gísli þá skrifstofustörf í nokkur ár, því að hann var fjöl- hæfur verkamaður, glæsimenni í sjón og þótti ágætis prestur, þegar hann naut sín vegna veikindanna. Og alltaf þráði hann preststarfið. Svo skipaðist nú til um heilsufar hans, að honum var veitt Sand- fellsprestakall í Öræfum 1912 og var hann skipaður þar 1913. Þá höfðu þau frú Guðbjörg eignast 10 börn, hvar af 6 voru á lífi, það yngsta fætt 1913. Það þótti því ekki ráðlegt að flytja fjölskylduna alla þessa leið í einangraða og fjarlæga sveit. Þá varð það að ráði, að elsta dóttirin, Sigríður, flytti með föður sínum austur og gerðist ráðskona hans. Hún hafði þá verið við nám í Kvennaskóla Rvíkur og tekið þaðán próf með mjög hárri einkunn, því að hún var skarp- greind og námfús. En hér skipti sköpum í ævi hennar. Hún varð áfrám verndar- vættur hins veika föður síns, því að heilsu hans hrakaði svo aftur, að honum var veitt lausn frá embætti 5. maí 1916. Fjölskylda hans komst því aldrei austur í Öræfi, en dvaldi í Reykjavík og á Eyrarbakka þessi og næstu ár... Hins vegar varð hlutverk Sigríðar eins og flestra annarra myndar- kvenna að hún giftist árið 1920 góðum og gjörvulegum manni, Guðmundi Bjarnasyni í Skafta- felli. Hann var einn 5 bræðra, er En vitum, þar sem virðist fölnað allt. ok visin lauf og dálnn sumarljómi og vonlauN auðn og ömurlega kalt er undirbúið naeata vor ok blómi. (Þórlr Berg88on). Sagt er að þeir sem guðirnir elska deyi ungir. Við huggum okkur við að þeir sem kynntust honum muni eiga um hann góðar minningar. Guð leiði hann yfir móðuna miklu. Með þökk fyrir allt og allt. Fjölskyldan Nesvegi 46. bjuggu þar félagsbúi með móður sinni„ Þuríði Runólfsdóttur, er þótti skörungskona að allri gerð. Nú fluttist Sigríður á þetta heimili með föður sinn veikan. Naut hann þar hinnar bestu aðhlynningar hjá ágætri dóttur sinni og tengdafólki hennar, og þar dó hann 12. sept 1921. En svo við höldum áfram sögu ungu hjónanna, þá bjuggu þau þarna í sambýlinu til ársins 1939, að þau fluttust til Reykjavíkur og bjuggu sjálfstætt úr því. Ekki þarf mikla glöggskyggni til að sjá, að þessi ár hafa verið erfið fyrir unga konu, sem átti orðið 4 börn. Allir vita að þriðji og þó einkum fjórði áratugur aldarinnar ver erfiður íslenskum bændum. Auk þess var Öræfasveitin algjör- lega einangruð af stórvötnum. O þótt fagurt sé í Skaftafelli, er ég ekki viss um, að gott sé að búa þar. Að minnsta kosti þarf þar mikinn mannafla til smalamennsku og selveiða, og illt er að gera jarðar- bætur í grennd við bæina. Unga konan í Skaftafelli komst aldrei í heimsókn til fjölskyldu sinnar þessi ár, en hafði stöðugt samband við hana. Elsti bróðir hennar dvaldi eystra um tíma og fyrir kom, að önnur eldri systkini komu í heimsókn. Það voru sólskinsdagar í lífi Sigríðar. Ein aðalástæða til þess að þau hjónin fluttu frá Skaftafelli var auðvitað löngunin til þess að veita börnum sínum betra tækifæri til lærdóms og þroska en unnt var að veita í innilokaðri sveit. Enda tókst þeim það með dugnaði og framsýni, enda þótt hér verði ekki talað um skólagöngu hvers og eins þeirra. En hins verður að geta, að Guðmundur fékk strax góða atvinnu hér í bæ og hefur unnið eins og víkingur, enda létu kona og börn ekki sitt eftir liggja. Það varð þeim happ að eignast húsið á Ljósvallagötu 32, þar sem fjölskyldan hefur nú haft aðsetur um árabil. Hér skulu nú talin börn þeirra Sigríðar og Guðmundar í aldurs- röð: 1. Þuríður Elín. Var heilsulaus mestan hluta ævinnar og á fram- færi foreldra sinna. Hún aldaðist 1959. 2. Katrín, húsfreyja hér í bæ, gift Ragnari Kjartanssyni mynd- höggvara. Þau eiga 4 börn. Hún er einnig fulltrúi í Útvegsbanka íslands. 3. Ragna Sigrún, starfsmaður röntgendeildar Landspítalans. Hún var gift Bjarna Runólfssyni skipstjóra frá Höfn í Hornafirði, en hann fórst með vélskipinu Helga árið 1961. Þau áttu 5 börn. Hið elsta dó í frumbernsku. 4 eru á lífi. 4. Theodóra, húsfrú, gift Ragn- ari Ólafssyni deildarstjóra hjá Skattstofu Reykjavíkur. Börn þeirra eru þrjú. Barnabarnabörn Sigríðar eru orðin 11. Allir afkomendur þeirra hjóna eru hið myndarlegasta fólk og góðir borgarar, þau, sem fullvaxta eru. Nöfn þeirra nefni ég ekki hér, vil þó ekki láta þess ógetið, að eitt barnabarnið er þjóðkunnur leikari og leikrita- höfundur, en annar þjónandi prestur. Öllu þessu fólki þjónaði hin látna með ást og umhyggju, sem mamma og amma og naut í staðinn einlægrar velvildar þeirrar og virðingar, svo og tengdabarna sinna. Þegar litið er yfir æviferil hinnar látnu vinkonu minnar verður ekki sagt að hún hafi baðað í rósum hin fyrri ár ævinnar. Hún naut að vísu uppeldis ágætra foreldra og nokkurrar skólagöngu ásamt því að dveljast með ágætum systkinahópi. En veikindi vörpuðu dimmum skugga á bernsku henn- ar. Síðar tókst hún sem fyrr segir á hendur þá miklu ábyrgð vegna fjölskyldu sinnar að annast föður sinn veikan árum saraan, enda naut hún einstakrar ástar og virðingar fjölskyldu sinnar alla tíð ... Sjálf kvartaði hún aldrei og ætlaðist ekki til nokkurra launa. Svo vel var hún af guði gerð. Þegar til hjúskapar og barna- uppeldis kom átti hún aftur styrk hjá sínum ágæta manni, sem var hennar stoð og stytta. Þau unnu

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.